Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993 55 Afmæli Bogi Þorsteinsson Bogi Þorsteinsson, fv. yfirflugum- feröarstjóri á Keflavíkurflugvelli, Hjallavegi 7, Njarðvíkum, verður sjötugur mánudaginn 2. ágúst. Starfsferill Bogi fæddist að Ljárskógaseli í Laxárdal í Dalasýslu og ólst upp hjá afa sínum, Boga Sigurðssyni, í Búð- ardal og síðari konu hans, Ingi- björgu Sigurðardóttur. Bogi lauk loftskeytaprófi 1941 og starfaði á ýmsum skipum til stríðs- loka, þ. ám. e.s. Dettifossi er því skipi var sökkt í feþrúar 1945. Bogi réðst til Flugmálastjómar á Reykja- víkurflugvelli 1.2.1946. Hann lauk námi í flugumferðarstjóm á Reykja- víkurflugvelli og framlialdsnámi hjá flugmálastjórn Bandaríkjanna. Bogi var settur yfirflugumferðar- stjóri á Keflavíkurflugvelli 1.6.1951 og starfaði sem slíkur óslitið til 1.8. 1985 er hann fór á eftirlaun. Bogi hefur verið virkur í félags- málum. Hann stofnaði m.a. íþrótta- félag Keflavíkurflugvallar er sigraði á fyrsta íslandsmóti í körfuknatt- leik. Hann var fyrsti formaður Körfuknattleikssambandsins og gegndi fjölda annarra trúnaðar- starfa á vegum íþróttahreyfingar- innar. Heiðursviðurkenningar: sæmdur heiðurskrossi KKÍ1989, ævifélagi Kiwanisklúbbs Njarðvíkur 1989 og sæmdur heiðurskrossi ÍSÍ1990. Fjölskylda Systkini Boga: Ragnar kennari; Ingveldur, húsfreyja á Vallá; Sig- valdi Gísh lögfræðingur; Gunnar Þorsteinn á Vallá; og Elís Gunnar á Hrappsstöðum. Hálfsystir Boga: Guðlaug er átti Gest Olafsson, kenn- araáAkureyri. Foreldrar Boga: Hjónin Þorsteinn Gíslason, b. í Ljárskógaseli, f. í Stykkishólmi 25.11.1873, d. 9.11, 1940, og Alvilda María Friðrikka Bogadóttir, f. 11.3.1887, d. 22.3.1955. Ætt FöðurforeldrarBogavoruGísli • Þorsteinsson í Stykkishólmi og kona hans, Ingveldur Jónsdóttir. Alvilda var dóttir Boga Sigurðsson- ar, kaupmanns í Búðardal, og Maríu Guðmundsdóttur frá Kollugerði. Bogi var bróðir Bjöms er rak versl- un í Flatey og í Kaupmannahöfn og var bankastjóri Landsbankans 1910-16 en sonur Bjöms var Sigurð- ur, forstjóri og konsúll. Bogi var sonur Sigurðar Finnbogasonar á Sæunnarstöðum í Hallárdal og konu hans, Elisabetar Björnsdóttur frá Þverá, Þorlákssonar. Foreldrar Sigurðar vom Finnbogi Sigurðsson Bogi Þorsteinsson. á Kirkjubóli í Skagafirði og kona hans, Guðrún Árnadóttir frá Reykj- arhóh, Ámasonar. Bogi verður að heiman á afmæhs- daginn. Gunnar S Gunnar S. Bohason matreiðslu- meistari, Dverghömmm 8, Reykja- vík, verður fertugur mánudaginn 2. ágúst. Starfsferill Gunnar er fæddur og uppahnn í Reykjavík. Hann tók gagnfræðapróf frá Ármúlaskóla í Reykjavík og hóf nám í matreiðslu á Hótel Esju 1974. Hann lauk námi frá Hótel- og veit- ingaskóla íslands 1978. Gunnar rak ásamt öðrum veitingastaö í Stokk- hólmi í Svíþjóð í þrjú ár. Hann hefur síðan starfað hjá matvælafyrirtæk- inu Meistarinn hf. í Reykjavík. Fjölskylda Gunnar er í sambúð með Svölu Ágústsdóttur, f. 14.10.1959, skrif- stofumanni. Hún er dóttir Ágústs Frankels Jónassonar vélsmiðs og Helgu Jónasdóttur, nú látin, hús- móður. Synir Gunnars frá fyrra hjóna- bandi em: Sigurður Hólm, f. 3.4. 1976, ogHaraldur, 7.8.1983. Dóttir Svölu er Elsa Ýr Guðmundsdóttir. Systir Gunnars er Hhdur, f. 13.5. Bollason GunnarS. Bollason. 