Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Page 8
8
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
Vísnaþáttur____________
Þið skuluð
ekki hafa hátt
II. hluti
Þá verður hér haldið áfram þar
sem frásögnin um viðureign hag-
vrðinganna lauk í síðasta þætti:
„Þessi visa varð tilefni eftirfar-
andi hugleiðinga:
Stýrir Karl á stefjahaf
stuðlaferju glæstri
mjög þótt fór hans mótist af
miklum nasablæstri.
Af boröum þessa mæta manns
molar ýmsir hrjóta.
En vindurinn í vísum hans
virðist aldrei þrjóta.
Meðan Karh mæðir á
meinleg skeyti og bitur
undrast menn að EgiU hjá
auðum höndum situr.
Af snilld, sem þó er eitthvað
ýkt,
andans sveðjur hvetja
kappar þeir og kveða líkt
en Karl er meiri hetja.
Þingeysk menning þynnri var
en þóttust margir hyggja
fyrst á helztu hæðirnar
hundaþúfur skyggja.
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
TU skýringar á síðustu visunni
má geta þess að áður hafði Karl líkt
þingeyskum kveðskap við íslenzk
fjöll en hins vegar jafnað kveðskap
hér syðra við hundaþúfur.
Þessar vísur, sem ég hef hér farið
með, eru aðeins Utið sýnishom
þess kveðskapar sem orðið hefur
tU í sambandi við vísnaþátt minn
í útvarpinu. Þær eru valdar af
nokkra handahófi og vafalaust
verða þær ekki taldar mikUl skáld-
skapur, enda ekki hugsaðar þann-
ig. En engin andleg íþrótt hefur
þótt þjóðlegri hjá íslendingum en
leikurinn með ferskeytluna. Og
gildi þeirrar íþróttar hefur fyrst og
fremst verið fólgið í hinum hollu
áhrifum hennar á málfar okkar og
tungutak. Hún hefur í senn bæði
stælt það og mýkt á sama hátt og
líkamlegar íþróttir fága látbragð
manns og limaburð. Þótt við höfurn
stimdum gerzt nokkuð orðhvatir í
vísnastríðinu í vetur hefur það ver-
ið í þeim tílgangi ernum að eggja
hagyrðinga til þátttöku og auka
þannig spennu leUcsins. Einna
hvatskeytilegust hafa verið skipti
okkar við þingeysku skáldin og þá
fyrst og fremst Karl Sigtryggsson á
Húsavík. En svo græskulaust frá
hans hendi ekki síður en okkar að
nú í fyrradag fékk ég bréf frá hon-
um þar sem hann býður fullar
sættir og vUl slá á mUdari tón fram-
vegis. Hann sagði að sér hefði fund-
izt hann vera keppandi á þessum
leikvangi útvarpsins fyrir hönd
héraðs síns og sýslunga og undir
slíkum kringumstæðum sveUur
honum móður sem eðlUegt er. Ég
hef svarað þessu vopnahléstílboði
hins ágæta þingeyska hagyrðings
þannig:
Sá háttur er gamaU
og hendir vafalaust flesta,
því hugarfarið
er alstaðar nokkuð líkt,
að gera í öUu
átthagans reisn sem mesta
og engum er fjær en mér
að lá ykkur slíkt.
Þvi flestir í einhveiju
átthagans svipmót bera
og einnig ég get bent
á fuUorðna menn,
er trúðu sem böra að bezt sé
og stoltast að vera
Borgfirðingur,
og trúa því jafnvel enn.“
Og furðar víst engan, aðra eins
srúllinga og Borgfirðingar hafa
eignazt gegnum tíðina, þeir gefa
Þingeyingum ekkert eftir hvað það
snertir. En þar sem ég þekki ekkert
framhald þessarar deilu er ráð að
snúa sér að öðru.
