Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Blaðsíða 11
Merming
11
FÖSTUDAGUR 11. JUNI 1993
Caput á
listahátíð
Tónleikar voru í Hafnarborg í Hafnarfirði s.l. mið-
vikudagskvöld, voru þeir liður í Listahátíð í Hafnar-
firði. Caput hópurinn lék nútímatónhst en hann skip-
uðu að þessu sinni Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Zbigni-
ev Dubik, fiðla, Guðmundur Kristmundsson, lágfiðla,
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Snorri Sigfús Birgis-
son, píanó,. og Guðni Franzson, klarínett. Á efnis-
skránni voru verk eftir Igor Stravinsky, Witold Szalon-
ek, Alexander Seriabin, Atla Ingólfsson, Thierry
Blondeau og Dimitry Shostakovich.
Tónleikamir hófust á Þrem stykkjum fyrir strengja-
kvartett eftir Stravinsky sem er einfalt stílhreint verk
og hefur töluvert aðdráttarafl þrátt fyrir mikil þrá-
stef, sökum þess hve markvisst það er. Elegie eftir
Szalonek fyrir klarínett og píanó er áferðarfallegt verk
en ekki mjög hugmyndaríkt. Það er eins og það lifi
aðeins í einu plani og skortir því dýpt. Hljóðfærin fengu
að hljóma vel í verkinu og var það meginstyrkur þess.
Vers la flamme eftir Scriabin fyrir píanó er mjög fal-
lega hljómandi verk. Hér eru það hljómarnir og lit-
brigði þeirra og hljómur hljóðfærisins sem bera uppi
verkið. Meðferð steíja og forms er ekki eins merkileg.
Eftir hlé kom fyrst Actio eftir Atla Ingólfsson fyrir
einleikssefló. í upphafi virðist efniviður einkum vera
hljóðbrigði sellósins einkum sul pontícello hljóðið, en
Tórúist
Finnur Torfi Stefánsson
er á leið verður stefjaefni áberandi, meira að segja
tónflutt þrástef. La nuit presque eftír Blondeau er í
hálfgerðum millistríðsárastíl. Sumt hljómaði laglega,
annað miður. Síðast verk tónleikanna var Strengja-
kvartett nr. 7 eftir Shostakovich. Þetta verk hefur ótrú-
lega mikið aðdráttarafl í einfaldleika sínum og skýr-
leika. Frábærlega skemmtileg meðferð hendinga sem
lengjast og styttast, eftir því sem andinn blæs höfundi
í brjóst, er eitt af því sem veitir verkinu styrk sinn.
Capaut hópurinn lék frábærlega vel á þessum tón-
leikum og virðist vera stöðugt í sókn. Samleikur mjög
nákvæmur og vel samhæfður, hljómurinn var fallegur
og túlkun góð. Bryndís Halla, Snorri og Guðni fengu
að spreyta sig á einleikshlutverkum og gerðu það af
hreinni snilld en aðrir spilarar stóðu sig ekki síður
vel og var engan hlekk hægt að finna veikan meðal
þessara snjöllu listamanna.
SU AR
FRÁ GÖNGUSKÓMTIL FELLIHÝSIS
BARNASKÓR
frá 4.400.-
RAPIDO Fellihýsi
frá 860.000.-
HARTMAN
plasthúsgögn
TRIGANO - tjaldvagn
m. fortjaldi 360.000.*
HARBO
FURUHÚSGÖGN
Gönguskór frá 3.900.
vatnsheldir frá 7.200.
SYNINGAFMLBOÐ
4 sólstólar á 2.400.-
Póstsendum samdægurs!
1993
,þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
opið laugardag kl. 10 - 6
sunnudag kl. 13-16