Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 37 Benedikt Sveinsson, með valdamestu mönnum í íslensku viðskiptalífi, í nærmynd: Mjög klóknr peningamaður þykir þægilegur og traustur 1 samskiptum en mjög fastur fyrir Benedikt Sveinsson, stundum kall- aður oddviti Engeyjarættarinnar í viðskiptalífinu, er orðinn með valda- meiri mönnum í íslensku viöskipta- lífi. Nafnbótin stjórnarformaður ís- lands fer að láta á sér kræla þegar staða Benedikts í viðskiptalífinu er sett undir kastljósið og verður vænt- anlega viðeigandi ef fram heldur sem horfir. Vegur Benedikts hefur farið mjög vaxandi í viðskiptalífinu, sér- staklega undanfarin ár, en hann á sæti í stjórnum fjölmargra fyrir- tækja, þar á meðal í einhvetjum öflugustu fyrirtækjum landsins. Benedikt er stjómarformaður tryggingafélagsins Sjóvár- Almennra. Hann hefur átt sæti í stjórn óskabarns þjóðarinnar, Eim- skips, síðan 1987. Sjóvá-Almennar em stærsti hluthafmn í Eimskip, eiga 11 prósent hlutafjár (eftir kaup á hlutabréfum ríkisins). Þá er jafnvel talið að formannssæt- ið í SR-mjöh bíöi Benedikts og hann feti þar í fótspor föður síns, Sveins Benediktssonar, sem var stjórnar- formaður Síldarverksmiðjanna í marga áratugi. Þá er Benedikt stjórn- arformaður Festingar, eignarhalds- félags Sjóvár-Almennra, sem annast fjárfestingar í öðrum fyrirtækjum. Benedikt situr í stjórn Flugleiða, þar sem Sjóvá-Almennar em þriðji stærsti hluthafinn, Granda, þar sem fyrirtæki hans á um 8 prósent hluta- íjár, Arteks, sem stofnað var um hugbúnaðarframleiðslu, og Fmm- kvæðis sem er fjárfestingarfélag. Þá hefur hann verið félagskjörinn end- urskoðandi Hvals hf. Þá er hann stjórnarmaður í Hafnarbakka, dótt- urfyrirtæki Eimskips. Þá er Benedikt stjómarformaður Marels sem er fyrirtæki á hraðri uppleið. Situr hann þar í stjórn sem fulltrúi Eimskips. Benedikt var stjórnarformaður Nesskipa frá stofnun 1974 til 1987 en hann vék þegar hann varð stjómar- formaður hjá Eimskip og eftirlét Ein- ari bróður sínum formannssaetið. Þá var hann stjómarformaður ísskipa frá stofnun 1977 til 1987. Eiga stóran hluthvertíöðru Stóru hlutafélögin, þar sem Bene- dikt er lykilpersóna, era afar ná- tengd sem sést einna best á því aö fyrirtækin eiga afar stóran hlut hvert í öðru. Sjóvá-Almennar eru langstærsti hluthafinn í Eimskip (11%) meðan Eimskip er þriðji stærsti hluthafinn í Sjóvá-Almennum (9,5%). Þá er Eim- skip (eða eignarhaldsfélagið Burðar- ás) stærsti hluthafmn í Flugleiðum (34%) og Sjóvá-Almennar þar þriðji stærsti hluthafmn (6%). Helga, móöir Benedikts, er stærsti hluthafinn í Sjóvá-Almennum, með tæplega 11 prósenta hlut. Þar á eftir kemur eignarhaldsfélagið Festing, þar sem Benedikt er formaður, með tæp 10 prósent. Benedikt er 7. stærsti hluthafinn og Einar bróðir hans, for- stjóri fyrirtækisins, 9. stærsti. Saman eiga þeir bræður og móðir þeirra um 17 prósent hlutafjár í Sjóvá-Almenn- um. „Hann berst ekki mikið á í einkalífinu. Hann býr ekki í neinni glæsihöll og það er ekkert sukklíferni í kringum hann heldur allt á venjulegum nótum,“ segir einn samstarfsmanna Benedikts Sveinssonar. Myndin er af húsi hans við Lindarfiöt í Garðabæ. „Hann er mjög klókur peninga- maður og hefur gott nef fyrir við- skiptum. Hann skoðar hluti mjög vandlega og flanar ekki að neinu en þegar hann er kominn með þær upp- lýsingar sem hann telur nægar þá er hann fljótur að segja af eða á,“ segir Benedikt Jóhannesson í Talna- könnun, samstarfsmaður hans hjá Sjóvá-Almennum. AfEngeyjarætt Benedikt er fæddur í Reykjavík 31. júlí 1938, sonur hjónánna Sveins Benediktssonar og Helgu Ingimund- ardóttur. Faðir Benedikts var bróðir Bjarna forsætisráðherra, föður Björns alþingismanns, og Péturs bankastjóra, föður Ólafar, dómstjóra í Héraðsdómi Reykjaness, og Guð- rúnar lektors. Föðursystir Bene- dikts, Kristjana, er móðir Halldórs Blöndals landbúnaðarráðherra (sem er góður vinur Benedikts) og