Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
Útlönd__________________
Ástkona
Allensí
eigin íbúð
Soon-Yi, hin tuttugu og tveggja
óra gamla kjördóttir Miu Farrow
og ástkona Woodys Allen, er nú
aö leita sér aö íbúö. Samkvæmt
frásögn lögfræðings leikstjórans
er Allen sáttur við hugmyndina.
Soon-Yi hefiir í vetur búiö á stúd-
entagaröi í New Jersey en eytt
helgum og fríum með Ailen.
Farrow komst aö aambandi Al-
lens og kiördóttur sinnar fyrir
rúmu ári þegar hún sá nektar-
myndir af henni í íbúð hans í New
York. í kjölfariö hófst hörð deila
miili Farrow og Allens um for-
ræöi yfir sameiginlegum kjör-
börnum þeirra og syni.
Winnie Nland-
elafærvæqari
refsingu
Winnie Mandela létti í gær þeg-
ar áfrýjunardómstóll i Suöur-
Afríku mildaði sex ára fangelsis-
dóm yfir henni vegna aðildar aö
mannráni og líkamsárás. Áfrýj-
unardómstóliinn staðfesti sekt
hennar í mannránsmálinu og
þarf Mandela að greiða um 300
þúsund króna sekt eöa sitja eitt
ár i fangelsi. Dómstóllinn sýknaði
hana hins vegar af aöild að lík-
amsárás.
Winnie Mandela var í maí 1991
dæmd í fimm ára fangelsi fyrir
aðild að mannráni og eins árs
fangelsi íyrir aöild að likamsárás
á fjóra unga blökkumenn á heim-
ih hennar. Mandela neitaði öllum
sakargiftum.
Smyglaði 7
kílóum af heró-
íni til Svíþjóðar
Smyglari frá Singapore hefur
veriö gripinn í Svíþjóð með 7 kíló
af heróíní. Sænskir tollverðir
höföu fengið upplýsingar frá
Moskvu um aö taska með heróíni
heíöi farið þar í gegn.
Á Arlandaflugvellinum við
Stokkhólm tók maður frá Singa-
pore töskuna af færibandi, fór
meö hana í gegnum tollinn og
hélt með rútu til miðborgarinnar.
Lögreglan eiti hann aö hóteli þar
sem tveir landar smyglarans áttu
fund með honum. AÍlir þrír voru
handteknir.
Færeyingar
fangarí
Múrmansk
Tveir Færeyingar, skipstjóri og
vélstjóri, haia í fimm daga verið
fangar í Múrmansk. Stjómendur
rússnesks útgerðarfélags hafa
tekið vegabréfin af Færeyingun-
um og neita að afhenda þau.
Svo virðist sem málið snúist um
misskilning og rof á samningi
milli rússneska útgerðarfélags-
ins og eigenda skipsins Thor
Trawi sem meðal annars Færey-
ingarnar tveir eiga. Samkvæmt
samningnum átti skipið, sem á
var bæöi rússnesk og færeysk
áhöfn, að veiöa hluta af kvóta
útgerðarfélagsins í Barentshafi.
Eftir fyrsta túrinn var aflinn seld-
ur í gegnum Færeyjar samkvæmt
samningnum. Síöan sneri skipið
aftur til Múrmansk þar sem það
var kyrrsett
Rússneska útgeröarfélagið
krefst þess nú aö fá aö sclja aflann
sjálft og að öll áhöfnin veröi rúss-
nesk. Félagiö hefur einnig skráð
skipiö í Rússlandi og gefið þvi
nýtt nafh. Eigendumir hafa þess
vegna tíikynnt um stuld á skip-
ÍPU- TT, Ritzau, Reuter
Fullur kassi af sprengiefni fannst í þessari Fiatbifreið í Róm. Símamynd Reuter
Rómaborg:
Sprengja f innst
í stolnum Fiat
- eftir handtöku mafíósa
Stórhættuleg bílasprengja fannst
skammt frá þinghúsinu í Róm á ítal-
íu í gær. Lögreglan fjarlægði fullan
kassa af sprengiefni og sprengiþráð-
um úr Fiatbifreið eftir aö lögreglu-
maður sem átti leið hjá hafði komið
auga á kassann í aftursæti bifreiðar-
innar.
