Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
Stuttar fréttir
Atvinnuleysi nidur
Atvinnuleysí í Bandaríkjunum
í desember var 6,4 prósent, hiö
minnsta í þrjú ár.
Metísúkkulaðiáti
Bretar eyddu rúmum 300 miUj-
örðum króna í súkkulaði í fyrra
- meira en nokkru sinni.
InnmeðA-Evrópu
Uffe Elle-
mann-Jensen,
fyrrum utan-
ríkisráðherra
Danmerkur,
sagöi í gær að
NATO gerði
hugsanlega
mistök með því
að lofa ekki fyrrum Varsjár-
bandalagsríkjum ínngöngu.
Sjálfum sér nægir
Danir voru sjálfum sér nægir
með gas og olíu í fyrra.
írönumsleppt
Frakkar hafa sent heim tvo ír-
ana sem eru eftiriýstir fyrir morð
í Sviss, j)arlendum til gremju,
Balladurvonsvikinn
ISdouard
Balladur, for-
sætisráðherra
Frakkiands,
sagðisl í gær
vera vonsvik-
innyfirhægum
hagvexti og
varaði lands-
menn við að vænta skjótra enda-
loka metatvinnuleysis.
Fagna tlllögum NATO
Varnarmálaráðherrar ijögurra
Austur-Evrópuríkja fagna tillög-
um NATO um nánara samstarf
við þau.
VeðrahamuríEvrópu
Fjöldi manns hefur farist í af-
takaveöri um alla Vestur-Evrópu
undanfarinn rúman sólarhring.
Jackson boðar ráðstefnu
Bandaríski
blökkumanna-
leiðtoginn
Jesse Jackson
hefur boðaö til
ráöstefnu þar
sem rætt verð-
ur um oíbeldi
svartra gcgn
svörtum og leiðir til að stöðva
það.
Vetrarhörkurvestra
Vetrarhörkur gerðu mikinn
usla í norðurfylkjum Bandaríkj-
anna í gær.
Zúlúmenn ekki með
Zúlúmenn verða ekki með i
fyrstu kosningum allra kynþátta
í Suður-Afríku. Reuter, TT
Erlendar kauphallir:
Uppsveifla
um áramót
Hlutabréfaviðskipti í erlendum
kauphöllum voru einkar lífleg miUi
jóla og nýárs og í upphafi þessa árs.
í flestum helstu kauphöllunum náð-
ist hvert sögulega hámarkið af öðru
fyrstu daga ársins en heldur hefur
dregið úr þenslunni síðan á miðviku-
dag.
Undantekningin er þó í Wall Stre-
et, miðpunkti fjármála heimsins. Um
miðjan dag á flmmtudag stóð Dow
Jones vísitalan í 3804 stigum, sem er
sögulegt hámark, og horfur voru á
enn hærri tölum í gær.
Frá því meðfylgjandi graf var síð-
ast birt fyrir jól hefur hlutabréfavísi-
tala í öUum þessum kauphöUum
hækkaðverulega. Reuter/-bjb
Útlönd
íbúi i úthverfi Sydney í Ástralíu reynir að bjarga húsi sinu frá skógareldunum með þvt að sprauta á það úr garð-
slöngu. Símamynd Reuter
Mannslífum bjargað í skógareldunum í Ástralíu:
Erum hættir að
berjast við elda
Þúsundir manna flúðu að heiman
í öngum sínum eða voru fluttir á
brott eftir að verstu skógareldar í
heilan áratug kveiktu í íbúðarhúsum
í úthverfum Sydney í Ástralíu á síð-
astliðnum sólarhring.
„Við höfum aldrei þurft að glíma
við jafn mikla elda í Astralíu," sagði
Phil Koperberg, yfirmaður skógar-
eldadeildar fylkisstjórnarinnar, í
Nýja Suður-Wales. „Við erum aö
missa fjölda fasteigna og ég get ekk-
ert nema vonað að þeir verði ekki
of margir sem týna M.“
Þrír menn hafa farist í eldunum
sem loga á um 150 stöðum á 800 kíló-
metra langri strandlengju Nýja Suð-
ur-Wales, fjölmennasta fylkis Ástral-
íu. Rúmlega sjö þúsund slökkviliðs-
menn beijast viö eldana og njóta við
það aðstoðar hermanna og sjó-
manna.
Terry Griffiths, ráðherra lögreglu-
mála og almannavarna fylkisins,
sagði að allt að þrjú þúsund heimili
myndu verða eldinum að bráð ef
veður færi ekki skánandi. Mjög heitt
er á þessum slóðum og samkvæmt
veðurspá verður hvasst þar næstu
tvo daga.
„Við erum hættir að berjast við
eldana, við erum núna að bjarga
mannslífum og fasteignum," sagði
Griffiths.
Tuttugu og tveir menn hafa verið
fluttir á sjúkrahús vegna ýmissa
meiðsla og tugir annarra nutu að-
hlynningar starfsliðs sjúkrabifreiða
á vegum úti.
Margir íbúar Sydney sem reyndu
að bjarga húsum sínum með því að
sprauta á þau úr garðslöngum urðu
frá að hverfa og máttu horfa upp á
eldinn gleypa þau.
