Dagur - 13.03.1993, Blaðsíða 9

Dagur - 13.03.1993, Blaðsíða 9
Viðtal: Þórður Ingimarsson. um hans athygli. Uppsalaárin og áhrif Vil- mundar á stjórnmálin hér á landi áttu þann- ig verulegan þátt í að vekja upp þjóðmála- áhugann sem hefur loðað við mig síðan.“ Magnús hefur tekið nokkurn þátt í stjórn- málum og meðal annars setið á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Alþýðuflokkinn. Hann hefur einnig sett fram skoðanir á sjávar- útvegsmálum - skoðanir sem allir eru ekki á eitt sáttir um og raunar verið haldið fram að veðurfræðingur eigi ekki að setja fram hug- myndir sem snerta veiðistjórnun og því síð- ur fiskifræði. Hann kvaðst þó ekki vera að deila um fiskifræði eða líffræði sjávar heldur fyrst og fremst vera að benda á að innan þeirra færðigreina væru vísindamenn enn að deila um ýmis grundvallaratriði. Hugmyndir Magnúsar verða ekki raktar hér svo neinu nemi, en hann sagðist alltaf hafa haft gaman af að leika sér með stærð- fræðina. í stuttu máli setti hann fram kenn- ingu um að samband væri á milli nýliðunar þorsksins og ríkjandi vindáttar á hverjum tíma. Hann kvaðst hafa minnst þess að sjó- menn hefðu tengt veðurfar og fiskigengd saman og því gæti verið gaman að athuga hvort ekki mætti finna eitthvert samband þar á milli. Magnús athugaði samanlagða tíðni sunn- an-, suðvestan-, og vestanáttar í janúar til apríl mánuðum úti fyrir Suður- og Vestur- landi og bar saman við nýliðun þorsks hvert ár. Og hann fann ákveðna fylgni á milli þess að þegar oftar blési úr þessum áttum þá yrði nýliðun þorsksins meiri. Magnús sagði að þessi athugun væri alfarið byggð á tölfræði og öllum spurningum um hvaða skilyrði suðvestanáttin skapaði fyrir fjölgun þorsk- stofnsins væri ósvarað af sinni hálfu. Um það gæti hann lítið sagt sem leikmaður á sviði sjávarlíffræði. Hann sagði jafnframt skoðun sína að þótt hann hefði beitt stærð- Laugardagur 13. mars 1993 - DAGUR - f fræðinni til að leita eftir fylgni á milli ríkj- andi vindáttar og nýliðunar ákveðinnar fisk- tegundar þá væri of mikið væri lagt upp úr stærðfræðilegum athugunum á fiskistofnun- um í stað líffræðilegra. Kerfíd gerir útgerðarmenn ad lénsherrum Magnús Jónsson hefur einnig gagnrýnt fisk- veiðistjórnunina og skipan sjávarútvegs- mála hér á landi mjög harðlega. Hann hefui talað um sægreifana eins og sumir fleiri, en kvaðst ekki nota það orð í persónulegri merkingu um einn eða annan einstakling eða fyrirtæki sem stunda sjávarútveg hér á landi. Þar geti hinir mætustu menn átt í hlut eins og í öðrum atvinnugreinum. Kerfið bjóði hinsvegar upp á að þeir sem séu hand- hafar mikils veiðikvóta á hverjum tíma verði einskonar sægreifar. En veiðkvótar gangi kaupum og sölum og þannig geti sægreifi í dag haft hlutverkaskipti og verði orðinn annað á morgun. Ábyrgðin sé því fyrst og fremst hjá stjórnmálamönnunum en ekki þeim sem atvinnuveginn stunda. Þeir verði að laga sig að lögum og reglugerðum á hverjum tíma. Magnús sagði að sér hafi ekki tekist að sjá neitt jákvætt við núverandi fiskveiðistefnu og vilji efast um að nokkur markmið hennar hafi náðst fram. Fremur hafi flest leitað til öfugrar áttar í því efni og efnahags- og félagslegar afleiðingar þessarar stjórnunar séu orðnar ákaflega víðtækar fyrir byggðina í landinu. Og Magnús tók dæmi: Hann sagði að nú fimmtán árum eftir að ákveðið var að tak- marka veiðar togaraflotans hér við land, sé hann komin að því að heita megi á frjálsa sókn að nýju. Útgerðir stóru togaranna hafi í skjóli mismununar, skattareglna og pólitískrar fyrirgreiðslu keypt svo mikinn aflakvóta af smærri bátum að undanförnu að þeir nái jafnvel ekki að veiða upp í afla- heimildir sínar lengur. Af þessum sökum hafi verið þrengt verulega