Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 50
58 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 Afmæli Birgir Guðmundsson Birgir Guðmundsson leigubifreið- arstjóri, Hjaltabakka 8, Reykjavik, er fimmtugur í dag. Starfsferill Birgir er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann gekk í ísaks- skóla, Austurbæjarskóla, Lang- holtsskóla, Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar og Hérðasskólann á Núpi í Dýrafirði en þar tók Birgir lands- próf. Hann lauk námi í bifvélavirkj- un frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1964 en samhliða var Birgir á samn- ingi hjá SVR. Birgir starfaði hjá Bjarma sf. 1964-68, var verkstjóri hjá Dráttar- brautinni í Neskaupstað 1968-70, verkstjóri hjá Bjarma sf. 1970-76, verkstjóri hjá Sveini Egilssyni 1976-81, rak eigið bifreiðaverkstæði (Bílastilling Birgis) 1981-88, verk- stjóri hjá Glerborg 1989-92 og hefur síðan verið bifreiðarstjóri hjá BSR. Birgir er einn af stofnendum Bif- reiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur (BÍKR) og á árunum 1977-80 keppti hannírallakstri. Fjölskylda Birgir er kvæntur Helenu Svav- arsdóttur, f. 15.12.1947, skrifstofu- manni. Foreldrar hennar voru Svavar Sigurðsson verkamaður og Sólveig Guðmundsdóttir húsmóðir, en þau eru bæði látin. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Birgis og Helenu: Iinda Sól- veig, f. 11.2.1965, bankastarfsmaður, maki Svan Hector Trampe, starfs- maður í stimplagerð, þau eiga einn son, Steinar Hrafn Trampe; Brynja Björk, f. 17.5.1968, húsmóðir, nemi í HÍ og starfsmaður Árbæjarsafns, maki Hermann Haukur Jónsson Aspar markaðsstjóri, þau eiga tvær dætur, Ágústu Hlín og Þórdís Björk; Birgir Fannar, f. 24.4.1970, lager- stjóri hjá Nýherja, maki Dagmar Kristinsdóttir. Fósturdóttir Birgis og Helenu er Rósa Guðbjörg Svav- arsdóttir, f. 28.9.1961, hárgreiöslu- meistari, hún á eina dóttur, Hörpu Ingimundardóttur. Rósa Guðbjörg er yngsta systir Helenu. Bróðir Birgis er Guðmundur Ingv- ar Guðmundsson, f. 30.1.1945, verkamaður, maki Guðríður Pálma- dóttir, þau eiga tvö böm. Hálfbræð- ur Birgis, sammæðra: Arnar Sigur- björnsson, f. 16.1.1949, forstjóri, maki Sigrún Sverrisdóttir, Arnar á flmm börn en Sigrún á þrjú börn; Rafn Sigurbjömsson, f. 31.1.1955, skrifstofustjóri, maki Guðrún Vií- hjálmsdóttir, þau eiga þrjú börn. Foreldrar Birgis voru Hrefna Ingvarsdóttir, f. 6.10.1921, d. 7. ágúst 1978, húsmóðir, og Guðmundur Eyj- ólfsson, háseti á gamla Dettifossi. Guðmundur, sem var lærður bak- ari, fórst með Dettifossi árið 1945. Birgir Guðmundsson. Stjúpfaðir Birgis er Sigurbjörn Ól- afsson, f. 25.7.1919, útvarpsvirki, en hann var með cigin rekstur og stofn- aði m.a. Skiparadíó ásamt öðrum. Birgir og Helena taka á móti gest- um í dag í safnaðarheimili Breið- holtskirkju í Mjódd frá kl. 15-18. Guðbjörg Halla Bjömsdóttir Guðbjörg Halla Bjömsdóttir, starfs- maður hjá Gliti, Hlíðarhjalla 71, Kópavogi, verður fertug á morgun, sunnudaginn 8.8. Fjölskylda Guðbjörg er fædd í Reykjavík en hefur alla tíð búið í Kópavogi. Hún gekk í bamaskóla Kópavogs en lauk prófi frá