Dagur - 29.05.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 29. maí 1993
Fréttir
Handverkskonur milli heiða
Byggt yfir Goðafossmarkaðinn
Goðafossmarkaður hf. hefur
fest kaup á rúmlega 30 fm. húsi
frá Mógilsá sem sett verður upp
við Fosshól um mánaðamótin.
Um miðjan júní verður opnaður
markaður í húsinu, þar sem
seldir verða handunnir munir,
fjölbreytt íslensk framleiðsla úr
ull, tré, grjóti, leðri og fleiru.
Handverkskonur milli heióa
eru samtök sem stofnuð voru í
mars í fyrra. Nú starfa 94 konur
sem búa milli Fljótsheiðar og
Húsavík:
Rækjuvinnsla
gengur vel
Rækjuvinnsla gengur vel hjá
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. í
fyrra fór meira magn í gegnum
vinnsluna en nokkru sinni fyrr
en vinnslan er svipuð í ár og
rækjuafli betri.
Fimm heimabátar eru í við-
skiptum vió rækjuvinnsluna, auk
þess sem hún kaupir vinnslurækj-
una af Júlíusi Havsteen ÞH. Súlan
EA er einnig í viðskiptum við
rækjuvinnsluna og tveir minni
bátar frá Patreksfirði og úr Eyja-
firði.
Unnið er á tveimur vöktum hjá
rækjuvinnslunni og oft á þremur
vöktum. Fastráðið fólk er um 30
manns og einnig vinnur lausráðið
fólk á þriðju vaktinni, en þó kom-
ast færri að en vilja, að sögn
Tryggva Finnssonar, fram-
kvæmdastjóra. IM
Vaðlaheióar í samtökunum. Mark-
mió samtakanna er aö efla atvinnu
kvenna á svæðinu.
I apríl stofnuðu sömu konumar
hlutafélagið Goðafossmarkað,
sem sjá mun um sölu á heimaunnu
ffamleiðsluvörunum. „Þetta er bú-
ið að vera heilmikið mál, en það
er mjög góð samstaða,“ sagói
Helga Erlendsdóttir, ein hand-
verkskvennanna, aðspurð um hús-
bygginguna. I fyrrasumar var gerö
tilraun með slíkan markað við
Fosshól og eftir að segl á sölu-
tjaldi hafði rifnaó og fokið var lít-
ið hús frá Mógili fengió aó láni.
Markaóurinn þótti ganga það vel
aó ákveðið var að kaupa hús fyrir
hann. Helga sagði að sveitarfélög-
in styrktu þetta framtak myndar-
lega. IM
Haraldur Bessason rektor og Hallgrímur Jónasson forstjóri Iðntæknistofnunar undirrita samstarfssamning að við-
stöddum Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra og Sigfúsi Jónssyni stjórnarformanni Iðntæknistofnunar. Mynd:GG
Samstarf hafið milli Iðntæknistofnunar og Háskólans á Akureyri:
Stuðlar að nýsköpun og nýrrí tækni
í samkeppnisaðstöðu fyrirtækja
Iðntæknistofnun íslands mun
hefja starfsemi á Akureyri í ág-
ústbyrjun í samstarfi við Há-
skólann á Akureyri og má segja
að tímabært hafi verið orðið að
iðnaðarbærinn Akureyri fengi
hluta af starfsemi stofnunar-
innar í bæinn. Ráðinn hefur
KEA
Byggðavegi 98
HELGARTILBOÐ
Rauðvínslegin læri kr. 699 kg
Coca Cola 2 I kr. 139
Fanta 2 I kr. 139
TILBOÐ
Gasgrill m/kút og fyllingu
kr. 13.989,-
OPNUNARTÍMI
Föstudagur og laugardagur til kl. 20.
Sunnudagur lokað.
Mánudagur kl. 10-20.
Frá og með 1. júní verður opið
til kl.
alla daga vikunnar
KEA
Byggðavegi 98
verið einn starfsmaður, Krist-
ján Björn Garðarsson véla-
verkfræðingur sem verið hefur
framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
félags Norðurlands vestra, en
hann mun starfa að framleiðslu-
tækni. Ekki hefur verið gengið
frá ráðningu starfsmanns á
sviði matvælatækni. í gær skrif-
uðu Haraldur Bessason rektor
og Hallgrímur Jónasson, for-
stjóri Iðntæknistofnunar, undir
samstarfssamning að viðstödd-
um ýmsum framámönnum í at-
vinnulífinu, þ.m.t. iðnaðarráð-
herra, Jóni Sigurðssyni.