1949, kjólameistari í Reykjavík. Maður hennar er Ófeigur Björnsson gullsmiður og eiga þau tvo syni. Gunnar er sonur Bolla A. Olafs- sonarfráPatreksfirði, f. 12.9.1926, húsgagnasmiðs í Reykjavík, og Svanhhdar Júlíusdóttir frá Reykja- vík, f. 15.12.1925, bankastarfs- manns. Afmæhð var haldið 24. júh síðast- liðinn. Roy Ólafsson Roy Ólafsson hafnsögumaður, Hrísmóa 7, Garðabæ, verður sextug- urámánudaginn. Starfsferill Roy fæddist í Reykjavík en ólst upp í Borgamesi. Hann lauk barna- og unghngaskólanámi í Borgarnesi pg lauk prófi frá Stýrimannaskóla íslands 1957. Roy byijaði th sjós á Eldborginni MB-3 með föður sínum 1944. Hann var háseti, stýrimaður og skipstjóri hjá Eimskipafélagi íslands 1953-73, skipstjóri á Gijótjötni 1974-75, stýri- maður og skipstjóri á skipum Haf- skips hf. 1976-85 og hefur síðan ver- ið hafnsögumaður hjá Reykjavíkur- höfn. Fjölskylda Roykvæntist28.1.1962 Sigríði Jó- hannsdóttur, f. 5.8.1937, húsverði við Fjölbrautaskóla Garðabæjar. Hún er dóttir Jóhanns Baldvinsson- ar, vörubílstjóra í Keflavík, og Guðríðar Eiríksdóttur húsmóður. Böm Roys og Sigríðar em Jó- hanna Guðríður, f. 7.3.1962, hús- móðir í Kópavogi, gift Bjama Ás- geirssyni bhkksmíöameistara og eiga þau tvo syni; Ólafur Bjöm, f. 5.9.1964, flugvélarafeindavirki, í sambúð með Helgu Magneu Ragn- arsdóttur og eiga þau einn son; Sig- ríöur, f. 22.11.1%7, tækniteiknari, gift Guðmundi Albertssyni sölu- manni og eiga þau tvær dætur. Börn Roys frá fyrra hjónabandi eru Vilhelmína, f. 4.2.1954, í sambúð með Hhmari Helgasyni og á hún fimm börn; Hafdís Sigrún, f. 14.1. 1959, húsfreyja, gift Jóhanni Þor- steinssyni, b. á Svínafelh í Öræfum, ogeigaþaueinnson. Roy Ólafsson. Hálfbræöur Roys, samfeðra: Svav- ar klæðskerameistari, var kvæntur Ehsabet Linnet en þau skhdu og eiga þau fjögur böm; Gunnar, fyrrv. skipstjóri, nú fiskútflytjandi, kvæntur Dýrleifu Hallgríms og eiga þau þau íjögur böm. Alsystkini Roys em Matthias, var kvæntur Hrefnu Stefánsdóttur og eiga þau fjögur böm; Marsibh, var gift Pétri Mogensen, vélstjóra hjá Eimskipafélagi íslands, sem er lát- inn, og eignuðust þau sjö böm; Sig- rún Helga, gift Sigurdór Hermunds- syni, starfsmanni hjá ísal, og á hún tvær dætur frá fyrra hjónabandi; Ólöf Alda, gift Gísla Ólafs heildsala og eignuðust þau fimm börn. Foreldrar Roys: Ólafur Gísli Magnússon, f. 23.9.1893, d. 24.3.1961, skipstjóri í Borgarnesi og Reykja- vík, ogHlífMatthíasdóttir, f. 27.4. 1899, húsmóðir. Roy verður erlendis á afmæhsdag- inn. Til hamingju með afmælið 30. júlí 80 ára Kristbjörg Jakobsdóttir, Brekkugötu 10, Akureyri. 75 ára Kristinn Óskarsson, fyrrv. lögreglu- “ maður, Hseðar- garðí 35, Reykja- vik. Eiginkona KristinserÁgústa Jónsdótttr. Þau eru stödd í Reyk- hólasveit um þessar mundir. Ingibjörg Guðjónsdóttir, Reykjavíkurvegi 50, Hai'nai firði. Svava Vigfúsdóttir, Hvassaleiti 56, Reykjavik. Hallfríður Magnúsdóttir, :: Hofsvailagötu 18, Reykjavík. Guðni Guðnason, Kirkjulækjarkoti JIJA, Fljótshliðar- hreppi. Guðrún Torfadóttir, Þvervegi 6, Stykkishólmi. Auöur Sveinsdóttir, Gljúfrasteini, Mosfellssveit. 