Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Síða 33
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
41
Trimm
Öm Leifsson, formaður Skylmingafélags Reykjavíkur:
Skylmingar oft
neftidar líkamleg skák
- menn þurfa stöðugt að leggja gildrur fyrir andstæðinginn
Það er hægt að stunda skylmingar
hjá Skylmingafélagi Reykjavíkur.
Æfingar fara fram í ÍR-húsinu við
Túngötu þrisvar í viku, á mánudög-
um, fimmtudögum og föstudögum kl.
19.00. Við erum með tvo hópa og er-
um einmitt að fara aö byija með
nýtt byijendanámskeið í lok ágúst-
mánaðar. Þjálfarinn okkar er Búlg-
arinn Nicolai Mateev en hann var
mjög fær keppnismaður hér á árum
áður og hreppti á sínum tíma silfur
í liðakeppni með liöi sínu á heims-
meistaramóti. Skylmingafélag
Reykjavíkur var stofnað 1985 og hef-
ur það haldið reglulega námskeið frá
þeim tíma. í dag stimda 40 manns
skylmingar reglulega, þó svo að
nokkur hundruð manns hafi farið í
gegnum námskeið hjá okkur sagði
Skylmingar reyna mjög á útsjónarsemi.
örn Leifsson.
Trimla
Ég á sverö og skylmingabúning
og svara áskorun um snúning
Ég er rómantískur
en svona hálfþýskur
og kann vel við þennan núning.
J.B.H.
viðmælandi okkar, Öm Leifsson,
formaður félagsins.
Uppruni og
útbúnaður
Skylmingar eru evrópsk íþrótt og
sú íþrótt sem stunduð er í dag á ræt-
ur sínar að rekja til 15. og 16. aldar
í Frakklandi, á Ítalíu og Spáni. Út-
búnaður er: grímur, hanskar, jakkar,
buxur og sverð. Jakkamir og bux-
umar em úr sama efni og em í skot-
heldum vestum (keplar). Slys verða
því svo til aldrei þó svo að sverðið
brotni því' jakkamir em það vel
varðir. Búningarnir em hvítir sam-
kvæmt alþjóðlegum staðli og eiga að
undirstrika ákveðinn klassa og stíl-
fágim.
Skylmingar samspil
margra þátta
Skylmingar æfa úthald og snerpu.
Fyrir tuttugu árum var mesta áhersl-
an lögð á tæknina. Þjóðveijar, sem
em fremstir í skylmingum í dag,
hafa lagt mikla áherslu á styrk og
hraða og láta skylmingamenn hlaupa
og lyfta lóðum. Skylmingar hafa oft
verið nefndar líkamleg skák því
menn eru stöðugt að reyna að leggja
gfidrur fyrir andstæðinginn. Skylm-
ingar reyna þannig mikið á útsjónar-
semi. Skylmingar era samspil af ansi
mörgum þáttum, bæði andlegum og
líkamlegum.
Allir geta verið með
Allir geta stundað þessa íþrótt enda
er hægt að stunda hana á svo mörg-
um stigum. Fyrir byijendur kostar
mánuðurinn 3000 kr. Skylmingafé-
lagið á fullt af húnaði sem þaö Jánar
út og þurfa byijendur því eldd að
leggja út fyrir neinum búnaði. Topp-
búnaður kostar hins vegar 30-50 þús.
Þrírmis-
munandi leikir
Um er að ræða þrjár tegundir af
sverðum, höggsverð, stungusverð og
lagsverð, og mismunandi reglur
gilda með hverju sverði. Með högg-
sverði er skorað bæði með því að
höggva og stinga en með lagsverði
og stungusverði er skorað bara með
því að stinga. í lagsverði er allur lík-
aminn skotmark en í stungusverði
er það bara búkurinn og þá klæðum
viö okkur í rafmagnsvesti sem mæla
þá hvar við ýtum á. Þegar höggsverð-
ið er notað er bara skor ef menn hitta
fyrir ofan mitti og þar eru búning-
amir líka með rafmagnsvesti sem
tengt er í ljósaborð sem sýnir hver
fær stigið. Leikimir ganga þannig
fyrir sig að það em þrjár lotur og
hver lota varir í þrjár mínútur. Sá
vinnur sem fyrst nær 15 stigum.
Reykjavíkur-Maraþon 22. ágúst:
Gottað
hlaupa í hóp
- reynið að fínna hóp sem hleypur á sama hraða
Það er mjög gott að halda sig í hóp
;m hleypur á sama liraða og hentar
kkur. Stundum er viðkomandi hóp-
r örlítið á undan en þá skuluð þið
ndilega reyna að auka hraðann til
ð ná hópnum ef þið sjáið að hann
eldur óbreyttum hraða. Þið fáið
styrk frá hópnum og hann drífur
ykkur áfram, hugsanlega yfir erfiðan
hjalla. Þá er einnig möguleilú að hóp-
urinn veiti ykkur skjól fyrir vindi.
Að sjálfsögðu verður svo að meta það
hvort hópurinn hleypur of hægt fyrir
ykkur. Þá verður að rífa sig lausan
frá hópnum og skima eftir þeim
næsta.
Reykjavíkur-Mara-
þon eftir tvær vikur
Þá em tvær vikur til stefnu og við
fækkum kílómetranum talsvert. Við
tökum okkur tvo hvíldardaga í þess-
ari viku, á þriöjudaginn og fóstudag-
inn. J.B.H.
Einhverra hluta vegna virðast
skylmingar henta akademísku
fólki betur og gildir það jafnt hér
á landi sem og annars staöar. Hér
á landi eru fiestir sem stunda
skylmingar á lokaárum í mennta-
skóla eða á fystu ámm í háskóla.
Síðan virðast þetta aðallega vera
tveir hópar. Annar hópurinn er
að læra eðlisfræði, stærðfræði
eða verkfræði en hinn hópurinn
er í einhvers konar listnámi, að
spila á hljóöfæri eða semja skáld-
sögur. í skylmingum mætast
raunhyggjumenn og róraantíker-
ar. Einhverra hluta vegna virðast
þeir sem koma úr öðrum stéttum
hætta fljótlega og gildir þetta
jafnt hér á landi sem og í Evrópu.
Við kunnum engar skýringar á
þessu en viljum gjarnanaðreglan
verði afsönnuð
13. vika 8/8-14/8
Lengd Sunnud. Mánud. Þriðjud. Miðvd. Fimmtud. Föstud. Laugard. Samt. km
10km 21 km 8 km ról. 15kmról. 6 km jafnt 6kmjafnt Hvíld Hvíld 8km ról. 12 km ról. 4 km frísklega 6 km frísklega Hvíld Hvíld 6 km hraðal. 8 km hraðal. 32 km 47 km
850
HAGARl
TILSTEFNU
- stattu þig!
Styrktaraðili Reykjavfkurmaraþons