Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 41 Afmæli Hilmar Ingólfsson Hilmar Bjarni Ingólfsson skóla- stjóri, Hagaflöt 18, Garðabæ, er fimmtugurídag. Starfsferill Hilmar fæddist í Reykjavík. Hann lauk kennaraprófi frá KÍ1966 og stúdentsprófi frá sama skóla 1969. Hann var í náms- og kynnisdvöl í Vínarborg 1983, stundaði kennara- námskeið árlega 1975-85 og hefur sótt ýmis önnur námskeið á vegum KÍogKHÍ. Hilmar var kennari í Garðabæ 1966-80 og hefur veriö skólastjóri Hofsstaðaskóla í Garðabæ frá 1980. Hilmar var formaður Félags fram- haldsskólakennara á Reykjanesi 1969-73, sat í stjóm Landssambands framhaldsskólakennara 1970-80 og Kennarasambands íslands 1980-83, var fulltrúi á þingum LSFK1967-79 og KÍ frá 1980, var ritstjóri félags- blaðs LSFK1975-79, sat í fræðslu- ráði Reykjaness 1974—91, í endur- menntunarnefnd KHÍ1978-86, í námskeiöastjórn Norrænu kenn- arasamtakanna 1976-85, í stjórn fé- lagamiðstöðvarinnar og samninga- nefndar LSFK og BSRB um tíu ára skeið, í skólanefnd Garðabæjar 1972-78, í skólamálaráði KÍ1980-84, formaður kjaradeilusjóðs KÍ 1985-91, í hreppsnefnd Garðahrepps 1974-77, bæjarfulltrúi í Garðabæ 1977-90 og varabæjarfulltrúi frá 1990, í bæjarráði 1977-79,1981-1982, 1982-84 og 1988-89, var varafulltrúi í skipulagsnefnd 1974-90, í bygging- arnefnd íþróttamannvirkja í Garðabæ 1988-89, íbyggingamefnd nýs grunnskóla 1990, í byggingar- nefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ 1990, í hafnarnefnd frá 1982, fulitrúi menntamálaráðherra í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ 1989-92, fulltrúi fjármálaráðherra í Innkaupastofnun ríkisins 1990-92, varafulltrúi í húsnæðisnefnd frá 1990, fulltrúi á þingum Sambands íslenskra sveitafélaga 1974-86 og í varastjórn Sambands sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 1977, í kjör- dæmisráði Alþýðubandalagsins á Reykjanesi frá 1974 og formaður þess 1976-78 og 1984-86, í miðstjórn Alþýðubandalagsins og verkalýðs- málaráði 1975-86, í framkvæmda- stjórn Alþýöubandalagsins 1981-85 og í fjármálaráöi þess í nokkur ár, í stjórn útgáfufélags Þjóðviljans í eitt ár og formaður Miðgarðs í nokk- ur ár, formaður kosningastjórnar Alþýðubandalagsins á Reykjanesi viö alþingiskosningarnar 1991 ogá framboðslista við kosningarnar 1987. Fjölskylda Hilmar kvæntist 17.6.1990 Hug- rúnu Jóhannesdóttur, f. 21.11.1959, háskólanema. Hún er dóttir Jó- hannesar Jóhannessonar, bónda í Ólafsfirði, og Fjólu Björgvinsdóttur, bókavarðar og starfsmanns við leik- skóla í Ólafsvík. Synir Hilmars og Hugrúnar eru Hilmar Bjarni, f. 21.9.1989, og Hjalti, f. 6.6.1992. Dóttir Hilmars og fyrri konu hans, Eddu Snorradóttur kennara, er Hildur, f. 28.10.1964, starfsmaður Stöðvar2. Dóttir Hilmars og Rannveigar Laxdal íþróttakennara er Hildi- gunnur, f. 8.10.1962, íþróttakennari. Hálfbróðir Hilmars, sammæðra, erErhngAðalsteinsson, f. 27.6.1939, kaupmaður á Akureyri, kvæntur Ragnheiði Jónsdóttur bankastarfs- manni. Hilmar Bjarni Ingólfsson Albróðir Hilmars er Pétur Ingólfs- son, f. 4.10.1946, verkfræðingur, kvæntur Nönnu Aradóttur, við- skiptafræðingi hjá Ríkisendurskoð- un. Foreldrar Hilmars: Ingólfur Pét- ursson, f. 21.12.1906, verkstjóri í