Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Síða 5
5 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 dv Fréttir Fækkun ferða Flugleiða til Húsavíkur Hrein niðurrifsstarf semi á ferðaþjónustu okkar - segir Bjöm Sigurðsson, sérleyfishafi á Húsavík Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyrú „Viö erum búnir aö vera aö keyra mörg hundruð km í tíma og ótíma í hverri viku í sumar bara til aö reyna að standa við okkar hluta. Fólkið er meö í höndunum áætlanir sem við gáfum út í vor og svo þegar það er komið hingað er allt orðið breytt í flugáætluninni og fólkið nánast strandaglópar. Þessi fækkun Flug- leiða á ferðum hingað er hrein niður- rifsstarfsemi á ferðaþjónustu okk- ar,“ segir Björn Sigurösson, sérleyf- ishafi á Húsavík, vegna fækkunar ferða Flugleiða til Húskvíkur í sumar í 4 ferðir á viku úr 6. Björn segir aö í hverri einustu viku í sumar hafi verið sífelld vandræði vegna þessa máls. Hann segist vera með ferðir inn í Kverkfjöll, að Vatna- jökli og dagsferð í Ásbyrgi, að Detti- fossi og um Vesturdal og allar þessar ferðir hafi verið tengdar við flugáætl- un Flugleiða. „Þetta fór allt í hnút enda breyttu Flugleiðir sumaráætl- uninni fjórum sinnum eftir að farið var aö fljúga eftir henni. Það er því óhætt að segja að þetta hafi komið mjög illa við okkur,“ sagði Björn. „Við erum mjög óánægðir með þessa stefnu Flugleiða. Þetta hefur m.a. haft þau áhrif að við höfum þurft að sækja okkar föstu viðskipta- vini inn á Akureyri með tilheyrandi kostnaði. Þá fáum við færra fólk og þetta eru endalausar tilfæringar," segir Þorvaldur Þór Árnason hjá Bílaleigu Húsavíkur. Þorvaldur segir að staðfestar pant- anir hafi ekki gengiö eftir vegna breytinga á áætlun Flugleiða. Þá gefi Flugleiðir ekki upp áætlun Flugfé- lags Norðurlands nema eftir því sé gengið. „Það er því staðreynd að við höfum tapað miklum viöskiptum vegna þessa og það virðist vera stefna hjá Flugleiðum að sinna bara flugi til allra stærstu staðanna eins og þeir eiga að gera. Svo tala þeir um að farþegafjöldi t.d. til Húsavíkur standi í stað, en staðreyndin er að fjöldi farþega hingað fer um Akur- eyri vegna þess hversu fáar ferðir eru hingað," sagði Þorvaldur. Hamborgari og franskar t*—**-^^ kr. 250.- :víM:Titvíi3í«;í'íJ Opid frá kl. 11-22 alki diiga Hamraborg 14 — simi 40344 ■ Loðnuveiðin: Hólmaborgin aflahæst Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Hólmaborg frá Eskifirði er afla- hæsti báturinn á loðnuvertíðinni, hefur fengið um 15.500 tonn og á ekki eftir nema um 4 þúsund tonn af kvóta sínum samkvæmt fyrstu úthlutun loðnukvótans. Næstu bátar eru Víkingur með 14.500 tonn, Börkur og Sigurður með rúmlega 13 þúsund tonn og Hilmir, Júpíter og Bjarni Ólafsson með um 11 þúsund tonn. Heildarafli á vertíðinni er nú um 206 þúsund tonn og hefur mestu ver- ið landað á Siglufirði eða um 46 þús- und tonnum, tæplega 33 tonnum á Raufarhöfn og tæplega 30 þúsund tonnum á Seyðisfirði. Loðnukvótinn, sem gefinn var út í upphafi vertíðar og kemur í hlut íslendinga, var 702 þúsund tonn. Leikfélag Akureyrar: Ferðin til Pan- amafyrsta verkefnið Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Fyrsta verkefni Leikfélags Akur- eyrar á komandi leikári er „Ferðin til Panama“ eftir Martin Truthmann sem hann hefur samið upp úr sam- nefndri sögu eftir Janosch. Janosch hefur öðlast heimsfrægð fyrir sögur sínar um vinina tvo, tígrisdýrið og björninn. Með helstu hlutverk í sýningu LA fara Aðalsteinn Bergdal, Sigurþór Albert Heimisson, Dofri Hermanns- son og Anna María Gunnarsdóttir, en Dofri og Anna María leika nú í fyrsta skipti með Leikfélagi Akur- eyrar. Ingunn Jensdóttir leikstýrir og er það fyrsta leikstjórnarverkefni hennar hjá LA. Leikritið verður sýnt á Akureyri og einnig farið með það í leikferð um allt Norðurland. ElduríKringlunni Eldur kom upp í versluninni Brýnt og bætt í Kringlunni um miðjan dag í gær. Skósmiður er þar til húsa og kom eldurinn upp í vél sem notuð er til skóviðgerða. Starfsménn höfðu að mestu slökkt eldinn þegar slökkviliðið bar að og tjónvarðlítiö. -ból UIM HELGINA FRÁ KL. 14-17 Á NÝRRI OG GJÖRBREYTTRI LÍNU FRÁ IVIF TRAKTORSGRÖFUM Heil grind Meðal nýjunga: Rafmagns Servo Krabba stýring Fjórhjólastýring Tveggja hjóla stýring Tvöföld vökvadæla Sjálfvirkur útsláttur á bómu og skóflu ,-=••= , Ingvar = = i = Helgason hf. ^^ Sævarhöföi 2, 112 Reykjavik Sími 674000 FRUMSÝNING

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.