Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
Neytendur
Boðuð verðlækkun á hinum ýmsu landbúnaðarvörum hefur enn ekki skilað sér í helstu stórmarkaðina en búast má við að úr því rætist á næstu dögum.
DV kannar verðlækkun á landbúnaðarvörum:
DV-mynd JAK
Brauðostur lækkar
um rúmlega 8%
- margar verslanir enn með gamla veróið
Að þessu sinni kynnti neytenda-
síða DV sér verð á þeim landbúnað-
arafurðum sem lækkuðu í samræmi
við nýafstaðna kjarasamninga. Borið
var saman uppgefið verð frá Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins, Osta-
og smjörsölunni og Mjólkursamsöl-
unni við verðið í verslunum. Mis-
munurinn sést í töflunni hér á síö-
unni. Tækifærið var einnig notað til
aö gera verðsamanburð á þessum
vörutegundum á milli verslana.
Farið var í Fjarðarkaup í Hafnar-
firði, Hagkaup í Skeifunni, Bónus í
Skútuvogi og Miklagarð við Sund.
Könnunin fór fram um hádegisbilið
í gær og í ljós kom að flestar verslan-
irnar voru enn með gamla verðið í
gangi en búist var við að lækkunin
tæki gildi á næstu dögum þegar nýjar
birgðir kæmu inn.
Á meðal algengra vörutegunda,
sem litið var á, var kíló af eggjum,
400 g skyraskja, 1 peli rjómi, 26% og
17% ostur, Camembert, kaflijógúrt
og kílóverð á nautagúllasi. Það skal
tekið fram að frjáls álagning er á
Camembert-osti og eggjum svo aö
uppgefið verð fyrir og eftir lækkun í
töflunni hér á síðunni er verðið sem
greitt er til framleiðenda.
40% verðmunur á nautagúll-
asi
Mestur verðmunur reyndist vera á
hæsta og lægsta verði á nautagúllasi
úr 1. flokks nautakjöti en uppgefið
kilóverð er 1162 krónur eftir lækkun.
Hagkaup var með hæsta verðið,
1339 krónur kílóið, og Bónus með það
lægsta, 959 krónur kílóið, sem veittur
er 10% afsláttur af við kassann. Verð-
munurinn er því 40%.
Tiu prósent verðmunur var á
hæsta og lægsta kílóverði af eggjum
en þau reyndust flest vera sitt frá
hvorum framleiðandanum. Eggin
voru dýrust í Hagkaupi, Fjarðar-
kaupi og í Miklagarði, 369 krónur
kílóiö, en ódýrust í Bónusi, 335 krón-
ur kílóið, auk þess sem þar er veittur
5% afsláttur við kassann.
Frjáls álagning á Camembert
Hjá Osta- og smjörsölunni fengust
þær upplýsingar að flestar verslanir
væru með 18-20% álagningu á Cam-
embert-osti en á honum er fijáls
álagning. Verðmunur á milh versl-
ana reyndist vera 21%, hæsta verðið
var hjá Fjarðarkaupi og Hagkaupi,
253, en þaö lægsta hjá Bónusi, 209
krónur.
Verð á brauðosti lækkar að meöal-
tali um 8-8,4% til neytenda. Verðið á
26% brauðosti lækkaði um 67 krón-
ur, úr 799 krónur kílóið í 732 en verð-
munur á honum reyndist þó 9% á
milli verslana. Þar kom til að Bónus
var eina verslunin sem hafði nýtt sér
lækkunina og seldi kílóið á 732 krón-
ur á meðan hinar voru með gamla
verðið, 799. Reyndar býöur Mikli-
garður upp á sparnaðarpakkningar
frá Osta- og smjörsölunni sem seldar
eru með 15% afslætti á meðan birgð-
ir endast.
Gauda-ostur, 17%, lækkaöi úr 646
krónum kílóiö í 592 og var seldur á
gamla verðinu í öllum verslununum
nema Bónusi. Þar var boðiö upp á
nýja verðið en þaö er 592 krónur kíló-
ið.
Peli af rjóma lækkar
Pelinn af rjóma lækkaði um tólf
krónur, úr 148 í 136. Verðmunur þar
reyndist þó vera 13% á milli versl-
ana. Hagkaup var með hæsta verðið,
148 krónur pelann, en Bónus með
lægsta verðið, 131 krónu pelann.
Að meðaltali lækkaði jógúrtdósin
um 4 krónur. Kaöijógúrt fór úr 46
krónum fyrir lækkun í 42 krónur
Vörufl. till.júní frál.júni Fjkaup Hagk. Bónus Miklig.
Peli rjóml WW 148 136 133 148 131 136
Kg egg 2603) 2453) 369 369 335’) 369
17%Goudaostur 646 592 646 646 592’) 646
26% brauðostur 799 732 799 799 122') 799
Camembert 2103) 193 >) 253 253 209 242
Kaffijógúrt 46 42 38 46 40 42
Skyr,400g 64 59 57 64 56 59
Nautagúlias 1198 1162 1050 1339 9592) 1198
') 5% ^1- viö kassann. 2) 10% afsl. við kassann.3) Verð til framleiðanda, fijáls álagn. í versl.
eftir lækkun en hún var seld á lægsta
veröinu í Fjarðarkaupum, 38, og
hæsta verðinu í Hagkaupi, 46 krónur
dósin.
Verð á 400 g skyröskju lækkaði um
fimm krónur, úr 64 krónum í 59. Þar
var 14% verðmunur á milli verslana.
Hagkaup seldi hana á 64 krónur en
Bónus á 56 krónur sem var lægsta
verðið.
-ingo
1.339 kr.
3
«j
!JS
o>
o
io
5Z
959 kr.
w
3
C
'O
ffl
Hæst
Lægst
253 kr.
a
3
>
•£ 3
to (0
<o
»= co
.Í2.«
u-X
209 kr.
tf>
3
C
'O
ffl
Hæst Lægst