Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1993, Page 32
44 FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993 Trimm Hilmar Hafsteinn Gunnarsson hjá Veggsporti: Veggtennis er mjög skemmtileg íþrótt - um 1000 manns stunda reglulega veggtennis „Stærsti hlutinn er trimmarar sem eru að halda sér í formi og hreyfa sig. Þetta er fólk á öllum aldri. En þetta hefur verið að þróast og er að þróast sem keppnisíþrótt. Ef ég á að skjóta á tölur þá eru þetta í kringum 1000 manns sem stunda þetta reglu- lega hér á landi,“ sagði Hilmar Haf- steinn Gunnarsson íþróttakennari og eigandi Veggsports sem hann hef- ur veitt forstöðu fyrst í gamla Héð- inshúsinu en flutti fyrir rúmu ári í glæsilegt húsnæði við Stórhöfða 17. I húsnæðinu eru 6 salir, þar af einn — Raquett ball salur. Uppruni Veggtennisinn er ættaður frá Bret- landi og var fyrst stundaður svo vitað sé um 1850 af fóngum sem slógu bolta í fangelsisveggina. Síðan þróaðist þessi leikur í skóla sem hét Harrow- School og má segja að leikurinn í dag sé sá sami og var spilaður þar. Þess vegna er sagt að veggtennisinn sé upprunninn í Harrow-School. Hilmar Hafsteinn Gunnarsson. Skvass/ Raquettball Veggtennis er eiginlega sam- heiti yfir baiði skvass og Raquett ball. Þaö er bæði hægt að stunda skvass og Raquett baU hjá Vegg- sporti. Munurinn á þessu tvennu er að í Raquett ball er boltinn miklu stærri en í skvassi ■ og Raquett salurinn er örlítið mjórri og tveimur metrum lengri. Jafn- framt eru spaðarnir styttri eða bara handtáng og haus. I Raquett ball skoppar boltinn miklu meira og því þarf að reikna út hvar hann kemur þvi hann er miklu lengur á lofti. ískvassier toltinn hins vegar alveg dauður þegar hann snertir gólfið og þar af leið- andi verður þu að sækja hann þar sem hann lendir. Trimla Sértu allur svona heldur í hassi er hugurinn veill, minn Lassí. Því skaltu vippa þér út og vera ekki í sút þú færð uppreisn æru í skvassi. J.B.H. Veggtennis er lífleg íþrótt. Hvarerhægt að stunda veggtennis? „Það er búið að stunda veggtennis á íslandi frá 1981. í dag er hægt að stunda veggtennis hjá okkur í 6 söl- um, einnig er hægt að stunda vegg- tennis hjá Dansstúdíói Sóleyjar í 4 sölum og einnig hjá World Class.Þetta eru svona helstu staðim- ir.“ Út á hvað gengur leikurinn? „Leikurinn gengur út á það að það eru tveir í salnum í einu og ólíkt tennisnum em báðir spilarar sömu megin netsins. Síðan slær annar bolt- ann eftir sérstökum reglum en hinn tekur á móti. Boltinn má koma einu sinni í gólfiö og reynt er að slá hann í framvegginn til að hinn nái ekki að ná til hans aftur. Ef sá sem gaf upp vinnur boltann gefur hann upp hinum megin í salnum og alltaf til skiptis á meðan hann skorar. Síðan þarf hinn að vinna uppgjafarréttinn og þá ræður hann hvomm megin í salnum hann byrjar. Það er spilað upp í 9 stig. Sá vinnur sem fyrr vinn- ur fleiri lotur í 3 lotu leik eða fleiri lotur í 5 lotu leik en það em algeng- ustu leikirnir." Hvað kostartíminn? „Tíminn kostar 500 kr. í dag og fá allir þyrjendur leiösögn í fyrsta tím- anum þar sem við kennum fólki að halda á spöðunum og hvemig eigi að slá og bera sig að. En í öðmm tíma förum við yfir reglurnar með fólk- inu. Þetta gemm við til þess að fólk fari ekki að keppa strax í fyrsta tím- anum. Einnig er hægt að fara á smá námskeið hjá einkakennara.