Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
Utlönd
Clintonforseti
módgaðiBelga
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti hefur skip-
aö aösioðar-
mönnum sín-
um að finna
upp ráö til að
nó sáttum viö
bandaraenn
sína í Beigíu
eftir útför Baldvins konungs.
Belgum mislíkaði að forsetinn
kom ekki og ekki heldur Hillary
forsetafrú. Hún ætlaöi til útfarar-
innar en var „of þreytt" þegar til
átti að taka. Á endanum var Walt-
er Mondale, fyrrum varaforseti,
sendur og þótti þegnum Baldvins
hann lítið spennandi,
Þjófurgripinn
viðinnbrothjá
sjálfumsér
Innbrotsþjófur í Hvidovre i
Danmörku var gripinn við irm-
brot hjá sjálfum sér eftir að hafa
látiö greipar sópa á verkstæði
gullsmiðs þar i borginni. Þjófúr-
inn var svo óheppinn aö gleyma
lyklunum að íbúð sinni hjá gull-
smiðnum og varö því að brjótast
inn ó eigið heimili.
Nágrannar þjófsins töldu að
óboðinn gestur væri að reyna að
komast inn til hans og kölluöu á
lögregluna. Laganna verðir komu
að vörmu spori og þótti undarlegt
hvað húsráðandi var vel byrgur
af gulli.
Sextánvíkingar
fóruíhafið
Vikingaferð sextán nemenda
viö menntaskólann í Rodding í
Danmörku endaði með ósköpum
þegar skipi þeirra, Sleipni, hvoldi
skömmu efir aö landfestar voru
leystar. Vítóngamir hugðust
sigla til hafs seglum þöndum en
um leið og vindurinn fyllti seglin
lagðist stópiö á hliðina. Engum
varð meint af volkinu.
Ökukennari
barðioghár-
reytti nemendur
Lögreglan í Málmey í Svíþjóð
hefur ákveöið að veita ökukenn-
ara þar i borginni tiltal eftir að
fjölmargar stúlkur, sem læröu á
bíl hjá honum, kærðu hann fyrir
ofbeldi.
Stúlkumar sögðu að maðurinn
hefði oft misst stjórn á skapi sínu
og þá látið hendur skipta. Þannig
hefði hann barið þær í höfuðiö
og jafnvel dregið þær á hárinu
út úr bílnum.
Stúlkurnar eru mjög ósáttar viö
að ökukennarinn skuli fá aö
halda réttindum sínum þrátt fyr-
ir ítrekuð brot. Þeim finnst tiltal
frá lögreglu lítil refsing fyrir of-
beldið. Þær segja að kennarinn
hafi lítinn áhuga á starfi sínu og
hafi oft sofnað í ökutímum.
Madonnasendir
FeHiniMóm
Bandariska
kynbomban og
poppstjaman
Madonna sendi
ítalska kvik-
myndaleik-
stjóranum
Frederico Fell-
ini gríðarsttór-
an
blómavönd á dögunum meö ósk-
um um góöan bata. Fellini liggur
á sjúkrahúsi eftir hjartaáfall en
er á batavegL Madonna er af ít-
ölskum ættura og einlægur aödá-
andi Fellinis. Að sögn þótti gaxnla
manninum vænt um blómasend-
inguna.
Ekkert varð úr ljósadýrðinni á himni í nótt:
Aumasta Ijósa-
sýning á öldinni
- aðeins munaði nokkur þúsund kílómetrum að spár rættust
„Það sést bara ekkert,“ sögðu
stjömuskoðarar um heim allan þeg-
ar líða tók á síðastliðna nótt og eng-
inn hafði komið auga á alla Ijósa-
dýrðina sem stjarnfræðingar höfðu
lofað. Þegar morgnaði höfðu menn á
orðið að það sem átti að vera mesta
ljósasýning aldarinnar hafi orðið
einhver sú aumasta.