gagnfræðaskóla Mosfells- bæjar 1975. Var í starfsþjálfun fatl- aðra 1989-1991 og unnið hjá Ghti síðastliðið ár. Einnig hjá Nóa-Síríusi í eitt ár og Öryrkjabandalagi íslands í tvö og hálft ár. Guðbjörg hefur tek- ið þátt í störfum íþróttafélags fatl- aðra. Fjölskylda Maður Guðbjargar er Marteinn Jónsson ræstitæknir, f. 27.6.1952. Foreldrar hans vom Jón Benedikts- son, sjómaður í Keflavík, og Marta Hólmkels. Synir Guðbjargar eru Hilmar Þór Reynisson, f. 13.5.1978, nemi í Digra- nesskóla, og Jón Björn Marteinsson, f. 6.7.1984, nemi í Digranesskóla. Systkini Guðbjargar: Hildur, gift Þórarni Tyrfmgssyni og eiga þau fimm böm; Arndís og á hún fjögur börn; Bima og á hún tvö böm; Gunnvörg Braga, gift Gesti Þor- steinssyni og eiga þau þrjú börn; Einar Valgarð, kvæntur Hafdísi Þóröardóttur, og eiga þau sex böm; Kolbrún Þóra, gift Jóni Þ. Olivers- syni og eiga þau fjögur börn; Hah- dóra Kristín, sem nú er látin; Hjalti Þór, kvæntur Maríu Einarsdóttur og eiga þau fjögur böm; og Sigurður Benedikt. Foreldrar Guðbjargar voru Björn Óskar Einarsson tæknifræðingur og Gunnvör Braga Sigurðardóttir, starfsmaður hjá Ríkisútvarpinu. Bjöm var sonur Einars Benedikts- sonar, útvegsbónda í Stöðvarfirði, Guðbjörg Halla Björnsdóttir. og Guðbjargar Erlendsdóttur. For- eldrar Gunnvarar voru Sigurður Einarsson, prestur í Holti, og Guðný Jónsdóttir hjúkrunarkona. Guðbjörg tekur á móti gestum á heimili sínu í dag, laugardag, frá kl. 15. Haraldur Sigurðsson Haraldur Sigurðsson, Eyjabakka 6, Reykjavik, verður áttatíu ára á morgun, sunnudaginn 8.8. Starfsferill Haraldur er fæddur að Hörgsholti í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Hann ólst upp við almenn sveita- störf til tvítugs en fór þá til Akra- ness og hóf nám í vélvirkjun hjá Þorgeiri og Ehert hf. Sveinsprófi í vélvirkjun lauk hann 16.10.1938. Einnig lauk hann sveinsprófi í pípu- lögnum8.3.1951. Haraldur byrjaði sjálfstæðan rekstur áriö 1940 er hann stofnaði vélaverkstæðið Heklu á Akranesi með Sveinbirni Davíðssyni renni- smið frá Hnausum á Akranesi. Þeirra samstarfi lauk eftir nokkur ár er Sveinbjörn flutti til Reykjavík- ur. Haraldur rak vélaverkstæðið á Akranesi einn th ársins 1946 er hann gerðist meðeigandi í vélsmiðju Óla Ólsen í Njarðvík. Þar var hann rúmt ár og fluttist þá til Reykjavíkur þar sem hann hefur búið síðan og starf- að jöfnum höndum að vélvirkjun og pípulögnum. Hann tók við rekstri vélsmiðjunnar Tækni hf. árið 1951 með Páh Guðmundssyni og fleiri. Þar hefur hann starfað síðan. Fjölskylda Haraldur kvæntist 10.12.1940 Ragnheiði Arnfríði Ingólfsdóttur frá Akranesi, f. 15.7.1920, d. 1.2.1973. Haraldur og Ragnheiður eignuð- ust fjögur börn. Börn þeirra: Kristín Ingunn, f. 16.10.1941, d. 17.4.1989, ekkih hennar er Björn Einarsson og eignuðust þau íjórar dætur og sex bamabörn; Jón Ingi, f. 29.7.1946, kvæntur Önnu Skúladóttur og eiga þau fiögur böm og eitt barnabarn; Sigþór, f. 12.11.1951, kvæntur Oddnýju Magneu Einarsdóttur og eiga þau þrjú börn og eitt barna- barn; og Stefán, f. 24.4.1955, d. 26.12. 