Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993
43
Drykkju-
skapur
unglinga
„Öryggisleysi unglingsáranna, áhyggjur vegna útlits eða skólagöngu
hverfa eins og dögg tyrir heitri sumarsó! þegar áfengið rennur Ijúflega
gegnum æðarnar og upp í óþroskaðan heilann."
Fjölmiðlar hafa gert sér tíðrætt
um alls konar drykkjulæti ungl-
inga síðustu vikur. Þjórsárdaiur
var lagður í enn frekari auðn eftir
unglingahátíð og barist hefur verið
í miðbænum um helgar með eg-
gjárnum. Unglingafylliríið í fárán-
legri bresk-íslenskri tívolí-ómynd á
hafnarbakkanum hefur gengið út
yfir allan þjófabálk. Lögreglumenn
finna í sífeúu nýjar landa-verk-
smiðjur sem sérhæfa sig í fram-
leiðslu drykkjarfanga fyrir ungl-
inga. Bruggstjórar og aðrir at-
hafnamenn, sem gera út á léttar
buddur unghnga, sleppa þó án refs-
ingar og geta haldið áfram að fram-
leiða gambra eða flytja inn enn
svívirðilegri tívoh. Því miður fara
margir íslenskir unghngar að
drekka áfengi. Þeir verða sér úti
um flösku og kynnast vímunni í
fyrsta sinn af eigin raun. Áfengi er
í augum margra lykill að heimi
hinna fultorðnu þar sem aht er
leyfilegt. Öryggisleysi unghngsár-
anna, áhyggjur vegna úthts eða
skólagöngu hverfa eins og dögg fyr-
ir heitri sumarsól þegar áfengið
rennur ljúflega gegnum æðamar
og upp í óþroskaðanheilann. Um
stund fmnst unglingnum hann
vera til í allt og fær um flest, fuh-
orðinn manneskja í fullkomnum
htt vöxnum likama. Sumir missa
fótanna á þessu svelh áhrifa og
aðstæðna og fara að drekka af því
stjórnieysi sem einkennir alkóhó-
hsta á öhum aldri. Ættarfylgja,
óöryggi og töframáttur vímunnar
leggjast á eitt og innan skamms
fara margir unghngar að drekka
um hveija helgi og lenda ítrekað í
vandkvæðum. Foreldrar eiga oft á
tíðum erfitt með að horfast í augu
við ofdrykkju barna sinna og reyna
að loka augum fyrir henni.
Unglingurinn
Angantýr
Miðstéttarunglingurinn Angan-
týr hafði 15 ára gamah kynnst tö-
frum áfengis. Faðir hans var önn-
um kafinn drykkfehdur verslunar-
maður, móðirin vann á skrifstofu.
Fljótlega eftir 9. bekk var Angantýr
tekinn að drekka sig ölvaðan um
hverjahelgi. Nokkrum sinnum
komust foreldrar að drykkjuskap
Angantýs en hann hafði ávallt ein-
hveija nýja sögu á reiðum höndum.
Fyrst í stað gengu þær út á fuh-
orðna kaha sem höfðu boðið hon-
um vín. Hann sagðist hafa sloppið
við illan leik frá þessum öfugugg-
um en neyðst til að drekka vínið. í
eitt skipti fóru foreldrar hans í lög-
regluna til að kæra þessa óþekktu
misindismenn en fengu htinn
skhning. í framhaldi af því skrifaði
móðir Angantýs harðort bréf th
Velvakanda undir fyrirsögninni:
„Kynferðislega brenglaðir menn
ganga lausir og þjóna lægstu hvöt-
um sínum á saklausu ungviði.
Hvar er lögreglan?" Síðar sagði
Angantýr ff á vondum félagskap
sem hann kæmist ekki hjá að um-
gangast. Foreldramir trúðu öhum
þessum sögum enda voru þau sjálf
önnum kafm við að fela eigin
drykkju með furðusögum.
í vörslu lögreglunnar
Eina helgi hafði Angantýr farið
að heiman í fylgd félaga sinna.
