Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
9
Útlönd
Vill dómsrannsókn á fjárhag Færeyja
VeldiBanda
áenda
Nú lítur út fyrir að veldi forseta
Malawi, Kamuza Banda, hafi
runnið sitt skeið á enda þar sem
líkur eru taldar á að stjór narand-
stæðingar vinni sigur í kosning-
um sem þar fara fram á mánu-
daginn. Verður kosið um hvort
afnema eigi einflokkastjórn.
Leiðtogi stærsta stjómarand-
stöðuflokksins, Bakili Muluzi,
hélt útifund fyrir u.þ.b. 8.000
manns þrátt fyrir bann stjórn-
valda. Höfðu margir komið langt
aö og klöppuðu honum iof í lófa.
íbúar Maiawi eru u.þ.b. átta
milljónir og hefur Banda ríkt þar
sem einræðísherra sl. 30 ár.
Engiimleið-
togafundurá
næstunni
Bandarisk yfirvöid hafa neitað
þvi að til standi að halda leiðtoga-
fund í Moskvu í nóvember.
Talsmaður Hvíta liússins sagði
að Bill Clinton Bandaríkjaforseti
mundi hitta Boris Jeltsín, forseta
Rússlans, í Tokýo í næsta mánuði
eftir efnhagsráðstefnu sjö heistu
iðnríkja heims. Embættismenn á
fundi utanrikisráherra NATO í
Aþenu höföu sagt fréttamönnum
að verið væri að skipuleggja fund
Clintons og Jeitsíns í Moskvu í
nóvember.
Mulroneyferfrá
Brian Mulroney, forsætisráð-
herra Kanada, mun fara frá eftir
hálfan mánuð þar sem hann
hyggst setjast í helgan stein.
Hann vann kosningarnar árið
1984 með mesta meirihluta í
kanadískri sögu. Niu árum síðar
er þann orðinn óvinsælasti ieið-
togi Kanada frá því að byrjað var
að gera skoðanakannanir í
Kanada eftir seinni heimsstyrj-
öldina. Flokkur hans mun velja
eftirmann hans nú um helgina.
„Eftir aö hafa tekið erfiðar
ákvarðanir í niu ár verður þú
óvinsæll,“ sagði Mulroney í við-
tali við CNN. „Þetta kom fyrir
George Bush, Margaret Thatc-
her, Helmut Kohl og Francois
Mitterrand." Reuter
Stuttar fréttir
Eftirlit úr lofti
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur ákveðið að fylgst
verði með landamærum Júgó-
slavíu og Bosniu úr lofti.
Austurblokkin verði með
Aðildarþjóðir NATO reyna nú
að fá þjóðir Austur-Evrópu til að
senda hersveitir til Bosníu-
Herzegóvínu til að verja griða-
svæði múslíma.
Kosningaríhættu
Kosningamar í Nígeríu eru nú
í hættu þar sem hópur gamalla
stjórnmálamanna og ríkra kaup-
manna hefur farið fram á það að
kosningunum verði frestað.
Kosningarnar á laugardaginn
myndu verða fyrstu forsetakosn-
ingarnar þar í landi í áratug.
Eldf laug í N-Kóreu
Norður-Kóreumenn skutu á loft
upp í lok maí nýrri tegund eld-
flauga. Hafa Japanir af þessu
nokkrar áhyggjur þar sem eld-
flaugin gæti náð til Japans.
Einn grunaður
Lögreglan í Mexíkóborg hefur
handtekið mann sem grunaður
er um morðið á rómversk kaþ-
ólskum kardinála. Maðurinn seg-
istverabóndi. Reuter
Framsóknarflokkurinn í Færeyj-
um ætlar að leggja fram tillögu á
þingi um að dómsrannsókn fari fram
á pólitískum og efnahagslegum
hneykshsmálum í Færeyjum síðast-
liðin fimm ár.
„Daglega má lesa um ný hneykslis-
mál í Færeyjum. Það nýjasta er
krafan um að danska ríkið yfirtaki
og breyti í ríkislán skuldir sveitarfé-
laganna upp á 1,7 milljarða og að
danska ríkið og lánardrottnar ætla
að aflétta skuldum fiskiðnaðarins
upp á 650 milljónir krónur. Áður
höfðu skuldimar síðasta hálfa árið
aukist um 110 þúsund krónur á mann
til viðbótar árlegu framlagi upp á
nær milljarð. Það er því kominn tími
til að þingmenn fái yfirlit yfir fjár-
málin,“ segir Kirsten Jacobsen, tals-
maður Framsóknarflokksins.
Ef ekki hefði verið fenginn millj-
arður að láni frá Danmörku núna
hefðu Færeyjar orðið gjaldþrota í
sumar. Þetta sagði Marita Petersen,
lögmaður Færeyja, þegar hún kynnti
samninginn á lögþinginu í gær.
„Samningurinn var nauðsynlegur
til að bjarga landinu frá gjaldþroti.
Það hefði verið ábyrgðarlaust af
landstjóminni ef ekki hefði verið
komið í veg fyrir gjaldþrot," sagöi
lögmaðurinn.
Umræður um samninginn við Dan-
mörku verða á morgun.
Ritzau
SAMM
mmiiixmriii i im irmxn iitii rrm •
U SAM\
m SAM\
M SAM
vi ■PllW'ln'fi , VI. VI VI UBHF Bi't
UUit rmjllIlTTlJHXiriTniri n iiiixl: • i n rrr n riTTT m nn m titi titii i rr ttt m nnnmmimimimnTi rTTrrriT i ri i
m SAM
FRUMSYNIR MAGNAÐA SPENNUMYND
SPILLTILÖGREGLUFORINGINN
Aðalhlutverk: Harvey Keitel, Paul Cald-
erone, Leonard Thomas og Robin
Burrows.
ODYSSEY
**** J.B, New York Post. Erl. umsagnir: „Besta
lögreglumynd síðan „French Connection" -
leikstjórinn Oliver Stone. „Harvey Keitel...
besti leikarinn árið 1992." - Rolling Stone.
„Harvey Keitel sýnir hér magnaðasta og hug-
rakkasta leik á sinum víllta starfsferli". - L.F.
US Magzine.
Sýnd í Bíóborginni
kl. 5, 7, 9 og 11.
L U C A S F I l M