Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993 Sérstæö sakamál „Hengilmæna" var það síðasta sem hún sagði Thomas með tvíburana. Thomas og Andrea Eich á brúðkaupsdaginn. Hús Eich-hjónanna og hluti handrits auglýs- ingarinnar. Vikum saman hélt hinn hálf- örvinglaði fjölskyldufaðir, Thomas Eich, um fimmtíu þúsund íbúum þýska bæjarins Stendal í Sachsen í tregablandinni eftirvæntingu. Þeir báðu með honum og fyrir hon- um við sunnudagsguðsþjónustur, klöppuðu honum á öxhna þegar þeir mættu honum á götunni, skrif- uðu honum bréf og sendu honum peninga. Það mátti með sanni segja að heill bær stæði með þessum vesalings manni sem hafði orðið fyrir svona mikilh sorg. Það hafði Uka komið við hjarta næstum hvers manns þegar þessi tuttugu og sjö ára gamli maður hafði leitað tíl almennings með sér- staka beiðni. Hjálp! Beiðnin birtist í formi auglýsing- ar og/var sem hér segir: „Óhámingjusamur íjölskyldufað- ir með eins árs tvíbura óskar eftir aðstoð almennings við leitina að konu hans og móður tvíburanna. Við söknum þín, Andrea. Ef henni er haldið á einhverjum stað fórum við fram á eftirfarandi: Sleppið henni ef þið eruð manneskjur. Við börnin þurfum á henni að halda. Fyrir upplýsingar sem geta orðið tii þess að við endurheimtum okkar kæru móður og húsmóður munum við borga.“ Þúsundir vildu aðstoða við leit- ina. Og lögreglan var ákveðin í að láta sitt ekki eftir Uggja og beitti hópi sérþjálfaðra hunda. Allt skyldi gert til að móðir bamanna tveggja fyndist. Hvað sem það kost- aði. Líkið fannst 10. mars 1992 í skógi við þorpið Dolle um þrjátíu kUó- metra sunnan við Stendahl. Andrea Eich var aðeins tuttugu og eins árs þegar hún varð fórnardýr kynferðisafbrotamanns. Gátan leysist Fregnin um Ukfundinn kom illa við marga borgarbúa, fólk sem opnaði dagblöðin sín á hveijum morgni tU að kanna hvort lögregl- an hefði orðið nokkurs vísari um konuhvarfið dularfuUa. Mörgum þótti skelfilegt til þess að vita að ungur maður skyldi sitja einn uppi með tvö böm á öðm ári eftir að hafa misst konu sína á skelfilegan hátt. Samúðin meö Thomas Eich varð meiri en nokkru sinni fyrr og tU hans streymdu nú samúðarkveðjur og gjafir, auk þess sem hópur góðhjartaðs fólks bauð aUa þá aðstoö sem það gæti veitt. Svo kom tilkynningin frá rann- sóknarlögreglunni sem alUr höfðu beðið eftir. Morðinginn var fund- inn og eftir langar og strangar yfir- heyrslur hafði hann játað að hafa framið verknaðinn. Menn önduðu léttar því þótt Andrea yrði ekki köUuð aftim til lífsins og myndi því aldrei framar standa við hUð manns síns og vera hjá bömunum sínum yrði réttlætinu nú fullnægt. Þeirri spumingu var hins vegar enn ósvarað hver hafði verið að verki og hvaða atburðarás hafði valdiö því að Andrea Eich hafði týnt lífinu á þann skelfilega hátt sem raun bar vitni. Sprengjan springur íbúar Stendal og reyndar víðar í Sachsen biðu þess í ofvæni að skýrt yrði frá því hver morðinginn væri. Það hafði ekki verið hægt að gera í fyrstu tilkynningunni þar eð sannprófanir höfðu ekki enn farið fram og tæknimenn höfðu ekki að fullu lokið störfum. Þvi gat verið að játning morðingjans væri ekki í öllu í samræmi við það sem gerst hafði. En svo lauk rannsókninni og þá sendi lögreglan frá sér nýja tílkynningu. Morðinginn var sjálfur Thomas Eich, eiginmaðurinn sem virst hafði svo óhamingjusamur yfir hvarfi konu sinnar. Fréttin um að það hefði verið hann sem leikið haföi konu sína Ula, myrt hana og kastað Ukinu út í skóg aUlangt frá heimabænum kom eins og reiðarslag yfir flesta. Hvað hafði gerst? Hver var ástæð- an? Var Thomas Eich hættulegur maður, ef tii vfil vitfirrtur? Allra þessara spuminga og fleiri spurði fólk sig og því var frekari skýringa beðið með óþreyju. Hamingjusamt hjónaband? Flestir sem þekktu tU Eich-hjón- anna töldu að hjónaband þeirra væri gott. AUt frá því að þau giftu sig einn sólríkan ágústdag árið 1990 höfðu þau verið glaðleg að sjá hvar sem þau komu og enginn hafði get- að merkt að neitt ylU þeim óham- ingju. Andrea hafði verið ólétt þegar hún gekk í hjónabandið. Það duld- ist engum því tvíburar hjónanna, Gerrit og Enico, fæddust í mars 1991, aðeins sjö mánuðum eftir brúðkaupið. Fjölskyldan bjó í rúmgóðu húsi sem þau höfðu varið miklum pen- ingum og tíma í að lagfæra og betr- umbæta. Þannig höfðu þau eytt mestu af sparifé sínu en árangur- inn hafði orðið sá að húsið var sagt þeim til mikiUar