Dagur - 13.03.1993, Síða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 13. mars 1993
Vetrarleikar íþróttadeildar Léttis 1993
Vetrarleikar íþróttadeildar
Léttis fóru fram laugardaginn
6. mars sl. á ísilagðri Leiru-
tjörninni í Innbænum á Akur-
eyri. Margt áhorfenda mætti til
að fylgjast með dagskráratrið-
um, sem voru fjölþætt að
vanda. Mótsstjóri Vetrarleika
íþróttadeildar Léttis 1993 var
Ingólfur Sigþórsson.
Dagskráratriði hófust kl. 9.00
með forkeppni í tölti í flokkum
barna, unglinga og fullorðinna.
Sex keppendur mættu til leiks í
barnaflokki, sjö í unglingaflokki
og átján keppendur reyndu með
sér í flokki fullorðinna. Dómarar
í töltkeppninni voru þau Aldís
Björnsdóttir og Haukur Sigfús-
son frá íþróttadeild Léttis og
Stefán Friðgeirsson frá hesta-
mannafélaginu Hring á Dalvík.
Undir hádegi var ljóst hverjir
færu í úrslitakeppnina, en sú
keppni fór fram síðar um daginn.
Hryssusýning
Eftir hádegið hófst dagskrá
Vetrarleikanna með sýningu á 11
hryssum, sem sérstök vetrar-
leikanefnd hafði valið. Nefndina
skipuðu Guðmundur Hannesson,
Baldvin A. Guðlaugsson, Þorvar
Porsteinsson, Vignir Sigurðsson
og Höskuldur Jónsson og með
þeim að valinu stóð einnig móts-
stjórinn. Óánægjuraddir heyrð-
ust fyrir sýninguna um val nefnd-
arinnar og hún var sökuð um
hlutdrægni, sem ekkert mat verð-
ur lagt á hér. Hins vegar verður
að segjast sem er, að sýningin
tókst vonum framar, en klár-
hryssum var ekki gert hátt til
höfuðs í sýningunni. Vindbelg-
ingurinn gerði knöpum erfitt
fyrir, en engu að síður sáust
skemmtileg tilþrif. Dögg Baidvins
Ara Guðlaugssonar, Freisting
Jarþrúðar Pórarinsdóttur eru
hestagull og Dama Guðlaugar
Hermannsdóttur sýndi tilþrifa-
mikla skeiðspretti. Af öðrum
hryssum sem vert er að tala um er
Ör Sævars Pálssonar. Par fer
hryssa góðum kostum búin, en
eigandinn sem var knapi hefði
mátt fara hægar í sakirnar í sýn-
ingunni, þá hefði Ör notið sín
betur.
Fimm efstu í tölti í flokki fullorðinna. Lengst til hægri er sigurvegarinn Gylfl Gunnarsson og hesturinn Mósart.
Þórir Rafn Hólmgeirsson sigraði í flokki barna í tölti. Hann situr hestinn Feld lengst til vinstri.
Sautján stóðhestar
Sautján stóðhestar mættu til sýn-
ingar á Leirutjörn. Sannast sagna
átti allur fjöldinn ekki heima í
sýningunni. Safír, 1157, frá Við-
vík í eigu Jóhannesar Ottóssonar
stóð fyrir sínu sem Baldur frá
Bakka, 1109. Baldur er í eigu
Hrossaræktarsambands Eyfirð-
inga og Þingeyinga. Sambands-
hestarnir Gassi, 1036, og Hjörtur
frá Tjörn, 1136, komu afar illa
fyrir og hefðu betur verið heima.
Höldur frá Brún, 1248, í eigu
Matthíasar Eiðssonar var hestur
sýningarinnar og miklar vonir eru
bundnar við hestinn. Hann er
aðeins 5 vetra og á framtíðina
fyrir sér. Annar fimm vetra foli
vakti eftirtekt. Gustur frá Hóli í
Eyjafjarðarsveit er lipur hestur í
eigu Ragnars Ingólfssonar.
Sýning barna og
úrslit í tölti
Vert er að geta sýningar barna og
unglinga undir stjórn unglinga-
ráðs Léttis. Tuttugu börn mættu
til leiks og stóðu sig með prýði.
Unglingastarf í Hestamannafélaginu Létti á Akureyri er öflugt. Á Vetrar-
leikunum sýndu 20 ungmenni hesta sína og var unun á að horfa. Hestarnir
fóru vel hjá ungmennunum sem myndin vitnar um.
Stóðhesturinn Höldur, 1248, frá Brún við Akureyri, vakti mikla hrifningu á
Vetrarleikunum. Eigandi Hölds er Matthías Eiðsson og hann sat hestinn í
sýningunni.
