Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1993, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
33
Veiðivon
Leikhús
Tvær stórár
opnaðarígær
- Laxá í Kjós og Laxá í Aðaldal
„Eg veiddi tvo laxa fyrsta hálfa
daginn, annan á túbu en hinn á
maök. Þetta voru 12 og 8 punda fisk-
ar,“ sagði Árni Baldursson á bpkkum
Laxár í Kjós í gærdag.
„Það veiddust 5 laxar þennan
Halldór Blöndal var í opnun Laxár
í Aðaldal með Laxamýrarmönnum.
Hann veiddi einn lax.
DV-mynd BG
fyrsta hálfa veiðidag, sem er allgott,
við áttum ekki von á neinu stóru.
Sveinn Ingibergsson í Gretti, Halldór
Berg í Veiðihúsinu og Bolli Kristins-
son í Sautján veiddu sinn fiskinn
hver. Það voru fjórir á maðk en einn
á túbu, það verður reynt vel eftir
matinn. Við ætlum að bæta við þess-
ar tölur,“ sagði Árni ennfremur.
Morgunvaktin
gaf 6 laxa í Aðaldalnum
„Við veiddum 6 laxa á morgun-
vaktinni okkar, Laxamýrarmenn,
frá 10 upp í 14 pund,“ sagði Vigfús
B. Albertsson á Laxamýri II í gær-
dag. En það er löng hefð fyrir því í
Laxá í Aðaldal að Laxamýrarmenn
veiði fyrsta morgun sem áin er opin.
„Við erum hressir með þessa morg-
unveiði en 5 laxanna komu á maðk
en einn á spún. Þetta er helmingi
betra en í fyrra í opnun, þá veiddum
við 3 laxa um morguninn. Halldór
Blöndal ráðherra veiddi einn lax,“
sagði Vigfús ennfremur.
Fáir laxar
komnir í Elliðaárnar
Elliðárnar voru ekki opnaðar í
gærmorgun eins og verið hefur hefö
í fjölda, fjölda ára. Þrátt fyrir það
fóru margir inn að að ánum til að
kíkja en ekkert var að gerast. Fáir
laxar eru komnir í árnar.
-G.Bender
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Sími 11200
Stórasviðlökl. 20.00:
KJAFTAGANGUR
eftir Neil Simon.
Á morgun, örfá sæti laus, sun. 13/6, örfá
sæti laus.
Siðustu sýningar þessa leikárs.
MY FAIR LADY söngleikur
eftir Lerner og Loeve.
Allra síðasta sýnlng.
í kvöld, nokkur sæti laus.
LEIKFERÐ
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN
eftirWilly Russei
í kvöld kl. 20.30 í Stykkishólmi.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
fram að sýnlngu sýningardaga. Miða-
pantanir frá kl. 10.00 virka daga í sima
11200.
Greiöslukortaþj. - Græna línan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóðlelkhúsið - góða skemmtun.
Laxá í Kjós gaf 5 laxa fyrsta morguninn sem hún var opin og fyrsti fiskurinn
er kominn á þurrt. Skömmu seinna kom einn 12 punda á sama staö.
DV-mynd G.Bender
Tilkynningar
Vitni óskast
Keyrt var utan í ljósbláar. Opel á bíla-
stæði við Ármúla 5 milii kl. 9.30 og 10.40
miövikudaginn 6. júní sl. Sjónarvottar,
ef einhveijir eru, eru vinsamlegast beðn-
ir að hafa samband vlð Þorbjörgu í síma
32737.
Póstkort í tilefni
kvennahlaupsins
Garðabær og undirbúningsnefnd fyrir
Kvennahlaup ÍSÍ í Garðabæ hafa gefið
út póstkort í tilefni kvennahlaupsins sem
fram fer á kvenréttindaginn 19. júni nk.
Póstkortið er hægt að fá á þeim stöðum
sem forskráning fer fram og á pósthúsi
sem starfrækt verður sérstaldega á
hlaupdaginn þar sem hlaupiö fer fram,
þ.e. við Garða- og Flataskóla í Garöabæ.
Fjölskyldudagur
Borgarspítalans
Hinn árlegi fjölskyldudagur Borgarspít-
alans verður laugardaginn 12. júní. Að
venju verður margt á dagskrá sem hefst
kl. 10 og mun standa fram eftir degi.
Helstu liöir eru: Gróðursetning plantna
á vegum Velunnarafélags Borgarspítal-
ans hefst kl. 10. Borgarspítalahlaupið
hefst kl. 12, skráning kl. 11 sunnan við
spítalann. Röntgendeild Borgarspítalans
verður opin starfsmönnum spítians kl.
10-15, knattspyrnudeild ÍBSP leikur við
hð frá Vestmannaeyjum á gervigrasvell-
inum i Laugardal kl. 16 og fjölmargt ann-
að verður á dagskránni.
Mendive og kúbverskir
dansar á Listahátíð
Vegha gífurlegrar aðsóknar að gjömingi
kúbverska myndlistarmannsins Manu-
els Mendives og dansara og tónhstarfólks
frá Kúbu verður efnt til aukasýningar á
gjömingi þeirra í kvöld kl. 20.30 í Hafnar-
borg.
Kvenfélagið Freyja
fer í vorferð til Nesjavaila sunnudags-
kvöldið 13. júní. Lagt verður af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 20. Þátttökutilkynn-
ingar og nánari upplýsingar veita Katrín,
s. 40576, og Sigurbjörg, s. 43774. Allir vel-
komnir.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður með sýningu í Hús-
dýragarðinum á sunnudag, kl. 15.