að bátaútgerðinni og nú megi benda á fjölda dæma þar sem bátasjómenn séu farnir að veiða fisk sem sé í „eigu“ togaraútgerðanna samkvæmt afla- heimildum. Þannig séu útgerðaraðilar togaranna orðnir einskonar lénsherrar báta- sjómanna sem verði að greiða þeim skatt fyrir að mega veiða á sama hátt og ánauðug- ir bændur urðu að greiða lénsherranum sín- um skatt fyrr á öldum. STÆRÐFRÆÐIN FISRURINN OG ÞJÓÐIN húsið. Mig minnir að það hafi tekið allt að tveimur árum að finna kaupanda að þvf. Ég varð því hluti af Sigtúnshópnum svokallaða með sömu vandamál í farangrinum og þús- undir annarra er þurftu á þeim tíma að koma þaki yfir fjölskyldur sínar. Stjórnmál, stærðfræði og nýliðun þorsksins Magnús kvaðst ekki hafa verið pólitískur framan af árum. Sigtúnshópurinn hafi held- ur ekki skipt sköpum því áhuginn hafði þá þegar verið kviknaður. „Á menntaskólaárum mínum á sjöunda áratugnum var áhrifa 68 kynslóðarinnar lít- ið farið að gæta hér á landi. Þessi bylgja hafði þá ekki borist hingað að neinu ráði þótt merkja mætti fyrstu áhrif hennar um það bil sem ég var að ljúka stúdentsprófi. Og ég held að ég hafi heldur ekki orðið fyrir neinum áhrifum af háskólapólitíkinni hér heima - ekki verulegum að minnsta kosti. Öðru máli gegndi um Uppsala. Á þessum tíma sem við dvöldum þar ytra var mikill og almennur áhugi á þjóðmálum á meðal námsmanna. Pá fór ég að velta ýmsum hlut- um fyrir mér, sem ég hafði ekki gefið mig neitt verulega að áður. Einnig var ákveðin gerjun í pólitíkinni hér heima. Vilmundur heitinn Gylfason hafði þá stofnað Bandalag jafnaðarmanna og ég tók að veita hugmynd- -Magnús Jónsson, veðurfrœðingur, rœðir um áhugamál sín í helgarviðtali Smábátarnir skila meiri aflaverðmætum en frystitogararnir Magnús hefur sterkar taugar til smábáta- útgerðarinnar og telur hana vera lífsstíl bátasjómanna auk þess að skapa veruleg verðmæti. Hann er á móti því að krókaleyf- in verði afnumin. Með því sé verið að eyði- Ieggja þennan lífsstíl einstaklinga í sjávar- plássum í kringum landið. En stærri útgerð- irnar vilji losna við smábátana. Það hafi meðal annars komið skýrt fram er talsmað- ur þeirra lét hafa eftir sér að óverjandi væri að nokkur hundruð smábátaeigiendur - oft nefndir trillukallar - megi veiða frjálsir á öngla sína á þeim dögum þegar gefur til sjósóknar. Og þetta gerist á sama tíma og tilhneiging sé til þess að færa vinnslu sjávar- aflans um borð í frystitogarana út á hafi. Magnús sagði að með þessu væri þó aðeins hálf sagan sögð. Vitað væri að hvert tonn fiskjar sem smábátarnir veiði skili meira en helmingi meiri verðmætum í gjald- eyri í þjóðarbúið heldur en frystitogararnir þegar tekið sé tillit til þess kostnaðar er inna verði af hendi til að afla fiskjarins. Hafnar kerfið þjóðinni? Magnús telur að núverandi stefna í sjávar- útvegsmálum sé andstæð því fólki sem býr í hinum dreifðu byggðum. Hann benti á Húnaflóann í því sambandi. Hvað er að ger- ast á Skagaströnd? Hann varpaði þeirri spurningu fram og benti á að vegna kaupa á frystitogara um síðustu áramót hafi atvinn- an verið flutt út á sjó og mikil óvissa ríki um afkomu fjölda íbúa á staðnum vegna atvinnumissis. Á sama tíma sé full atvinna á öðrum litlum stað við flólann sem sé venju- lega ekki í sviðsljósinu - það er Drangsnesi. „Ég get tekið undir þau orð sem góður og gegn sjálfstæðismaður frá Vestmannaeyjum sagði við mig fyrir nokkru. „Ef stjórnmála- menn hafna ekki þessari fiskveiðistefnu þá hafnar þjóðin þeim.“ Og ég er raunar svo svartsýnn að telja að ef þjóðin hafnar ekki þessu kerfi þá hafnar kerfið þjóðinni því um friðsamlega sambúð þess og íbúa landsins tel ég að geti aldrei orðið að ræða.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.