Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993 Utlönd Ferðamenn flykkjasttil Norður-írlands Á Norður-írlandi búast yfirvöld viö raetfjölda ferðamanna í ár þrátt fyrir sprengjuregn og skot- hríð skæruliöa. Hugh O’Neill, forraaður norð- ur-írska ferðamálaráðsins, sagöi í gær að ferðaráönnum hefði fjölgað um sex prósent í fyrra miöað víð árið á undan. „Viö væntum þess aö áriö 1993 verði farsælt og gerum ráð fyrir aö ná markmiðum okkar,“ sagði O’Neill. Frábærir golfvellir eru víða á Norður-írlandi svo og góð veiði- vötn og fallegar sveitir sem inn- aniandsátökin hafa ekki náð að selja mark sitt á. Austurhluti Sló- vakíuábarmi kartöflustríðs Kartöflubændur í litlu Ijalla- þorpi í austurhluta Slóvakíu hafa sett upp vakt við akra sína til að vernda þá fyrir hópura vopnaðra sígauna sem hirða uppskeruna að næturlagi. Héraösfréttabiaðiö Slovensky Vychod sagði að hinir óboðnu gestir hefðu hótað að skjóta hvern þann sem reyndi aö reka þá af kartöfluökrunum. „Hætta á kartöflustríði vofir yflr,“ sagði í fynrsögn blaðsins. Á einum kartöflubúgarðinum hafa þjófar haft á brott átján tonn af kartöflum. Reuter Aukakosningar á Suður-Englandi: íhaldsflokkurinn bíður stóran ósigur Breski íhaldsflokkurinn tapaði stórt í aukakosningum í bænum Christchurch á Suður-Englandi í gær fyrir Frjálslynda demókrataflokkn- um. Kjördæmið hafði verið eitt af öruggustu vígjum íhaldsflokksins. Samkvæmt opinberum tölum frá því í morgun var um að ræða 35 pró- senta sveiflu sem er sú mesta frá því í seinni heimsstyrjöldinni. Ef um sams konar sveiflu hefði verið að ræða í almennum kosningum hefði íhaldsflokkurinn hrökklast frá völd- um. Frjálslyndir demókratar hlutu 33.164 atkvæði, íhaldsmenn 16.737 og Verkamannaflokkurinn 1.453. Skiiaboð Díönu Maddock, 48 ára gamallar kennslukonu sem vann sætið af íhaldsflokknum, til Johns Major forsætisráðherra voru þessi: „Þú þarft annað hvort að breyta um stefnu eöa starf.“ Litið er á úrslitin í Christchurch sem mótmæli gegn bresku stjórninni sem síðasta árið hefur átt við vax- andi óvinsældir að stríða vegna deilna um stefnu í Evrópubandalags- málum og afsagna ráðherra. Kjós- endur létu einnig í ljós mikla óánægju með forsætisráðherrann. Flestir eldri kjósenda voru andvíg- ir áætlunum Majors um að setja álögur á olíu til upphitunar. Þeir voru einnig reiðir yfir því að kosn- ingaioforðin um efnahagsumbætur höfðu ekki verið efnd. Embættismenn íhaldsflokksins gefa í skyn að ósigrinum í gær verði snúið upp í sigur í næstu almennu kosningum sem reyndar verða ekki haldnar fyrr en eftir nær fjögur ár. „Við sigrum þegar á reynir og það verður í almennum kosningum," sagði frambjóðandi íhaldsflokksins í Christchurch, Rob Hayward. Reuter Náttúran er viðkvæm! Hún erauðlind sem við verðum að hlúa að og virða. Látum náttúruna ekki verða hugsunarleysi og ieikaraskap að bráð. Umhverfisráðuneytið Verslunarmannahelgin Opið Smáauglýsingadeild Opið í dag, föstudag, til kl. 22. Lokað laugardag, sunnudag og mánudag. Hæsta blað kemur út þriðjudaginn 