Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1994, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1994 15 Hagnaður er f orsenda framf ara Að undanfornu hafa íjölmiðlar sagt frá bættri afkomu ýmissa fyrir- tækja á milli áranna 1992 og 1993. Þessar fréttir gefa von um það að samdráttarskeiðinu sé að ljúka og fyrirtækin að eflast til nýrrar sókn- ar, en fátt dugir betur gefn atvinnu- leysi en öflugt atvinnulif. Þaö kem- ur því á óvart aö enn sé haldið á lofti þeim kennisetningum að hagnaður sé ekki af hinu góða. Hvert fer hagnaður? Hagnaður verður til í rekstri at- vinnufyrirtækja þegar vel gengur. Hann þarf að standa undir skött- um, fjárfestingum og arði til eig- enda. Ríkissjóður fær sitt fyrstur, því einungis þau fyrirtæki sem hagnast greiða tekjuskatt. Hagnað- urinn þarf að standa undir fjárfest- ingum til þess að fyrirtækin dragist ekki aftur úr, geti sótt á nýja mark- aði og skapað ný störf. Einnig er af honum greiddur arður. Arður er ávöxtun á sparnað Eigendur fyrirtækja eiga það sameiginlegt að hafa lagt sparifé sitt í atvinnurekstur. Með því hafa þeir tekið áhættu þar sem þeir hefðu allt eins getað lagt peningana í ríkisskuldabréf. Ekki er hægt að ætalst til þess að slíkur sparnaður beri enga ávöxtun og er eðlilegt að fólk geri kröfu um að fyrirtækin standi undir ávöxtun sem sé, vegna áhættunnar, hærri en fengist fyrir áhættulausa fjárfestingu í spari- skírteinum ríkissjóðs. Afleiðing taprekstrar Ef fyrirtæki er rekið með tapi lendir það fljótt í erfiöleikum, geng- ur á eigið fé og verður að lokum gjaldþrota. Við það tapast bæði störf og önnur verðmæti. Ef fyrir- tækin skila ekki hagnaði geta þau ekki fjárfest. Þá dragast þau með tímanum aftur úr keppinautum sínum eða geta ekki nýitt sér ný tækifæri, en slíkt er forsenda fjölg- unar atvinnutækifæra og hagvaxt- ar. Taprekstur hefur einnig þau áhrif að minnka áhuga fólks á að „Taprekstur hefur einnig þau áhrif að minnka áhuga fólks á að hætta sparifé sínu í atvinnustarfsemi." Kjállariim Jónas Fr. Jónsson lögfræðingur Verslunarráðs ísland hætta sparifé sínu í atvinnustarf- semmi. Það sama á auðvitað við um áhuga erlendra fjárfesta á að leggja fjármagn í íslenskt atvinnu- líf. Þetta tvennt þrengir enn að sóknarmöguleikum í atvinnumál- um. Hagnaðurer nauðsyn Fram til aldamóta þarf að skapa hérlendis 15.000 ný störf ef við ætl- um að losna við atvinnuleysi. Hagnaöur fyrirtækjanna er því þjóðinni nauðsynlegur því einung- is þannig fæst fjármagn og vilji til þess að takast á við nýja möguleika og skapa ný atvinutækifæri. Vel- ferðarkerfiö er byggt upp á því aö fyrir hendi sé atvinnustarfsemi og til þess aö hún sé fyrir hendi þurfa fyrirtækin að hagnast. Jónas Fr. Jónsson „Ef fyrirtæki er rekiö meö tapi lendir það fljótt í erfiðleikum, gengur á eigiö fé og verður að lokum gjaldþrota. Við það tapast bæði störf og önnur verð- mæti.“ Heimili en ekki fasteign Ég þakka guði fyrir að vera ekki ungur maður núna á leið út í sam- félagið. Kæmi ég frá námi biðu mín léleg launakjör og námsskuldir og til að eignast heimili yrði ég að leita út á markað þar sem óvíst er að ég stæðist greiðslumat eða leigu- markað sem oft sýnist helst til skyndikynna. Ég kæmist þó trú- lega ekki inn í hið úrelta félags- íbúðakerfi vegna of hárra tekna! Borgin að innan Væri ég á vinnumarkaði fengi ég laun undir skattleysismörkum og lenti í sömu vandræðum með hús- næði. Ég gæti látið skrá mig á biö- lista hjá „verkamannabústöðum", Félagsmálastofnun, Leiguþjónustu Leigjendasamtakanna, gengið í Búseta, lesið auglýsingar DV eða keypt auglýsingu þar, í von um að fá kannski viðunandi íbúð á viðun- andi stað fyrir viðunandi verð, í amk. eitt ár. Sá sem sér Reykjavík að utan með stóru einbýhshúsin, raðhúsin, kringlumar og perlumar, hlýtur að undrast ailt þetta tal um húsnæðis- KjáUarinn Jón Kjartansson frá