Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 Fréttir Kosningar til bæjarstjómar á Akureyri: Hugsanlegt framboð Þorpara veldur titringi Það er ljóst að hugsanlegt framboö íbúa utan Glerár á Akureyri, svokall- aðra Þorpara, og Íþróttaíelagsins Þórs, sem hefur aðsetur í Þorpinu, í bæjarstjómarkosningunum í vor veldur titringi hjá „fjórflokknum". Ekki er sá titringur minnstur hjá Framsóknarflokknum enda er Einar Sveinn Ólafsson, gjaldkeri Þórs og einn af hvatamönnum að hugsanlegu framboði í Þorpinu þótt hann sé bú- settur í hinum enda bæjarins, jafn- framt varaformaður Framsóknarfé- lags Akureyrar. Fleiri óvissuþættir en „Þorpara- framboð" eru einnig að valda mönn- um óróa, s.s. hvort Kvennalistinn býður fram. Þá gæti sú fyrirætlan Framsóknarflokksins að bjóða hugs- anlega fram eigið bæjarstjóraefni orðið til þess að aðrir flokkar gerðu það einnig og þá færi kosningin að margra mati fyrst og fremst að snú- ast um þessi bæjarstjóraefni. Kosið um bæjarstjóra? Nær ömggt er talið samkvæmt heimildum DV að Framsóknarflokk- urinn bjóði Jakob Bjömsson fram sem efsta mann og einnig sem bæjar- stjóraefni sitt. Sjálfstæðismenn sem DV hefur rætt við em ekki á einu máb um hvort því yrði svarað með ákveðnu bæjarstjóraefni flokksins fyrirfram, en núverandi bæjarstjóri, Halldór Jónsson, er „þeirra maður“. Þá gætu allaballar hugsanlega stillt Sigríði Stefánsdóttur upp í þann slag. Annars er „Gróa á Leiti“ við góða heilsu á Akureyri þegar þessi mál ber á góma. Hún fullyrðir m.a. að Halldór Jónsson bæjarstjóri, sem jafnframt er formaður sfjómar Út- gerðarfélags Akureyringa, setjist í stól framkvæmdastjóra ÚA í vor en Gunnar Ragnars taki þá við starfi framkvæmdastjóra Fjórðungs- sjúkrahússins. Það starf er nú laust eftir að Ingi Bjömsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra dótturfyrir- tækis ÚA, Mecklenburger Hochseefisc- herei í Rostock, en Halldór var einmitt framkvæmdastjóri sjúkrahússins áður en hann varð bæjarstjóri og er reyndar 14 ára leyfi frá sjúkrahúsinu. Hugsanlegt framboð íbúa utan Glerár á Akureyri, svokaliaðra Þorpara, og Iþróttafélagsins Þórs í bæjarstjórnar- kosningunum í vor veldur titringi hjá „fjórflokknum". - verða tvö eða fleiri bæjarstjóraefni í framboði? Alvara í Þorpinu Framboð í Þorpinu hefur áður komið til umræðu fyrir kosningar án þess að nokkuð hafi orðið úr því, en nú er greinilegt að mönnum er meiri alvara en áður. Rökin fyrir framboði em þau að enginn bæjar- fulltrúa sé úr Þorpinu þar sem tæp- lega helmingur íbúanna býr, svæðiö sé afskipt hvað varðar ýmsa þjónusta og án efa sé það afleiðing þess að bæjarfulltrúamir búi allir annað- hvort á Brekkunni eða í Innbænum. Þátttaka íþróttafélagsins Þórs í þessu framboði ef af verður er að sögn Þórsara sjálfra tilkomin vegna þess að þeim fiimst þeir ekki sitja við sama borð og KA-menn sem hafa höfuðstöðvar sínar á Brekkunni. Er engin launung á því að Þórsarar horfa mjög til byggingar íþróttahúss KA í þessum samanburði og vilja fá að byggja slíkt hús sjálfir. Fréttaljós Gylfi