Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
Skák
DV
Millisvæðamótið í Biel:
Áskorendumir
tíu ungir að árum
- en gamla brýnið Lajos Portisch mætti öflugustu mótherjunum
Jóhann byrjaði vel, með 4 vinninga úr 6 fyrstu skákunum. Um miðbik móts-
ins átti hann slæman kafla og lenti í erfiðum skákum.
Hollendingurinn Paul van der
Sterren er aldursforseti þeirra tíu
stórmeistara sem komust í áskor-
endakeppnina úr millisvæðamótinu
í Biel, 37 ára gamall. Hann er jafn-
framt langstigalægstur, með 2525
Elo-stig og var í 56. sæti í styrkleika-
röðinni í upphafi móts. Frammistaða
hans kom þó ekki öllum jafnmikið á
óvart.' Landi hans, Jan Timman,
kvaöst fyrir mótið telja meira en
helmingslíkur á að hann kæmist
áfram. Van der Sterren hefur alla tíð
þótt traustur og öruggur skákmaður
en fremur Utlaus en virðist nú hafa
tekið skyndilegum og óvæntum
framfórum.
Leoníd Júdasín, sem nú býr í ísra-
el, er næstelstur áskorendanna,
fagnar 34 ára afmæh sínu á morgun,
sunnudag. Hinir eru ekki orðnir þrít-
ugir - þeir yngstu eru Gata Kamsky,
19 ára, og Vladimir Kramnik, 18 ára.
Tími ungu mannanna er bersýnilega
kominn en „gömlu refimir“ eru
komnir út í kuldann. Meðal þeirra,
sem komust ekki áfram, eru
Kortsnoj, Húbner og Smyslov, að
ógleymdum Ungveijanum Lajos
Portisch sem velgdi ungu kynslóö-
inni svo sannarlega undir uggum.
Portisch var lengstum í fararbroddi
á mótinu en heltist úr lestinni er
hann beið lægri hlut fyrir Kramnik
í þriöju síðustu umferð. Þaö var eina
tapskák Portisch en hann tefldi við
öflugri andstæðinga en nokkur ann-
ar keppandi, að meðaltah með tæp
2650 Elo-stig.
Hvít-Rússinn Boris Gelfand vann
Indveijann Anand auðveldlega í 8.
umferð og lagði síðan Rússann Bare-
ev í mikilii baráttuskák í 9. umferð.
Eftir það var hann á auðum sjó -
með fjórum jafnteflum í lokaumferð-
unum bjó hann einn að sigrinum.
Gelfand hlaut 9 v. og slapp taplaus
frá keppninni. í 2.-9. sæti urðu van
der Sterren, Gata Kamsky, Alexand-
er Khalifman, Michael Adams, Leo-
nid Júdasin, Valery Salov, Joel Lauti-
er og Valdimir Kramnik, allir með
8,5 v. Tíunda sætið í áskorenda-
keppninni kom í hlut Indverjans
Anands en framtíð hans valt á úrslit-
um úr biðskák Bareevs við Sves-
hnikov. Með sigri heföi Bareev kom-
ist áfram vegna betri stigatölu en
Anand og hefði í sjálfu sér átt það
fyllilega skilið því að hann tefldi vel
en ætlaði sér of stóra hluti í lokin.
En biðskákinni lauk með jafntefli og
þar með slapp stigahæsti keppandi
mótsins inn í hlýjuna.
Anand hlaut 8 vinninga og hafði
hagstæðari stigatölu en Epishín,
Lputjan, Sírov, Ivantsjúk og Ivan
Sokolov. Þarna eru tvö nöfn sem
stinga í augu, Sírov og Ivantsjúk, en
þá hefði gjaman mátt sjá í hópi hinna
heppnu. Portisch, Bareev, Sves-
hnikov, Abramovic og Judit Polgar
fengu 7,5 v. og deildu 16.-20. sæti.
Jóhann Hjartarson, sem tapaði fyrir
Lputjan í lokaumferðinni, fékk 7 v.
og hafnaði í 21.-34. sæti ásamt Mik-
hail Gurevich, Dreev, Barua, Seiraw-
an, Kortsnoj, Húbner, Gulko, Wolff,
Piket, Granda-Zuniga, 011, Xu og Ye.
Neðar komu Lobron, Smyslov, Speel-
man, Ilja Gurevich, Kozul, Kiril Ge-
orgiev og Curt Hansen með 6,5 v.,
Rogers, van Wely, Pigusov, Ehlvest,
Nikolic, Akopjan, Agdestein, Smirin,
Ftacnik, Spasov, Nogueiras, Frolov
og Lima fengu 6 v., Dlescas, Arencib-
ia, Malisauskas, Hellers, Dvoiris,
Nalbandian, Sherzer, Topalov,
Branner og Hamdouchi fengu 5,5 v.,
Dmitri Gurevich, Bagaturov, Hug,
Kakageldjev og Lesiege fengu 5 v.,
Gluckman og Zarnicki fengu 4,5 v.
og Moutousis og Kalesis ráku lestina
með 4 v.