Talið er að það hefði haft skelfileg-
ar afleiðingar ef sprengjan hefði náð
að springa. Fiatinum, sem var stolið,
hafði verið lagt hjá Via Del Corso, á
milli þinghússins og minnismerkis-
ins um óþekkta hermanninn á Piazza
Venezia þar sem Oscar Luigi Scalf-
aro, forseti Ítalíu, hafði fyrr um dag-
inn verið í fararbroddi hóps sem hélt
upp á að 47 ár voru liðin frá stofnun
ítalska lýðveldisins.
Það er kaldhæðni örlaganna að
skömmu eftir aö Scalfaro hafði sagt
erindrekum og yfirmönnum hersins
að „Ítalía kysi lýðræði og frið“ var
götirni lokað og lítið vélmenni á hjól-
um braust inn í Fiatinn. Að sögn
þeirra sem rannsökuðu sprengjuna
hefði kraftur hennar verið á við 20
kíló af dýnamíti.
Leiðtogar á Ítalíu höfðu fyrr um
daginn hrósað lögreglunni þar í landi
fyrir vel unnin störf eftir handtöku
mafiósans Guiseppe Pulvirenti.
Pulvirenti var handtekinn snemma
morguns í neðanjarðarbyrgi í húsi
nálægt Catania á Sikiley. Hann hafði
þá verið á flótta í 11 ár. Pulvirenti
var aðalleiðtogi mafíunnar á austur-
hluta Sikileyjar og einn af hættuleg-
ustu félögum hennar. Allt í allt eru
24 mafiósar enn í felum.
Forsætisráöherra Ítalíu, Carlo
Azeglio Ciampi, hét því að atburðir
gærdagsins myndu ekki hafa áhrif á
þá stefnu hans að hreinsa til og end-
urnýja stjómkerfi landsins sem allir
hafa misst trú á.
Reuter
Kosningamar 1 Kambódíu:
Konungssinnar sigurstranglegir
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hvatti í gær alla stjórnmálaflokka í
Kambódíu til að virða kosningaúr-
slitin. í gær virtist sem konungssinn-
ar hefðu tryggt sér sigur í fjölílokka-
kosningunum sem haldnar voru á
vegum Sameinuöu þjóðanna í síð-
ustu viku.
Stjómarflokkurinn hefur hótað að
hafna úrslitum kosninganna. Hefur
stjómin farið fram á að kosningar
verði haldnar aftur í fjórum mikil-
vægum hémðum þar sem allt hafi
ekki farið rétt fram en Sameinuðu
þjóðimar vísuöu þeirri kröfu á bug.
Þegar búiö var að telja nær 90 pró-
sent atkvæða höíðu konungssinnar
hlotiö 57 þingsæti en stjómarflokk-
urinn 52. Búddistaflokkur Son
Sanns, fyrrum forsætisráðherra,
hlaut 10 sæti og annar stjómarand-
stöðuflokkur eitt sæti. Bæði kon-
ungssinnar og fylgismenn Son Sanns
hafa stutt rauðu khmerana í áratuga-
löngu borgarastríði sem fylgdi í kjöl-
far innrásar Víetnama í Kambódíu.
Reuter
Reykingabann á matsölu-
stöðum í Los Angelesborg
Borgarstjóm Los Angelesborgar í
Kalifomíu í Bandaríkjunum sam-
þykkti til bráðabirgða í gær að banna
reykingar á öllum veitingastöðum
borgarinnar. Ef borgarstjórnin sam-
þykkir reglugerðina um reykinga-
bannið þegar það kemur til lokaat-
kvæðagreiðslu eftir viku verður Los
Angeles stærsta bandaríska borgin
sem bannar fólki að kveikja sér í síg-
arettu eða vindli á almennum mat-
sölustöðum.