Undirtúni í Saurbæ í Dalasýslu, og Sæbjörg Jónasdóttir, f. 29.8.1915, húsfreyja. Hilmar verður aö heiman á af- mælisdaginn. Unnur Halldórsdóttir • r r Unnur Halldórsdóttir, formaður landssamtakanna Heimih og skóh, til heimilis að Urðarbakka 14, Reykjavík, veröur fertug í dag. Starfsferill Unnur fæddist í Reykjavík en barns- skónum sleit hún á Seltjarnarnesi. Bamafræðslu sótti hún í Mýrar- húsaskóla en tók landspróf frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1969. Stúdentsprófi lauk Unnur af mála- deild MR1972 en hóf búskap að því loknu. Unnur gerðist bóndi á Minni-Borg í Grímsnesi til 1979 og aftur á árunum 1983-87. Jafnframt var hún um tíma símstöðvarstjóri við símstöðina á Minni-Borg. Unnur dvaldist í Svíþjóð um nokk- urra ára skeið, 1979-1983. Hún tók próf fráHáskólanum í Lundi í bók- menntum og uppeldis- og kennslu- fræðum 1983. Hún kenndi við Ljósa- fossskóla 1976 og aftur 1983-87. Þá starfaði Unnur við Rauða kross hús- iðum tíma. Unnur hefur verið starfandi for- maður landssamtaka foreldra bama í grunnskólum, Heimih og skóla, frá stofnun þeirra í sept. 1992. Unnur gegndi formennsku hjá ungmennafélaginu Hvöt 1973-77. Hún hefur starfað fyrir foreldrafé- lag Breiðholtsskóla sem og samband foreldrafélaga, Samfok. Formaður Samfoks hefur hún verið síðastliðin þrjú ár. Þá hefur Unnur haft umsjón með afmæhsritum, fyrir UMF Hvöt 1978 og Ljósafossskóla 1986. Fjölskylda Unnur giftist 9.1.1972 Hirti Björg- vini Árnasyni, f. 4.5.1952, sölumanni hjá Skeljungi. Hann er sonur Árna Jónssonar, fyrrv. starfsmanns á Rannsóknastofnun fiskiðnaöarins, og Sveinsínu I. Hjartardóttur hús- móður, Reykjavík. Unnur og Hjörtur eiga fjögur börn. Þau eru: Ingibjörg Lára, f. 26.6.1972, þjónn; Halldór, f. 19.6.1974, starfs- maður Skeljungs; Sigrún, f. 14.11. 1976, nemi í VÍ, og Árni, f. 31.12. 1979, grunnskólanemi. Systkini Unnar eru: Stefán Ath, f. 21.12.1949, framkvæmdastj., giftur Lilju Jónasdóttur hjúkrunarfræð- ingi og eiga þau þrjú börn; Halldór, f. 18.3.1963, og á hann eitt barn með Huldu Þráinsdóttur en sambýlis- kona Halldórs er Magnea Steinunn Ingimundardóttir. Foreldrar Unnar eru Hahdór Jó- hann Einarsson, f. 2.7.1927, fyrrv. kennari og starfsm. Volvo í Gauta- borg, og Sigrún Ólöf Stefánsdóttir, f. 9.8.1931. Voru þau lengst af til heimihs að Miðbraut 8, Seltjarnar- Unnur Halldórsdóttir nesi en hafa búið í Gautaborg í Sví- þjóðfrál977. Ætt Halldór er sonur Einars, b. í Eyjum í Breiðadal, Björnssonar og konu hans, Katrínar Björnsdóttur. Sigrún er dóttir Stefáns, b. og odd- vita á Minni-Borg, Diðrikssonar og Ragnheiðar Böðvarsdóttur, konu hans. Unnur tekur á móti gestum í Ell- iðaárdalnum frá kl. 17.00. Eru þeir beðnir að hafa með sér pylsur á grillið. Gunnar Konráðsson Gunnar Konráðsson bifreiðarstjóri, Garðsvegi 13, Hvammstanga, verð- ur fimmtugurídag. Starfsferill Gunnar er fæddur og uppahnn í Reykjavik. Hann tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskólanum við Hring- braut. Bifvélavirkjun nam hann að því loknu við Iðnskólann í Rvk og hjá Ræsi hf. 1961-65 þar sem hann starfaði eitt ár eftir það. Gunnar fluttist til Hvammstanga 1961 og ók olíubíl um tíma. Þá starf- aði hann að mjólkurflutningum