Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993 41 Tim (Joseph Mazzello) felur sig fyrir risaeðlu. Joseph er aðeins níu ára. ur sannarlega náðst miðað við þá aðsókn sem myndin hefur fengið. Myndin hefur fengið slíka metað- sókn í Bandaríkjunum að með fá- dæmum þykir og áhrif hennar þykja minna einna helst á Gullæði fyrri tíma. Nú er það stein- gervingaæði. Fólk keppist við að finna steingervinga risaeðla og vin- sælast er að nefna þá í höfuðið á helstu aðstandendum Jurrasic Park. Formúlan að velgengninni Þegar leitað er skýringa á þessari miklu velgengni og áhuga, sem fólk hefur sýnt myndinni, virðist það nærtækast að risaeðlumar hafa yfir sér framandi yfirbragð út- dauðra og stórra dýra. Dýra sem eru meinlaus en voru raunveru- lega til ólíkt öðru æði sem búiö hefur verið til í kringum furðuver- ur og fljúgandi ofurmenni. Velgengni einskorðast ekki við Bandaríkin þaöan sem myndin er upprunnin. Bretar hafa meðal ann- arra tekið Jurrasic Park og öllu sem henni tilheyrir opnum örmum. Þremur dögum fyrir frumsýningu í London var búið að selja miða að andvirði ca 65 miilj. íslenskra króna í forsölu og þrátt fyrir miklar Risaeðluæði fer um eins og eldur í sinu: Þegar risaeðlur vakna til lífsins - Steven Spielberg með enn eina ævintýramyndina sem slær í gegn Alan Grant (Sam Neill), Ellie Sattler (Laura Dern), Lex (Arianna Ric- hards) og Tim (Joseph Mazzello) reyna að flýja frá risaeölu í nýrri mynd Stevens Spielberg, Jurassic Park. Gísli Þór Guörrumdsson, DV, London: Eftir allt körfuboltamyndaæðið á íslandi undanfarin misseri getur fólk nú farið að búa sig undir inn- rás nýrra heimihsvina. Nöfnin verða heldur fomfálegri en knattl- iðugu hetjanna og hljóma fram- andi: Tyrannosaurus, Velocirapt- or, Triceratops, Brachiosaurus, Gallimimus og Dilophosaurus. Hvaða fyrirbæri? Jú, þetta eru nöfn ýmissa tegunda risaeðla sem Ste- ven Spielberg hefur kastað fram í sviðsljósið í nýjustu kvikmynd sinni Jurrasic Park og tekist í leið- inni að búa til eitt mesta æöi aldar- innar. Kvikmynd Spielbergs, sem byggð er á metsölubók rithöfund- arins Michael Crichton, hefur þeg- ar skipað sér sess með mestu stór- virkjum kvikmyndasögunnar. Gagnrýnendur hafa veriö ósparir á lofsyrðin og almenningur hefur þyrpst í kvikmyndahúsið til að sjá þessa ævintýralegu mynd sem er nú á allra vörum. Spielberg er reyndar þekktur fyrir að gera æv- intýralegar myndir; ET, hákarlinn Jaws, Purpurahturinn, Leitin að týndu örkiimi og Indiana Jones eru allt stórmyndir úr hugmynda- smiöju hans. Jurrasic Park virðist hins vegar ætla að verða sú sem gerir nafn hans ódauölegt fremur öðru. Óvenjulegur garður Myndin fjallar um milljónamær- ing sem er í þann veginn að opna karabískan skemmtigarð fyrir al- menning. Garðurinn hefur til sýnis risaeðlur sem með hjálp erfðafræð- innar hafa verið gerðar að lifandi eftirmyndum þessara fornsögulegu dýra. Áður en milljónamæringur- inn, sem leikinn er af Richard Att- enborough, opnar hhðin að þessum óvenjulega garði ákveður hann að bjóða þremur vísindamönnum og bamabörnum sínum að sjá fyrir- bærið. Við það tækifæri detta raf- magnsgirðingamar, sem umlykja garðinn, óvænt úr sambandi og