Það var einhverju sinni að Rós-
berg G. Snædal, skáld og kennari,
hjálpaði Guðmundi Halldórssyni
frá Bergsstöðum að gera við hús
hans. Sóttu þeir timbur tU kaupfé-
lagsins og sníktu sér spotta tU að
binda timbrið niður á toppgrind
bUsins. Nokkru síðar kom nafnlaus
vísa á bréfsefni kaupfélagsins en
höfundur var taUnn PáU Sigurjóns-
son frá Ingveldarstöðum (bróðir
Sigrúnar, konu ísaks Jónssonar
skólastjóra):
Skáldbræður af tvennu tagi
tóku út sína neyzluvöru,
keyptu þeir í kaupfélagi
kistuvið og efni í snöru.
Rósberg svaraði, en þetta ár inn-
leiddi Kaupfélag Skagfirðinga stað-
greiðslu í verzlunum sínum flest-
um en þó ekki á byggingarvörum:
Þótt staögreiða verði hvert
tangur og tól,
sem tilheyrir mönnum sem lifa,
má hnausþykkan kaðal í
hengingaról
hjá háttvirtum félögum skrifa.
Torfi Sveinsson frá Gili tók undir
með Rósberg:
Sultarólar ýmsir herða
önnum þegar lýkur dagsins.
Skyldi snöruskrattinn verða
skjaldarmerki kaupfélagsins?
Ingveldur Einarsdóttir, vinnu-
kona á Reykjum í MosfeUssveit,
var fædd í HeUisholtum í Hruna-
mannahreppi 17. júh 1878, dóttir
Einars Jóhannssonar og Vigdísar
Einarsdóttur, konu hans, búenda
þar. Hún lézt 19. nóv. 1958. Hún var
um skeið í Laxnesi hjá foreldrum
Halldórs Laxness og minntist oft
með gleði ýmissa atvika frá
bernskudögum skáldsins sem alltaf
var í miklu uppáhaldi hjá henni.
Enda hafði hún yndi af skáldskap
og var vel hagmælt svo að sumar
visur hennar urðu landsfrægar
eins og t.d. þessi, sem hún sendi
vini sínum, HaUdóri, er kvæðabók
hans kom út:
Þitt hef ég lesiö, Kiljan, kver,
um kvæðin Utt ég hirði.
En eyðumar ég þakka þér,
þær eru nokkurs virði.
Ingveldur var aUtaf fuU af gam-
ansemi og þannig ber að taka vísu
þessa. Hún dvaldist á heimiU for-
eldra Jóhannesar Bjamasonar
(sem skrifar minningargrein um
hana í Mbl. í nóv. 1958) á Reykjum
í MosfeUssveit frá 1921 til ævUoka,
að undanskUdu síðasta árinu sem
hún lifði er hún var á Elliheimilinu
Grund.
Og með þessu tel ég mælinn fuU-
an að sinni.
, Torfi Jónsson
Matgæðingur vikunnar
Vinsæll
rækjuréttur
„Þetta er mjög vinsæU réttur heima hjá mér og oft
beðiö um hann. Auk þess er mjög auðvelt að búa hann
tU og því er hann tUvaUnn þegar mikið er að gera,“
segir Anna EUsabet Ásgeirsdóttir, atvinnurekandi og
matgæðingur vikunnar. Hún segist oft hafa þennan
rétt þegar fólkið heima sé búið að fá nóg af kjöti. „Þetta
er létt í maga og gott,“ segir hún. Það er rækjuréttur
sem Anna Elísabet býður lesendum upp á, einfaldur
og þægUegur. Anna EUsabet segist hafa fengið upp-
skriftina frá Svíþjóð. Hún Utur svona út:
Það sem þarf
700 g rækjur
3 msk. smjörUki
1 tsk. karrí
1 tsk. paprikuduft
1 meöalstór saxaður laukur
1 græn, stór söxuö paprika
3 msk. tómatsósa
2 msk. sinnep
3-4 dl ijómi
Aðferðin
Karríið og paprikuduftið er brúnað í smjörUki á
pönnunni. Saxaður laukurinn og paprikan sett út í.