í nokkur ár á þjónustusvæði Mjólk- ursamlags V-Húnavatnssýslu. Frá 1973 hefur Gunnar ekið flutningabíl fyrir Kaupfélag V-Húnavatnssýslu. Gunnar átti sæti í stjórn Hvamms- tangadeildar Rauða kross íslands til 1979. Hann hefur ennfremur setið sem formaður dehdarinnar frá 1981. Síðasthðin ár hefur Gunnar jafn- framt átt sæti í stjóm verkalýðs- félagsins Hvatar en í því hefur hann verið félagi um árabU. Fjölskylda Gunnar kvæntist 3.6.1966 Agnesi Magnúsdóttur, f. 23.6.1947, sauma- konu. Hún er dóttir Magnúsar Gunnlaugssonar, b. á Efri-Torfu- stöðum í Miðfirði, og Selmu Jóns- dóttur húsmóður, Meðalvegi 17, Hvammstanga. Börn Gunnars og Agnesar eru íjögur. Þau eru: Sigurbjörg, f. 3.9. 1963, verslunarmaður í Hafnarfirði, gift Guðmundi Arnarsyni bifreiðar- stjóra og eiga þau tvö börn; Gunn- laugur S., f. 7.5.1967, rafeindavirki í Reykjavík, kvæntur Petreu Frið- riksdóttur, starfsmanni Pósts og síma, og eiga þau tvö börn; Svandís Huld, f. 2.6.1970, sjúkrahöi í Reykja- vík; Guðrún Berglind, f. 21.8.1972, nemi í FB, Reykjavík. Alsystkini Gunnars em: Óskar, f. 12.5.1945, rafvirki í Reykjavík; Haukur, f. 14.12.1949, og Kjartan, f. 16.11.1955, kerfisfræðingur í Reykjavík. Hálfsystkini Gunnars, samfeðra, eru: Inngólfur, f. 12.12.1914, d. 20.3. 1978, b. Vöglum í Vatnsdal; Eggert Ágúst, f. 13.7.1920, b. Kistu, Vestur- hópi; Jón, f. 17.10.1923, b. í Lækjar- hvammi í V.-Húnavatnssýslu; Lár- us, f. 1.12.1928, b. á Brúsastöðum í Gunnar Konráðsson Vatnsdal; Ragnheiður, f. 21.9.1932, húsmóðir, Gröf í Víðidal. Gunnar er sonur Konráðs verka- manns Jónssonar, f. 13.10.1891, d. 19.8.1974, ogSigurbjargar J. Sigur- jónsdóttur, f. 27.9.1917, húsmóður. Gunnar tekur á móti gestum í Félagsheimilinu á Hvammstanga, laugardaginn 5. júní frá kl. 20.00 til 23.00. FriiJrik Dungal, Grandavegi 47, Reykjavík. 80 ára Ida Jensen, Gaukshólum 2, Reykjavik. Oddný Helgadóttir, Ökrúm I, Mosfehsbæ. Olga Sigurðardóttir, Hringbraut 50, Reykjavik. Ásthildur Magnúsdóttir, Tjaldanesi II, Saurbæjarhreppi. Halidóra Henriksdóttir, Tannastöðum, Ölfushreppi. HreiðarStefánsson, kennari og rithöfundur, Austurströnd 8, Seltjarnamesi. Hreiðar dvelur nú á sjúkrahúsi. Ólafur B. Þorbjörnsson, Surmugerði 7, Reyöarfirði. Kári Halldórsson, Barðaströnd 6, Seltjamarnesi. Sclveig Jónsdól l ir. Aragötu 7, Reykjavík. Maria Rebekka Gunnarsdóttir, Stórholti 27, Reykjavik. Vigfús Magnússon, Stigahhð 42, Reykjavík. Gunnar Lúðviksson, Kleppsvegi 150, Reykjavík. Þórður Jóhannsson, Marbakka 4, Neskaupstað. Ólafur Kristjánsson, Vesturgötu 36, Keflavík. Guðbjörg Erlendsdóttir, Skúlagötu9, Borgamesi. Guðbjörg tekur á móti gestum að kvöldi afmæhsdagsins í Félagsbæ. 50ára Jóhann Levi Guðmundsson, Hjaltabakka 18, Reykjavik. GunnarÁsgeirsson, Kirkjubraut 30, Höfn í Hornafirði. PállFriðriksson, Höfðavegi 5, Húsavík. Olga Eide Pétursdóttir, ' Heiðarholti 34 C, Keflavík. Tryggvi Guðmundsson, Reykjafold 12, Reykjavík. Gylfi Ragnarsson, Hhðarvegi 40, Ólafsfirði. Sigurgeir Jónsson, Rauðási 16, Reykjavík. Ásta Pálina Ragnarsdóttir, Drekahlíð 8, Sauðárkróki. Dóra Ásgeirsdóttir, . Hraunkoti, Garðabæ. Marín Jónsdóttir, Böggvisbraut 9, Dalvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.