Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 Fréttir Sighvatur Björgvinsson segir landbúnaðarráðuneytið hafa legið á upplýsingum: Boðar breytingar í landbúnaðarmálum - segist gáttaður a viðbrögðunum við landbúnaðarskýrslu Hagfræðistofnunar „Þjóöin hlýtur aö vakna til um- hugsunar þegar henni er sýnt fram á aö þetta er dýrasta kerfið sem við búum við. Það þarf að breyta þama og svigrúmið til breytinga er mjög mikið,“ segir Sighvatur Björgvins- son ráöherra um niðurstöður land- búnaðarskýrslu Hagfræðistofnunar íslands. Hann segist hafa skrifað Hagfræði- stofnun og beðið hana að meta þá gagnrýni sem skýrslan hefur sætt. Þá hafi hann einnig farið þess á leit viö Hagfræðistofnun að hún meti hvaða breytingar hafi orðið frá þeim tíma sem skýrslan miðar við, árið 1988. Niðurstaðna þeirrar vinnu væntir hann fljótlega. „Ég er gáttaður á því hvernig þessi umræða hefur snúist. Ég ber fullt traust til Hagfræðistofnunar Háskól- ans. Mér finnst alveg ástæðuiaust að vera að sproksetja þá menn fyrir verk sem þeir eru að vinna núna í fyrsta sinn. Verk sem aðrir hefðu átt að vera búnir að fyrir löngu.“ „í skýrslunni er verið að reyna að safna saman upplýsingum um stuðn- ing við landbúnað á Norðurlöndum. Niðurstöðumar hafa ekki legið fyrir hér á íslandi fyrr því að þetta hefur ekki verið gert áður. Svona upplýs- ingar em þó til um öll önnur lönd hjá OECD, Efnahags- og þrónunar- stofnuninni í París. Viðskiptaráð- herra hefur jafnan komið öllum beiðnum um slíkar upplýsingar frá OECD til ráðuneytanna. En á Islandi hefur landbúnaðarráðuneytiö aldrei sent OECD nein gögn.“ Sighvatur boðar breytingar í land- búnaðarmálum og segir íjármálaráð- herra hafa markað þá stefnu ásamt fjármálaráðherrum annarra Norð- urlanda. „Sú stefnumörkun er á þann veg að breyta eigi þessu kerfi, bæði í sambandi við opinberan stuðning við landbúnaðinn í formi beinna fjárgreiðslna og eins í sam- bandi við viðskiptaverndina." Sighvatur segir að skoða þurfi opn- un fyrir frjálsan innflutning í vax- andi mæli. Aðspurður sagði hann að einnig þyrfti að líta til endurskoðun- ar á gildandi búvömsamningi. „Þaö hefur landbúnaðarráðherra sjálfur sagt að til greina komi.“ „Menn geta ekki til eilífðarnóns svarað upplýsingum með áköllum um fjandmenn landbúnaðarins. Það er enginn fjandskapur við bændur að segja satt frá.“ -DBE Óttiumdauða gullfiska ástæðulaus Sambandi dýraverndunarfé- laga íslands barst símtal í líðinni viku þar sem veitingamaður bað um aðstoö samtakanna vegna gullfiska sem vom í búri á veit- ingastað sem hann rak í leiguhús- næði í Hafharfirði. Ágreiningur hafði risið á milli húseiganda og veitingamannsins og var veit- ingamanninum meinaöur aö- gangur að húsinu vegna vanskila. Samband dýravemdunarfélaga sendi sýslumanninum í Hafiiar- firði bréf þar sem farið var fram á tafarlausa rannsókn á því hvar í Hafnarfirði þetta gæti verið og kannaö hvort það væri rétt aö fiskarnir hefðu verið skildir eftir til þess að drepast úr hungri. Ef svo væri var farið fram að höfðað yrði opinbert mál á hendur þeim sem bæru sök á verknaðinum og þeir dæmdir til þyngstu refsing- ar. Rannsóknarlögreglan í Hafnar- firði brást skjótt við og kannaöí málið og kom í ljós aö eigandi hússins hafði gefið fiskunum að étafráfyrstadegi. -pp Sjálffurvaldur aðeldsvoðanum Allt bendir til þess að maðurinn sem lést í brunánura aö Njarðar- götu 39 í fyrradag hafi sjálfur veriö valdur að brunanum og notaö til þess bensín. Að ósk aðstandenda hins látna er ekki hægt að gefia upp nafn hans. -pp Atlantic Norma landaði 70 tonnum at ísuðum þorski á Eskifirði. DV-mynd Emil Afla úr Barentshafi landað á Austfjörðum Emil Thorarensen, DV, Esldfirði; Tveir skuttogarar, skráðir í Belize í Mið-Ameríku, komu í fyrradag til Eskifjarðar og Stöðvarfjarðar með afla sem þeir veiddu á alþjóðlegu hafsvæði í Barentshafi. Atlantic Norma landaði 70 tonnum af isuðum þorski á Eskifirði en Atlantic Jane 