Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
43
Sorg er ekki
sjúkdómur
Dauðinn er óaðskiljanlegur hluti
mannlegrar tilveru. Þegar einhver
kveður þennan heim stendur syrgj-
andinn eftir og finnur fyrir sökn-
uði, dapurleika og eftirsjá. Hann
fylhst angist og kvíða vegna þess
missis sem hann hefur orðið fyrir.
Þetta eru tUfinningar sem verður
að lifa með og vinna úr en ekki
bæla niður með handafli og hörku.
Margrétekkja
Margrét, fimmtugur kennari,
leitaði til heilsugæslulæknis fyrir
nokkru vegna svefntruflana. Mað-
urinn hennar lést mjög skyndilega
af völdum kransæðastíflu þremur
mánuöum áður. Fyrst eftir andlát-
ið stóð Margrét sig ákaflega vel og
sá um jarðarfor og erfi af miklum
skörungsskap. En þegar frá leið fór
hún að sofa mjög illa. Hún lá vak-
andi á nóttum og hugsaði um lífið
sem framundan var. Oft fann hún
til mikiliar sektarkenndar vegna
þess að hún hafði rifist við mann
sinn morguninn sem hann hélt til
vinnu sinnar í síðasta sinn. Hann
hafði ekki lagfært þvottavélina eins
og hann hafði lofað heldur setið og
horft á þátt í sjónvarpinu. Samband
þeirra hjóna hafði þó yfirleitt verið
gott. Þau áttu þrjú böm á tánings-
aldri sem áttu mjög erfitt eftir frá-
fall fóður síns. Drengurinn talaði
lítið en lokaöi sig inni og hlustaði
á gaddavírsrokk en stúlkumar
voru úti ÖU kvöld og komu seint
heim. Enginn talaði um foðurinn
heima og ástandið var mjög þving-
að og spennt. Ættingjar og vinir
hringdu ekki eins oft og áður enda
vildi Margrét ekki tala við neinn.
„ Allt lagast, bara ef ég get sofið,“
sagði hún við lækninn sinn. Hún
lagði ofurkapp á að standa sig vel,
fór strax að vinna og lét ekki bera
á vanlíðan eða sorg.
Sektin
Sektarkennd er algeng hjá syrgj-
endum. Lífið hampar sífeUt áverk-
um og árekstrum sem valda
ómældum þjáningum þegar ekki
er lengur hægt að beiðast fyrirgefn-
ingar eða byija á nýjan leik. Sumir
heilagir menn segja að aliir skyldu
lifa eins og hvert andartak gæti
verið hið síðasta, skipta aldrei
skapi eða hnýta hnjóðsyrðum í
neinn. En venjulegu dauðlegu fólki
gengur illa að lifa samkvæmt slík-
um kenningum. Þegar um skyndi-
leg dauðsföll er að ræða sjá margir
efiir síðustu orðræðunum og sakna
alls þess sem ekki var sagt. En
hafi samskiptin verið góð hverfur
sektarkennd og bjartar minningar
sitja í fyrirrúmi. Margir fyllast
beiskju, einangra sig og svara vin-
um og vandamönnum með afgæö-
ingi. Sumir öfunda þá sem engan
hafa misst og svara kuldalega þeg-
ar reynt er aö sýna samúð. Vinim-
ir hrökkva þá inn í sjálfa sig og
gefast upp við að hafa samband.
Það eykur enn einangrun syrgj-
andans. Öðrum finnst eins og ást-
vinurinn hafi ekki dáið. Þeir heyra
til hans í stiganum, sjá hann sitja
við matborðið. Smám saman blasir
þó miskunnarlaus veruleikinn við
sem gerir sársaukann enn meiri.
Sorgarvinna
Syrgjandinn verður að vinna með
sorgina. Hann á að segja frá því
sem gerðist og sleppa taki á þeim
tilfmningum sem krauma í brjósti
hans, sorg, reiði, angist, sektar-
kennd, öfundsýki og beiskju. Gott
„Þeir sem fara lyfjaðir í jarðarför ástvinar síns geta ekki nýtt sér athöfn-
ina til að komast af stað með eigin sorgarvinnu. Sorg er ekki sjúkdóm-
ur sem lækna á með lyfjum."
Á læknavaktiiuii
Óttar
Guðmundsson
læknir
er að skilgreina þessar tilíinningar
og átta sig á því hvað þær heita.
