Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Qupperneq 22
22
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1903
Dagur í lífi Sigurðar Helgasonar, starfsmannsUmferðarráðs:
ljósvakans. Þá koma aðilar sem
störfuðu við „Bílarokk" sem er liður
í fyrmefndu samstarfi við trygginga-
félögin með reikninga. Þá er rætt um
tónleikana og greinilegt er að þeir
sem því máli tengdust eru mjög
ánægðir og menn láta jafnvel hugann
reika til næsta árs með að gera svip-
aða hluti.
Útsending númer 2
Tíminn líður hratt. Margir hringja
með fyrirspurnir eða vegna ein-
hverra samskipta en sjálfur horfi ég
löngunaraugum út um gluggann á
sólina sem vermir skrifstofuna og
hugsa til þess þegar ég kemst út til
að njóta hennar hinum megin við
glerið.
En fyrst þarf ég að senda út síðdeg-
isútsendingu sem gerist með svipuð-
um hætti og um morguninn. Haft er
samband við lögreglu og fleiri til að
fá yfirsýn yfir hvað gerst hefur þenn-
an daginn. Fréttir eru heldur litlar
og það teljast vera góðar fréttir aö
okkar mati. Útsendingamar standa
fram undir sex og ég sit sveittur því
sólin hefur náð að verma hljóðstof-
una vel og hressilega.
Heim er síðan haldið. Kvöldmatur
borðaður, að mestu leyti undir ber-
um himni, því dagurinn hefur reynst
vera sá hlýjasti á sumrinu. Að máltíð
lokinni fórum við í heimsókn til
vinafólks og síðar um kvöldið er eldri
dóttir okkar hjóna væntanleg úr
sumarbúðum norður í landi. Hún
kemur með Norðurleiðarrútunni um
hálftólfleytið og verða vitanlega
fagnaðarfundir. Hún er ánægð eftir
vikudvöl að heiman pg við með að
fá hana aftur heim. Á heimleiðinni
segir hún foreldrum sínum og yngri
systur frá atburðum í sumarbúðun-
um, nýjum vinkonum og fleiru. Þeg-
ar heim er komið er tímabært að fara
að sofa því innan skamms er kominn
nýr dagur meö nýjum verkefnum,
fjölbreyttum og skemmtilegum.
Mánudagur rennur upp bjartur og
fagur. Helgarfríi er lokið og við tekur
vinnuvika, sú síðasta fyrir verslun-
armannahelgi. Hún er oftast anna-
söm og ekkert bendir til annars en
svo verði einnig þetta árið. Ég tek
daginn snemma því að eitt af verkum
mínum á mánudagsmorgnum er að
fjalla um umferðina í útvarpi. Klukk-
an 7.15 opna ég dymar að litlu hljóð-
stofunni í Borgartúninu, set tækin í
gang og byrja að hafa samband við
lögreglu og þá sem annast fram-
kvæmdir á umferðargötum í höfuð-
borginni.
Helgin hefur gengiö vel og lög-
reglumenn sem ég ræði við láta vel
af sér, ekki síst Selfyssingar sem lofa
gott samstarf við lögregluna í
Reykjavík og Kópavogi um nýliðna
helgi.
Rétt fyrir átta hefjast síðan útsend-
ingar, fyrst á Rás tvö og síðan á öðr-
um stöðvum og standa þær yfir fram
til klukkan níu með smáhléum.
Eftir útsendingar sest ég niður og
velti fyrir mér verkefnum dagsins
og næstu daga. Fyrir liggur að skrifa
bréf til lögreglustöðva vegna versl-
unarmannahelgar og einnig að ræða
við menn hjá útvarpsstöðvum sem
eru í óðaönn að undirbúa helgina.
Síminn þarfaþing
Síminn er mikið þarfaþing og þeir
eru margir sem hafa samband viö
Umferðarráð með ábendingar eða
umkvartanir varðandi umferðina og
algengt er að fólk hafi áhyggjur af
umferðinni og þeim hættum sem
henni fylgja. Kona hringir og kveðst
ekki vera sátt við niðurstööu trygg-
ingafélags vegna árekstursmáls og
það fer talsverður tími í að ræða við
hana og skoða málið sem er svipað
mörgum öðrum sem upp koma. Með
þessum hætti líður tíminn fram að
hádegi og þá tek ég mér stutt hlé,
skrepp heim og þá er frúin að fara í
vinnu og er sjálfsagt að aka henni
Sigurour neigason.
þá bæjarleið. Mikil umferð og tals-
verðar tafir eru á Reykjanesbraut og
er það í samræmi við það sem fram
hafði komið um morguninn. Þá lendi
ég í þeirri stöðu að þurfa að bíða
þolinmóður eftir að bílarnir komist
leiöar sinnar.
Umferðarráð er í samstarfi við bif-
reiðatryggingafélögin Fararheill rnn
þessar mundir og vegna þess þarf ég
að sækja auglýsingar sem gerðar
hafa verið og hugsaðar eru til að
vekja athygli ungra ökumanna á
umferðinni og þeim hættum sem
DV-mynd GVA
henni fylgja. Þegar ég er búinn að fá
þær í hendur þarf að hafa samband
við auglýsingadeildir útvarpsstöðv-
anna til að fá þær birtar. Gera þarf
grein fyrir hvaða óskir eru varðandi
birtingar og ekki líður á löngu áður
en við heyrum þær hljóma á öldum
Annir í þágu umferðar
Finnur þú fimm breytingar? 216
COMMUCIN**
„Ég er því miöur ekki með þetta borð, herra minn!“ Nafn:.........................................................
Heimilisfang:.................................................
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á.
myndinni tii hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimiiisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: Aiwa vasadiskó
að verðmaeti 4.480 krónur frá
Radíóbæ, Ármúla 38.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækurnar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott-
ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og
Víghöfði. Bækumar eru gefnar út
af Fijálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 216
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö
hundruðustu og fjórtándu
getraun reyndust vera:
1. Rakel Rúnarsdóttir,
Reykjafold 9,112 Reykjavík.
2. Sesselja Þórðardóttir,
Faxabraut 36 b, 230 Keflavík.
Vinningarnir verða sendir
heim.