Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 25
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 25 „Það er allt of laust í böndunum hjá mér hvað ég hef veitt marga laxa um ævina, þeir eru eitthvað á milli þrettán og flmmtán þúsund. Ég held að það hafi enginn í heim- inum veitt fleiri laxa og ég er sömu- leiðis sannfærður um að það eru nokkrir íslendingar sem hafa veitt flesta laxana. Þeir eru í nokkrum efstu sætunum. Sá sem kemur næstur í röðinni er örugglega Kristján í Crystal en ég held að hann hafi verið kominn upp í niu til tíu þúsund laxa þegar hann hætti að veiða. Hann byrjaði miklu eldri en ég en ég byijaði að veiða strax sem unglingur," sagði Þórarinn Sigþórsson tannlæknir, betur þekktur sem mesti laxveiði- maður landsins. Þórarins hefur oftlega verið getið þegar veiði hefur verið mikil í ein- hverri fjöldamargra laxveiðiáa landsins. í síðasta mánuði náðu hann og veiðifélagi hans, Egill Guðjohnsen, að veiða áttatíu pg tvo laxa á eina stöng í Laxá á Ásum, sem er að sjálfsögðu íslandsmet, jafnvel heimsmet sem sennilega verður seint slegið. Uppalinn á laxveiðijörð „Ég er uppalinn á laxveiðijörð- inni Einarsnesi í Borgarfirði og fékk því snemma veiðibakteríuna. Þar vitjaði ég netja með föður min- um og það fylgdi því snemma stangaveiði líka. Ég hef ekki hnnt látunum síðan ég byrjaði að veiða fyrir alvöru og er að megnið af sumrinu. Hæst hef ég komist í að veiða níutíu daga á vertíð en vana- lega veiði ég svona fimmtíu til sjö- tíu daga á sumri. Það má veiða níu- tíu daga í hverri laxveiðiá en hins vegar spannar veiðitímabihð hundrað og tuttugu daga.“ - Þurfa menn ekki að vera mjög vel á sig komnir líkamlega til að stunda laxveiðar? „Það þarf mikiðjúthald og mikinn kraft. Sú hreyfing sem ég fæ við veiðarnar nægh- samt ekki alveg til að halda mér í formi. Besta þjálf- un, sem ég fæ, er aö fara á rjúpna- veiðar. Ég fer um hverja helgi vítt og breitt um landið á hverju hausti Þetta er erfiðasta íþrótt sem maður stundar en þá á ég við rjúpnaveiðar eins og á að stunda þær, þar sem þú gerir aht sjálfur frá A til Z. Engir sleöar, engin fjórhjól og eng- ir leitarhundar. Úthaldið skiptir ákaflega miklu máh. Ég komst einu sinni í að veiða sautján daga í röð en þegar ég loks hætti fannst mér ég finna fyrir tóm- leika innra með mér. Laxveiöarnar endumýja krafta mína á sumrin, ég myndi ekki geta unnið mína vinnu af sömu ánægju og sama krafti sem tannlæknir nema vegna þessarar útivistar. Mér finnst hk- amlegu ástandi mínu fara aftur á veturna þrátt fyrir að ég hlaupi mér til heilsubótar og reyni að verða mér úti um aðra hreyfingu. - Eru einhverjar sérstakar ár í uppáhaldi hjá þér? „Já, þær eru nokkrar. Laxá í Kjós, Kjárrá, Miðfjarðarárnar, Laxá á Ásum og svo náttúrlega veiðisvæði sem er númer eitt, tvö og þijú hjá mér. Það eru Æðarfoss- amir í Laxá í Þing. Þangað reyni ég að komast við öh möguleg og segir veiðigarpurinn Þórarinn Sigþórsson tannlæknir Þórarinn Sigþórsson með veiðifélaga sínum til margra ára, Agli Guðjohnsen, við Kjarrá. ómöguleg tækifæri. Þar er aht sem þarf, mikið vatn, von í stórlaxi og svæðið aht óhemjuskemmtilegt," sagði Þórarinn. Hagnaðurafveið- inni fyrstu árin - Er þetta ekki dýrt áhugamál? „Jú, en fyrstu árin kom ég út úr laxveiðinni með stórum hagnaöi. Veiðileyfm voru ódýr og á árum áður var hátt verð fyrir laxinn. Mér reiknast tfi að miðað við verð- lag í dag hafi kílóið af laxi verið mfih tvö og þijú þúsund krónur tfi veiðimannsins. Þá var nóg að fá fjórtán punda lax tfi að borga