Meirihluti borgarstjórnarinnar er
samþykkur banninu en þó er mjótt
á mununum, átta með og sjö á móti.
Fyrir ári var svipuð tillaga lögð fram
og hafði hún þá ekki nægt fylgi.
Bannið myndi ganga í gildi mánuði
eftir atkvæðagreiðsluna og undan-
þegin banninu yrðu krár, nætur-
klúbbar, dansstaðir og diskótek.
Reuter
Svo getur farið að reyklngar verði stranglega bannaðar á öllum veitingahús-
um Los Angeles-borgar. Simamynd Reuter
Barnfósfra myrti
tvöbörn
Bamfóstra híá sænskri flöl-
skyldu í Paris myrti í gærmorgun
tvö böm flölskyldunnar. Eldra
barnið var tveggja ára en það
yngra tiu mánaða. í gærkvöldi
var ekki ljóst hvers vegna
barnapían greip til þessa ódæöis-
verks en deilur höfðu veriö á
milli hennar og flölskyldunnar
ura peninga.
Bamfóstran er á sextugsaldri.
Sagt var frá morðunum í sænsk-
um sjónvarpsfféttum í gærkvöldi
en ekki var getið um þjóðemi
bamfóstrunnar.
Gatekki stöðv-
aðreykingar
dótturinnar
Dómstóll 1 Miinchen í Þýska-
landi hefur úrskurðað að ekki sé
hægt með lögum að banna móður
að reykja í návist barna sinna.
Þaö var móðuramma bamanna
sem lét reyna á máiið fyrir dóm-
stólum. Amman vill ekki að
barnabörnin, sem eru 14 ára og 4
ára, skaöist af óbeinum reyking-
um,
Skotbardagium
sveppi
Samkeppnin um dýrar villtar
matarsveppategundir er svo mik-
il í vesturhluta Bandarikjanna að
fyrir kemur að menn grípi til
vopna til að vernda sín svæöi.
Dauðsfail í Washingtonriki er
rakiö til sveppastríös. Hinn látni
hafði einnig verið rændur þeim
sveppum sem hann hafði náö að
tína.
Villtir sveppir eru tíndir til út-
flutnings til Evrópu og Japans,
Duglegur sveppatínslxunaöur
getur þénað frá 3 þúsund til 10
þúsund krónur á dag.
Á skógarsvæðum í vesturhluta
Bandaríkjanna ríkir mikiö at-
vinnuleysi vegna takmarkana
sem settar hafa veríð á skógar-
högg. Margir skógarhöggsmenn
reyna því aö hafa ofan af fyrir sér
með sveppatínslu. Flestir þeirra
fara vopnaðir í tínsluna.
McDonaldsfærir
útkvíarnarí
Moskvu
Hamborgarakeðjan McDonalds
hefur nú opnað nýjan stað í
Moskvu og brátt veröur sá þriöji
opnaður. Fyrsti McDonaldsstað-
urinn í Moskvu var opnaður 1990
og varð vinsælli en menn höföu
þorað aö vona. Boðið er upp á
sama vöruurval og annars staöar
en allar hrávörur eru framleidd-
ar í Rússlandi.
Verðið á tvöfóldum BigMac-
hamborgara er um 72 íslenskar
krónur eða svipaö og meðaldags-
laun venjulegs rússnesks laun-
Nýgeislameð-
ferðviðkrabba-
Á Rigshospitalet í Kaupmanna-
höfh hefur nú verið tekin upp ný
geislameðferð við krabbameins-
lækningar. Geislarnir eru sendir
beint til krabbameinsæxlisins án
þess að hætta sé á heilbrigöir
vefir umhverfis það skaðist.
Plastslöngmn eöa sprautunálum
er stungið í æxlið og í gegnrnn
þær eru geislamir sendir.
Til að byrja með verða það
sjúklingar með krabbamein i
endaþarmsopi, grindarhofi eöa
vélinda sem fá munu þessa nýja
meðferð.
TT, Ritzau, Reuter