Dagur - 29.05.1993, Blaðsíða 11
Tónlist
Laugardagur 29. maí 1993 - DAGUR - 11
Sönghátíð í Dalvíkurkírkju
21. maí var efnt til eftirtektarverðs
tónlistarvióburðar á Dalvík. Þá
var haldin þar mikil sönghátíð í
kirkjunni, þar sem fram kom mik-
ill fjöldi söngkrafta úr röðum
heimamanna og að auki tenór-
söngvarinn Oskar Pétursson og pí-
anóleikarinn Guðrún A. Kristins-
dóttir, bæói frá Akureyri.
Fjórir kórar komu fram: Kór
Dalvíkurkirkju, Kirkjukór Svarf-
dæla, Karlakór Dalvíkur og
kvennakór.
Kirkjukór Svarfdæla flutti fjög-
ur lög á hátíðinni undir stjóm Jó-
hanns Olafssonar. Kórinn flutti
efnisskrá sína snyrtilega. Raddir
virtust góðar, sérstaklega kvenna-
raddir. Best gerði kórinn í lögun-
um Mcd en Primula veris eftir Ed-
ward Grieg og Vomótt í Skaga-
firði eftir Jón Björnsson við ljóð
Rósu Blöndal. I fyrra laginu kom
þó fyrir dálítið sár tónn í tenór
undir lokin, en síðara lagið, þar
sem söngstjórinn, Jóhann Olafs-
son, söng einsöng og gerði tals-
vert vel, skilaði sér skemmtilega.
Karlakór Dalvíkur hefur ekki
starfað mörg undanfarin ár, en var
endurvakinn fyrir þessa sönghátíð.
Kórinn flutti fímm lög undir
stjórn Hlínar Torfadóttur; fyrst
þrjú af eldri söngskrám sínum en
síðan tvö, sem ekki höfðu verið á
efnisskrá kórsins á fyrri tíð. Kór-
inn kom furðu vel út. Hljómur var
almennt vel þéttur og raddir tals-
vert góðar; sérstaklega neðri radd-
irnar. Samfella í hljómi var al-
mennt í lagi og einnig samhæfmg
í takti og tóntaki. Þá var flutning-
ur yfirleitt fjörlegur og virtist knú-
inn sönggleði. Fyrir kom, að fyrsti
tenór varð óþarflega sterkur og
allt að því skerandi á stundum.
Þar kom fyrir að rödd kom fram
úr og lýtti heldur. I laginu Sjá
dagar koma eftir Siguró Þórðarson
við ljóð Daviðs Stefánssonar söng
Oskar Pétursson einsöng fallega
og af þrótti og Guðrún A. Krist-
insdóttir lék undir. Kórinn söng
bakraddir og hefói mátt beita sér
nokkuð mcira, þar sem segja má
að einsöngvarinn og undirleikur-
inn yfirgnæfðu hann gjaman og
var þó Ijúflega leikið. I laginu
Hraustir menn eftir Sigmund
Romberg við ljóð Jakobs Smára
var einsöngvari Helgi Indriðason.
Kvennakórinn flutti tvö lög
undirleikslaust undir stjóm Hlínar
Torfadóttur og gerði afar snyrti-
lega. Flutningur var fínlegur og
yfirvegaður. Raddir féllu fallega
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu ljóðabókin Safnborg eftir
Geirlaug Magnússon og er þetta
tíunda ljóðabók höfundar.
I þessari bók yrkir Geirlaugur
um snjóinn og vetrarkvöldin,
haustferðir, drauga og þögnina, en
einnig sumardaga og vorkomu,
sætabrauðsangan og væntingar,
fuglheima, álfadans og sjálfan
Jónas Hallgrímsson. En þrátt fyrir
saman og nutu sín. Sérlega vel
tókst fyrra lagið: Ljósið kemur
langt og mjótt, íslenskt þjóðlag í
útsetningu Jóns Asgeirssonar, en
síðara lagið: Vísur Vatnsenda-
Rósu í útsetningu Jóns Asgeirs-
sonar var heldur lakara en þó vel
sungið.
Kór Dalvíkurkirkju undir stjóm
Hlínar Torfadóttur flutti þrjú lög
öll undirleikslaust. Raddir kórsins
eru vel skipaðar og greinilega
söngfúsar. Æskilegt væri samt aó
slípa nokkuð betur einstök atriði í
samfellu raddanna, ekki síst sópr-
an, sem er nokkuð áberandi og sár
á hluta efsta sviðs síns. Kórinn er
þróttmikið hljóðfæri og gerði
margt fallega í öllum lögunum
þrem. Lakast tókst lagið Vorið
eftir Edvard Grieg við ljóð Þor-
steins Valdimarssonar. Þar hefói
víða mátt vera meiri fylling í
flutningi og tónhæð haldast betur.
Síðasta atriði kórsöngs var
flutningur allra kóranna á Dögun
eftir Arpád Balázs við ljóð Ingólfs
Jónssonar frá Prestbakka undir
stjóm Hlínar Torfadóttur og
Svarfaðardal, átthagasöng byggð-
arinnar, undir stjóm Jóhanns 01-
afssonar, sem jafnframt var loka-
atriði sönghátíðarinnar. Meiri
þróttur hefði mátt vera í fyrra lag-
inu og diskant í lokin hefði mátt
sleppa, en hið síðara var flutt af
þeim innileika, sem viö á um verk
af þessu tagi.
Þrír nemendur söngdeildar
Tónlistarskólans á Dalvík komu
fram á tónleikunum: Guðrún R.