Unglingastarf Léttis skilar nú
árangri og stöðugt fjölgar þeim
ungmennum á Akureyri sem eiga
hest að besta vini.
Töltúrslitin voru spennandi og
í flokki fullorðinna var keppt í
tveimur flokkum A og B, þ.e. um
sætisröðun frá 1 til 5 og 6 til 10. í
fyrsta sæti eftir forkeppni voru
tveir jafnir þeir Gylfi Gunnars-
son og Höskuldur Jónsson. Þá
kom Eiður Guðni Matthíasson í
þriðja sæti, Baldvin A. Guð-
laugsson í því fjórða, Guðmund-
ur Hannesson í fimmta. í sjötta
sæti var Jarþrúður Þórarinsdótt-
ir, Sigrún Brynjarsdóttir í sjö-
unda, Hugrún Ivarsdóttir í átt-
unda, Jón Már Snorrason í
níunda og Ólafur Ásgeirsson í
tíunda.
Miklar sviptingar urðu í úrslita-
keppninni. Höskuldi Jónssyni var
vísað frá keppni þar sem hann sté
af baki milli keppnisatriða því
hófhlíf hafði gefið sig og þurfti að
fjarlægja hana. Að mati dómara
er slíkt ekki leyfilegt og því varð
Höskuldur að víkja úr keppnis-
hringnum.
Úrslit í tölti:
Flokkur A. stig
1. Gylfi Gunnarsson, hestur Mósart 85,60
2. Baldvin Ari Guðlaugss., hestur Nökkvi 70,00
3. Eiður G. Matthíass., hestur Sögublesi 79,60
4. GuðmundurHannesson,hesturAndvari 71,20
5. Sigrún Brynjarsd., hestur Glitnir 70,00
(Með sigri í B-úrslitum vann Sigrún sig upp í A
úrslit)
Flokkur B.
6. Jarþrúður Þórarinsd., hestur Axel 71,20
7. Hugrún Ivarsdóttir, hestur Rosi 68,00
8. Jón Már Snorrason, hestur Láki 64,80
9. Ólafur Ásgeirsson, hestur Elfa 59,60
Bamaflokkur.
1. Þórir R. Hómgeirsson, hestur Feldur 84,80
2. Agnar S. Stefánsson, hestur Toppur 64,00
3. Þorbjörn Matthíasson, hestur Gletta 62,00
4. Ásmundur R. Gylfason, hestur Kvistur 61,20
5. Ninna Þórarinsdóttir, hestur Bjarmi 36,40
Unglingaflokkur.
1. Elvar Jónsteinsson, hestur Stjarna 64,40
2. Kristbjörg Kristjánsdóttir, hestur Runni 58,00
3. Guðlaug Guðnadóttir, .hestur Vöttur 50,80
4. Sveinn I. Kjartanss., hesturStjörnufákur 36,00
5. Margrét Víkingsdóttir, hestur Neisti 19,10
6. Rannveig Kristjánsdóttir, hestur Sara 20,00
Efnt var til keppni í 200 metra
skeiði. Til leiks voru skráðir 13
hestar, en þeir mættu ekki allir.
Vegna vindbelgings var keppnin
ólögleg, þ.e. sé litið til tímatök-
unnar.
Úrslit:
1. Brýnir 7 vetra, eigandi og knapi
Andrés Kristinsson.
2. Nökkvi 12 vetra, eigandi og knapi
Þorvar Þorsteinsson.
3. Þristur 7 vetra, eigandi Rósa Halldórsdóttir
en knapi Sigurður Árni Snorrason.
í lokin var efnt til keppni í
grímubúningareið, sem hefur
verið árviss atburður á hestaþing-
um í Eyjafirði. Þessi keppni hef-
ur mælst vel fyrir og þótt
skemmtileg. Yfirdómari var
Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, og sigurvegari keppn-
innar varð Sigríður K. Sverris-
dóttir frá Skriðu í Hörgárdal.
Að mati fjölda áhorfenda er
blaðamaður ræddi við þá heppn-
uðust Vetrarleikarnir 1993 mjög
vel. Veðurguðirnir voru hesta-
mönnum ekki hliðhollir, en því
eru hestamenn vanir og láta því
engan bilbug á sér finna. í hönd
fara stórmót á Norðurlandi. Á
Vindheimamelum verður Fjórð-
ungsmót og á Akureyri íslands-
mót í hestaíþróttum. Nú þurfa
hestamenn á Akureyri og í ná-
grannabyggðum að þjálfa keppnis-
hesta sína enn frekar og þá má
vænta góðs árangurs. Ekki skort-
ir hestefnin í Eyjafirði.
Myndir og texti:
Oli G. Jóhannsson