Reuter
Fékk átján mánaða fangelsi
fyrir að ræna syni sínum
Breski kaupsýslumaðurinn Peter
Malkin var dæmdur til átján mánaða
fangelsisvistar í gær fyrir að ræna
tólf ára syni sínum frá fyrrum eigin-
konu sinni í Frakklandi og brjóta þar
með dómsúrskurð. Malkin var hand-
tekinn á Heathrowflugvelli í Lund-
únum á fimmtudagskvöld þegar
hann sneri heim frá Egyptalandi með
son sinn en hann hafði flúið þangað.
„Ég elska Oliver. Ég óska honum
alls hins besta. Sendið ástarkveðjur
mínar til Olivers," sagði Malkin þeg-
ar hann var leiddur úr réttarsalnum
í gær til að byrja afplánun refsingar-
innar.
Oliver var komið til móður sinnar
og þau voru bæði í felum á Bretagne-
skaganum í Frakklandi, að því er
Marie-Jeanne Moallic, kennari úr
skóla drengsins í bænum Landevant,
sagði við fréttamenn.
„Oliver vill hvíla sig, hann er
þreyttur," sagði Moallic og bætti viö
aö mæðginin hefðu ekki í hyggju að
snúa heim næstu vikuna. Hún vildi
ekki segja hvar þau væru.
Malkin sýndi engin svipbrigði þeg-
ar dómarinn skýrði frá refsingunni.
Hámarksrefsing fyrir að vanvirða
dómstóla á Bretlandi er tveggja ára
fangelsisvist.
Þetta var í þriðja sinn á fjórum
árum sem Malkin rændi syni sínum.
Reuter
Hlutabr.vísitölur í kauphöllum |
Danadrottning
kynnirnýja
hundinnsinn
i|;;:|láfgóet;:;;|pr-í
hifdur Dana-
drottning fékk
nýjan hund í
jóiagjöf .. . fra
Hínriki prins i
staðlitlahvutt-
anssemdrottn-
ingar-
maðurinn týndi á skógargöngu
við eina af höllum drottningar í
október.
Nýi hirðhundurinn er af greif-
ingjahundakyni, átta vikna
hvolpur sem heitir Celimene, og
birtust fyrstu opinberu myndirn-
ar af hpnum í dönsku blöðunum
í gær. Á þeim situr hann í kjöltu
drottningar.
Launagreiðslurí
Færeyjumtaka
stóra dýf u
Launagreiðslur í Færeyjum
tóku stærri dýfu en nokkru sinni
fyrr fyrstu tíu mánuði síðasta
árs. Útgreidd laun á þvi tímabili
voru fimm milljörðum íslenskra
króna minni en fyrir sömu mán-
uöi árið þar á undan.
Byggingariðnaðurinn er sú at-
vinnugrein sem orðið hefur hvað
verst úti í kreppunni sem nú rík-
ir í Færeyjum. Þar voru launa-
greiðslur fyrstu tiu mánuði árs-
ins í fyrra 39 prósentum lægri en
árið 1992.
Launagreiðslur þetta tíu mán-
aða tímabil 1993 námu samtals
tæpum þrjátíu milljörðum ís-
lenkra króna, eða um sextán pró-
sentum minna en á sama tímabili
1992.
Atvinnuleysi í Færeyjum um
miðjan desember var 21 prósent
vinnufærra manna.
Tímalásarápen-
ingaskápaeftir
milljónarán
Norska póstþjónustan ætlar að
setja svokallaða tímalása á pen-
ingaskápa sína eftir stærsta póst-
húsrán í sögu Noregs'á flmmtu-
dag. Þá komust tveir ræningjar
yfir sem svarar rúmum tiu millj-
ónum íslenskra króna á Grefsen
pósthúsinu í Ósló.
Ræningjarnir fóru inn um bak-
dymar og höfðu í hótunum við
starfsmann nema hann opnaði
peningaskáp pósthússins,
Tímalásinn virkar þannig að
bíða verður nokkra stund áður
en hægt er að fá peninga úr
skápnum en fæstir ræningjar
hafa ótakmarkaöan tíma.
Ránið á Grefsen er hið sjöunda
á þeim stað frá árinu 1985.
Zhírínovskíút-
húðarGorbat-
sjovogClinton
Vladimír
Zhírínovskí,
leiðtogi þjóð-
ernissinna í
Rússlandi,
sagði í blaða-
viðtali í gær að
Míkhaíl Gor-
batsjov, fyrr-
um Sovétleiötogi, væri geðveikur
og skömm væri að Clinton
Bandaríkjaforseta. Viötalið birt-
ist i Berlinarblaðinu B.Z.
Gorbatsjov hefur látið að því
liggja aö Zhirínovskí væri stjórn-
að af KGB, fyrrum leyniþjónustu
Sovétríkjanna.
Zhírínovski sagði að Clinton
væri hræddur og þyröi ekki að
hitta sig í væntaniegri heimsókn
til Moskvu þar sem hann ræðir
við Jeltsín forseta.
Ritzau, Reuter, NTB