ánægju. Thomas var glerskeri í fyrirtæki fóður síns en Andrea hafði verið í góðu starfi hjá tryggingafélagi. Þegar leitað var til vinkvenna hennar og þær spurðar um hana vom þær allar á einu máU um að hún væri ánægð með starfið og líf sitt. Hvað var að? Þetta var því spurningin sem enn var ósvarað. Og þegar hér var kom- ið vissu aðeins tveir menn svarið við henni. Annar var Thomas Eich sem alUr töldu nú nær ólýsanlegan óþokka. Hann leysti loks frá skjóð- unni og frásögn hans fékkst staö- fest. Dag einn hafði Andrea komið til Thomas og lýst yfir því við hann aö hún væri farin að halda við ann- an mann og vildi fá skilnað. Thom- as varð agndofa. Ekkert hafði gerst í sambúð þeirra sem hann taldi geta skýrt þessa hegðan. Er hann fékk loks máUð aftur spurði hann konu sína hvað hún hygðist fyrir með börnin. Ætlaði hún að láta hann sjá um þau? Ekki komust þau að neinu samkomulagi um tvíbur- ana í það sinn sem og reyndar fleira. Thomas gaf hins vegar ekki upp aUa von um að takast mætti aö bjarga hjónabandinu og ákvað að þegja yfir því hvernig komið væri. Og Andrea mun ekki hafa viljað skýra neinum frá framhjá- haldi sínu. Þess vegna grunaði eng- an að neitt væri að. Lokaþáttur aðdragandans Þegar Andrea hafði skýrt frá því að hún ætti sér elskhuga, sem hún vfidi giftast, gerbreyttist sambúð hennar og Thomas eins og búast mátti við. Þau rifust og daginn sem Thomas myrti hana rifust þau heiftarlega. Skiptust á grátur og hurðarskelhr. Lauk rifrildinu með því að Andrea hótaði að taka foggur sínar og flytjast til elskhugans, Manfreds. „Ef þú ekur mér mér ekki strax heim til Manfreds skal ég sjá til þess að þú sjáir tvíburana aldrei aftur,“ sagði hún. Það segir Thom- as að minnsta kosti að hún hafi sagt og bera menn í sjálfu sér ekki brigöur á þann þátt frásagnarinn- ar. Andrea tók síðan saman nokkuð af fóggum sínum og fór með tösk- una út í bU þeirra hjóna en Thomas settist undir stýri. Að Andrea tók töskuna með sér sannfærði Thom- as um að nú væri henni alvara með að fara af heimilinu fyrir fuUt og aUt. Atburðurinn örlagaríki Thomas ók af stað. í stað þess að aka heim til Manfreds ók hann út úr bænum og stöðvaði ekki bílinn fyrr en hann kom í Utinn trjálund. Þar tók hann konu sína með valdi en á meðan segir hann hana hafa hrópað að hann væri ekki „góður í rúmi“. Og síðustu orð hennar seg- ir hann hafa verið: „Þú ert heng- ilmæna." Thomas Eich greip hálftóma viskíflösku sem var í bUnum og braut hana á höfði konu sinnar. Síðan kyrkti hann hana. Þegar líkið af Andreu fannst i skóginum við DoUe sunnan Stendal rannsökuöu réttarlæknar það og sáu strax að unga konan hafði ver- ið myrt. Eiginmaðurinn Thomas var að sjálfsögðu tekinn til yfir- heyrslu og í fyrstu kom ekkert fram sem benti tU þess að hann væri sá seki. Thomas verðurtvísaga Þegar farið var að yfirheyra Thomas betur og hann var beðinn um að endurtaka einstaka þætti frásagnar sinnar varð honum það sama á og svo mörgum í hans spor- um áður. Hann komst í mótsögn við sjálfan sig og öðrum þætti frá- sagnar hans lýsir fuUtrúinn sem rannsókninni stjórnaði, Lutz Him- ing, á þennan hátt: „Thomas Eich vissi um atriði sem engum nema morðingjanum gat verið kunnugt um. Loks var ekki um annað fyrir hann að gera en játa á sig verknaðinn." Þegar tekist hafði að upplýsa morðið og skýrt hafði verið frá því að Thomas væri sá seki spurðu margir í Stendal og Sachsen sig að því hvers vegna í ósköpunum Thomas Eich hefði birt auglýsing- una sem hafði að geyma beiðni tU almennings um aðstoð. Auglýsing- in hafði orðið til þess að beina mik- iUi athygU að honum og hefði hugs- aniega, fannst sumum nú, getað orðið til þess að grunur féUi á hann. Var auglýsingin þáttur í þaulskipu- lögðu morði? Svar rannsóknarlög- reglimnar er að svo muni ekki hafa verið. Morðið hafi ekki verið skipu- lagt, að minnsta kosti ekki í þeim skilningi sem þama kom fram. Almenningi fannst hins vegar hann hafa verið hafður að ginning- arfífli í málinu og þakklæti kom fram hjá mörgum yfir þvi að máhð skyldi upplýsast. Myndir sem birtust af Thomas Eich í blöðum eftir morðið bera hins vegar með sér að hann var Ula haldinn. Þykir sumum ljóst að honum hafi sjálfum þótt verknaður sinn svo skelfilegur að hann hafi vUjað beina frá sér grun með öUum ráðum, þar á meðal auglýsingunni sem vakti svo mikla athygU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.