Kristjánsson Prófkjör hjá íhaldinu Sjálfstæðismenn ætla að halda prófkjör í lok mánaðarins og finna þannig út hvemig þeir setja upp framboðshsta sinn. Að öllum líkind- um verða allir íjórir bæjarfulltrúar flokksins með í prófkjörinu og þrír til viðbótar hafa ákveöið að vera meö. Reyndar Uggur ekki fyrir end- anleg ákvörðun Bimu Sigurbjöms- dóttur sem var í 4. sæti lista flokks- ins síðast, en Valgerður Hrólfsdóttir, sem þá var í 5. sæti, ætlar að vera með. Vart hefur orðið nokkurrar óeiningar í flokknum undanfarin misseri sem rekja má allt aftur til prófkjörsins fyrir síðustu bæjar- stjómarkosningar, en þeir sem til þekkja reikna varla með breytingu á röð efstu manna á listanum. Kratar kanna málin Alþýðuflokkurinn ætlar að halda skoðanakönnun meðal flokksmanna sinna sem munu fá send heim gögn. Er þeim ætlað að setja á blað nöfn þeirra manna sem þeir vilja helst sjá á framboðslista flokksins og kjör- nefnd tekur svo ákvörðun um fram- haldið. Gísh Bragi Hjartarson er eini bæjarfuUtrúi flokksins sem hefur ekki síður en Sjálfstæðisflokkurinn átt við innri vandamál að gUma. Það var mikiU órói meðal krata á Akur- eyri fyrir síðustu bæjarstjómarkosn- ingar og ekki síður bar á honum á Akureyri fyrir alþingiskosningamar 1991. GísU Bragi hefur ekki tekið um það ákvörðun hvort hann gefur kost á sér tíl setu í bæjarstjórn áfram. Úlfhildur hættir Úlfhildur Rögnvaldsdóttir bæjar- fulltrúi, sem leitt hefur Framsóknar- flokkinn í bænum undanfarin kjör- tímabU, ætlar ekki í framboð. Forval hefur þegar farið fram hjá flokknum og þótt það hafi ekki verið gert opin- bert segja heimildir DV að Jakob Bjömsson, sem skipaði 3. sæti á Usta Framsóknar við síðustu kosningar, verði nú í efsta sæti. Hann verður þvi bæjarstjóraefni flokksins verði ákveðið að setja dæmið þannig upp sem ýmislegt bendir tU. Sigríður áfram „Sterki maðurinn" í bæjarstjórn undanfarin kjörtímabil hefur að margra mati verið Sigríður Stefáns- dóttir, oddviti allabaUa, og hún hefur ekki gefið upp að hún hyggist hætta né heldur Heimir Ingimarsson sem er hinn bæjarfulltrúi flokksins. Reynsla Sigríðar og pólitísk hyggindi þóttu koma vel í ljós eftir kosning- arnar 1990 þegar hún „á einni nóttu gekk tU Uðs við íhaldið" og úr varð nýr meirihluti í bæjarstjóminni. Framsóknarflokkurinn sem þá vann ágætan sigur sat eftir með sárt ennið. Þjóðarflokkurinn dauður? Engar líkur eru á að Þjóðarflokk- urinn bjóði fram eins og síðast, og einn af flokksmönnum þar tók reyndar svo sterkt tíl orða í samtaU við DV að segja flokkinn í andarslitr- unum, fjárhagslega hruninn eftir al- þingiskosningamar. - Hins vegar hafa heyrst raddir þess efnis að KvennaUstinn hyggist notfæra sér þann meðbyr sem konur virðast hafa um þessar mundir í skoðcmakönnun- um og fara fram á Akureyri. Það fékk hins vegar ekki staðfest og var reyndar af öðrum viðmælendum DV tahð óUklegt. Glóðarelduriim í Þjóðminjasafninu: Of fáir og einhæfir reyk- skynjarar voru í saf ninu „Við höfum farið yfir sviðið og ekki optiskir sem skynja fljótar verktaka sem starfi við