Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Page 31
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 Ég er sennilega talinn vera kynlegur kvistur - segir Pálmi Þórðarson, veitingamaður í Pálmalundi á Sauðárkróki Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég er sennilega af flestum talinn vera kynlegur kvistur, að fara út í veitingarekstur á gamals aldri, en ég er orðinn löggilt gamalmenni og get lifað af þessu,“ segir Pálmi Þórðarson, vert í veitingahúsinu Pálmalundi á Sauðárkróki. Pálmi keypti veitingastaðinn árið 1991 og segist hafa nóg að gera. Hann vilji reyndar fá færri gesti en fleiri og gera vel þá sem koma. Pálmi hefur víða komið við á lífs- leiðinni en hann er fæddur áriö 1926. Hann hóf nám í framreiðslu árið 1940 á Hótel Borg, fór síðan til sjós og var viö sjómennsku öll stríðsárin. Hann var orðinn lærður matreiðslumaður og segir að lengstan hluta starfsævi sinnar hafi hann unnið við þá iðn. Árið 1977 lá leiðin til Suðureyrar við Súgandafjörð og þar stýrði hann mötuneyti Fiskiöjunnar Freyju, lengi vel fyrir eigin reikning. Orðinn gamalmenni „Fyrirtækið fór svo á hausinn 1984 og ég tók þá sáru ákvörðun að pakka niður og fara. Ég gerði það þó með því fororði að ég væri til í að koma aftur ef aðstæður breyttust. Það gerðist og árið 1989 var ég aftur kominn vestur. Hins vegar fór alit í sama farið aftur og ég varð atvinnulaus. Þá rak ég mig á það að maður á mínum aidri fær ekki svo auðveldlega vinnu. Maður var e.t.v. nógu unglegur í símanum og var vel tekið þangað til fæðing- arárið 1926 var nefnt. Þá var eins og ég gengi á vegg. Ég var orðinn gamalmenni þótt ég hefði aldrei verið sprækari. Ég auglýsti því að ég vildi kaupa veitingarekstur og helst gistiþjón- ustu með. Eina tilboðið, sem ég fékk, var héðan frá Sauðárkróki og eflaust héldu flestir að ég væri orðinn vitlaus að fara að selja eign- ir mínar í Reykjavík til að kaupa hér veitingarekstur og 100 ára gam- alt hús á stað þar sem mönnum hafði gengið illa aö láta dæmið ganga upp. Vill fáa en góða gesti Óhkt öðrum veitingamönnum vill Pálmi ekki fá of marga gesti til sín. „Ég vil fá hingað færri en góða gesti og geta þjónað þeim í róleg- heitum eins vel og mér er unnt. Ég er skólaður iþví að gera gestum tfl hæfis, það var lögð mikil áhersla á það á Hótel Borg á sínum tíma og maður á að láta gesti sína finna að þeir séu velkomnir og allt það besta standi þeim til boða. Er ekki einn Þetta er mikil vinna en ég er ekki einn í þessu. Sambýliskona min, Pálmi og sambýliskonan Indiaphosir á veitingastað sínum á Sauðár- króki. DV-mynd gk Indiaphosir, sem er frá Taflandi, vinnur geysilega mikið við þetta og án hennar gengi dæmið ekki upp. Jantra dóttir hennar tekur einnig til hendinni þegar mikið er að gera og saman látum við þetta ganga upp. Ég er ekkert að byggja upp neinar skýjaborgir í kringum þetta eins og aö vera með „lifandi" tónlist og þess háttar því það ber sig ekki. Ekki í bankaránum Það hefur verið mitt mesta gæfu- spor að lenda hérna en það er ekki í fyrsta skipti sem Sauðárkrókur reynist mér vel. Hér fékk ég á árum áður skipsrúm á litlum togbát og hef aldrei þénað annað eins á ævi minni. Þetta var eftir fjögurra mán- aða verkfall og ég var í miklum fjárskuldbindingum í Reykjavík. Við mokveiddum, komum með fullfermi í hverri viku í lengri tíma og ég sendi stórar peningaupphæð- ir vikulega til konunnar minnar fyrir sunnan sem spurði hvort ég væri nokkuð lagstur í bankarán fyrir norðan.“ Pálmi segir að á Sauðárkróki ætli hann að vera í veitingarekstri áfram. „Ég er allt of ungur til að fera að leggjast í sjónvarpsgláp eða með bók upp í sófa,“ sagði þessi tæplega sjötugi unglingur að lok- um. Hailbjöm Hjartarson í Kántrýbæ: Ég panta ekki áfengi og afgreiði ekki heldur - hefur þó fengið vínveitingaleyfi eftir langa baráttu við embættismannahroka Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Rekstur Kántrýbæjar hefur gengiö mjög vel í sumar, landinn hefur hugsað vel tfl mín og fólk hefur verið duglegt að taka á sig þennan stutta krók frá þjóðvegin- um tfl að koma hér viö. Þetta fólk segist ekki sjá eftir því, krókurinn hafi verið þess virði,“ segir Hall- björn Hjartarson „kántrýkóngur" sem er nú í fulium rekstri með veitingahúsið Kántrýbæ á Skaga- strönd og þar rekur hann einnig einkaútvarpsstöð sína. „Útvarpsreksturinn hefur tfl þessa einungis verið hugsaður sem auglýsing fyrir staðinn og hann hefur verið kostaður af sparibauk- speningunum. Ég fer ekki að selja auglýsingar fyrr en ég er kominn með öflugri endurvarpsstöðvar sem verður vonandi fljótlega," seg- ir Hallbjörn. Loks vínveitingaleyfi Hann segist loksins vera kominn með vínveitingaleyfi í Kántrýbæ eftir langa og erfiða baráttu. „Þetta var mikfl þrautaganga og erfiðast var að glíma við þann embættis- mannahroka sem ég varð fyrir. Ég tek það þó fram að sjálfur kem ég ekki nálægt víninu eða bjómum; konan pantar áfengiö og stelpumar Hallbjörn i Kántrýbæ ásamt Kristinu Kristmundsdóttur starfsstúlku. „Kántrýbær kominn til að vera.“ DV-mynd gk mínar í afgreiðslunni sjá um að afgreiða það. Ég hef alltaf verið bindindismaður og kann ekkert á þetta, en auðvitað vfl ég að gestir mínir geti notið allra veitinga hér á staönum. Ég er núna kominn í þá stöðu að fólkið vill að ég sé í þessum rekstri, það sýnir aðsóknin hingað, öll bréf- in og þakkimar og ég er afar þakk- látur. Hjá mér eru nú tvær stúlkur í fóstu starfi, ein sem leysir af og svo konan mín. í vetur langar mig tfl að hafa hér opið lengur um helgar og brydda upp á einhveiju skemmtilegu. Það er hægt að setja hér upp ýmis skemmtiatriði og svo er ég að hugsa um að koma mér upp aðstöðu tfl móttöku sjónvarpsefnis um gervi- hnött og varpa því á breiðtjald." Plata ekki á leiðinni Hallbjöm segir enga nýja plötu vera á leiðinni frá sér. „Tónlistin er í biöstöðu því ég hef ekki haft neinn tíma til að sinna henni. Ég er bara að safna orku og hef neitað tilboðum um að koma fram. Sárast fannst mér að neita Vestmannaey- ingum um að vera þar á þjóðhátíð, því hvergi er betra og skemmti- legra að koma fram en í Eyjum,“ sagði Hallbjöm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.