Jóhann byijaði vel, með 4 vinninga
úr 6 fyrstu skákunum. Um miðbik
mótsins átti hann slæman kafla og
lenti í erfiðum skákum. En hann tók
á sig rögg og undir lokin átti hann
enn veika von um áskorendasæti.
Þrátt fyrir tapið í lokaumferðinni
náði hann bestum árangri Norður-
landabúa en betur má ef duga skal.
Á heildina litið var taflmennskan
á mótinu býsna skemmtileg enda
ekkert gefið eftir. Við látum nægja
sýnishom af handbragði sigurvegar-
ans:
Hvítt: Boris Gelfand
Svart: Viswanathan Anand
Meran-vörn.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 RfB 4. e3 e6
5. Rf3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 8.
Bd3 Bb7 9. a3 b4 10. Re4 Rxe4
Anand kýs að láta ekki reyna á
hugsanlega endurbót Gelfands á 10.
- a5 sem Anand lék gegn Karpov í
Moskvu í fyrra.
11. Bxe4 Dc7 12. axb4 Bxb4+ 13. Bd2
Bxd2+ 14. Rxd2! c5
Þessi leikur, sem svo oft, leysir
vanda svarts í Meran-vöminni, jafn-
ar taflið strax ef hvítur bregst ekki
skjótt við. En svartur hefur enn ekki
hrókað og því eru ýmsar blikur á
lofti. Svo virðist sem Anand hafi ekki
skyggnst nægilega djúpt í stöðuna.
15. Dc2! Db6 16. dxc5 Dxc5
Ef 16. - Rxc5 17. Bxb7 Rxb7 18.
Da4+ og eyðileggur hrókunarrétt-
inn. Eftir 18. - Ke7 19. 0-0 strandar
19. - Hhd8 á 20. Dh4+ Kf8 21. Dxh7
og 18. - Kf8 er býsna hægfara.
17. Da4 Hb8
Svartur á þegar í miklum erfiðleik-
um; spumingin er einungis hvemig
hann sleppur með sem fæstar skrám-
ur. Eftir 17. - Dc7 18. 0-0 Bxe4 19.
Rxe4 0-0 20. Hfcl Db7 (eða 20. - De5
21. Dxd7 Dxe4 22. Hxa7) 21. Rd6 Dd5
22. Dxd7 (22. Hdl Rb6) Had8 23. Dxa7
á hvítur b-peðið til góða og töluverð-
ar vinningslíkur.
18. 0-0 0-0
Svo virðist sem 18. - Bxe4 19. Rxe4
Db4 og nú t.d. 20. Dxb4 Hxb4 21. Hxa7
0-0 sé skárri leið til að tapa peði.
19. Dxd7 Hfd8
1 X £ X 1 Á 1
m
£
p/xa 2 & a & s I :l
ABCDEFGH
20. Bxh7+! Kxh7?
Eina leiðin áfram er 20. - Kf8 21.
Da4 Hxd2 en hvítur á sem fyrr peð
til góða, auk þess sem kóngsstaða
svarts getur í mörgum tilfellum verið
varasöm. T.d. 22. Hfcl Dg5? 23. Db4 +
Ke8 24. Be4, eða 22. - Dd5 23. Db4 +
Ke8 24. Dg4.
21. Dxf7 Hxd2 22. Ha4! Dg5 23.g3
Hótunin24.Hh4+ eróviðráðanleg.
23. - e5 24. Hh4+ Dxh4 25. gxh4 Hd6
26. h5 Be4 27. De7 Hbb6 28. Dxe5
- Og Anand gafst upp.
íslendingar
í Gausdal
Þrettán íslendingar, flestir úrvals-
nemendur á vegum Skákskóla ís-
lands, sitja nú að tafli í Gausdal í
Noregi þar sem fram fer alþjóðlegt
mót. Að loknum fjórum umferðum
Umsjón
Jón L. Árnason
vom Lettinn Gipshs og Englending-
urinn Davies efstir með 3,5 v. Helgi
Áss Grétarsson hafði 3 v., Ólafur B.
Þórsson og Bragi Kristjánsson,
skólastjóri Skákskóla íslands, 2,5 v.,
Jón Viktor Gunnarsson og Bragi
Þorfinnsson 2 v., Torfi Leósson 1,5
v., Amar Gunnarsson, Páll Agnar
Þórarinsson, Magnús Öm Úlfarsson,
Lárus Knútsson og Matthías Kjeld 1
v., Bjöm Þorfinnsson og Einar Hjalti
Jensson 'A v.