ýmislegt fer á annan veg en ætlað var. Fólk getur síðan giskað á fram- haldið en hægt er að lofa því að eftirleikurinn er spennandi. Héldu að risaeðlurnarværu raunverulegar Undirbúningur að myndinni hef- ur staðið í þrjú ár eða frá því 1990. Einu og hálfu ári áður en tökur byrjuðu var hafist handa við að smiða líkön risaeðla í fullri stærð, sem fara með nokkur aðalhlutverk myndarinnar, og tölvulíkön af öðr- um skepnum sem settar vom inn eftir að raunverulegum tökum lauk. Svo vel tókst tíl við gerð eðl- anna að yngri kynslóð leikaranna í myndinni átti stundum fullt í fangi með að gera sér grein fyrir því að ekki væri um raunveruleg dýr að ræða. En hún er ekki ein um það. Breskur gagnrýnandi skrifaði: „Þú trúir því að risaeðl- umar í myndinni séu raunveruleg- ar þó aö þú vitir að þær séu búnar að vera dauðar í 65 mihjón ár svo frábærlega er staðið aö tæknibreh- um í myndinni." Siðferðileg spuming Margir vhja flokka myndina und- ir vísindaskáldskap en Steven Spi- elberg hafnar því og segir að þetta séu hugsanleg vísindi. Hann telur að það geti orðið brennandi sið- ferðheg spurning þegar vísindin verði búin að fmna út úr þvi hvem- ig erfðafræðheg æxlun er fram- kvæmd hvort hún verði ásættan- leg. Með thkornu Jurrasic Park á hvíta tjaldið virðist því ekki ein- göngu hafa verið vakið upp afþrey- ingaræði heldur hefur efni hennar þrengt sér inn á svið vísindanna líka og hleypt þar nýju blóði í um- ræðuna um erfðir og erfðafræði þar sem leikir og lærðir hika ekki viö aö koma fram og segja skoðan- ir sínar. En hvað sem öhum siðferöhegum spumingum hður þá er Ijóst að Jurrasic Park átti frá upphafi að verða stórmynd sem höfðaði th ahra aldurshópa, ekki síst yngstu kynslóðarinnar. Það markmið hef- dehur á opinberum vettvangi um hvort myndin væri við hæfi bama ákvað enska kvikmyndaeftirhtið að banna hana ekki. En það er ekki eingöngu kvik- myndahúsaeigendur sem vonast th að græða á vinsældum myndarinn- ar. Aðstandendur flársveltandi safna í Bretlandi hugsa sér gott th glóðarinnar og breska náttúm- gripasafnið er óragt við að tengja sig umræðunni. Vonast er eftir aukinni aðsókn á safnið sem m.a. er frægt fyrir thkomumikil risa- eðlulíkön sín í kiölfar þess áhuga sem myndin hefur vakið á fyrir- bærinu. Safnið hefur jafnframt lát- ið framleiða mikið magn minja- gripa af risaeðlum og öðrum for- sögulegum dýmm sem búist er við að ijúki út nú á ári risaeðla. Og auðvitað hafa matvæla- og sælgæt- isframleiðendur líka tekið viö sér. Komfleikspakkarnir prýddir risa- eðlumyndum minna fólk þannig strax í morgunsárið á hvað umræð- an snýst um þessa dagana og lík- lega næstu vikur og mánuði ef ekki lengur. Óskarinn í augsýn Já, ef th vhl verður ársins 1993 ekki síst minnst sem árs risaeðl- anna og fáir efast nú um að Jurr- asic Park muni sópa til sín „ósk- urum“. Víst er að Spielberg muni notfæra sér meöbyrinn og gera framhald af Jurrasic Park enda var handritinu breytt svo hægt væri að spinna áfram viö efnið. Með aðalhlutverk í þessari mynd fara: Sam Nehl, Jeff Goldblum, Laura Dern, Richard Attenboroug, Ariana Richards, 13 ára, og Joseph Mazzeho, 9 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.