Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
íþróttir
PLÚS
Siguröur Svejnsson gefur
kost á sér eina ferðina enn í
landsliðið og eru það sannar-
lega gleðitíðindi. Sigurður er
án efa vinsælasti handknatt-
leiksmaður landsins en hann
hefur leikið með landshðinu í
19 ár en nokkrum sinnum
íhugað að hætta. Það er þvi
ljóst að enn um sinn á Sigurð-
ur eftir að ylja áhorfendum í
landsliðspeysunni.
MINUS
Kvennalið ÍR í körfuknattleik
ríður ekki feitum hesti frá ís-
landsmótinu. Láðið fær rass-
skell í hveijum leiknum á
fætur öðrum. Síðasta útreiðin
var gegn Keflvíkingum í vik-
unni, 185-30.
Þorvaldur Örlygsson
- skoraði sigurmark Stoke um síðustu helgi
Þorvaldur Orlygsson, knatt-
spymumaður hjá enska 1. deildar
hðinu Stoke City, er íþróttamaður
vikunnar að þessu sinni. Þorvaidur
hefur verið töluvert í sviðsljósinu
í vetur og hefur framganga hans
með sínu nýja liði vakið verðskuld-
aða athygli. Þorvaldur hefur verið
áberandi í leik liðsins, skorað átta
mörk og lagt upp að auki nokkur
mörk.
Þorvaldur gekk í raðir Stoke City
fyrir yfirstandandi tímabii en áður
hafði hann verið á þriggja ára
samningi hjá Nottingham Forest.
Má með sanni segja að þar hafi
Þorvaldur ekki unað sér vel. Hann
átti allt frá upphafi erfitt uppdrátt-
ar hjá Nottingham Forest og fram-
kvæmdastjóri liðsins gaf honum fá
tækifæri til að sanna sig. Það kom
því fáum á óvart að Þorvaldur vildi
fara frá félaginu og reyna fyrir sér
á nýjum vígstöðvum. Að lokum
fékk hann frjálsa sölu frá Notting-
ham Forest. Þá leið ekki á löngu
að Stoke City lýsti yfir áhuga að fá
hann í sínar raðir og um síðir skrif-
aði hann undir tveggja ára samn-
ing við þetta fornfræga félag.
Lou Macari, sem þá var fram-
kvæmdstjóri Stoke, vissi vel hvað
bjó í pilti og ætlaöi honum hlutverk
hjá félaginu. Macari hætti fljótlega
með liðiö og gerðist framkvæmda-
stjóri skoska hðsins Celtic. Joe
Jordan tók við starfi hans og hafði
hann sömu skoðun á Þorvaldi og
fyrirrennari hans. Þorvaldur hefir
leikið á miöjunni í vetur og þar
kann hann best við sig að eigin
sögn.
Um síðustu helgi gerði Þorvaldur
sigurmark Stoke í leik gegn Derby
og þar var áttunda markið stað-
reynd og kæmi ekki á óvart þó þau
eigi eftir að verða mun fleiri þegar
upp verður staðið í vor. Framganga
Þorvalds hefur vakið áhuga ann-
arra félaga á Bretlandseyjum sem
og annars staðar. Þau hafa spurst
fyrir um hann en formieg kaupth-
boð hafa ekki borist eftir því sem
næst verður komist. Engu að síður
hlýtur það að vera heiður fyrir
Þorvald þegar hð sýna honum
áhuga eftir það sem á undan er
gengiö.
-JKS
Þorvaldur Örlygsson i leik með
Stoke City i vetur.
íþróttamaður viknnnar
Geir Hahsteinsson er einhver
aibesti handknattleiksmaður
sem íslendingar hafa ahð. Geir
hefur veriö íþróttakennari við
Flensborgarskólann í heimabæ
sínum í samfleytt 25 ár. Hann lék
fyrsta A-landsleik sinn gegn
Rúmenum í mars 1966 en um
vorið lauk hann námi við íþrótta-
kennaraskólann.
17 ára gamall klæddist Geir í
fyrsta skipti meistaraflokkspeys-
unni hjá FH á íslandsmótinu ut-
anhúss sem þá fór fram á Hörðu-
völium sem allir Hafnfirðingar
kannast við. Geir lék samtals 440
leiki með meistaraflokki FH og
landsleikimir urðu 118 að tölu.
Nafn Geirs fór um víðan vöh og
margir hikuðu ekki við að segja
hann í hópi bestu handknatt-
leiksmanna heims. Geir var kos-
inn íþróttamaður ársins 1968.