Um miðnættið átti jörðin að fara í
gegnu slóð halastjörnunnar Swift-
Tuttle og spáð var mitóu stjömu-
regni á himni þegar ís og grjót úr
halanum brynni upp í himinhvolf-
inu. Þegar til kom vantaði nokkur
þúsund kílómetra upp á að halinn
lenti á jörðinni. Þaö þykir stjam-
fræðingum lítiU munur en þeim sem
horfðu fullir eftirvæntingar til him-
ins um lágnættið þótti munurinn
samt of mikill.
„Æfii ég reyni ekki að vaka á með-
an bjórkippan endist," sagði Ant-
hony Pezzullo, sem hafði tetóð sér
stöðu á Bjarnarfjalli norðan New
York og ætlaði að sjá alla dýrðina
þaðan. Hann sá einn loftstein brenna
upp áður en brjóstbirtan var búin.
í Suður-Fraktóandi mátti þó
merkja aö nokkur tíðindi voru að
gerast á himnum. Þar sást til fjölda
loftsteina þótt ljósagangurinn líktist
hvergi nærri þvi sem menn höíðu
búist við.
I morgun sögðu stjamfræðingar að
vissulega hefðu vonir manna um að
sjá tilkomumitóð stjörnuregn á
himni bmgðist en fólk hefði líka
búist við allt of miklu.
„Þetta er eins og að reyna að segja
fyrir um hvort það muni snjóa á jól-
unum,“ sagði bandarískur stjam-
fræðingur og minnti á að hann og
aðrir vísindamenn hefðu varað fólk
við að útreikningar þeirra væru ektó
nákvæmir.
„Þetta er eins og að horfa á hafna-
bolta. Það gerist ekkkert," sagði
Bandaríkjamaður þegar hann hélt
vonsvitónn til sængur í gær-
kveldí.Reuter
Irma litla gekkst undir aðra skurðaðgerð í London:
Enn meðvitundarlaus
Ramiz Hadzimuratovic heldur á Medínu, 3 ára dóttur sinní, og svarar spurn-
ingum um eldri dóttur sína, Irmu, sem berst fyrir lífi sínu i London.
Simamynd Reuter
Irma Hadzimuratovic, fimm ára
stúlka frá Sarajevo, sem flutt var til
lækninga í London, var enn í lífs-
hættu í morgun eftir að hafa gengist
aftur undir skurðaðgerð í gærkvöldi,
að því er læknar hennar skýrðu frá.
Hún er enn meðvitundarlaus og í
öndunarvél.
„Irmu líður eftir atvikum," sagði
talsmaður Great Ormond Street
barnasjúkrahússins við fréttamenn.
Robert Wheeler bamalæknir sagði
að Irma hefði verið þrjár og hálfa
klukkustund á skurðarborðinu í
gærkvöldi. Hann sagði að skurð-
læknamir fiórir, sem hefðu fram-
kvæmt aðgerðina, hefðu fundið meiri
innvortis meiðsl sem hún hlaut í
sprengjuárás Serba í síðasta mánuði.
Móöir hennar lét lífið í árásinni.
Ramiz Hadzimuratovic, faðir Irmu
litlu, þakkaði stjórnvöldum í Bret-
landi fyrir hjálpina en hvatti til þess
að bardagamir í Bosníu yrðu stöðv-
aðir.
„Sem verfiulegur maður bið ég
umheiminn um að hjálpa íbúum
Sarajevo um að binda enda á þján-
ingarnar," sagði hann á fundi með
fréttamönnum.
John Major, forsætisráöherra
Bretlands, tilkynnti í Stokkhólmi í
gær að Bretar og Svíar myndu flyfia
41 fórnarlamb stríðsátakanna í Bosn-
íu burt frá Sarajevo á næstu tveimur
sólarhringum. Helmingur þeirra er
börn. Flogið verður með tuttugu til
Bretlands, sextán til Svíþjóðar og
fimmtilírlands. Reuter
Reyndi að
sigí
klósettpappír
Suður-afrískur fangi reyndi í
gær að hengja sig með klósett-
pappír þar sem hann beið yfir-
heyrslu í fangaklefa hjá lögregl-
unni í Pretoríu.
