Dagur - 03.06.1988, Qupperneq 24
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Dagmæður á Akureyri leggja til:
Bærinn greiði þjónustu þeirra
niður á kostnað leikskóla
í gær afhentu fulltrúar í Félagi
dagmæðra á Akureyri Sigfúsi
Jónssyni bæjarstjóra undir-
skriftir 92 foreldra þar sem
þess er farið á leit að dagvistar-
gjöld hjá dagmæðrum verði
greidd niður a.m.k. að hluta.
Auk þessa, fóru dagmæðurnar
þess á leit, að þeim verði veitt
fjárveiting fyrir leikfangasafn
til kaupa á þroskaleikföngum,
barnastólum og fleiru til
útleigu.
Dagmæðurnar sögðu, að mest
væri eftirspurn eftir gæslu fyrir
börn undir tveggja ára aldri en
Fiskvinnslufólk:
Helgar-
vinnubann
tekur gildi
- hjá ÚA og í Ólafsfirði
en aðrir vilja vinna
um helgar
Um sjómannadagshelgina
gengur í gildi helgarvinnubann
hjá þeim félagsmönnum
Verkalýðsfélagsins Einingar
sem vinna hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa og einnig hjá
fiskvinnslufólki í Ólafsfirði.
Bannið gildir yfir sumarmán-
uðina þrjá. A Dalvík og Greni-
vík var samþykkt að vinna um
helgar og í Hrísey var okkur
tjáð að mikill meirihluti
starfsmanna frystihússins hefði
fellt helgarvinnubannið.
Laxveiðitíma-
bilið hafið
Laxveiðitímabilið er hafið.
Veiði hófst í fyrradag í nokkr-
um ám, þar á meðal í Laxá á
Asum sem eins og allir vita er
ein besta laxveiðiá landsins.
Utlitið fyrir sumarið er gott og
vænta menn þess að á land
komi margir og vænir laxar en
upp úr Laxá á Ásum komu 11-
1200 laxar síðastliðið sumar.
„Veiðileyfi voru öll uppseld
um áramót eins og oft hefur gerst
áður,“ segir Haukur Pálsson sem
situr í stjórn Veiðifélags Laxár á
Ásum. Haukur sagði að þær
kannanir sem fiskifræðingur hafi
gert á ánni í vor bendi til þess að
sumarið verði gott. Ákveðið hef-
ur verið að fella niður hámarks-
veiði á stöng yfir daginn í ánni en
undanfarið hefur aðeins mátt
veiða 15 fiska yfir daginn. Aðeins
er leyfð veiði á tvær stangir í
ánni.
Aðrar laxveiðiár á Norður-
landi verða senn opnaðar. Veiði
hefst í Laxá í Aðaldal þann 10.
júní, Húseyjarkvísl verður opn-
uð þann 16. júni en um 20. júní
má búast við að veiði verði
almennt hafin. JÓH
sem kunnugt er, fá börn ekki
vistun á leikskólum fyrr en þau
ná þeim aldri. Þær sögðust gjarn-
an vilja hafa börnin lengur hjá
sér en vegna þess að þeirra gjöld
eru ekki niðurgreidd, kjósa for-
eldrar leikskólana frekar vegna
kostnaðarins.
Sigfús sagði það hafa verið á
óskalista Félagsmálastofnunar
fyrir síðustu fjárlagagerð, að
greidd verði niður gæsla hjá dag-
mæðrum, en að því ásamt flest-
um öðrum nýjungum hafi verið
vísað frá þetta árið. Þá væri um
99% af beiðnum sem þessum
vísað til næstu fjárlagagerðar og
því skynsamlegast að reyna að
leysa þetta mál á annan hátt.