„Minn besti tími sem hand-
knattleiksmaöur var þegar ég
gekk th hðs við þýska félagið
Cöppingen en með hðinu lék tvö
ár. Þetta var góður tími, ég hafði
nægan tíma th æfinga og ekkert
braúðstrit var á manni. Ég fékk
peninga fyrir að leika handbolta
sem voru bara nokkuð góðir í þá
daga,“ sagði Geir Hahsteinsson.
- Hvemig finnst Geir handbolt-
inn vera í dag samanborið við
þegar hann var að leika?
„Vitaskuld hafa orðið framfar-
ir. Ég er ekki viss um að menn
æfi meira í dag heldur geri það
öðmvísi en í gamla daga. Það var
meira af betri einstakhngum áð-
ur fyrr en þó finnst mér Sigurður
Sveinsson standa upp úr í þeim
efnum. Það er erfitt að bera sam-
an landsliðin nú og hér áður fyrr.
Þó held ég að ég geti sagt að við
höfum oft átt betra hð en það sem
við teflum fram í dag.“
Geir hóf að leika að nýju með
FH eftir heimkomuna frá Þýska-
landi 1974 en kveðjuleikur hans
var 1979. Geir hefur ekki farið
langt í burtu frá handboltavellin-
um því í dag gegnir hann stöðu
framkvæmdastjóra handknatt-
leiksdehdar FH samhhða kenn-
arastarfinu.
-JKS
Stóra fjölskyldan saman komin i stofunni heima. Sigurbjörn Bárðarson heldur á dótturinni Söru, Fríða Hildur með Sigurbjörn, tveggja mánaða, Steinar,
16 ára, Styrmir, 13 ára, og Sylvía 9 ára. í myndinni er aðeins hluti hins glæsilega verðlaunasafns sem margir segja að sé eitt það stærsta á landinu og
þótt víðar væri leitað. DV-mynd Brynjar Gauti
Ævintýn líkast
- segir Fríöa Hildur Steinarsdóttir, eiginkona Sigurbjöms Bárðarsonar
„Áhugi minn á hestamennsku er
ekki minni en hjá Sigurbimi. Ég
kemst lítið að heiman frá börnunum
en væri aö sjálfsögðu á kafi í þessu
væri tíminn meiri. Við Sigm-bjöm
kynntumst í gegnum hestamennsk-
una hjá gamla Fáki við Elhðaárnar.
Við vissum hvort af öðra frá 6 ára
aldri en fóram að vera saman í kring-
um 16 ára aldurinn,“ sagði Fríða
Hhdur Steinarsdóttir, eiginkona Sig-
urbjörn Bárðarsonar sem var á dög-
unum kjörinn íþróttamaður ársins
199$ af samtökum íþróttafrétta-
manna.
Fríða Hildur sagði í spjallinu við
DV að dagamir frá því aö Sigurbjörn
var kjörinn hefðu verið ævintýri lík-
astir.
„Það er varla að maður trúir þessu
ennþá. Blómahafið er engu líkt og
halda mætti aö viö væram búin að
opna blómabúð. Ég var farin að
hugsa um að ef Sigurbjörn fengi ekki
þennan eftirsótta tith núna gerðist
það líklega aldrei. Að hafna í fyrsta
sæti var of gott til að vera satt. Við
fjölskyldan fylgdumst með beinni
sjónvarpsútsendingu frá kjörinu. Við
vorum ofsalega spennt þegar dró að
útnefningunni og er ljóst varð að Sig-
urbjöm varð fyrir valinu var öskrað
og æpt í orðsins fyhstu merkingu.
Það var ekki laust við að htla bamið
okkar yröi hrætt. Við erum búin að
spóla þennan atburð fram og th baka
á myndbandstækinu og það er
kannski núna fyrst sem maður trúir
því að Sigurbjöm sé íþróttamaður
ársins," sagði Fríða Hildur.
Fríða Hhdur sagöi það ekki nokkra
spumingu að kjör þetta yrði mikil
lyftistöng fyrir hestaíþróttina í land-
inu. Hún væri komin á hærra plan
og loksins viðurkennt sem íþrótt.
„Það hefur fólk víðs vegar af land-
inu hringt og óskað okkur til ham-
ingju, margt af því er fólk sem við
vitum engin deih á. Hehlaóskaskeyti
hafa einnig streymt að, héðan að
heiman en ekki síst erlendis frá. Þaö
hafa framámenn hestaíþróttasam-
banda í Evrópu sent skeyti og blóm.
Ég hugsa að skeytin séu orðin á ann-
að hundrað."
Fríða sagði að vinnudagur Sigur-
bjamar hæfist upp úr sjö á morgnana
og stæði fram á kvöld. Börnin væru
þegar farin að fá mikinn áhuga á
hestum en elsti sonur þeirra væri
einnig með mikla bhadellu.
-JKS
Geir
Hallsteinsson
Fyrr og nú