Tobacco Road á ferð
um Norðurland
Leikfélag Hólmavíkur leggur upp í leik-
ferð um Norðurland í dag, 11. júní, með
leikritið Tobacco Road eftir Erskine
Caldwell í leikstjóm Skúla Gautasonar.
Sýningar verða á sjö stööum viös vegar
um Norðurland. Fyrsta sýningin verður
á Skagaströnd. Laugardaginn 12. júni
verðm- sýning í Nýja bíói á Siglufirði.
Sunnudaginn 13. júní verða Hólmvíking-
ar á Ólafsfirði og þaðan fara þefr í Frey-
vang og sýna þar mánudagskvöldið 14.
júní. 15. júní sýna þeir í félagsheimihnu
Hnitbjörgum á Raufarhöfn og 17. júrú í
Hrísey.
Ný umferðarijós
Laugardaginn 12. júní, kl. 14, verður
kveikt á nýjum umferðarljósum á mótum
Sæbrautar og Súðarvogs. Umferðarljósin
verða samhæfð við önnur ljós á Sæ-
braut. Vinstri beygja af Sæbraut inn á
Súðarvog verður umferðarstýrð. Enn-
fremur verður umferð af Súðarvogi um-
ferðarstýrð. Til að áminna ökumenn um
hin væntanlegu mnferðarljós verða þau
látin blikka gulu ljósi í nokkra daga áður
en þau verða tekin í notkun.
Körfuskotkeppni
Tommahamborgara
Laugardaginn 12. júní verður haldin á
Lækjartorgi körfuskotskeppni Tomma-
hamborgara. Keppnin stendur yflr frá
kl. 13-16 og er öllum heimil þátttaka. Að
keppninni standa, auk Tommahamborg-
ara, Körfuknattleikssamband íslands og
FM 95,7 en Austurbakki veitir verðlaun
fyrir besta árangurinn. Umsjón keppn-
innar verður í höndum KKI. Karlalands-
lið íslands í körfuknattleik muu mæta á
svæðið og sýna götubolta (street ball).
Afþessu tilefni verða Tommahamborgar-
ar með tilboð á hamborgurum, aðeins kr.
150.
Laugardagsganga
Hananú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú verð-
ur á morgun. Lagt verður af stað frá Gjá-
bakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað mola-
kaffi.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Félagsvist og dans að Auðbrekku 25 í
kvöld, fóstudag, kl. 20.30. Þ.K. Tríó og
Hjördis leika fyrir dansi. Húsið öllum
opið.
Umhverfisskoðunarferð
í Krýsuvík
Laugardaginn 12. júní nk. verður farin á
vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags
umhverfisskoðunarferð í Krýsuvík. Lagt
verður upp frá Umferðarmiðstöðinni kl.
9 en stefnt að endurkomu um kl. 18. Kom-
ið veröur við á ýmsum stöðum á suður-
leið en hádegishlé verður gert í Gömlu-
Krýsuvík eða þar í grennd. Gjald fyrir
ferðina er kr. 1800. Þátttaka í ferðinnl er
öllum opin en skráning fer fram við brott-
fór. Venjulegir gönguskór eiga að duga
en ekki sakar að hafa með stígvél. Minnt
er á aö hafa með sér nesti. Fararstjórar
verða Freysteinn Sigurðsson og Gutt-
ormur Sigbjamarson.
Lestrar- og litabók
um Lunda litla
Út er komin á vegum Bókaútgáfunnar
Reykholts Lestrar- og Utabókin um
Lunda litla. Texti og myndir eru eftir þá
Jónas Þór kennara og Böðvar Leós teikn-
ara. Bókin er ætluð bömum á aldrinum
5-9 ára til að lesa og Uta og hefur hlotið
lofsamlegar undirtektir sérfræðinga um
bamabókmenntir. Bókin kemur út á ís-
lensku og ensku og er hugsuð sem gott
innlegg í lestrarátak það sem í gangi hef-
ur verið og verður vonandi áfram.
: :
trf.tz: >)
Nýr stórmarkaður í
miðjum Garðabæ
Föstudaginn 28. mai sl. var opnaður nýr
stórmarkaður í miðjum Garðabæ undir
nafninu Garðakaup. Verslunin er við
Garðatorg þar sem verslunin Kaupstaður
var áður. Verslunarstjóri hefur verið
ráðinn Guðjón Sveinsson sem hefur ára-
tugareynslu af verslunarstörfum hjá
Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. Guðjón
segir markmið Garðakaupa vera að halda
vömverði í lágmarki og veita góða þjón-
ustu. í verSlunimú er vönduð og rúmgóð
leikaðstaða fyrir böm, með skemmtileg-
um leiktækjum. Verslunin verður opin
aba daga vikunnar, mánud.-fimmtud. kl.
9- 19, fóstudaga kl. 9-20, laugardaga kl.
10- 17 og sunnudaga kl. 11-17.
mm
w
Allt í veiðiferðina
AtV í „.FU.BÍ
BYRJAÐ AÐ BÓKA í HAFNARA
OG EYSTRI-RANGÁ.
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751
ER SKEMMTILEGIIR
TÍMIFRAMIJNDM?
Ekki nema í góöum félagsskap. Hringdu og prófaöu
Símastefnumótið þar sem fjöldi fólks ó öllum aldri hefur
fundið sér félaga. Þetta er spennandi og skemmtileg
leið til að kynnast nýju fólki.
Þetta er spennandi, þetta er rómantískt, þetta er öruggt.
Mínútan kostar 39,90 kr.
SÍMASTEFNIJMÓT
»»/l 8/9 5
Teleworld