Starfsmenn Iðntæknistofnunar
munu hafa starfsaðstöðu við Há-
skólann og vinna að rannsókna-
og ráðgjafastörfum auk þess sem
kennsla verður hluti af þeirra
starfi. Gert er ráð fyrir að starfs-
mennimir byggi upp tengsl við
sem flest atvinnufyrirtæki, jafnt í
hefðbundnum iðnaði, útgerð,
fær jeppum
Lágheiði var opnuð fyrir um-
ferð í gær, en samkvæmt upp-
lýsingum Vegagerðarinnar á
Sauðárkróki er hún ekki fær
nema jeppum.
„Eins og er er heióin aóeins fær
jeppum og ég ræð ökumönnum á
bílum aðeins búnum til sumar-
aksturs frá því að fara yfir heið-
ina,“ sagði Gísli Felixsson,
rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á
Sauðárkróki í gær. Hann sagði að
á háheiðinni væri svolítill snjór,
að minnsta kosti nægilega mikill
til þess að óráðlegt væri fyrir
ökumenn illa búinna bíla að reyna
að fara þarna yfir. Miðað við veð-
urspána í gær verður að ætla að
þessi tilmæli Vegagerðarinnar
gildi fyrir alla hvítasunnuhelgina.
óþh
© HELGARVEÐRIÐ
Yfir helgina verður nokkuó
stíf norðaustanátt um allt
Norðurland. Búast má við
slydduéljum og hitastig
veróur rétt yfir frostmarki.
fiskvinnslu og fullvinnslu sjávar-
afurða og efli nýsköpun með hag-
nýtum rannsóknum og vöruþró-
un. Áherslur í starfi stofnunarinn-
ar eru því hagnýtar rannsóknir,
vöruþróun, ráðgjöf, þjónusta og
fræósla. I samstarfi við Iðnlána-
sjóð vinnur Iðntæknistofnun að
sérstöku verkefni sem kallast
frumkvæði - framkvæmd þar sem
greiddur er helmingur ráðgjafa-
kostnaðar við stefnumótun, fjár-
hagslega endurskipulagningu,
fjármálastjómun, vöruþróun og
markaðsaógerðir, framleiðslu-
skipulagningu og gæðastjómun.
Háskólinn mun fá aðgang að sér-
fræðingum Iðntæknistofnunar og
aukast þá möguleikar hans til að
bæta þjónustuna við atvinnulífið á
landsbyggðinni auk þess að geta
stuðlað að nýsköpun og nýrri
tækni til aó bæta samkeppnisstöðu
fyrirtækja.
Áður hefur Háskólinn á Akur-
eyri tekið upp samstarf við Haf-
rannsóknastofnun og Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins. GG
Vegagerðin:
Samiðvið Amarfell
og Borgarverk
Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki
hefur gengið frá samningum við
Arnarfell á Akureyri um efnis-
vinnslu á Norðurlandi vestra.
Einnig hefur Vegagerðin samið
við Borgarverk hf. í Borgarnesi
um klæðingar á Norðurlandi
vestra.
Fjögur tilboð bárust í efnis-
vinnslu á Norðurlandi vestra, frá
Amarfelli, Króksverki á Sauóár-
króki, Borgarverki i Borgarnesi og
Taki í Búðardal. Tilboð Amarfells
var 62,3 milljónir, 98,4% af
kostnaðaráætlun, um 400 þúsund
krónum lægra en tilboð Króks-
verks.
Tvö tilboð bárust í klæðingar,
frá Klæðingu í Garðabæ og Borg-
arverki. Tilboó Borgarverks var
um 2 milljónum króna lægra,
34,47 milljónir, 78,1% af kostn-
aðaráætlun. óþh
Reykleysi í grimnskólum landsins:
Tveir bekkir á Norður-
landi fengn verðlaun
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
og Tóbaksvarnanefnd höfðu
samvinnu um það síðastliðinn
vetur, eins og í fyrra, að verð-
launa nokkra reyklausa 8., 9. og
10. bekki í grunnskólum lands-
ins.
Staðfest yfirlýsing um reyk-
leysi barst frá samtals 217 bekkj-
ardeildum á landinu, þar af 33 á
Norðurlandi eystra og 8 á Norður-
landi vestra.
Einn 8. bekkur á Norðurlandi,
8.c í Glerárskóla á Akureyri, fékk
verðlaun fyrir reykleysi, háskóla-
bol á alla í bekknum. Einnig fékk
einn 9. bekkur á Noröurlandi, í
Grunnskólanum á Blönduósi,
Söguatlas - mannkynssögu í máli
og myndum, handa öllum í bekkn-
um.
Jafnframt var dregið um 15
vinninga meðal allra þeirra nem-
enda í 10. bekk sem sendu stað-
festa yfirlýsingu um að þeir neyttu
ekki tóbaks og var ekki skilyrði
að bekkur þeirra hefði reynst
reyklaus. I hópi þessara nemenda
var íris Ósk Blöndal, Gagnfræða-
skóla Akureyrar, og fékk hún að
launum Söguatlas. óþh