veiði- leyfi í meðaldýrri á og tvo slíka til að borga dýrustu veiðileyfin. í dag er þetta miklu dýrara, ég myndi ekki standast þetta úthald ef mér væri ekki boðið mjög mikiö í veiði. Það væri alveg sama hvaða embætti ég gegndi í þjóðfélaginu, ég myndi aldrei kljúfa þetta fjár- hagslega ef þetta væri ekki að tölu- verðum hluta boðsveiði. Stærsti lax sem ég hef fengið um ævina var tuttugu og sjö punda. Hann veiddi ég í Þverá í Borgar- firði. - Hefur sfiungsveiðin aldrei freistað þín? „Ég hef aldrei verið fyrir silungs- veiði, mér finnst sú veiði ekki sam- bærfieg við laxveiðina. Ég virði það hins vegar að menn séu á annarri skoðun en sfiungsveiði er hara ekki fyrir minn smekk.“ - Hefur leið þín aldrei legið í er- lendar laxveiðiár? Þórarinn var á árum áður i fremstu röð islenskra bridgespilara. „Ég hef aldrei veitt erlendis en hef aftur á móti veitt með mörgum útlendingum og þekki reyndar marga erlenda laxveiðagarpa. í fyrra ráðgerði ég ferð tfi Rússlands í veiði en þá var ég svo óheppinn að veikjast og komst því ekki.“ Með bestu bridge- spilurum landsins - Þú varst þekktur sem einn fremsti bridgespfiari landsins fyrir nokkrum árum og varst langstiga- hæstur allra spilara. Ert þú alveg hættur afskiptum af þeirri íþrótt? „Ég steinhætti að spila keppnis- bridge fyrir sjötfi átta árum, ég gifti mig og það var ekki pláss fyrir þrennt. Það gekk ekki. En það er nú þannig með bridgespihð að það er mjög skemmtfieg íþrótt en að sama skapi óhemjuóhollt. Miklar setur á óþægfiegum tíma á kvöldin gera líkamanum ekki gott. Það er greinfiegt á mörgum bridgespfiur- um að þeir eru orðnir fullorðnir langt um aldur fram. Það var mér ákaflega erfitt að hætta að spila keppnisbridge á sín- um tíma og ég hafði einhvers konar fráhvarfseinkenrú lengi á eftir. Ég sé hins vegar ekki eftir því nú þeg- ar ég horfi til baka og er mjög ánægður með þessa ákvörðun mína. Það tók mig ein 2-3 ár að losa mig við löngunina. Ég hefði samt alls ekki vfijað missa af þess- um kapítula í lífi mínu. Og ég spila alltaf rúbertubridge í heimahúsum af og tfi því ég get ekki alveg yfirgef- ið þessa kæru gömlu íþrótt mína.“ Veiða eins og þeirgeta - Þú og veiðifélagi þinn, Egill Guðjohnsen, settuð glæsilegt ís- landsmet á dögunum þegar þið veidduð áttatíu og tvo laxa í Laxá á Ásum á eina stöng á einum degi. Á eftir heyrðust nokkrar óánægju- raddir með mikla veiði ykkar félag- anna. „Það er alveg sama hvaða íþrótt menn stunda, alls staðar heyrast óánægjuraddir og örlar á öfund- sýki. Stuttu eftir þennan mikla veiðidag hringdi maður í Þjóðarsál- ina og kvartaði yfir að við værum búnir að eyðfieggja ána og notaöi stór lýsingarorð. En síöan gerist það að næstu hópar á eftir okkur mokveiddu 1 ánni, meira en þeir höfðu veitt þar nokkru sinni áður. Það var okkar lán og ómerktu al- gerlega orð þessa blessaða manns. Ef menn eru á annað borð að gagnrýna mikla veiði þá get ég sagt það að af ótölulegum fjölda veiði- manna sem ég hef kynnst og veitt með um ævina reyna 95% allra veiðimanna að veiða eins og þeir mögulega geta. Menn hafa hins vegar mismunandi úthald og kraft. Ég hef mesta ánægju af því að gera eins vel og ég get hveiju sinni. Þess vegna get ég haft jafnmikla ánægju af að veiða fjóra tíl fimm laxa á dag eins og sjötíu til áttatíu. Það er ekki magnið sem skiptir máh held- ur að maður hafi náð hámarks- árangri þann daginn miðað við að- stæður og vita að maður hafi gert sitt besta í margs konar skilningi," sagði Þórarinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.