Harald- ar Blöndals hæstaréttarlögmanns. Aðrar fööursystur Benedikts eru Guðrún, móðir Guðrúnar Zoega borgarfulltrúa, og Ólöf. Sveinn Benediktsson var umsvifa- mikill útgerðarmaður og síldarsalt- andi og var formaður Síldarverk- smiðja ríkisins í marga áratugi. Hann var einn af stofnendum Sjóvá- tryggingafélagsins sem síðar varð Sjóvá-Almennar. Sveinn og Helga bjuggu um hríð á Laugavegi 18 en fluttust síðan á Miklubrautina þar sem Benedikt ólst upp. Systkini Benedikts eru: Ingimund- ur arkitekt, sem teiknaði meðal ann- ars hús Sjóvár-Almennra í Kringl- unni (sem hann fékk menningar- verðlaun DV fyrir) og Perluna, Guð- rún háskólanemi og Einar, forstjóri Sj óvár-AImennra. Allar stelpurnar skotnar í honum Benedikt gekk sem barn og ungl- ingur í Austurbæjarskólann og út- skrifaðist síðar frá máladeild Menntaskólans í Reykjavík 1958, með einkunnina 7,54. „Við Benedikt vorum saman í barnaskóla í Austurbæjarskólan- um,“ segir Kolbrún Valdimarsdóttir kennari sem einnig var með honum í C-bekknum í MR. „Ég man að það vom allar stelp- urnar skotnar í honum þegar hann kom í bekkinn. Hann var ekki feim- inn en tranaði sér aldrei fram. Hann var stilltur og prúður en hafði samt sínar skoðanir og var alltaf með í leikjum og öðru sem við tókum okk- ur fyrir hendur. Hann var vinsæll meðal krakkanna. Hvað námið varð- aði þá var hann enginn dúx en alltaf í góðu meðallagi. Á menntaskólaáram Benedikts voru þrír bekkir í máladeild MR en í hinum bekkjunum mátti meðal annarra finna Jón Baldvin Hanni- balsson ráðherra og Bryndísi Schram, framkvæmdastjóra Kvik- myndasjóðs íslands. „Benedikt var einn af þessum hæglátu mönnum sem héldu sig inn- an síns hóps. Hann var hávaxinn og vörpulegur á velli strax í mennta- skóla. Ég man ekki til þess að hann hafi sagt neitt við mig en ég man að hann haföi fallegt bros,“ segir Bryn- dís Schram. „Þegar kom upp í menntaskóla hélt hann sig með þröngum hópi. Hann trúlofaðist ungur, auk þess sem bekkurinn hélt mikiö saman og hleypti öðrum ekkert greiðlega að,“ segir Kolbrún. í hópnum voru m.a., auk ofannefndra, læknarnir Bjarni Hannesson og Birgir Guðjónsson, svo einhverjir séu neíndir. Trygglyndur og þægilegur „Benedikt er ákaflega trygglynd- ur maður sem heldur fast í sína vini,“ segir Kolbrún. „Þeir hafa spil- að saman, bekkjarbræðurnir, eins og þeir gerðu í menntaskóla, Bene- dikt, Skúli Pálmason hæstaréttarlög- maður og Stefán Már Stefánsson lagaprófessor. Einn úr hópnum, Kristinn R. Einarsson hrl., er nú lát- inn.“ Benedikt lauk lagaprófi 1964 með fyrstu einkunn. Sama ár útskrifuð- ust, auk spilafélaganna, þeir Jónatan Þórmundsson prófessor og Haraldur Henrysson hæstaréttardómari. Benedikt nam viðskiptafræði við University of Minnesota í Minnea- polis 1964-1965 en hefur verið sjálf- stætt starfandi lögfræðingur frá 1965 og annast auk þess skipasölu og verð- bréfamiðlun. „Það er gott að starfa með Benedikt og hann hikar ekkert við að taka ákvarðanir þótt þær geti verið' óþægilegar," segir Benedikt Jóhann- esson í Talnakönnun. „Hann getur verið fastur fyrir en tekur vel rökum. Ég hef stundum leitað til hans um ráð og yfirleitt komið fróðari til baka. Hann er þægilegur, hlýr og traustur maður." Berst ekki á og lítið fyrir umtal Benedikt Sveinsson kvæntist 17. desember 1960 Guðríði Jónsdóttur cand. phil., dóttur Jóns Gunnarsson- ar verkfræðings og framkvæmda- stjóra Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna. Þau eiga þrjá syni: Svein sem er tölvunarfræðingur, Jón raf- magnsverkfræðing og Bjarna laga- nema. „Hann berst ekki mikið á í einkalíf- inu. Hann býr ekki í neinni glæsi- höll og það er ekkert sukk-lífemi í kringum hann heldur allt á venjuleg- um nótum,“ segir nafni hans Jó- hannsson og heldur áfram: „Benedikt getur verið manna skemmtilegastur í boðum og heldur oft uppi húmornum. Hann kann sög- | ur af öllum fjáranum og þekkir * óhemju af fólki og til þess.