Það varð því úr, að dagmæð-
urnar lögðu fram á fundinum
skriflega tillögu þess efnis, að til
þess að jafna út niðurgreiðslur
vegna gæslu barna á Akureyri,
yrði niðurgreiðsla bæjarins til
leikskóla minnkuð úr 40% niður
í 20% og mismunurinn notaður
til að greiða niður þjónustu dag-
mæðra. „Þetta er mjög skynsam-
leg tillaga," sagði Sigfús, „því hér
yrði um hreina millifærslu að
ræða sem þarf ekki að vera háð
fjárhagsáætlun,“ sagði hann að
lokum. VG
Sólveig Jóhannesdóttir afhendir Sigfúsi Jónssyni undirskriftirnar. IMeð þeim eru Kristín Sigurjónsdóttir og Elín
Brynjarsdóttir, dagmæður á Akureyri. Mynd: tlv
Yfirgnæfandi meirihluti
starfsmanna ÚA samþykkti helg-
arvinnubannið. Þar á bæ voru 97
mótfallnir því að vinna um helgar
í sumar, en 27 höfðu ekki á móti
helgarvinnu. Atkvæðagreiðsla
fór fram fyrir skömmu. Helgar-
vinnubann hefur tíðkast nú
undanfarin sumur, en þegar mik-
ið hefur legið við hefur verið beð-
ið um undanþágur.
„Fólk neitaði almennt að vinna
um helgar síðasta sumar. Ég held
að fólk sé hart á móti helgarvinnu
yfir sumarmánuðina," sagði
Auður Guðjónsdóttir trúnaðar-
maður hjá ÚA.
Lögum samkvæmt eiga allir
togarar að vera komnir inn fyrir
klukkan 12 á hádegi iaugardag-
inn fyrir sjómannadag. Harðbak-
ur og Sólbakur lönduðu í vikunni
og sagðist Gunnar Lórenzson
yfirverkstjóri reikna með að
búið yrði að vinna þann fisk fyrir
helgi. Úr þeim fjórum togurum
sem koma eiga inn fyrir helgi
verður ekki landað fyrr en að
afloknum sjómannadegi. mþþ
Hótet KEA:
„Það fýllist allt á mánudaginn“
- segir hótelstjórinn en 22 ný herbergi verða tekin í notkun eftir helgi
Um helgina verður gengið frá
nýrri herbergjaálmu við Hótel
KEA á Akureyri og verða þá
22 ný herbergi tekin í notkun.
Á fjórðu og fimmtu hæð
hótelsins bætast við 10 tveggja
manna herbergi á hvorri hæð
og tvö á þeirri þriðju. Eftir
þessa viðbót verða 72 herbergi
á hótelinu með 135 rúmum.
„Það fyllist allt af gestum strax
á mánudaginn," sagði Gunnar
Karlsson hótelstjóri, en fyrir
helgi var unnið af fullum krafti
við frágang nýju herbergjanna.
Gunnar sagði júní vel bókaðan
og m.a. verða haldnar 5 ráðstefn-
ur í júní og maí var góður hvað
það varðar, en þá voru haldnar
nokkrar stórar ráðstefnur. „Það
hefur orðið árleg aukning í sam-
bandi við ráðstefnurnar og við
gerum ráð fyrir að þær aukist enn
í kjölfar stækkunarinnar, en þá
stórbætist öll aðstaða til að taka á
móti smærri og stærri funda-
höldum," sagði Gunnar.
Hann sagði að langt væri síðan
byrjað hefði verið að bóka fyrir
júlí og ágúst, „en það hefur ögn
borið á afpöntunum, eins og eðli-
legt er. September hefur oft verið
heldur lélegur, en nú bregður svo
við að að búið er að bóka hér 6
stórar ráðstefnur í haust. Þannig
að þetta lítur vel út,“ sagði
Gunnar. mþþ
Eftir helgina verða 22 ný herbergi tekin í notkun á Hótel KEA. í hverju her-
bergi er sjónvarp, baðherbergi og minibar, svo ekki ætti að væsa um gesti
hóteisins. Gunnar Karlsson í einu af nýju herbergjunuin.