Sumir fyllast mikilli reiði út í
lækna eða hjúkrunarlið. Vinir og
ættingjar styðja syrgjandann best
með því að hlusta af skilningi og
þolinmæði en reyna ekki að leysa
málin með einfoldum ráðlegging-
um. Fæstir syrgjendur sjá eitthvert
vit í því að reyna að sjá það bjarta
í tilverunni, fara í bíó, fara að njóta
lífsins, gifta sig á nýjan leik eða
fara á ball. Samkvæmt flestum
rannsóknum tekur tilfinninga-
vinna með sorg að minnsta kosti
eitt ár. Best er að styðja syrgjand-
ann með nálægð sinni, athygh og
hiuttekningu. „Meira máh skiptir
aö vera en gera,“ eins og hagmælt-
ur prestin- sagði eitt sinn. Það
skiptir miklu að loka ekki sorgina
inni í hringabrynju áfengis eða
lyfja. Sumir læknar grípa fimlega
til lyfseðils við flest dauðsfóh og
skrifa upp á róandi fyrir alla fjöl-
skylduna. Það er engin lausn á
vandanum en deyfir syrgjandann
og gerir honum erfiðara fyrir þegar
th lengri tíma er htið. Þeir sem fara
lyfjaðir í jarðarfor ástvinar síns
geta ekki nýtt sér athöfnina th að
komast af stað með eigin sorgar-
vinnu. Sorg er ekki sjúkdómur sem
lækna á með lyfjum. Syrgjanda
gengur best þegar umhverfið lætur
hann ekki í friði þó að hann segist
vhja vera einn með sjálfum sér.
Einmanaleikí er eins og eldsneyti
á sorgina, viðheldur henni og eyk-
ur oft allar þær neikvæðu thfinn-
ingar sem syrgjandinn burðast
með. Hvað varð um Margréti?
Læknirinn ákvað að gefa Margréti
svefntöflur í takmarkaðan tíma th
að tryggja sæmhegan svefn. Hann
bauð upp á viðtöl við hana og böm-
in og vísaði þeim auk þess á samtök
um sorg og sorgarviðbrögö. Smám
saman virtist flölskyldan jafna sig.
Þau fóru að tala saman á nýjan leik
og skhdu að eina leiðin út úr myr-
krinu var fram á við. Sérhvert áfah
er endastöð ákveðinnar þróunar.
Þaðan hggja ótal leiðir inn í fram-
tíðina. Best er því að flnna fyrir
sorginni, vinna sig í gegnum hana
og reyna þannig að eygja nýja stigu
þegar myrkrinu léttir.
Útboð
Flugvallarvegur
á Egilsstöðum
Vegagerð ríkisins óskareftir tilboðum í lagningu
0,4 km kafla á Flugvallarvegi á Egilsstöðum.
Helstu magntölur: Fylling og burðarlög 6.000
m3 og klæðing 3.000 m2.
Verki skal að fullu lokið 15. júní 1994.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Reyðarfirði og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðal-
gjaldkera), frá og með 9. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 16. ágúst 1993.
Vegamálastjóri
Þjóöarbókhlaóa - rafdreifitöflur
Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins fyrir hönd mennta-
málaráðuneytisins óskar eftir tilboðum í rafdreifitöflur fyrir Þjóðar-
bókhlöðu.
Um er að ræða 1600A aðaltöflu, 15 greinitöflur og tvo Ijósdeyfi-
skápa. Töfluskápar og skinnur skulu vera tegundaprófuð fram-
leiðsla (type tested). Töflur sem heild skulu hlutaprófaðar (par-
tially type tested).
Til að tilboð teljist fullgilt skal bjóðandi framvísa vottorði frá fram-
leiðanda þeirra taflna sem hann hyggst bjóða (ekki umboðsað-
ila), sem staðfestir að framleiðandi viðurkenni bjóðanda sem full-
gildan samsetningaraðila.
Útboðsgögn verða seld á kr. 12.450 m/vsk. hjá Innkaupastofnun
ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum
10. ágúst 1993.
Tilþoðum skal skilað til Innkaupastofnunar ríkisins eigi síðar en
þriðjudaginn 31. ágúst 1993 kl. 11.00 en þá verða tilþoð opnuð
að viðstöddum þjóðendum.
INIMKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK_
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Vatnsveitu Reykjavíkur,
óskar eftir tilboðum í lagningu aðalæðar VR II, 5. áfanga. Grafar-
holt-Laxalón.
Helstu magntölur eru:
Þvermál pípna: 800 mm.
Lengd: 833 m.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, gegn kr. 15.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 18. ágúst 1993
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
HÓTEL
SÆLUDAGAR
Gisting í treggja manna herbergi með sturtu í trær
nætur. Kröldrerðurogmorgunrerðurbáða dagana.
Verð kr. 8.800 pr. mann.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi kr. 1.400.
Hægt er að bæta við einni nótt og þá bætast við kr. 4.500.
• ÞAÐ SEM í BOÐIER:
0 Hjólaleiga á hótelinu.
0 Bókasafn á hótelinu.
0 Koníaksstofa með arineldi.
0 Nudd, líkamsrækt og solarium.
0 Hestaleiga, farið frá hótelinu.
0 Ferðir í Drangey og Málmey.
0 Bílaleigubílar.
0 Hægt er að fá gistingu í svítu.
0 Dansleikir og sveitaböll í næsta nágrenni.
0 Gönguferðir (styttri og lengri ferðir).
0 Veiði í fjörunni, vötnum og ám.
0 Sjónvarpsaðstaða með gervihnattamóttakara.
0 9 hola golfvöUur (hægt að leigja golfsett).
0 Leikherbergi fyrir börn
og barnagæsla sé þess óskað.
Sauðárkróki - sími 95-36717