Lárusdóttir, Margrét Einarsdóttir
og Gunnhildur Ottósdóttir. Hver
flutti tvö lög og tókst margt nokk-
uð vel. Annað var lakara og mega
söngkennarar minnast þeirrar
skyldu sinnar, að etja ekki nem-
endum sínum of snemma út í söng
á almennum tónleikum.
A sönghátíðinni á Dalvík kom
fram karlasöngflokkur, sem kall-
aður er kvartett, en er skipaður
fnnm söngvurum. Flokkurinn
flutti þrjú lög. Best tókst lagið ís-
lands hrafnistumenn eftir Inga T.
Lárusson við ljóð Amar Amars.
Þar var samfella raddanna allgóð,
svo að allar nutu sín nokkuð vel. I
hinum tveim var fyrsti tenór nokk-
uð áberandi og sár.
Oskar Pétursson, tenór, söng
einsöngslagið Zueignung eftir Ri-
chard Strauss við undirleik Guð-
rúnar A. Kristinsdóttur og gerði
vel. Einnig söng Óskar tvo dúetta
með Jóni Helga Þórarinssyni.
fjölbreytileg yrkisefni og aðgengi-
legri ljóð en oft áður eru höfund-
areinkenni jafnan skýr og tónn
Geirlaugar auðþekktur.
Meðlimir í Ljóðafélagi Máls og
menningar fá bókina með umtals-
verðum afslætti, en hægt er að
gerast meðlimur í því með því að
hringja í síma 91-677755. Út úr
búð kostar bókin 1690 krónur.
Bókin er 65 síður.
Raddir söngvaranna féllu heldur
illa saman, enda Jón Hejgi ekki í
essinu sínu. Loks söng Óskar dú-
ett með Jóhanni Daníelssyni í lag-
inu Ég sé þig aðeins eina eftir
Askel Jónsson við ljóð Daníels
Kristinssonar. Raddir féllu vel
saman og flutningur var fallegur.
Jóhann Ólafsson lék undir á
orgel í fyrstu tveim lögunum á
efnisskrá Kirkjukórs Svarfdæla.
Undir önnur lög, sem ekki vora
flutt án undirleiks, lék Guðrún A.
Kristinsdóttir á píanó. Undirleikur
hennar var fágaður og nær ævin-
lega við hæfi. A fáeinum stöðum
hefði litlu meiri þróttur ekki sak-
að, en aó öðru leyti studdi Guðrún
flytjendur af kostgæfni og smekk-
vísi.
Kynnir á sönghátíðinni var Jó-
hann Daníelsson. Hann var léttur
og þægilegur í hlutverki sínu, en
hefði mátt mæla heldur hærra eða
vera með míkrófón. Kynningar
Jóhanns gáfu þessum mikla tón-
listarviðburði ljúfan blæ, sem var
vel við hæfi. Hann hafði anda
mikillar ættarsamkomu, þar sem
byggðin kom saman til þess að
njóta þess, sem hún hafði sjálf
fram að færa. Ýmislegt hefði bet-
ur mátt fara, eins og fram hefur
komið. Þetta er fyrsta tilraun í
þessa veru og vonandi engan veg-
inn hin síóasta, heldur fyrsta söng-
hátíðin í röð samskonar samkoma,
sem munu sýna og sanna sívax-
andi þrótt söngmennta í byggð-
inni. Hátíðin, sem nú er að baki
vísar veginn og gefur ljóslega til
kynna, að kraftamir eru fyrir
hendi og að unnt er að virkja þá til
eftirtektarverðra verka. _
Haukur Ágústsson.
Sumarið
er komið!
Enn er óráðstafað
þremur stórglœsi-
legum sumarhúsa-
lóðum í Stekkjar-
hvammi í Bárðardal.
Lóðirnar eru 7 km
sunnan Fosshóls,
afgirtar og
fullfrágengnar.
Rafmagn er á svœðinu.
Eigum fullbúin og
fokheld hús til <
afhendingar strax.
Komið og sjáið
hvað við höfum upp á
að bjóða það getur
borgað sig.
.TRÉSMIÐJAN
MOGIL SF.
SVALBARÐSSTRÓND S 96-21570
Knattspyrna
yngri flokkar
Æfingar í öllum flokkum hefjast 1. júní.
Þaö eru 3., 4., 5., 6. og 7. flokkur drengja og 3. og 4.
flokkur stúlkna.
Skráning verður í Hamri frá 1. júní, sími 12080.
Unglingaráð Knattspyrnudeildar Þórs.
Safnborg
- ný ljóðabók eftir Geirlaug Magnússon
Til sölu Oddfellowhúsið
Brekkugötu 14, Akureyri
Húsiö er samtals 547 fm. Tvær hæöir, rishæö og
kjallari. Glæsilegt hús á góöum staö.
Fasteianasalan hf.,
Gránufélagsgötu 4, Akureyri.
Sími 96-21878, fax nr.: 96-11878.
Opið frá kl. 10-12 og 13-17.
Hermann R. Jónsson sölumaður kvöld og helgarsfmi 96-25025.
Lykillinn aö framtiö þinni
ÆVINTYRI SUMARSINS
Hestasumarbúði r
sumarið 1993
Ytri-Vík Árskógsströnd Eyjafirði
INNRITUN ER HAFIN
Námskeið nr. 1 hefst 1. júní.
Námskeið nr. 2 hefst 8. júní.
Námskeið nr. 3 hefst 15. júní.
Farið verður á hestbak tvisvar sinnum á dag.
Hestaútilega, sjóstangaveiði, kvöldvökur, vei'ði, sund
og margt fleira.
Upplýsingar og pantanir í síma 96-61630 og 96-
61982 alla daga.