3. ágúst. Akið varlega og góða ferð! smáauglýsingadeild Þverholti 11 - sími 632700 Diana Maddock, frambjóðandi Frjálslynda demókrataflokksins, flytur sigurræðu í Christchurch í gærkvöldi. Bærinn hefur verið eitt öruggasta vígi íhaldsflokksins í fjölda ára. Símamynd Reuter Búist við samþykki nýrrar friðaráætlunar um Bosníu Svo virðist sem þokast hafi í sam- komulagsátt í borgarastríðinu í Bosníu á friðarráðstefnunni í Genf í gær eftir að Mile Akmadzic, forsætis- ráðherra Bosníu, spáði því að deilu- aöilar mundu fallast á áætlun um nýtt sambandsríki þriggja bosnískra lýðvelda. Þótt forsætisráð Bosníu hefði ekki fallist á áætlunina í gærkvöldi var Akmadzic sannfærður um að hún yrði samþykkt af þjóðarbrotunum þremur. Samkvæmt nýju áætluninni mundi þetta fyrrum júgóslavneska lýðveldi verða kallað Sameinuð lýðveldi Bosníu og Hersegóvínu og yrði um að ræða laustengt bandalag. Sam- bandsstjómin hefði aðeins utanríkis- mál á sinni könnu. Radovan Karadzic, leiðtogi Bosn- íu-Serba, sagði fréttamönnum aö KarlogDíana: Aðskilin á 12 ára brúðkaupsafmælinu Karl Bretaprins og Díana prinsessa héldu upp á tólf ára brúðkaupsaf- mæli sitt í gær eins og fráskilins fólks var von og vísa, hvort í sínu landinu. Prinsessan fór með yngri soninn Harry í fyrstu opinberu ferð hans, dagsferð tíi Þýskalands, til að kanna breska hersveit sem þar er. Díana er liösforingi í hersveit þessari. Ríkisarfinn sjálfur var heima í Bretlandi og að sögn Buckingham- hallar sinntí hann ekki neinum opin- berum embættisverkum. Karl og Díana hafa ekki rætt fram- tíðaráætlanir sínar en þau hafa gert í því aö vera vinaleg hvort í annars garð á opinberum vettvangi, jafnvel ástúðleg. Þau voru síðast saman opinberlega fyrr í mánuðinum viö útfor lafði Fermoy, móðurömmu Díönu, sem almennt er talin hafa haft milligöngu um hjónabandið. Reuter áætlunin væri mjög áþekk tillögu sem Serbar og Króatar lögðu fram í síðasta mánuði. Aðspurður hvort hann gæti fallist á hana sagði hann svo vera, í grundvallaratriðum. Sprengjuhríð dundi á Sarajevo á ný í morgun á sama tíma og friðar- gæsluliðar Sameinuðu þjóðanna undirbjuggu vopnahlésfund með herforingjum stríðandi fylkinga. Reuter Stuttar fréttir Harry prins, sonur Karls og Díönu, meö hjálm á höfði i breskum skriö- dreka í Þýskalandi. Simamynd Reuter Sfjórnvöld í írak þrættu fyrir frétt frá bandaríska landvama- ráðuneytinu um að bandarískar flugvélar hefðu skotíð aö loft- varnabyssum í suðurhluta íraks. Oryggisráð Sameinuðu þjóð- anna fordæmdi einróma aö Arm- enar skyldu hernema borgina Agdam í Azerbajdzhan. Ráðið krafðist tafarlauss vopnahlés og brottflutning hemámssveitanna. Embættísmenn í Úkraínu fógn- uðu niðurstööu hæstaréttar ísra- els um að sýkna John Iienijanjuk af stríðsglæpum og gáfu í skyn aö hann fengi að snúa aftur til fæðingarlands sins. Bandarísk stjómvöld ætla ekki að leyfa hon- um að snúa heim en hann var sviptur bandarísku ríkisfangi ár- ið 1986 og framseldur til ísraels. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.