Dagur - 29.05.1993, Blaðsíða 24

Dagur - 29.05.1993, Blaðsíða 24
Vinnuslys um borð í Baldvini Þorsteinssyni EA: Stýrimeimirnir fluttir til lands með þyrlum - áverkar minni en búist var við og mennirnir útskrifaðir af sjúkrahúsinu í gærmorgun Um miðjan dag á fímmtudag varð vinnusiys um borð í Sam- herjatogaranum Baldvini Þor- steinssyni EA, er togarinn var að veiðum 400 sjómílur suðvest- ur af Reykjanesi. Tveir stýri- menn voru fíuttir til Borgarspít- alans í Reykjavík með þyrlum varnarliðsins. Samkvæmt upplýsingum tals- manns Samherja hf. á Akureyri voru tildrög slyssins þau að verið var að taka trollið. Búið var að slá stroffu um belginn og stýrimenn- imir vom að taka höfuðlínustykk- ið af höfuðlínunni. Pokinn var enn úti. Þá slitnaði stroffan og trollið kastaðist til af miklum þunga. Annar vængur trollsins skall á stýrimönnunum og handleggs- braut annan, en hinn féll í dekkið og hlaut af þungt höfuðhögg. Skipstjóri Baldvins Þorsteins- sonar, Amgrímur Brynjólfsson, leitaði eftir aðstoð úr landi, þar sem hann vildi koma stýrimönn- unum undir læknishendur. Þyrla Landhelgisgæslunnar gat ekki sinnt hjálparbeiðninni þar sem togarinn var of langt frá landi. Þá kom til kasta vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli, sem oft áður. Erfiðlega gekk að fá vamarliðið til að fljúga út þar sem yfirmenn mátu að ekki væri um algjört neyðartilfelli að ræða. Um síðir fékkst leyfi fyrir fluginu og tvær þyrlur fóru í loftið klukkan 19.00 ásamt eldsneytisbirgðavél. Flugið tókst með ágætum og hinir slös- uðu voru komnir til Borgarsjúkra- hússins laust upp úr miðnætti. Samkvæmt upplýsingum Jóns Baldurssonar, læknis, reyndust stýrimennirnir ekki alvarlega slas- aðir og í gærmorgun var búið að útskrifa þá báða af sjúkrahúsinu. ój Akureyrarbær: Aldrei fleiri ungl- ingar ráðnir tll sumarstarfa Fram kom á fundi bæjarráðs Akureyrar sl. fimmtudag að gert er ráð fyrir að bærinn ráði samtals um 540 unglinga á aldr- inum 14-16 ára til vinnu í sum- ar. Akureyrarbær hefur aldrei áður ráðið jafn marga unglinga í sumarvinnu. í áætlunum hafði verið gert ráð fyrir að ráða 260 unglinga á aldr- inum 14-15 ára, en flest bendir til að þeir verði um 380. Þá hafði verið búist við ráðningum 80 16 ára unglinga, en samkvæmt fyrir- liggjandi umsóknum verða þeir allt að 160. Líklegt er því að Ak- ureyrarbær ráði samtals um 540 unglinga á aldrinum 14-16 til sumarstarfa og hafa þeir aldrei verið fleiri. Á hitt ber þó að líta að reyndin er sú að þessi tala lækkar svolítið þegar kemur fram í júní. Sigurður J. Sigurðsson, for- maður bæjarráðs, segir ljóst að þessi mikli fjöldi unglinga kalli á viðbótarfjárveitingu til þessa málaflokks, „því við ætlum að sinna öllum þessum hópi og mæta þeim útgjöldum sem af því leiðir. Við erum að tala um 5- 10 millj- ónir króna í viðbótarútgjöld vegna þessa.“ Gert er ráð fyrir sama vinnu- tíma unglinganna og á sl. sumri; 3,5 klukkustundir á dag í sjö vikur hjá 14- 15 ára unglingum og 7 klukkustundir á dag í 6 vikur hjá 16 ára unglingum. Sigurður segir auðvitað ljóst að þessi mikli fjöldi atvinnuumsókna sé til kominn vegna bágs atvinnu- ástands. Til viðbótar við aukafjár- veitingar til þessa verkefnis bendi flest til að þurfi allt að 4 milljóna króna aukafjárveitingu frá bæjar- sjóði á þessu ári til svokallaðra at- vinnuátaksverkefna. óþh GltASTEIlWf \vn VMilAIKIW FRÁ MÖL OG SAMII SIIIW MEÐ ÓTRÓÆGA MÖGIILEIRA í III.I DSI I MOL & SANDUR HF v/Súluveg • 600 Akureyri • Sími 96-21255 • Fax 96-27356 Skattframtal lögaðila: Skilafrestur rennur út þann 31. maí Síðasti skiladagur skattframtals lögaðila er 31. maí. Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI 'J LS XV ) '/'jsK -O , m m 1 Tiilvutcn§J lit&ljisritun....hj kemur mei iiskinn §§ vii Ijisritum J PÚSLUSPIL - BOLAPRENTUN - SKÖNNUN - PLATTAR -LITAGLÆRUR - og fl. ogfí. STRANDGÖTU 11 AKUEYRI SÍMAR 11652 & 11132

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.