“ Skapmikill húmoristi „Þegar hann varð fimmtugur fékk hann margar klukkur í afmæl- isgjöf með orðum gefenda um að það kæmi sér vel fyrir hann því helsti Ijóður á ráði hans væri að hann væri afskaplega óstundvís. Mér kemur þetta ekki á óvart þvi hann er afskap- lega afslappaður. Hann rýkur ekki burt úr miðju samtali og segist þurfa að fara á fund. Það er margt sagt um Benedikt, bæði satt og logið. Ég held að hann sé nú ekkert hrifinn af umtali, að minnsta kosti ekki því logna. En ég hef sjaldnast séð honum sárna beint en það getur svo sem fokið í hann. Hann er skapmikill en fer ákaflega vel með það.“ „Benedikt er mjög raungóður og hefur reynst mörgum vel. Hann hef- ur alla tíð verið mikill húmoristi og launkíminn. Hann segir mjög skemmtilega frá og það er oft unun að hlusta á hann. Hann hefur einnig mjög gaman af að hlusta á skemmti- legar frásagnir," segir Kolbrún. Oddviti í Garðabæ Benedikt hefur lengi verið ötull í starfi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Hann var formaöur Sjálf- „Benedikt er mikill mannkostamaður, hlýr og mikill vinur vina sinna. Hann er mjög traustur og heiðarlegur i viðskiptum, er mjög annt um heiðarlegt viðskiptalíf og að menn fari þar að settum reglum. Hann er fastur fyrir eins og allir mikilhæfir menn, rökfastur en ofstopi er ekki til i fari hans,“ segir Haraldur Blöndal, frændi Benedikts Sveinssonar. DV-myndir GVA stæðisfélags Garðabæjar 1971-1974, varabæjarfulltrúi 1982-1986 og bæj- arfulltrúi frá 1986. Benedikt er odd- viti flokksins í Garðabæ, leiddi D- listann í síðustu kosningum og hefur verið formaður bæjarráðs frá 1987. „Það er afar gott að vinna með Benedikt, hann er afar ljúfur í um- gengni og gott að leita til hans. Hann flanar ekki að neinu, er varkár í ákvörðunum en fastur fyrir. Hann hefur verið mjög farsæll í starfi sínu fyrir bæjarfélagið og samstarf okkar verið með miklum ágætum," segir Laufey Jóhannsdóttir, forseti bæjar- stjómar Garðabæjar og flokkssystir Benedikts. Yngri sjálfstæðismenn eru kannski ekki eins ánægðir með Benedikt. Snemma í haust lýstu þeir því yfir í DV að þeir vildu hafa opið prófkjör fyrir kosningarnar í vor - nauðsyn- legt væri að hrista upp í því hvernig stillt væri á lista flokksins í kosning- um. Ekki hefur verið prófkjör hjá sjálfstæðismönnum í Garðabæ frá því fyrir kosningamar 1978. Finnst sumum hinna yngri sjálfstæðis- manna sem Benedikt sé of einráður og hlutimir séu skipulagðir nánast eftir hans höfði. Ákafur Stjömumaður íþróttir eru fyrirferðarmiklar þegar áhugamál Benedikts eru ann- ars vegar og hafa alla tíð veriö eins og Kolbrún, fyrrum skólasystir, get- ur vitnað um: „Benedikt var áhugasamur um ýmsa hluti. Hann var ekki af þeirri gerðinni sem var alltaf liggjandi yfir bókum en hafði alltaf mikinn áhuga á íþróttum. Hann var alltaf úti með strákunum í fótbolta," segir hún. Harðari stuðningsmann Stjörn- unnar í Garðabæ en Benedikt er varla að finna. Hann sat áður í stjórn félagsins og lét mikið að sér kveða. Heimildir segja að hann hafi verið þar allt í öllu og gert félagið að því sem það er í dag. Hann ekki eins atkvæðamikill í formlegu íþróttastarfi í dag en fylgist vel með. Bjarni, yngsti sonur Bene- dikts, hefur leikið með meistara- flokki Stjörnunnar í knattspyrnu undanfarin misseri. Til vegs vegna eiginverðleika Haraldur Blöndal, frændi Bene- dikts, leggur áherslu á að Benedikt hafi komist til vegs vegna eigin mannkosta. Menn sækist eftir ráð- gjöf hans og telji að þannig sé ráðum betur ráðið. „Hann er mikill mannkostamaður, hlýr og mikill vinur vina sinna. Hann er mjög traustur og heiðarlegur í við- skiptum og er mjög annt um heiðar- legt viðskiptalíf og að menn fari þar að settum reglum. Hann er fastur fyrir eins og allir mikilhæfir menn, rökfastur en ofstopi er ekki til í fari Benedikts,“ segir Haraldur. -hlh/jss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.