1986, ekkja hans er Guðrún Sigurð- ardóttir og eignuðust þau tvö börn. Hálfsystkin Haralds, samfeðra, voru Kristín, Þorleifur Sigurður og Þóranna Sigríður. Haraldur Sigurðsson. Foreldrar Haralds vora Sigurður Þórarinsson, b. frá Hörgsholti, f. 22.11.1859, og Jónína Jónsdóttirfrá Elliða, f. 24.6.1875. Haraldur verður að heiman á af- mæhsdaginn. ærar þakkir til ykkar sem biðjið um að andvirði afmælisgjafa renni til krabba- meinssjúkra barna. Tækifæriskort SKB fást á skrifstofu félagsins, Hafnarstræti 20 (3. hæð), Reykjavík, S. 91- 676020. Opið mánudaga 13.00-15.00 og mið- vikudaga 15.00-17.00. Reikningur nr. 545 í Búnaðarbanka íslands, Austurstræti. STYRKTARFÉLAG KRABBAMEINSSJÚKRA BARNA n 85 ára 50 ára Ragnar Sveinsson, Hoföstöðum, Reykliólahreppi. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, Eikjuvogi 8,Reykjavík. Hreiðar V. Guðmundsson, 80ára María Sigurðardóttir, Vesturgotu 1 Ólafsfirði Þuriður Gunnarsdóttir. Miðvangi 105, Hafnarfirði. Hafsteinn B. Sigurðsson, Eikjuvogi 9, Reykjavík. 75ára Anna Gústafsdóttir, Álfatröð tia. Egilsstöðum.::: Sigríðtir Þ. Jónsdóttir, Hrmgbraut 50, Reykjavik. 40 ára Olafur Þorkelsson, Efstasundi 28, Reykjavík. Bry njólfur Ársælsson, Bústaöavegi 57, Reykjavik. Kristrún Anna Finnsdóttir, Viðhundi 24, Akureyri. Torfufehi 44, Reykjavík. Gréta Ólafsdóttir kennari, Ægisgötu 21, Akureyri. Maður hennar er Sigurður Vagns- sontrésmiður. Sigurður Sigfússon, Safamýri 50, Reykjavík. 70 ára Álfhildur Friðriksdóttir, Túngötu 23, Bessastaðahreppi. sínu á afmæhsdaginn íf á kl. 15-18. Kristín H, Rristmundsdóttir, Hraunbæ 128, Reykjavík. Agnar Georg Guðj ónsson, Byggðarholti3b, Mosfehsbæ. Martin Götuskeggi, :i Njálsgötu 12a, Reykjavík. : Ingólfur Gissurarson, Kleppsvegi 34, Reykjavík. Þrúðvangi 29, Hellu. Haraldur Elías Waage, Sólheimum 3, Reykjavík. :v1:íI||!í Jóhann Ólafur Þorvaldsson, 60ára Bólstaðarhhð 32, Reykjavík. Guðrún Árnadóttir, Rögnvaldur Guðbrandsson, Fannafold 2, Reykjavík. Hrauntúni, Kolbeinsstaðahreppi. Hólakoti, Eyjafiarðarsveit. Ingvar Guðfinnur Samúelsson Ingvar Guðfinnur Samúelsson bif- reiðasfióri, Helhsbraut 36, Reykhól- um, verður fertugur á morgun, sunnudaginn 8.8. Starfsferill Ingvar er fæddur á Höllustöðum og alinn upp í Reykhólasveitinni. Hann starfar nú sem bifreiðastjóri í ferðum mhli Reykjavíkur og Reyk- hóla hjá Koh hf. Vann áður í mörg ár hjá Þörungaverksmiðjunni bæði sem matsveinn á Karlsey og bif- reiðasfióri. Árið 1991 setti hann á stofn ásamt konu sinni verslunina Arnhól. Ingvar var um árabU gjaldkeri hjá UMF Aftureldingu og gjaldkeri hjá ungmennasambandinu UDN. Hann er nú gjaldkeri hjá Verkalýðsfélag- inu Gretti. Fjölskylda Ingvar hóf sambúð í ágúst 1986 með Sólrúnu Ósk Gestsdóttur versl- unareiganda, f. 19.4.1957. Þau gift- ust 16.11.1991. Sólrún er dóttir Gests Jónssonar og Guðrúnar HaUdórs- Ingvar Guðfinnur Samúelsson. dótturíGrindavík. Ingvar og Sólrún eiga einn son saman sem fæddur er 8.6.1993 en fyrir átti Sólrún Jennýju, f. 1975, Hafstein Má, f. 1978, Óla Maríus, f. 1980 og Adolf Þorberg, f. 1982. Ingvar gekk þeim í fóðurstað. Ingvar verður á ferðalagi á afmæl- isdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.