80 tonnum af þorski á Stöðvarfirði. í áhöfn skipanna eru Færeyingar og þeir gera út skipin sem stunda togveiðar með svokölluðu tveggja báta trolli. Aflinn virðist í viðunandi ástandi og kemur sér vel fyrir byggö- arlögin að fá þetta óvænta hráefni því á Eskifirði voru togarar staðarins búnir með sinn kvóta. Vinna í frysti- húsinu lá niðri í ágúst. Stuttar fréttir dv Atvinnuleysi kennara í fyrsta sinn í sögunni er hægt að segja að atvinnuleysi sé meðal kennara því um 40 grunnskóla- kennarar eru á atvinnuleysis- skrá, samkv. frétt RÚV. Kennara- félagið hefur miklar áhyggjur af þessu. Álfakort í Hafnarf irði Feröamálaráö Hafnarfjarðar hefur hafið sölu á korti af álfá- byggö í Hafnarfirði. Samskip í bobba Samskip hafa þurft að leigja út 3 skip erlendis sem ekki hefur með nokkru móti tekist að selja síðastliðiö ár. Stöð 2 greindi frá þessu. Vinsælskýrsla Skýrsla Norrænu ráöherra- nefndarinnar um landbúnaðar- mál er uppseld hér á landi. Bænd- ur hafa verið duglegir að kaupa, samkvæmt frétt Alþýöublaösins. Hampiðjuhagnaður Hreinn hagnaöur af rekstri Hamiðjunnar fyrstu 6 mánuði þessa árs varð 37 milljónir króna eftir að lækkun skattaskuldar hafðí komið til. Sjúkraliðar mótmæla Sjúkraliðafélag íslands hefur mótmælt þeirri ákvörðun Borg- arspítalans að rifta samningura við sjúkraliðanema frá Fjöl- brautaskólunum í Breiðholti og Ármúla. Nýkönnun Gallup Sjálfstæðisflokkurinn er kom- inn upp að hlið Framsóknar- flokksins hvað vinsældir snertir, samkvæmt nýrri könnun ÍM- GaUup á íslandi. Vísitalan hækkar Vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað um 4,8% síðustu tólf mánuði. Verðbólga á árs- grundvelli mælist nú 7,8%. Verðtryggð lán bönnuð? VSÍ-menn vilja banna verð- tryggingu skammtímainnlána með lögum, samkv. frétt Tímans. Naskur Norðmaður Norðmaður nokkur hreppti 133 railljónir í Víkingalottói í gær en íslendingur fékk 1,5 milljónir kr, í bónusvinning. Háriosáhrossum Hross frá bæ í RangárvaUa- sýslu hafa verið með hárlos og talin hafa fengið sveppasýkingu, samkv. frétt Morgunblaðsins. Meiraféísalt Auka ó hlutafé Saltfélagsins á Reykjanesi um 300 miUjónir króna í samstarfi viö danska að- ila, samkvæmt frétt Ríkissjón- varpsins. -bjb Eigendur Eiöis á Langanesi: Allt annað viðhorf nú í ráðuneytinu Össur Skarphéðinsson hefur ákveðiö frekari sýnatöku á HeiðarfjaUi Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við erum mjög ánægðir með þróunina eins og hún er núna og sérstaklega að það er komið allt arnlað viðhorf tíl málsins í um- hverfisráöuneytinu eftír ráðherra- skiptin," segir Sigurður Þórðarson, einn eigenda jarðarinnar Eiðis á Langanesi. Eigendur jarðarinnar hafa átt í langri baráttu við yfir- völd vegna mikiUar mengunar af völdum veru Bandaríkjamanna á Heiðarfjalli en herinn rak þar rat- sjárstöð um árabU. „Við vorum eiginlega búnir að gefast upp á baráttunni við yfirvöld og fógnuðum því mjög að Össur Skarphéðinsson hafði frumkvæði að því að máUð yrði skoðað nánar. Það á aö fara fram frekari sýnataka á Qallinu innan skamms en þrátt fyrir að við teljum að fuUsann- að sé hversu mikU mengun er þar í jarðvegi eftir herinn, fógnum við því að máUð er komið á hreyf- ingu. Auðvitað á bandaríski herinn að hreinsa til eftir sig hér eins og ann- ars staöar. Bandaríkjamenn eru að hreinsa til eftír sig víða um heim og nægir að nefna Kanada, Græn- land, FUippseyjar og Þýskaland í því sambandi. Hvers vegna á þaö sama ekki að gjlda hér á landi?“ segir Sigurður. Hann segir eigendur Eiðis hafa lagt allt sitt í það á árunum 1974 til 1989 að byggja upp laxeldi á jörð- inni en árið 1989 hafi komið í ljós hversu alvarleg mengunin á fjall- inu var. „Við héldum fram að því að einungis væri um að ræða yfir- borðsmengun en annað kom svo í ljós. ÖU áform okkar um fiskeldið voru því lögð á hiUuna og aUur okkar kostnaður og fyrirhöfn voru tíl einskis," segir Sigurður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.