Þá er ijómanum heUt yfir og tómatsósu og sinnepi
bætt við. Látið sjóða í nokkrar mínútur. Að lokum er
rækjunum bætt á pönnuna og hitað upp að suðu.
Rækjurnar mega aUs ekki sjóöa.
Rétturinn er borinn strax á borð og með honum er
gott að hafa hrísgijón, gott hrásalat og ristað brauð.
Anna EUsabet segist hafa réttínn sem aðalrétt en
auðvitað má Uka bjóða hann sem forrétt ef menn vilja.
Rækjurétturinn er sumarlegur og tilvalinn í góðu veðri.
r-».______________L—___
Anna Elisabet Asgeirsdóttir, matgæðingur vikunnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Anna EUsabet ætlar að skora á mágkonu sína, Gunn-
hUdi Siguijónsdóttur þroskaþjáUa, að vera næsti mat-
gæðingur. „Hún er eldklár í grænmetisréttum enda
hefur fjölskyldan frekar borðað grænmeti," segir Anna
EUsabet. Hún vonast til að Gunnhildur komi með góð-
an grænmetisrétt til tilbreytingar og við tökum undir
það. -ELA
Hinhliðin
Verða betri
eiginmaður
- segir Andri Marteinsson fótboltakappi
„Ég er þessa dagana að komast í
sumarfrí og vonast til þess að geta
eytt sem mestum tíma með fjöl-
skyldunni í franu,“ sagði Andri
Marteinsson, knattspymukappi í
FH, sem hefur átt stóran þátt í vel-
gengni FH-Uðsins í sumar. Andri
hefur spUað sem miðframherji í
FH-Uðinu en einnig í landsUðinu í
bakvarðarstöðu. „Markmiðið hjá
FH í upphafi tímabUsins var að
vera fyrir ofan miðja deild og eins
og er gengur ágætlega. Hálft tíma-
biUð er þó eftir og jafnlangt niður
í 9. sætið eins og það fyrsta og því
gæti aUt gerst," sagði Andri Mar-
teinsson sem sýnir á sér hina hUð-
ina að þessu sinni.
Fullt nafn: Andri Marteinsson.
Fæðingardagur og ár: 8. ágúst 1965.
Maki: Anna Soffía Sigurðardóttir.
Börn: Marteinn Gauti Andrason.
Bifreið: Mitsubishi Lancer GLX,
árgerð 1989.
Starf: Kennari.
Laun: Segir ekki staðan aUt um
þau.
Áhugamál: Flestar íþróttir, kvik-
myndir og tónUst.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég hef fengiö 3 en
ég spUa mjög sjaldan.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Eiga góðar stimdir með fjöl-
skyldunni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Taka til og dytta að.
Uppáhaldsmatur: Piparsteik með
ijómasveppasósu.
Uppáhaldsdrykkur: Captain Morg-
an.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Michael
Jordan í útlöndum en ég vU ekki
nefna einn öðrum fremur hér
heima.
Uppáhaldstimarit: Heimsmynd.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Christ-
ine Brinkley.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Ég er hlutlaus í þeim
efnum.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Mike Oldfield.
Uppáhaldsleikari: A1 Pacino.
Uppáhaldsleikkona: Susan Saran-
don.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Guð-
mundur Árni Stefánsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hrollur.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Allt
íþróttaefni.
Uppáhaldsmatsölustaður: Café Óp-
era.
Ertu hlynntur veru varnarliðsins
hér á landi? Á meðan þeir skapa
störf fyrir íslendinga mega þeir
vera hérna fyrir mér.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Aðalstöðin.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Davíð
Þór Jónsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Valtýr
Björn Valtýsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ing-
ólfscafé, þá sjaldan sem kíkt er út.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: FH.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að vera betri eigin-
maður, betri knattspymumaður og
betri kennari.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfri-
inu? Eyða eins miklum tíma og ég
get með fjölskyldunni.