“ Útbúnaður „Það þarf góða íþróttaskó og svo spaða. Spaðamir kosta frá 3-4 þús. og upp í 15. þús. og hægt er að kaupa þá hjá okkur. Við lánum þó spaða hér einnig endurgjaldslaust. Að sjálf- sögðu þarf svo léttan innifatnað." Allir aldurshópar? „Já, alveg tvímælalaust frá unga aldri og alveg upp úr. Þessi íþrótt er alls ekki eins erfið og talað er um. Ástæðan er sú að byrjendur skortir bæði úthald og tækni sem gerir þetta erfitt. í þessari íþrótt eru tæknin og líkamlegt þrek jafnmikilvægir þættir og þurfa að byggjast upp samhliða. Það fmnst mér vera kostur. Vegg- tennis er mjög skemmtileg íþrótt og skemmtunin verður meiri eftir því sem íþróttin er stunduð lengur. Broslegt Ég var nýbyijaður í veggtennis ásamt kunningja mínum og við töld- um okkur vera orðna nokkuð góða. Við vorum báðir með þokkalega góða spaða sem voru með opnum hálsi. Leikurinn hafði gengið snurðulaust fyrir sig þar til Konni skaut boltanum í stöðunni 4-4 og ég náði honum auð- veldlega og skaut honum firnafast í vegginn en fékk ekkert mótspil frá Konna. Boltinn var horfinn! Við fór- um að leita að boltanum út um allt en allt kom fyrir ekki, boltinn var horfmn. Konni margspurði mig hvort ég heíöi étið boltann. Ég var einna helst á þvi að um yfimáttúrlega hluti hefði verið að ræða. Skyndilega varð mér litið á hálsinn á spaðanum og viti menn! Boltinn sat pikkfastur í gatinu. Síðar frétti ég þaö að helsta aðhlátursefni reyndari spilara væri að fylgjast með byrjendum vera að leitaaötýndaboltanum! T.Þ. Hver kílómetri merktur - fýlgjast með klukkunni og hlaupa jafnt AIMS Sérhver kílómetri í Reykjavíkur- Maraþoni er merktur þannig aö auð- velt er að fylgjast með hvað tímanum líður. Það er skynsamlegt aö fara af stað með ákveðna áætlun í huga. Gott er að setja sér raunhæft tak- mark og reyna síðan að hlaupa hvem kílómetra jafnt út frá því. Allt of margir geysast af stað ómeðvitaðir um hversu hratt þeir hlaupa sér- hvern kílómetra. Þetta á bæði við reyndari hlaupara og byijendur. Reyndin er líka oftast sú að hraðinn í byijun kemur niður á viðkomandi hlaupurum á seinni stigum hlaups- ins. Við skulum þess vegna ákveða áður en við förum af stað á hvaða tíma við ætlum að hlaupa sérhvern kílómetra og láta aöra hlaupara sem geysast af stað hafa lítil áhrif á okk- ur. 12. vikal/8-7/8 Lengd Sunnud. Mánud. Þriðjud. Miðv. Fimmtud. Föstud. Laug. Samt km 10km 10-12 km ról 6 km ról 5 km hraðal. 8-10 km ról 6 km ról. Hvíld 3000 m tímataka 43-47 km 21 km 20-22 kmról 8 km ról 8kmhraðal. I5kmról I0 km ról Hvíld 5000 m tímataka 71-73 km Þrjárvikurí Reykjavíkur-Maraþon Nú eru þijár vikur í Reykjavíkur- Maraþon og álagið í þessari viku er í hámarki. Næstu tvær vikumar skemm við niður kílómetramagnið með það fyrir augum aö fríska okkur upp. Á laugardaginn er tímatöku- hlaup og þá er gott að fara á 400 m brautina í Laugardal eða á Varmár- völl í Mosfellsbæ. Tiigangur með tímatökuhlaupi er aö sjá hvemig und- irbúningi miðar og meta hvaða tak- mörkum er raunhæft að stefna að í keppni. 3000 m á braut em 7 'A hring- ur en 5000 m eru 12 'A hringur. Gott er að skokka 3 km fyrir tímatöku- hIaupiðog2kmáeftir. J.B.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.