Pálmholti form. Leigjendasamtakanna vanda. En sá sem kynnist borginni að innan sér aðra mynd. Hann sér skýrslur um húsnaeðisvanda, af- komuvanda, tví- og þrísetinn skóla, reiðileysi ungmenna, ofbeldi og skort á gæslu og þjónustu sem yfir- leitt þykir sjálfsögð í borgum sem vilja kenna sig við menningu. Ekki privatverkefni Meginástæðan fyrir öUu þessu er sú að Reykjavík hefur alltaf verið stjórnað eins og risavöxnu sjávar- þorpi. Hér hefur verið sama stefna í húsnæðismálum, skóla- og upp- eldismálum, samgöngumálum og í öðrum sjávarplássum, og þar er ht- ið á húsnæði sem íjárfestingu frem- ur en heimiU. Hér vantar íjölskyldustefnu sem nær til húsnæðismálanna og hefur það markmið aö tryggja fólki hús- næði til heimiUshalds og án óeðh- legra fjárskuldbindinga og með kjörum sem fólk ræður við. Sér- eignastefna þjónar aldrei þessu markmiði. Húsnæðismál í borgar- samfélagi geta ekki verið prívat- verkefni. Árið 1990 samþykkti Alþingi ný félagsíbúðalög. Þessi lög hafa aldrei komið fil framkvæmda í Reykjavík vegna andstöðu ráöamanna. Þetta hefur stóraukið húsnæðisvandann. Ráðamenn verða að breyta þessu strax. Jón Kjartansson „Hér vantar Qölskyldustefnu sem nær til húsnæðismálanna og hefur það markmið að tryggja fólki húsnæði til heimilishalds og án óeðlilegra fjár- skuldbindinga... “ Meðog ámóti Smuguveiðar Alþjóðlegt hafsvæði „Mín af- staða til Smugunnar markast af þvíaöþettaer alþjóðlegt hafsvæði og við eigum þar sama rétt og aðrar þjóðir framkvsIj.Hrað- sem stunda frystislöðvarÞórs- veiðar á al- hafnar. þjóölegum hafsvæðum. Við eig- um sama rétt og Norðmenn og fleiri þjóðir sem stunda veiðar hér suöur af landinu í úthafskarf- anum. Það er ekkert sjálfsagt að Norðmenn geti tekið sér stjórnun einhliða á þessu svæði þama upp ffá þó svo að þeir reyni aö beita Rússum með. Ekki veitir okkur af í þessu ár- ferði sem við búum við í dag meö minnkandi kvóta og minnkandi tekjur að reyna að finna okkur aöra möguleika til að þreyja þorr- ann. Ég á nú von á því að málin þróist smátt og smátt á þann veg að Norðmenn átti sig á því aö þetta mál verður ekki leyst nema með samningum og þeir verða að ætia okkur sneið af kökunni. Við höfum gerst aðilar að Svalbarða- samkomulaginu og eigum sam- kvæmt skilgreíningi þess sama rétt og Norömenn til að nytja það svæði. Þeirra réttarstaða að sljórna í því með þessari hörku sem þeir gera er mjög óljós. Það eru fleiri xnál sem við þurf- um að ganga frá milli okkar og Norömanna, eins og til dæmis norsk-íslenska síldin. Það er ekki úr vegi aö það verði rætt sam- hliða." Jóhann A. Jónsson Sköðum mál- stað okkar „Mér finnst heppilegra fyrir Islend- inga aö ná samningum viö Norð- menn heldur en að stunda veiöar í Smugunni eins og við höfum verið að gera. Það er alveg Jjóst aö þarna erum viö að veiða úr stofni sem gengur úr norsku og rúss- nesku landhelginni í Smuguna. Við Islendingar getum alveg sett okkur í spor þeirra ef það væri þorsk- eða karfastofninn sem gengi út fyrir okkar landhelgi og aðrar þjóðir stunduðu veiðar úr honum. Við hefðum mótmælt þvi hástöfum og haft stór orö um slíka sjóræningjaveiði. Þess vegna finnst mér engin ffamtíö vera í þessum veiöum fyrir okkur og skil ekki hvers vegna menn eru að kaupa skip sérstaklega fyrir þessar veiðar. Þá erum við að skaða okkar mál- staö enn meir. Við verðum mjög ótrúverðugir í fiskveiðimálum á alþjóðavettvangi ef viö gerum þetta. Ég held einnig að þessar þjóöir sem um ræöir hefðu aö einhverju leyti litið ffam hjá þessu vegna erfiðleika okkar í þorskveiðunumengéra þaö síður miðaö við hvernig viö högum okkur. Mér fmnst að við eigum að fara varlega í að stunda þessar veiöar. Sérhver einstaklingur er aö sjálf- sögöu fijáls aö gera það sem hann vill en fyrir íslenskan sjávarút- veg í heild tel ég að við séum ekki á réttri leið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.