Síðla nætur hringdi lögreglan og lét
foreldrana vita af honum. Sveinn-
inn sat þá í vörslu lögreglu, frávita
af áfengisneyslu og hinn versti við-
skiptís. Hann hafði lent í áflogum
við starfsmenn tívohsins á Hafnar-
bakkanum. Eðhleg réttlætiskennd
Angantýs hafði blásið honum þvi í
bijóst að verið væri að vinna fjár-
málaleg óhæfuverk á unghngum í
tívolu þessu. Fuhur af gambra og
vandlætingu hafði hann kvartað
við starfsmenn undan okri, óstjóm
og sóðaskap. Þegar Angantýr
komst th rænu tókst honum ekki
að framleiða neina nýja sögu en
komið var að skuldadögum. Hann
Álæknavaktimú
var greinhega farinn að drekka sér
til mikhs vansa enda sýndu náms-
afköstin að honum fór hratt hrak-
andi. Hann var félagslega einangr-
aður og stefndi eftir einni slóð nið-
ur á við eins og bhað parísarhjól.
Fjölskyldan sneri þá bökum saman
og tók á áfengisvandanum af festu.
Angantýr sneri við blaði og ákvað
að óprúttnir fjárglæframenn
skyldu ekki hafa sig að féþúfu
framar.
Hlutverk unglinga
Foreldrar verða að gera sér grein
fyrir því að áfengisvandamál er
fyrir hendi hjá fjölmörgum ungl-
ingum. Þeir drekka af stjómleysi,
lenda í óminni og alls kyns klandri
sem spillir árangri í skóla eða gengi
á vinnumarkaði. Unglingurinn
reynir að gera htíð úr vandamálum
sínum, hann réttlætir, afsakar og
afneitar af mikhh fimi. Hann held-
ur því fram að allir félagamir
drekki eins og hann, ahir fái meiri
vasapeninga en hann sjálfur, taum-
laus ölvun stafi af einhveijum
óviðráðlegum aðstæðum hveiju
sinni. Margir foreldrar taka slíkum
útskýringum fegins hendi og kepp-
ast sjálfir við að finna ástæður eða
sökudólga sem kenna má um
drykkjuófarir eða vandræði. Oft
má heyra áralangar afsakanir for-
eldranna vegna eigin drykkju
enduróma í útskýringum bama
sinna. Aðrir gefast upp fyrir
drykkju bama sinna og fara að
kaupa fyrir þau vín og leyfa
drykkjuskap inni á heimilum sín-
um. Foreldrar verða að móta ein-
hveija stefnu í þessum málum í
fjölskyldunni og standa við hana.
Mikið fijálsræði og agaleysi getur
fremur ýtt undir drykkju en dregið
úr henni. Foreldrar sem kaupa vín
fyrir böm sín eða fiármagna neyslu
með ríflegum vasapeningum verða
að átta sig á eigin ábyrgð á þeim
vandamálum sem em að skjóta upp
kollinum. Auk þess verða foreldrar
að skhja að þeir era fyrirmynd
bama sinna á sviði áfengisneyslu
eins og annars staðar.
STÆRÐ STGR.VERÐ
15X6 3.042 -
15X7 2.961.-
15X8 3.069,-
15X10 3.852.-
15X12 9.509 -
15X14 10.971,-
16.5X9.75 4.460,-
16.5X8.25 4.460,-
. STÆRÐ STGR.VERÐ
15X6 4.046,-
15X7 3.951,-
15X8 4.361,-
15X10 5.981,-
15x12 12.947.-
16.5X9.75 6.687,-
16,5X8,25 6.687,-
STÆRÐ STGR.VERÐ
15X7 10.008,-
15X8.5 11.363.-
15X10 12.128,-
STÆRÐ STGR.VERÐ
15X8,5 8.717,-
15X10 10.238.-
15X12(61) 15.606.-
15X12 16.974,-
15X14 19.377,-
16.5x9.75 11.147,-
GÚMMÍVINNUSTOFAN HF.
RÉTTARHÁLSI 2 SÍMI 814008 OG 814009 SKIPHOLTI 35 SÍMI 31055
Brettakantar,
vindhlífar og
radarvarar
^frá
^Qbra*
dverg
hólar
Bolholti 4 - simi 91-680360
Aukablað
Tómstundir
og útivist
Miðvikudaginn 18. ágúst nk. mun aukablað
um tómstundir og útivist fylgja DV.
í þessu blaði verður fjallað um Reykjavikur-
Maraþon, sem haldið verður þann 21. ágúst
nk., viðtöl við keppendur, kort af hlaupaleið,
upplýsingatöflur o.fl. Einnig verður Qallað um
veiðar og veiðimenn, tómstundir bama, ungl-
inga og fullorðinna.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að aug-
lýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi sam-
band við Jensínu Böðvarsdóttur, auglýsinga-
deild DV, hið fyrsta í síma 63 27 27.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 12. ágúst.
ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27.