Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Blaðsíða 32
Hinn dæmigerði tippari er Ragn- ^ar Reykás. Aum- ingá frúmar! „Ef við reynum að skilgreina hann (dæmigerða tipparann) þá er um að ræða karlmann á aldr- inum 30 til 60 ára. Hann er búinn að koma sér sæmilega vel fyrir, hefur mikinn áhuga á knatt- spyrnu og vill taka þátt í léttum • ''og skemmtilegum leik samfara áhugamáhnu. Þegar hann sest við sjónvarpið á laugardögum að horfa á ensku knattspymuna þá er hún honum mikið skemmtiefni en það vantar að krydda þetta,“ segir Sigurður Baldursson, fram- kvæmdastjóri íslenskra get- rauna. Ummæli dagsins Fámáll leikstjóri! „Vinnubrögð íslenska kvik- myndagerðarfólksins era mun rólegri og þægilegri en þau sem ég hef vanist. Friðrik segir ekki margt en hann er mikill húmor- isti og það er gott að vinna með honum,“ segir danska leikkonan Asta Esper Andersen leikkona í Tímanum í gær. Asta er um þess- ar mundir að leika í Bíódögum. Enginn afli! „Eg er búinn að taka tvö klukkutíma hol vestarlega á svæðinu og þar er enginn afli,“ segir Sturla Einarsson, skipstjóri Akureyrinni, sem sigldi í fjóra ' sólarhiinga til að grípa í tómt. Vel varðir „Tíminn verður nýttur með ýmsu móti og nefnir Oddur dæmi um að nokkrir skipverja séu með byssur með sér og kassa af leir- dúfum enda ætlunin að nota tím- ann m.a. til að æfa leirdúfuskytt- irí,“ hefur Morgunblaðið eftir Oddi Vilmundarsyni, háseta á Helgu H. sem fer í Barentshaf. Nú mega Norðmenn fara að vara sig þegar sjómenn koma alvopn- aðir á miðin! Smáauglýsingar Rigning á hálendinu Stormviðvörun. Búist er við stormi á Vestfjarðamiðum og á norðurdjúpi Veðrið í dag og suðausturdjúpi. Um sunnanvert landið verður sunnankaldi og súld eða rigning í dag en léttir til í nótt með norðankalda. Um norðanvert landið verður hæg breytileg eða austlæg átt og skýjað en þurrt aö mestu í dag en norðan- strekkingur og súld í nótt. Hiti 5 til 15 stig. Á hálendinu verður sunnankaldi og rigning sunnan til en þurrt að mestu norðan til. í nótt snýst vindur til norðlægrar áttar og léttir þá til sunnan fjalla en fer að rigna norðan til á hálendinu. Hiti 3 til 6 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðaustan gola og dáhtil rigning í dag en norðan kaldi og léttir tíl í nótt. Hiti verður 8 til 11 stig. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 10 Egilsstaöir skýjað 10 Galtarviti súld 8 KeílavíkurílugvöUur súld 9 Kirkjubæjarklaustur rigning 8 Raufarhöfn alskýjað 9 Reykjavík súld 9 Vestmannaeyjar súld 8 Bergen skýjað 11 Helsinki rigning 12 Ósló skýjað 10 Stokkhólmur skýjað 10 Þórshöfn skúr 11 Amsterdam skýjaö 12 Barcelona heiðskírt 22 Berlín skýjað 14 Chicago mistur 23 Feneyjar þokumóða 21 Frankfurt léttskýjað 14 Glasgow skýjað 9 Hamborg skýjað 12 London mistur 13 Malaga þokumóða 24 Mallorca léttskýjað 17 Montreal heiðskírt 18 New York heiðskirt 21 Orlando heiðskírt 27 París skýjað 15 „Við höfum hugsað okkur að kalla þennan þátt Dagsljós. Þáttur- inn verður sendur út flóra daga vikunnar i 40-50 mínútur í hvert skipti. Að haki er mikil vinna og margt starfsfólk hefur komið ná- lægt undirbúningnum," segir Sig- urður G. Valgeirsson, ritstjóri nýs þáttar sem verið er að undirbúa hjá Sjónvarpinu. Áætlað er að út- sendingar hefjist í lok september Maður dagsins eða byrjun október. „Þátturinn er fréttatengdur en þó ætlum viö ekki í beina samkeppni við fréttastofuna. Að auki munum viö koma inn á dægurmál, menn- ingu og hstir. Það má kaha þáttinn dægurmálasjónvarp. Mikið efni verður sent út beint en inn á miih Sigurður