Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1993, Page 11
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
11
Utlönd
Logregla aðstoðar konu sem varð fyrir steini er tyrkneskir mótmælendur í Hamborg köstuðu grjóti að lögreglu.
Símamynd Reuter
íkveikjan í Solingen:
Hinn grunaði
nágranni
fórnariambanna
Sorg ríkir í Þýskalandi í dag vegna
útfarar tyrknesku telpnanna og
kvennanna sem létu lífiö í Solingen
á laugardaginn er eldsprengju var
varpað inn á heimili þeirra. Tiltölu-
lega rólegt var í Solingen í gærkvöldi
en rétt eftir miönætti dreifði lögregl-
an hópi tyrkneskra ungmenna sem
vildu fara aöra leið á mótmælagöngu
sinni en lögreglan haföi bent á.
Til óeirða kom hins vegar í Ham-
borg fyrr um kvöldið. Tyrkneskir og
þýskir unglingar gengu berserks-
gang og lentu í átökum við lögreglu
eftir að friðsamlegri mótmælagöngu
nokkurra þúsunda var lokið. Fimm
manns særðust í átökunum og um
þrjátíu unglingar voru handteknir.
Minningarathöfninni í dag lýkur
við húsið í Solingen þar sem Tyríurn-
ir létu lífið. Skammt þar frá er heim-
ili unglingsins sem grunaður er um
íkveikjuna. Fjölskylda hans hefur í
bih flutt úr fjölbýlishúsinu eins og
flestir aðrir í hverfmu. Nágrannam-
ir hafa fengið nóg af athygli fjölmiðla
og mótmælagöngunum sem standa
langt fram á nótt.
Yfirvöld sögðu í gærkvöldi að svo
virtist sem unglingurinn hefði veriö
einn að verki. Lögð var áhersla á að
hann tilheyrði ekki neinrnn öfgasam-
tökum. Bekkjarfélagar segja hann
snarklikkaðan og oft hafa látið í ljósi
kynþáttafordóma.
Ákvörðun Helmuts Kohl kanslara
að taka ekki þátt í neinni minningar-
athöfn í dag hefur ekki bara vakið
reiði stjórnarandstæðinga heldur
einnig fylgismanna hans. Það þykir
ekki nægja að Weizsácker forseti og
þrír ráðherrar verða viðstaddir
minningarathöfnina í moskunni í
Köln síðdegis.
TT, Reuter
Lagabreyting í Svíþjóð:
Dómstólum bannað að selja
kópíur af barnaklámmyndum
Dómstólar í Svíþjóð mega ekki
lengur selja kópíur af myndum með
barnaklámi og ofbeldi. Sænska þing-
ið ákvarðaði þetta í gær og taka regl-
urnar giidi þegar í dag.
Vegna gloppu í sænskum lögum
voru 125 klámmyndir, flestar með
börnum í aðalhlutverkum, lýstar
sem opinber gögn í nafni prent- og
tjáningarfrelsis.
Dómstóll í Stokkhólmi neyddist til
aö sýna myndimar almenningi í
húsakynnum sínum. í maí fékk dóm-
stóllinn á milli 70 og 80 pantanir frá
fólki, þar á meðal fóngum, sem vildi
kaupa kópíur af kvikmyndunum.
Dómstólhnn hefur dregið á langinn
að afgreiða pantanimar og fékk að-
eins einn aðili kópíu eftir að hafa
snúið sér til æðra dómstigs.
Þegar í ljós kom að böm sem mis-
notuð höfðu verið við gerð klám-
mynda vom algjörlega varnarlaus
þegar myndimar voru lýstar sem
opinber gögn varð almenningur í
Svíþjóð ævareiður. Stjómmálamenn
kröfðust lagabreytingar og var málið
afgreitt á mettíma.
Samkvæmt nýju lögunum má eng-
inn kaupa kópíur af bamaklám-
myndum. Almenningur fær heldur
ekki aðgang að þeim ef hægt er að
þekkja bömin á þeim. Dómstólar
geta hins vegar enn neyðst til að sýna
almenningi myndimar ef ekki er
hægtaðþekkjabörnináþeim. tt
Varaforsetinn Espina
verður forseti Guatemala
Varaforseti Guatemala, Gustavo
Espina, tilkynnti í gær að hann
myndi taka við sem forseti landsins.
Herinn steypti forsetanum Jorge
Serrano af stóh fyrr í vikunni og er
vamarmálaráðherrann taUnn styðja
Espina. Þingið hefur einnig lýst yfir
stuðningi sínum við varaforsetann.
Espina sagði að hann ætlaði sér að
gegna forsetaembættinu þangað til í
janúar 1996 og að hann hefði aldrei
sagt af sér, eins og áður hafði verið
greint frá.
„Ég tala við ykkur í dag sem for-
seti lýðveldisins," sagði Espina í hópi
Gustavo Espina, varaforseti Guate-
mala, sem hefur lýst sig forseta
landsins. Simamynd Reuter
nokkurra fyrrum starfsmanna Serr-
ano. Bætti Espina því við að Banda-
ríkin viðurkenndu hann sem forseta,
en það þykir enn óstaðfest.
Þingið í Guatemala ætlaði að velja
eftirmann Serranos í gær af Usta sem
stjórnarskrárdómstólUnn gerði, en
trúlegt þykir að það samþykki Esp-
ina sem forseta.
Þar sem aðeins 40 af 58 þingmönn-
um landsins mættu í gærkvöldi var
ekki hægt að sveija Espina inn í
embættið eins og þótti líklegt aö yrði
gert. Var því embættistökunni frest-
aðumeinndag. Reuter
GRAM KF-195 GRAM KF-233 GRAM KF-264
GRAM KF-250 GRAM KF-355 GRAM KF-344
■ • .. ■ .jw... *-> . nwm . ut. iii. n youi i iii. r\œiu f i **u ui. uyoiu
B: 59,5 cm D: 60,1 cm B: 59,5 cm D: 60,1 cm B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm -135,0 (stillanleg) H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg) H: 166.5 - 175,0 cm (stillanleg
Nú aðeins 61.280 kr. Nu aðeins 78.460 kr. Nú aðeins 85.980 kr.
56.990 72.970 79.960
staðgreltt staðgreltt staðgreitt
Visa og Euro raðgreiðslur til allt að 18 mánaða, án útborgunar. Muna-
lán með 25% utborgun og kr. 3.000 á mán. Fri heimsending og við fjar-
lægjum gamla skápinn þér að kostnaðarlausu.
/panix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
GRAM K-245
GRAM K-285
GRAM K-395
Nú aðeins 48.380 kr. Nú aðeins 54.830 kr. Nú aðeins 63.280 kr.
44.990 50.990 58.850
staðgreitt staðgreltt staðgreitt
kæliskápar ágóðu verði
166 Itr. kælir + 31 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 106.5 cm
204 Itr. kælir + 29 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5
199 Itr. kælir + 64 Itr. frystir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 146.5 cm
Nú er rétti tíminn að endurnýja gamla orkufreka
kæiiskápinn og fá sér nýjan sparneytinn GRAM á
góðu verði.
Júnítilboð
Nú aðeins 54.820 kr.
50.980
staðgreltt
Nú aðeins 56.980 kr.
52.990
staðgreltt
Nú aðeins 78.480 kr.
72.990
staðgreitt
244 Itr. kælir
B: 55,0 cm D: 60,1 cm
H: 126.5 cm
274 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 126.5- 135,0 cm (stillanleg)
379 Itr. kælir
B: 59,5 cm D: 60,1 cm
H: 166.5 -175,0 cm (stillanleg)