Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Qupperneq 27
eiðiv JOLATILBOÐ V E I Ð I V E S T I 4.300,- VHKD ÁÐUR: 5.460,- JOLATILBOÐ FLUGUSTANGARSETT 10.800- vp:jíe> ÁÐUR: 14.9: Hjá okkur færdu allt sem erá óskalista veiðimanna! Tilboð sem koma þér á Ath. Sendum í póstkröfu. Mörkinni 6, sími FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 Fréttir Indriði Ketilsson og kleHakindin Eilíf. ÐV-mynd Guömundur Jónsson klettasyilu Jóhannes Sigurjónsson, DV, Húsavík: Það uröu fagnaöarfundir á Ytrafjalli í Aðaldal á dogunum þegar Indriði Ketílsson bóndi heimti úr helju forysturollu sem haföi verið 5 daga í sjálfheldu í fjalíinu Eilífi í þjóðgarðinum við Jökulsárgljúfur, Eftir nokkrar árangurslausar tilraunir tókst björgunarsvéitar- mönnum ft-á Húsavík að hand- sama rolluna. Raunar lét hún sig hvína fram af hengiílugi, þegar þeir sigu niöur til hennar, og vai'ð ekki meint af. ; Þegar hefur verið ákveðið að gefa þessari kiifurkind nýtt nafn; Eiiif skal hún heita. Vmnmgur: í haust sendu Flugleiðir bækl- ing til fyrirtækja sem ber heitið Við þjónum þér. Hver bæklingui' haíði sérstakt niuner sem giiti í happdrætti þar sem í vinning var vftcferö fyrir tvo til Fort Lauder- daie, flug og gisting. Nú hefur veriö dregið í happ- drættinu og er vinningsnúmerið 3837. Er vinningshafmn vinsam- lega tieðinn um að hafa samband við Jón Kára i söludeild Fiug- leiða. Sími 53466 Lífeyrissjóðir vilja flármagna Hvalflarðargöngin: LHiláhætta - segirHrafnMagnússon,framkvæmdastjóriSAL „Það er mikiil og almennur áhugi hjá lífeyrissjóðunum að leggja fé í H valfj arðargöngin enda eru skilyrð- in og fjármagnsávöxtunin þeim afar hagstæð. Ég á von á því að flestir líf- eyrissjóðimir verði með,“ sagði Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Sambands almennra lífeyris- sjóða, í samtaii við DV. Eins og skýrt hefur verið frá hefur Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Fram- sóknar þegar ákveðið að leggja 100 milljónir króna í Hvalfjarðargöngin. Þá hefur stjórn Lífeyrissjóðs versl- unarmanna ákveðið að heimila þátt- töku en hefur ekki ákveðið fjárhæð- ina. Hrafn segir að skilyrðin fyrir skuldabréfalánum lífeyrissjóðanna til Hvalfjarðarganganna séu einkar hagstæð. Ávöxtunin verður 9,2 pró- sent og skuldabréfalánin verða ekki veitt fyrr en þremur mánuðum eftir að umferð um göngin hefst og séð verður að spár um umferð og tekjur ganga eftír. Fram að því verður gangagerðin íjármögnuð með er- lendu lánsfé. „Það sem lífeyrissjóðirnir gera nú og hafa raunar tíma fram í júní á næsta ári til að taka ákvörðun um, er að gefa skriflegt loforð fyrir láni. Lánið verður svo veitt þremur mán- uðum eftir að umferð um göngin hefst. Þetta er því lítil áhætta fyrir lífeyrissjóðina og því ekki um neitt áhættufjármagn að ræða. Þetta er nánast eins og að veita fé í veitufyrir- tæki. Varðandi skiiyrðin sem lífeyr- issjóðirnir hafa má nefna að ekki verður skrifaö undir lánsloforð fyrr en niðurstöður jarðfræöirannsókna liggja fyrir. Sömuleiðis að ljóst sé að fjármögnun erlendis muni takast. Að endurskoðaðri umferðarspá og að hún sýni að umferð verði jafn mikil og fyrri spár gerðu ráð fyrir. Og eins og ég sagði lán verða ekki veitt fyrr en þremur mánuðum eftir að göngin hafa verið tekjn í notkun og að þá liggi ljóst fyrir að ekkert hafi brugðist varðandi alla spá. Þetta er því afar fýsilegur kostur fyrir líf- eyrissjóðina," sagði Hrafn Magnús- son. -S.dór íSmuguna Togarinn Ottar Birting, sem gerður er út frá Fáskrúðsfirði, er á leiö í Smuguna. Þar eru tveir togarar fyrir, þeir Ottó Wathne og Stakfcll. Samkvæmt heimild- um DV eru aflabrögð sæmileg hjá skipunum tveimur. -pp Eyðnismitað* urbeití hönd konu Eyönismitaður maður beit konu í teití. í heimahúsi í Reykja- vík. Hönd konunnar var biá og marin en þó ekki bióðug. Þau voru bæði ölvuð en maðurinn hefui' oft komiö við sögu lögi'eglu áður. Maðurinn var fluttur í vörslu lögreglu ogvið yfirheyrsl- ur kannaðist hann ekki við að haíabitiðkonuna. -pp /)e/i/ija a//t/* Andrés Terry Nielsen og Magnús Jakobsson við störf í Sælkeravinnslunni. DV-mynd Kristján Einarsson Sælkeraviimslan Selfossi: Semur við bændur og er meðódýrara kjöt Regína Thoraiensen, DV, SeHossi: Nýtt fyrirtæki, Sælkeravinnslan, Gagnheiði 51, tók til starfa nýlega hér á Selfossi. Magnús Jakobsson kjötvinnslumaður og Andrés Terry Nielsen matreiðslumeistari eru eig- endur og þeir taka að sér að sjá um veislur í heimahúsum og útvega sali. Magnús semur við bændur um kaup á nauta- og svinakjöti og fær slátrun hjá Sláturhúsi Hafnar. Þetta gerir að verkum að kjötvörur hjá þeim eru 25-30% ódýrari en í öðrum verslunum og kann fólk að meta það. Magnús og kona hans settu upp pylsuvagn á Selfossi skammt frá Tryggvaskála fyrir 9 árum og hafa bæði unniö við hann þar til nú. Suðurland er láglaunasvæði en fólk lifir þó góðu lífi, byrjar smátt með tvær hendur tómar en þetta blómstrar með tímanum. Fólk kann að bjarga sér, treystir á sjálft sig en ekki bankana og mikið er um að hjón vinni saman í litlum fyrirtækjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.