70 ára______________________ ólafía Katrín Hansdóttir, Birkigrund 43, Kópavogi. Ólafía Katrín er aö heiman. Stefán Þorláksson, Gautlandi, Fþótahreppi. Guðmundur Baldvinsson, Skólavörðustíg 3A, Reykjavík. Vilborg Krist ófersdót tir, Læk, Leirár- og Meiahreppi Arnfríður Sigurðardóttir, Fjaröargötu 34, Þingeyri. Ásthildur Sigurgisladóttir, Blönduhlíð 35, Reykjavík. 60 ára Axel Albertsson, Lágholti 2, Mosfeilsbæ. Kristján Lindberg Júlíusson, Langholtsvegi 26, Reykjavík. 50 ára Sigtryggur Bragason, Reynigrund 3, Akranesi. Lóa Henný Olsen, ---- Ásenda 8, Reykjavik. Björgvin Gunnarsson, ---- Breiðumörk 12, Hveragerði. Þórhildur Gunnarsdóttir, Kvistalandi 6, Reykjavik. Dolly Eria Nieisen, Grenignmd 3, Kópavogi. Sam- : býlismaðurýí'S'. hennar er pétur Þ. Sveinsson. Dollyeraðheim- an á afmaelisdag- inn. 40 ára Jón Hrólfur Sigmjónsson, ---- Efstasundi 93, Reykjavík. Jónatan Ingi Ásgeirsson, Nesvegi 3, Súðavík. Anna Árnina Stefánsdóttir, Dalsmýnni, Viðvíkurhreppi. — Ragnhildur Guðmundsdóttir, Amarheiði 16, Hveragerði. __ Anton Benedikt Kröyer, Selvogsgötu 11, Hafnarfirði. Ágúst Guðjónsson Ágúst Guðjónsson múrari, Skóla- gerði 61, Kópavogi, verður sjötugur mánudaginn 2. ágúst. Starfsferi II Ágúst er fæddur í Eystra-Fíflholti í Vestur-Landeyjum. Hann lauk námi sem múrari í Vestmannaeyj- um 1947 hjá Óskari Kárasyni múrarameistara. Ágúst starfaöi að iðn sinni allt þar til hann hætti störfumm 68 ára gamah. Hann hefur aha tíð stundað heilsurækt og var á undan sinni samtíð í þeim efnum. Hann syndir enn 1 km þrisvar í viku. Fjölskylda Ágúst kvæntist 12.2.1950 Svan- hvíti Gissurardóttur, f. 3.11.1932, aðstoðarstúlku í Blóðbankanum. Hún er dóttir Gissurar Gissurarson- ar, b. og hreppstjóra í Selkoti, og Gróu Sveinsdóttur sem dvelur nú á elhheimilinu í Vestmannaeyjum. Ágúst og Svanhvít eiga íjögur börn. Þaueru: AnnaK.,f.l3.1.1951, bókari í Reykjavík, gift Gunnari V. Andréssyni, fréttaljósmyndara á DV, og eiga þau þrjú börn; Gróa G„ f. 15.2.1953, húsmóðir íReykjavík, gift Guðmundi Hilmarssyni bifvéla- virkja og eiga þau þrjú börn; Gissur Þ„ f. 19.11.1958, pípulagningamaður á Akranesi, kvæntur Sigríði Al- freðsdóttur og eiga þau þrjú böm; ÁgústGuðjónsson. Auöur Á„ f. 14.8.1963, afgreiðslu- stúlka í Reykjavík, hún á eitt barn, bamsfaðir þess er Finnbogi Þórar- insson bifvélavirki. Hálfsystkini Ágústs, sammæðra, eru: ÁrsæU Eiríksson, f. 29.9.1915; óskar Jónsson, f. 21.7.1935; Ingunn Jónsdóttir, f. 19.10.1938; Friðrik Jónsson, f. 22.7.1940. Hálfsystkini, samfeðra: GuðlaugÞ. Guðjónsdótt- ir, f. 23.12.1929; Úlfar Guðjónsson, f.9.10.1931. Ágúst er sonur Guðjóns Þorgeirs- sonar, f. 13.11.1905, d. 13.11.1983, bólstrara í Reykjavík, og Kristjönu Þórðardóttur, f. 16.5.1895, d. 18.4. 1964, bóndakonu í Skipagerði. Ágúst verður erlendis á afmæhs- daginn. Frawtíðar- filwiai LJOSMYH DAVORU R SKIPHCXTI31 Km værar þakkir til ykkar sem biðjið um að andvirði afmælisgjafa renni til krabba- meinssjúkra barna. Tækifæriskort SKB fást á skrifstofu félagsins, Hafnarstræti 20 (3. hæð), Reykjavík, S. 91- 676020. Opið mánudaga 13.00-15.00 og mið- vikudaga 15.00-17.00. Reikningur nr. 545 í Búnaðarbanka íslands, Austurstræti. STYRKTARFÉLAG KRABBAMEINSSIÚKRA BARNA n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.