viögerðir á reynt að meta samskipti okkar við glóðareld og em dýrari en jónískir. húsnæðinu um nýjar vinnureglur Securitas þvi við höfum reitt okkur Að sögn kunnugra ætti að blanda til að stuðla að auknu öryggi. Loks á öryggisvörslu þeirra og ráðlegg- saman þessum tveiniur tegundum hefur verkfræöistofa verið- fengin ingar. Innan safiisins er engin sér- til aö brunavamir séu fullkomnari. til aö fara yfir brunavamir húss- frteðiþekking á bmnaviðvöranar- Guðmundur segir að ekki hafi ins. kerfum. Hins vegar sé ég að fyrir verið tekið fram á fyrrgreindu Ljóst er að núverandi húsnæði þremur árum var vakin athygli minnisblaði hvernig skyi\jara Þjóðminjasaftisins er mjög óhent- safnsins á aö það vantaði fleiri vanti. „Hvort á einhveiju tímabili ugt til geymslu þjóðardýrgipa, seg- skynjara í húsið til að uppfylla í samskiptum okkar við Securitas, irGuðmundur.Þessvegnasénauð- kröfur Brunamálastofnunar. Þetta sem em mjög mikil, hafi verið synlegtaðtakaþaðmeöí reikning- var á minnisblaöi," segir Guð- munnlega bent á þetta getum við inn þegar byggingarnefnd Þjóð- mundur Magnússon þjóðminja- ekkert fullyrt. Það gæti alveg ver- minjasafnsins skilar áliti sínu inn- vöröur. ið.“ an skamms. Hann segir að sér lítist lúttektSecuritasábranavömum í framhaldi af óhappinu segist best á þann kost að sýningarsalir í Þjóðmirýasafninu, I kjölfar glóð- Guðmundur hafa tekið þá ákvörð- verði í því húsi sem hugsanlega arelds í safhinu síðastliðinn mið- unaöbeinlínutengjabrunavarnar- verður byggt í nágrenni safnsins á vikudag, kemur í ljós að i safhlnu kerfi safhsins við slökkvistöð næstu misseram. eru einungis jógískir reykskynjar- ásamt stjómstöð Securitas. Einnig -pp ar, sem nema illa reyk af glóð, en hafi verið gerður samningur við Reykjavlkurborg: Sinfónían fær 32,5 miiljónir króna Sinfóníuhljómsveit íslands fær 32,5 milljónir króna frá Reykjavíkur- borg á þessu ári samkvæmt fjár- hagsáætlun borgarinnar og er það tæpri hálfri milljón meira en í fyrra. Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir að borgarsjóður greiði 18 prósent af rekstrarkostnaði hljómsveitarinnar og er þannig gert ráð fyrir að 32,5 milljónir króna komi frá borginni í fjárlögum. -GHS Samvlnnuferöir Landsýn: 5 þúsund sæti fyrir launþega Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir Landsýn og fulltrúar aðildarfélaga hennar, sem eru öll stærstu laun- þegafélög landsins, undirrituðu í gær samning um ráðstöfun á um 5 þús- und sætum til nokkurra helstu áfangastaða Flugleiða. Um er að ræða flug á tímabihnu 25. maí til 15. september til Kaup- mannahafnar, Óslóar, Stokkhólms, Glasgow, London, Lúxemborgar, Amsterdam, Parísar, Hamborgar og Baltimore. Tekist hefur aö halda verði á far- gjöldum þessum nánast óbreyttum frá því í fyrra, að því er segir í frétta- tilkynningu ferðaskrifstofunnar. Far fyrir fullorðinn til Kaupmannahafn- ar kostar 18.620 krónur staðgreitt sé það keypt fyrir 9. mars. Til London kostar farið 20.235 krónur og til Balti- more 36.290 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.