Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 21
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 21 Ólafsfjörður: Feðgar hanna og smíða slökkviliðsbíla Helgi Jónsson, DV, ÓlaMrði: Feðgar á Ólafsfirði hönnuðu og smíðuðu í fyrra slökkviliðsbíl frá grunni og fyrr á þessu ári luku þeir við annan stærri og afhentu hann í júní. Nú eru þeir með tvo nýja bíla í smíðum. Bílinn, sem þeir smíðuðu í fyrra, seldu þeir Ólafsíjarðarbæ en Blönduós hefur keypt seinni bílinn. „Við erum komnir af stað með bæði þriðja og fjórða bílinn; annan stóran, hinn htinn,“ sögðu þeir feðgar þegar blaðamaður DV leit inn hjá þeim á verkstæði þeirra, Múlatindi, fyrir skömmu. Þeir heita Magnús Sigursteins- son og Sigurjón Magnússon og eru margreyndir bifvélavirkjar og bíla- smiðir. Ekki nóg með það; báðir eru virkir í slökkviliði bæjarins. Reyndar er Magnús slökkviliðs- stjóri og Siguijón varaslökkviliðs- stjóri. Allt sem viðkemur slökkvi- hðsmálum er sérlegt áhugamál þeirra. Þannig er tilkominn áhugi þeirra á að smíða eigin slökkvihðs- bíl. Sigurjón Magnússon er þess utan einn þekktasti viðgerðamaður gamaha bifreiða, svokallaðra ant- ikbíla. Árum saman hefur hann annast viðgerðir og endursmíð á þeim. „Við áttum eldgamlan Bed- ford slökkT/ihðsbíl hér á Ólafsfirði. Hann er gríðarlega þimgur og svifaseinn. Reynsla okkar af hon- um kveikti með okkur þá hugmynd að fá nýjan og betri bíl,“ segja þeir. Það voru þessir sömu feðgar sem lentu í lífsháskanum í Ólafsíjarðar- höfn á dögunum þegar bryggjuker- ið sökk, eins og DV sagði frá á sín- um tíma. Nota ameríska pallbíla Við smíðina á bílunum nota þeir ameríska pahbha, fjórhjóladrifna með mikla burðargetu. Á þá er byggt mjög vandað hús með ál- klæðningu. Á hvorri hhð eru tvær álhurðir sem renna upp í þakið á húsinu. Þá er húsið innréttað fyrir helstu tæki slökkvibðsins svo sem reykköfunartæki, hlífðarfatnað á reykkafara, stúta, froðutæki, tal- stöðvar, hlífðartæki, slöngur, handslökkvitæki og fleira sem nauðsynlegt er við slökkvistörf. Einnig er hægt að hafa stiga og sogbarka á þaki bílsins. í bílunum er 1000 lítra vatnstankur og einnig er hægt að hafa hann 2000 htra. Við tankinn er tengd bensíndrifin dæla sem hefur afkastagetu yfir 2000 htra á mínútu og getur náð 16 kg/cm2 þrýstingi. Dæluna er hægt að tengja við brunahana eða láta hana taka vatn úr vatnsbóh. Bíllinn sem Ólafsfjarðarbær keypti var af gerðinni GMC 1983. Hann er 4,5 tonn með vél sem er W I dag er langur tilboös-laugardagur á Laugavegi og í Bankastræti Opið til kl. 17 í flestum verslunum - eru sjalfir 1 slökkviliði bæjarins Feðgunum Magnúsi og Sigurjóni er margt til lista lagt. Þeir hafa hannað og smíðað tvo fullkomna slökkviliðsbíla og eru að vinna að öðrum tveimur. 6,2 htra dísil, kraftmikih bhl með góða aksturseiginleika, enda segir Siguijón: „Hann reyndist ótrúlega vel á fyrstu æfingunni sem við héldum á honum. Sem dæmi get ég nefnt að æfingin fór þannig fram að kveikt var í stýrishúsi af togskipi. Þegar það var orðið alelda fóru gamh Bedfordinn og nýi bíllinn af stað samtímis um tveggja kíló- metra leið með fjóra menn hvor. Þeir á nýja bílnum voru svo th búnir að slökkva eldinn í stýrishús- inu þegar gamli Bedfordinn kom á staðinn." Vilja smíða fleiri bíla Bílhnn, sem Blönduósbær keypti og var afhentur í júní, er af Ford- gerð, árgerð 1992, með 7,3 1 vél og er mun burðarmeiri og talsvert stærri en sá fyrsti. „Við viljum að sjálfsögðu smíða fleiri bíla fyrir slökkviliðin hér á landi. Við erum tveir í þessu og miðað við okkar útreikninga verða tvö stöðugildi hér á verkstæöinu. Við erum búnir að hafa samband við slökkvihðsstjóra og aðra sem hafa með eldvamarmál að gera víða um land til að vekja athygli þeirra á þessum bílum okkar. Það er alveg ljóst að víða á landinu þarf að gera stórátak í þessum málum og þá eigum við sérstaklega við þá staði sem eru með 30 ára gamla stirðbusalega Bedford-bíla sem eru löngu orðnir úreltir og geta engan veginn þjónað sem ör- yggistæki í nútíma samfélagi. Við notum reynslu okkar sjálfra þegar við hönnum og smíðum þessa bíla. Við erum að smíða bíla sem við sjálfir vildum gjaman nota þegar slökkviliðið er kallaö út.“ Góð meðmæli Þeir Guðmundur Bergsson, deildarstjóri tækjadehdar Bruna- málastofnunar ríkisins, og Guð- mundur Haraldsson, dehdarstjóri fræðsludeildar, hafa skoöað bhana sem þeir feðgar smíðuðu og gáfu svohljóðandi umsögn: „Bifreiðin og búnaður hennar reyndist hið besta að öhu leyti. Handbragð og frágangur á yfir- byggingu gefur ekki eftir því vand- aðasta sem sést hefur frá erlendum framleiðendum. Fyrir hönd Bruna- málastofnunar óskum við forráöa- Bilarnir hafa fengið bestu meðmæli frá Brunamálastofnun og slökkviliðs- stjórum viða um land. DV-myndir Helgi mönnum Múlatinds th hamingju með framtakiö og teljum engan vafa leika á að hér er á ferðinni tæki sem hentar vel til slökkvi- starfa og björgunar í minni sveitar- félögum og sem viöbótartæki í þeim stærri." Blönduóssbíhnn var sýndur á ráðstefnu slökkviliðsstjóra sem haldin var í Reykjavík í vor. Slökkvihðsstjórum leist mjög vel á bíhnn og töldu hann kraftmikinn og hafa góða aksturseiginleika. „Þetta er góð viðbót við starfsem- ina hér,“ segir Siguijón. „Hér starfa að jafnaði fimm menn en við feðgarnir erum eiginlega eingöngu í bílasmíðinni svo þetta er hrein viðbót. Við htum þetta jákvæðum augum, ekki síst þegar atvinnu- ástandið í landinu er í þessari lægð. Viö verðum því að gera eitthvað til að halda okkur á floti.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.