Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993 19 Sviðsljós Gamla höfhin full aflífi Það voru fjölmargir sem brugðu sér niður að höfn á laugardaginn þegar hafnardagurinn var haldinn í björtu og fallegu veðri. Þar var fjölmargt í boði fyrir fólk á öllum aldri. í veitingatjöldum var hægt að kaupa ýmsar fiskafurðir til að elda heima en einnig var hægt að setjast niður til að fá sér eitthvað í svanginn. Að’auki var hin árlega siglinga- keppni Brokeyjar og Reykjavíkur- Það var margt forvitnilegt að sjá í brúnni á danska varðskipinu Vædderen. DV-myndir HMR Skipstjórastóllinn á Vædderen var vinsæll viðkomustaður hjá þeim sem skoðuðu skipið. Hann Tómas Andri var einn þeirra sem prófuðu þetta fína sæti. Hann sagðist þó ekki ætla að verða skipstjóri heldur stefnir hann á að verða byggingameistari. Keppt í kassabílaralli á lokahátíð Vinnuskólans í Hafnarfirði. Þúsund pylsum sporðrennt Eitt þúsund grilluðum pylsum var sporðrennt á sameiginlegri lokahátíð Vinnuskólans í Hafnarfirði og þeirra íþrótta- og leikjanámskeiða sem þar hafa verið haldin í sumar. Lokahátíðin var haldin í blíðskap- arveðri fyrir helgi og að sögn Geirs Bjarnasonar, forstöðumanns félags- miðstöðvarinnar Vitans, voru tæp- lega 2000 manns á hátíðinni. Eins og venjan er á svona hátíðum var keppt í aUs konar leikjum, um 100 krakkar tóku þátt í víðavangshlaupi og 14 bíl- ar kepptu í kassabílaralli en þar féll enn eitt vígi karlmanna því tvær stúlkur sigruðu. Kynnir á hátíðinni var Bommi Benjamíns (Hjálmar Hjálmarsson leikari) og hljómsveitin Jet Black Joe lék nokkur lög. Um 500 unglingar á aidrinum 13-16 ára hafa starfað hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar í sumar og 300-400 böm á aldrinum 6-12 ára hafa tekið þátt í íþrótta- og leikjanámskeiðum. -GHK hafnar, m/s Fjörunes bauð í ókeypis siglingu um sundin og dorgveiði- keppni var við Grófarbryggju. Það sem vakti einna mesta athygh og forvitni hjá þeim sem lögðu leið sína niður á höfn voru íslenska varð- skipið Ægir og danska varðskipið Vædderen. Vinsældimar sáust best þegar danska skipið var opnað al- menningi því þá myndaðist löng röð. HMR Krabbadýrin, sem voru í keri við höfnina, vöktu mikla athygli. Það voru þó ekki margir sem þorðu að taka þau upp. Fyrir miðri mynd má sjá fjórbura- systurnar Alexöndru, Diljá og Elínu fylgjast með þegar einn krabbinn var tekinn upp. Brynhildi, sem er sú fjórða, fannst ráðlegra að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Áhöfn dönsku þyrlunnar af Vædderen sýndi islenskum áhorfendum björgun- aræfingu úr sjó. Það vakti mikla athygli hjá þeim sem á horfðu hversu fljót hún var að ná manninum upp úr sjónum. Landsvirkjun hefur komið upp vandaðri útsýnisskífu á Áfanga- felh, háu felli sem Kjalvegur hggur yfír yestan við Blöndulón. AfÁfangafelh er mjög víðsýnt og Hofsjökull, Iiangjökuh og Eirfk- sjökull em tignarlegir aö sjá. Úr Blöndudal er mjög greiðfær vegur fram á ÁfangafeU og á þeirri leið fæst gott yfirht yfír virkjunarsvæði Blöndu. M E Ð M A A R U NÝTT ÚTLIT, SÖMU GÆÐIN, SAMA VARAN. /Vy^ARUD -meiribáttar gott!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.