Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 5 Fréttir Samkeppnisstaða iðnaðar 1er batn- andi á næstunni Ákærurvegna dýradrápa Ríkissaksóknari hefur geflð út ákæru á hendur manni á þrítugs- aldri fyrir að hafa drekkt hundum í Kópavogshöfn í seinasta mánuði. Manninum er geflð að sök að hafa brotið dýravemdunarlög. Þá hefur ríkissaksóknari einnig, fyrir sömu sakir, gefið út ákæru á hendur mönnunum fimm sem drápu hvitabjörninn út af Vestfjörðum í júnímánuði. -pp - sögulegt lágmark raungengis Samkeppnisstaða íslenzks iðnaðar fer batnandi á næstu árum. Það er mat Seðlabankans. Samkeppnis- staða sjávarútvegs er á hinn bóginn ábotni. Seðlabankinn reiknar svonefnda vísitölu samkeppnisstöðu atvinnu- veganna. Þessi vísitala gefur vis- bendingu um ytri verðskilyrði ís- lenzkra fyrirtækja. Við útreikning- ana er atvinnuvegunum skipt milli sjávarútvegs, útflutningsiðnaðar og samkeppnisiðnaðar, það er inn- lends iðnaðar, sem á í samkeppni við innfluttar vörur. Vísitalan mælir hlutfallið milli verðs á afurð- unum og kostnaðar við hverja ein- ingu í framleiðslu. Eins og kunnugt er, var gengi krónunnar lækkað um 7,5 prósent í sumar. Það hefur að sínu leyti hjálpað innlendri framleiðslu í samkeppninni. Raungengi er gengi mælt annars vegar sem hlutfallslegur fram- færslukostnaður milli íslands og samkeppnislanda. Gert er ráð fyrir 9 prósenta lækkun raungengis krónunnar, þegar miðað er við verðlag, frá öðrum íjórðungi ársins í ár til hins þriðja og rúmlega 6 prósenta lækkun raungengis milh meðaltala í ár og í fyrra. Verðbólga hefur að vísu verið meiri undanf- arnar vikur en ráð var fyrir gert en hún ætti að minnka fljótlega. Enn er ekki gert ráð fyrir nema um 4 prósenta verðbólguhraða á seinni hluta ársins, ef miðað er við árs- hraða. 4,2 prósenta verðbólga? Seðlabankinn gerir ráð fyrir, að verðbólgan í ár verði 4,2 prósent, sem er rúmum tveimur prósentu- stigum meira en spár fyrir gengis- fellinguna gerðu ráð fyrir. Útlit er fyrir, að raungengið nái sögulegu lágmarki á næstu mánuð- Vísitala samkeppnisstöðu 120 Útflutningsiðnaður Sjðvarútvegur dE2H Sjónarhom Grafið sýnir, hvernig samkeppnisstaðan þróast hjá sjávarútvegi, útflutn- ingsiðnaði og samkeppnisiðnaði, iðnaði sem á í samkeppni við innflutt- ar vörur. lágmark, sem var árið 1984. Að öðru jöfnu fylgjast að lægra raungengi og batnandi samkeppn- isstaða, en ef þróun viðskiptakjara og framleiðni í greininni er óhag- stæð getur samkeppnisstaðan versnað samhliða lækkun raun- gengis. Það gerist nú í sjávarút- vegi, eins og meðfylgjandi línurit sýnir, að samkeppnisstaða fer versnandi og verður á næsta ári að líkindum verri en verið hefur um áratuga skeið. Útflutningsiðnaðurinn er enn í þeirri djúpu lægð, sem hann hefur verið í um árabil. Hins vegar stefnir samkeppnisiðnaður í að ná jafngóðri samkeppnisstöðu á næsta ári og var árið 1983, þegar staðan var sem hagstæðust fyrir þessa grein. Haukur Helgason um. Raungengi mælt með hlutfalls- legu verðlagi hefur þá ekki verið lægra síöan 1970. Raungengi mælt sem hlutfallslegur launakostnaður verður væntanlega i haust hið lægsta, sem mælzt hefur á þeim þremur áratugum, sem gögn Seðla- bankans ná yfir, og verður þá 1,7 prósentum lægra en fyrra sögulegt Guðbrandur Sigurðsson hleöur rennustein á Laufásvegi. DV-mynd JAK Endurnýjun á göturennum „Göturennumar, sem verið er að gera við, eru í gamla bæjarhlutanum og rifnuðu flestar upp í fyrra þegar verið var að endurnýja gangstéttirn- ar. Þessar göturennur voru hlaðnar úr brústeinum í gamla daga. Vinnu- aöferðina var að fmna í gamla daga víðs vegar um Þingholtin og vest- urbæinn. í rennunum er tilhöggvinn steinn, að mestu úr Öskjuhlíðinni og Skólavörðuholtinu,“ segir Guðbjart- ur Sigfússon, yfirverkfræðingur hjá gatnamálastjóra. Tveir hellulagna- verktakar á vegum gatnamálastjóra, Fjölverk og Garpar, sjá um verkið. „Verkið er seinlegt vegna þess að ekki eru lengur til fagmenn í þessu. Strákarnir hafa ekki gert mikið af því að leggja niður svona steina og klappa þá til þannig að þeir liggi rétt,“ segir Guðbjartur. -em Er Mlkson-málið að lifna við? kemur hingað 20. ágúst undrandi segir Steingrímur Hermannsson Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, kemur í opinbera heimsókn til íslands 20. ágúst í boði ríkisstjórn- arinnar. Ekki er búið að setja saman dagskrá ennþá en Hörður H. Bjama- son, prótokollstjóri utanríkisráðu- neytisins, segist búast við að Peres hitti að minnsta kosti forseta íslands og forsætisráðherra að máh. Hörður segir að engar ákvarðanir um við- ræður Peresar við ráðamenn þjóðar- innar hafi verið teknar. „Almennt séð þykir mér ísraels- menn haga sér illa. Árásir þeirra á Líbanon eru fyrir neðan allar hellur og ég er undrandi á þessari heimsókn eins og þarna er ástatt. Ég hef aldrei kynnst þvi fyrr að heimsókn forsæt- isráðherra sé endurgoldin með heim- sókn utanríkisráðherra. Þaö er mjög óvenjulegt," segir Steingrímur Her- mannsson alþingismaður en hann situr í utanríkismálanefnd alþingis. Eins og kunnugt er varð mikið fjaðrafok hér á landi þegar Davíð Oddssyni forsætisráðherra var fyrir- varalaust afhent bréf í opinberri heimsókn í ísrael í fyrra. í bréfmu voru alvarlegar ásakanir Wiesen- thal-stofnunarinnar í ísrael um aö stríðsglæpamaður nasista væri bú- settur á Islandi og var þess krafist að hann yrði dreginn fyrir dómstóla. BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR ÁRMÚLA 13,* REYWAVÍK SÍMI: 68 12 00 • BEINN SIMI: 3 U Heimsókn Peresar hingað til lands er hður í ferðalagi hans um Norður- löndin en hann flýgur til Finnlands þann22.ágúst. -GHS Ný Lada Samara kostar frá 596.000 kr. Flostir fjölskyldubílar ol svipaðri stærð kosta yfir 1.200.000 k, Hvai langar fjölskylduna að gora fyrír mismuninnt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.