Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Síða 28
40
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Fréttir
Aftur sólskin í
Seyðisfirði
Pétur Kristjánssan, DV, Seyðisfirði;
Nú gleðjast menn yfir því að sólin
er aftur farin að skína á kaupstaðinn
í botni fjarðarins. Mér hefur verið
sagt að 18. febrúar sé hinn „opin-
beri“ sólardagm- en mismunandi er
hvenær menn sjá til sólar eftir því
hvar þeir eru staddir í bænum.
Sólarsýn er fagnað. Konur úr
íþróttafélaginu Viljanum fóru sína
árlegu ferð með sólarpönnukökur
um bæhm. Að sögn Sólveigar Svav-
arsdóttiu- hafa Viljakonur bakað og
selt sólarpönnukökur árlega síðan
1985. Áður höfðu konur bakað bollur
og látið ágóðann renna til Vonar-
lands en breytt yfir 1 pönnukökur
eftir að bakari fór aftur að starfa
hér. Jón bakari og Sara kona hans
höfðu líka í nógu að snúast því þau
bökuðu um 1300 bollur fyrir bollu-
daginn.
Samkomur voru haldnar á sunnu-
dag. Handknattleiksdeild Hugins var
með kor.udagskaffi í Herðubreið og
sólarkaffi var á boðstólum í kaffistof-
unni við Lónið. í Herðubreið voru
íþróttamenn ársins heiðraðir, Einar
Þór Halldórsson í yngri flokki en
Hjörtur Unnarsson 1 eldri flokki.
Síöast sást til sólar í Seyðisfirði
lokavikuna í október 1992.
Ormalaus f iskur
úr Barentshaf i
Guðfinnur Fmubogaaon, DV, Hólmavflc
Línuveiðum stærri báta frá HólYna-
vík lauk fyrir nokkrum dögum. Afli
var oft þokkalegur en gæftir stopular
vegna ótíðar, sérstaklega viðraði illa
til sjósóknar í desember.
Minnihluti þess afla sem barst að
landi kom til vinnslu á staðnum.
Nokkuð var flutt á markað syðra en
meirihlutinn þó fluttur til Sauðár-
króks til vinnslu þar. Með sömu
flutningatækjum og fluttu fisk
Hólmavíkurbáta austur kom oft svo-
nefndur Rússafiskur úr Barentshafi
sem unninn hefur verið í hraðfrysti-
húsi kaupfélagsins. Hann hefur þann
mikla kost að vera alveg ormalaus.
Tveir línubátar frá Drangsnesi eru
enn á veiðum. Reytingsafli hefur ver-
ið - um 70-80 kíló á bala. Það þreng-
ir kost hnubáta að stórum hluta
Húnaflóans hefur verið lokað fyrir
línuveiðum til marsloka.
HEF OPNAÐ SÁLFRÆÐISTOFU
AÐ HAMRABORG11.
-SÁLFRÆÐILEG RÁÐGJÖFFYRIR EINSTAKLINGA
OG FJÖLSKYLDUR-
- ÞROSKAMAT Á BÖRNUM - FORELDR ARÁÐG JÖF -
Tímapantanir alla virka daga kl. 9-17
Stofusímar: 64 12 05 og 64 1169.
EINARINGI MAGNÚSSON
SÁLFRÆÐINGUR
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, 3. hæð, sem hér seg-
ir, á eftirfarandi eignum:
Fífusel 24, hluti, þingl. eig. Kristján.
Auðunsson, geiðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður ríkisins, Gjaldheimtan í
Reykjavík og Lífeyrissj. verslunar-
manna, 1. mars 1993 kl. 10.00.
Möðrufell 3, hluti, þingl. eig. Predrag
Dokic, gerðarbeiðandi Kristín Kjart-
ansdóttir, 1. mars 1993 kl. 10.00.
Óðinsgata 18C, hluti, þingl. eig. Stein-
grímur Benediktsson, gerðarbeiðandi
Bergur Oliversson hdl., 1. mars 1993
kL 10.00,__________________________
Skipholt 42, hluti, þingl. eig. Guðiún
Guðlaugsdóttir, gerðarbeiðandi Ár-
sæll Hannesson, 1. mars 1993 kl. 10.00.
Skólavörðustígur 45, þingl. eig. Leifur
Einksson hf., gerðarbeiðendur Borg-
arljós hf., Búnaðarbanki íslands,
Ferðamálasjóður, Gjaldheimtan í
Reykjavík, Lífeyrissjóður Austur-
lands, Lífeyrissjóður Hlífar og Framt.,
Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna, Pall-
ar hf., Ríkisútvarpið, Verslunin
Brynja og Vélsmiðja Hafnarfjarðar,
1. mars 1993 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Bláhamrar 2, íb. 0603, þingl. eig. Guð-
mundur Pétursson og Knstjana
Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður verkamanna, Bún-
aðarbanki íslands, Gjaldheimtan í
Reykjavík, Hitaveita Reykjavíkur,
Húsfél. Bláhamrar 2-4 og SPRON, 1.
mars 1993 kl. 15.00.
Fífusel 30, 1. hæð hægri, þingl. eig.
Guðný Gunnarsdóttir, gerðarbeiðend-
ur Byggingarsjóður rílusins og Lífeyr-
issj. Sóknar, 1. mars 1993 kl. 15.30.
Frostafold 12, íb. 01-02, þingl. eig.
Þorteinn S. Benediktsson og Petrea
Richardsdóttir, gerðarbeiðendur Val-
garður Stefansson hf. og íslandsbanki
hf., 1. mars 1993 kl. 16.00.
Gyðufell 8, íb. 0202, þingl. eig. Auður
Ásgeirsdóttir, gerðarbeiðandi Spari-
sjóður Hafiiarfjarðar, 1. mars 1993 kl.
16.30. ___________________________
Krosshamrar 2, þingl. eig. Björgúlfur
Kristinsson, gerðarbeiðandi Gjald-
heimtan í Reykjavík, 1. mars 1993 kl.
14.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Sviösljós
Svanhvít Guðmundsdóttir í léttri
sveiflu. DV-myndir GVA
Stelpurnar láta það ekkert á sig fá þótt stundum vanti herra og undir þeim
kringumstæðum dansa þær bara saman.
íslandsmótið í sam-
kvæmisdönsum
Dansráð íslands stóð fyrir íslands-
móti í samkvæmisdönsum með
frjálsri aðferð í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði um síðustu helgi. Dansarar í
flokkum 12-13 ára og 14-15 ára
reyndu með sér í 8 dönsum en kepp-
endur í flokkum 16-18 ára, 19 ára og
eldri og atvinnumenn spreyttu sig í
10 dönsum.
Dómarar voru héðan og frá Eng-
landi, Danmörku og Noregi.
Benedikt Einarsson stýrði Berglindi Ingvarsdóttur um
dansgólflð.
Foreldrarnir fylgdust grannt með gangi mála og hér eru
það Einar Sveinsson og Hjörtur Hjartarson (fjær) sem
athafna sig með upptökutæki en þeir tóku dansspor
bama sinna upp á myndband.
Fögnuður í Óperunni
Þorgeir J. Andrésson, Signý Sæmundsdóttir, Bergþór Pálsson, Jóhanna Linnet og Sigurður Björnsson höfðu
ástæðu til að gleðjast i Óperunni um siðustu helgi. Þau koma öll við.sögu i Sardasfurstaynjunni sem var frumsýnd
þar um síðustu helgi en undirtektir frumsýningargesta voru sérlega góðar. DV-mynd GVA