Fanginn leysti pappírinn upp í
vatni, mótaöi kaðal úr upplausn-
inni og þurrkaði.
Snaran hélt en lögreglan komst
að tíltætónu í tæka tíð og skar
manninn niður áður en sjálfs-
moröið heppnaðist. Fanginn var
þá meðvitundarlaus en nær að
öllum lítóndum heilsu.
Reuter
Julie Stacey, USATODAY
tímaril lítur á
björtuhliðamar
Nýtt svissneskt tíraarit, sem
heitir því jákvæða nafni Die Posi
tive, ætíar aðeins að líta á björtu
hliðaraar á tilverunni og flytja
eingöngu jákvæðar fréttir.
Aðstandendur tímaritsins ætla
að höföa til lesenda sem fyrir
löngu eru búnir að fá nóg af ar-
mæðufréttum. Fyrsta tölublaðið
kemur út í dag og í því verða
m.a. greinar um þægilega tónlist,
plöntur með lækningaeiginleika
og velgengni.
„í stað þess að segja að atvinnu-
leysíð só 4,6 prósent munum við
segja að 95,4 prósent fólks hafi
vinnu,“ sagði Franz Búliler, rit-
stjóri timaritsins.
Grafirhermanna
viðArnhemvan-
helgaðar
Hakakrossar,
nasistaslagorð 1
og aðrir kyn-
þáttafordómar
voru málaöir á
rúmlega tvö
hundruð grafir
breskra og
annarra her-
manna bandaraanna sem féllu í
orrustunni um Arnhem í Hol-
landi í heimsstyrjöldinni síöari.
Lögreglan segir að hægrisinnaðir
öfgamenn hafi verið að verki.
Stríðsgrafanefhdin í Bretlandi
sagði aö atburðurinn í kirkju-
garöinum í Nijmegen, nærrí Arn-
hem, væri sá Ijótasti sinnar teg-
undar í mörg ár.
Lögreglan hefur sett tólf menn
í raáliö en ódæðismennirnir hafa
ektó fundist enn.
Malaríu-
moskítóflugum
fjölgaríMoskvu
Moskítóflugum, sem bera mal-
aríuveiruna með sér, hefur fiölg-
að stórlega í Moskvu og nágrenni
að undanfomu og hafa læknar
hvatt almenning til að verja sig
gegn sjúkdómnum.
Rússneska útvarpið haíöi það
eftir heilbrigðisyfirvöldum að
moskítófiugurnar tímguðust í
meira en tíu þúsund smáum og
stórum vatnsþróm um alla borg.
Sjúkdómar, sem áður var búið
að útrýma, eru farnir að láta á
sér kræla að nýju vegna síversn-
andi ástands í heilbrigðismálum.
LeiðirGro Harlem
ogPaulsWatson
kunnaaðskerast
Svo kann að
fara að Gro
Harlem
Brandtland,
forsætisráð-
herra Noregs,
hitti Paul Wat-
son, foringja
umhverfis-
verndarsam-
takanna Sea Shepard, þegar hún
setur umhverfisráðstefhu í
Tromsö í lok september.
Fregnir herma aö Watson sitji
um þessar mundir í fangelsi í
Kanada en hann hefur tilkynnt
komu sína til Tromsö.
Búist er við eitt þúsund þátttak-
endum á ráðstefnuna þar sem
aðalumræðuefnið verður óspjöll-
uð náttúra og þróun í jafnvægi á
heimskautasvæðum.
Meðal þátttakenda verða Thor
Heyerdal og prófessor Arne Náss,
svo og fulltrúar Grænfriðunga í
Noregi og umhverfisverndar-
samtaka um heim allan.
Reuter, NTii