Á opna mótinu, sem kennt er við
Pétur Gaut og er nýlokið, tefldu átta
íslendingar. Jón Garðar Viðarsson
fékk 5,5 v., Amar Gunnarsson, Ólaf-
ur B. Þórsson, Bragi Kristjánsson,
Tómas Bjömsson og Torfi Leósson
fengu 4,5 v. og Bjöm Þorfinnsson og
Jón Viktor Gunnarsson fengu 4 v.
Sigurvegarar urðu Rússamir Vara-
vin og Rashkovsky og Savsjenkó frá
Úkraínu sem fengu 7 v. af 9 möguleg-
um. -JLÁ
Bridge
EPSON alheimsbridgekeppnin:
Meira en 100.000 spilarar tóku þátt
í byrjun júní settust yfir 100.000
bridgespilarar við spilaborðið og
vom spiluð sömu spil á öllum borð-
um. Sigurvegarar urðu Kínveijar,
Zhaobaoqi verkfræðingur og
Wangzuolei fyrirlesari. Þeir sátu n-s
og fengu 1876 stig. í öðm sæti var
par frá Thailandi að nafni Apisai og
Kittichai, sem sátu a-v, með 1823 stig.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Þriðju urðu ítalimir Castagna og
Sinigaglia, sátu n-s og nældu í 1819
stig.
Hæstu skorina í a-v á íslandi fengu
Eiríkur Hjaltason og Ragnar Her-
mannsson og við skulum skoða einn
toppinn hjá þeim.
N-S/S
♦ 876
V KD62
♦ KG72
♦ 87
* ÁD52
V 875
♦ ÁD5
4* K109
♦ 94
V 104
♦ 109863
+ G652
Áður en lengra er haldið skulum
við glugga í bókina, sem allir kepp-
endur fengu að keppni lokinni, en
þar skrifar Omar Shariff skýringar
með hveiju spih.
Shariff fylgist með frönsku bridge-
meistumnum, Chemla og Perron,
sem sitja n-s, og andstæðingum
þeirra, tveimur ungum sphumm,
sem virðast taka spihð alvarlega, alla
vega er kerfiskortið þeirra metra-
langt. Samt er sagnserían hjá þeim
frekar einfóld:
Suður Vestur Norður Austur
pass 1 lauf pass 1 spaði
pass 3 spaöar pass 4 lauf
pass 4 tíglar pass 5 spaðar
pass 6 spaðar pass pass
Fjögur lauf og flórir tíglar em fyrir-
stöðusagnir, fimm spaðar biðja vest-
ur að segja slemmuna með hjartafyr-
irstöðu og þar sem hann hefir engu
logið segir hann slemmuna viðstöðu-
laust.
Þar eð austur hefir afhjúpað
hjartaveikleika sinn er útsphiö auð-
velt fyrir Chemla. Hann sphar út
hjartatíu. Það htur út fyrir að einn
af mögiheikum austurs, að hjarta-
hjónin séu í suður, sé ekki fyrir hendi
og sagnhafi lætur gosann th þess að
halda opnum möguleika á kastþröng.
Perron drepur á drottningu og sphar
tígli til baka. Sagnhafi drepur á ás-
inn, trompar tígul, tekur tvisvar
tromp og trompar síðasta tíguhnn.
Nú tekur sagnhafi hjartaás, fer heim
á laufakóng og tekur tvö síðustu
trompin. Austur hefir sphað spihð
vel. Ef laufin em 3-3 eða flórhtur í
laufi meö hjartaflórhtnum í norðri
vinnst spilið á kastþröng. En þetta
er ekki hans dagur. Einn niður.
í rauninni var slemman ekkert sér-
stök þótt báðir ættu fyrir sínum
sögnum. Auðvitað gerði tíguldrottn-
ingin ekkert gagn en það versta var
að hendi austurs var of flöt.
En nú skulum við hlusta á sagnir
Eiríks í austur og Ragnars í vestur:
Suður Vestur Norður Austur
pass llauf pass lspaði
pass 3spaðar pass 41auf
pass 4 tíglar pass 4 spaðar
pass 51auf pass 5tíglar
pass 6spaðar pass pass
pass
Suður fann hjartaútspihð og Eiríkur,
sem óttaðist einsph, drap strax á ás-
inn. Hann sphaði síðan tígh á ás,
trompaði tígul, fór heim á tromp og
trompaði síðasta tígulinn. Norður
fylgdi ht með kóngnum í þriðja tígul-
inn og margt benti því til þess að
suður hefði byijað með sex tígla.
Hann hafði einnig hikað við þegar
Eiríkur sagði fimm tígla.
Aha vega tók Eiríkur nú tromp-
kóng, fór heim á laufakóng og tók
síðasta trompið af andstæðingunum.
Hann var nú nokkuð viss um skipt-
ingu suöur og spilaði laufaníu. Og
suður gætti ekki að sér og lét htið.
Eiríkur svínaði og þar með var
slemman unnin.
Gulltoppur, ef til vih yfir allan
heiminn!
Stefán Guðjohnsen
V ÁG93
♦ 4
■i. ÁrMo