G. Valgeirsson. koma mmin innslög. “ Fyrir utan Sigurð verða þrír umsj ónarmenn. Áslaug Dórá Eyjólfsdóttir, Fjalar Sigurðarson og Þorfinnur Ómarsson. „Það er tilviljun aö þessir þrír umsjónarmenn koma frá Ríkísút- varpinu þvf við auglýstum effir fólki í þáttinn sérstaklega." Sigurður er vel kunnugur í heimi fjölmiöla og útgáfu. Hann starfaði lengi sem blaðamaður, var útgáfu- stjóri hjá AB í rúm fimm ár, um tfma var hann meðþáttinn Reykja- vik síðdegis á Bylgjunni og siðast vann hann hjá bókaútgáfunni Ið- unn í eitt og hálft ár áður en hann réð sig til Sjónvarpsins. „Ég hef unnið slatta fyrir sjón- varp. Ég var umsjónarmaður nokkurra þátta og hef unnið hand- lit að öörum, svo sem þætti um Bólu-HjáLmar og barnaþættinum Baðkarið til Betleiiem ásamt Svein- birni I. Baldvinssyni. Égþekki mið- ilinn ágætlega þó ég sé ekki sjón- varpsstjarna.“ Útsendingartími þáttarins verð- ur frá rúmlega 19 til 20 á kvöldi, fram aö fréttum. „Við förum óhrædd í samkeppni viö 19:19 og ætlum að kýla á þetta." -JJ Myndgátan Vörurfljúga út v------------------ Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 Mikil- vægur leikur Tveir leikir verða í Getrauna- deildinni i kvöid. í Kaplakrikan- um í Hafnarfirði mætast hð FH og ÍBV. Þetta er mikilvægur leik- ur fyrir bæði íiðin. FH er í öðra sæti í deildínni og ÍBV í fah- hættu. læikurinn hefst kl. 18.30. Víkingar sækja Þór á Akureyri heim:og hefst þeirra leikur líka kl. 18.30. íþróttir í kvöld Á HM í Stuttgart keppa tvær íslenskar konur í dag. Guðrún Arnardóttir keppir i 100 m grindahlaupi og Þórdís Gísladótt- ir í hástökki. Skák Áfram með skák Helga Áss Grétarsson- ar við Norðmannirm Rune Djurhuus frá Gausdal sem birtist að hluta í blaðinu í gær. Helgi missti yfirburðastöðu fyrr í skákinni niður í slysalegt tap. Síðasti leikur Helga (með svart) fyrir tímamörk- in var 40. - Hcl-c4? og nú hafði Norðmað- urinn nægan tíma til yfirlegu: 41. Ha8 +! Kxa8 42. Rc7+ Kb8 43. Dd8 + Ka7 44. Rxb5+ cxb5 45. Da5+ Kb8 46. Dxb5 og hvítur vann létt. Jón L. Árnason Bridge Bandaríkjamenn héldu nýlega útsláttar- keppni sveita þar sem keppt var um það hverjir yrðu fulltrúar Bandaríkjanna á heimsmeistaramótinu í Chile í haust. Sveit undir forsæti Marty Bergens vann þar öruggan sigur. Bergen er nýbyrjaður að spila við Eric Rodwell, sem er íslend- ingum að góðu kunnur þar sem hann hefur veriö gestur hér á bridgehátíð. Þeir fóru rólega af stað en þykja spila afburða- vel um þessar mundir og hafa gott vald á sagnkerfi sínu. Hér er eitt spil því til sönnunar úr útsláttarkeppninni þar sem sagnir tóku hvorki meira né minna en 9 sagnhringi. Sagnir gengu þairnig hjá Rodwell og Bergen, suður gjafari og NS á hættu: ♦ Á86 V 74 ♦ ÁKD6 + K1064 * 1075 V G92 * 9742 * 972 N V A S ♦ G94 V D1086 ♦ 105 + G853 * KD32 f ÁK53 ♦ G83 + ÁD Suður Vestur Norður Austur 14 Pass 2♦ Pass 2» Pass 2* Pass 2 G Pass 3+ Pass 3» Pass 3* Pass 4+ Pass 4* Pass 4* Pass 44 Pass 4 G Pass 5+ Pass 7+ Pass 7* Pass Tveggja tígla svarið við einum tigli var sterkt og krafa og megnið af öðrum sögn- um voru gervisagnir. Stökk suðurs í 7 lauf var beiðni til norðurs um að velja á milh 7 tigla og 7 granda sem lokasögn. Eftir trompútspil á tiu og gosa ákvað Bergen, sem sagnhafi, að besta leiðin til vinnings var að trompa lauf. Hann tók ÁD í laufi, spilaði tigh á drottninguna og trompaði lauftíuna með tíguláttu. Þegar það gekk var ljóst að sveitin hafði grætt 12 impa á spilinu því samningurinn var 6 grönd á hinu borðinu í leiknum. ísak örn Sigurðsson t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.