Dagur - 29.05.1993, Blaðsíða 19
Sakamálaþraut
Laugardagur 29. maí 1993 - DAGUR - 19
Verið á undan Carter lögregluforingja að leysa
þrautina. Ykkur til aðstoðar eru teikningar með
mikilvægum vísbendingum...
Ökumaðurinn sem
nam ekki staðar
- eftir Francis Clarke
Pauline Masters lá föl og hreyfmgarlaus í
rúmi sínu á sjúkrahúsinu en höfuð hennar
var vafió í umbúðir. Þegar hún mælti var
rödd hennar svo lág að Graham undirforingi
þurfti að lúta yfir hana til aó heyra hvað hún
var að segja. „Ég sá bara ökuljósin stefna
beint að mér,“ hvíslaði hún. „Ég er sann-
færð um aó þaó var kona
sem ók... en svo rakst bíll-
inn á mig. Ég man ekki
meira.“
Carter
lögreglufor-
ingi var
óvenju
ábúðarmik-
ill á svipinn
þegar menn-
imir tveir
yfírgáfu sjúkra-
húsió. „Svartur bíll...
númer sem hugsanlega
byrjar á HG... og hef-
ur kannski töluna 7,“
tautaði hann. „Ekki
mikið til að byggja á
en ég er samt viss um
að hinn
öku-
maðurinn veit að hann
rakst á eitthvað.“
„Kannski var þaó
kona,“ greip Graham
fram í fyrir honum.
„En hvað meö það; vió
verðum aö athuga hvort staðarlögreglan
getur aðstoðað okkur meó þetta bílnúmer.
Þaö ætti ekki aó vera svo erfitt á svona litl-
um stað.“
Hálftíma síðar hafði rannsókn mannanna
leitt til fyrstu vísbendingarinnar... þetta var
lítió, snyrtilegt sumarhús í útjaðri þorpsins
Blackhamton.
Steinþrepin
Þeir þurftu að leggja bílnum sínum viö veg-
arkantinn fyrir utan tvöfaldan bílskúr sem
tilheyrði húsinu og ganga upp nokkur stein-
þrep til aö komast aó útidyrahuröinni. Það
hafði rignt allan daginn og því var regnið
farið að vætla nióur háls Grahams undirfor-
ingja þegar hann þrýsti á dyrabjölluna og
bölvaði lágt á
meðan hann
beið þess aö
einhver kæmi
til dyra.
Það var
Douglas
Henning sem
Lausn á sakamálaþraut:
•jjncj jsi9H uinunjoS
-uddnuii jijX uipuoj pe Siuuccj ijjsuia jij jos pe luuoq pipun jnjoq
unq So iuunde>ju83j jspæj>j ipjeq euo>j pn jspfjSne jea pE<j -uinun
-joSEddsuq r>pj3 jAinNmOl puoj jjncj ejoa pB jjb jpjoq (§ui
-puoqsiA BsofjSnB uiq) iuundB>ju8oj jsippæj>j Suiuuojj ssjgnoQ jg
vísaði þeim inn í stofuna þar sem eiginkona
hans, Laura tók á móti þeim. Hjónin hlust-
uðu af athygli þegar Graham skýrði þeim
frá slysinu. „Stúlkan var ekin niður fyrir
einni og hálfri klukkustund og bíllinn ykkar
-passar vió lýsinguna sem hún gaf okkur,“
útskýrói hann. „Hefur annaö hvort ykkar
farið út í dag?“
Henning var afar hjálplegur.
„Já ég ók til þorpsins til aö
kaupa mér vindlinga,“ vióur-
kenndi hann, „en ég er viss
um að ég rakst ekki á neinn...
og svo sagði stúlkan líka að
kona hefói ekið bílnum svo
varla grunió þið mig?“
Laura Henning staöfesti
söguna. „Ég býst við að þið
viljið fá aö sjá bílinn,“
bætti hún viö, „svo ég ætla
aó segja ykkur það strax aó
annað brettið ER beyglað.
Það gerðist hjá Douglas í
gær þegar hann var að aka
inn í bílskúrinn.“
Enn blautur
Að beiðni Carters lögreglufor-
ingja náði Henning í bílskúrs-
lyklana og fylgdi mönnunum
fram. „Sjáiö þið bara,“ sagði hann
og benti á blautann frakka í for-
stofunni, „þetta er regnkápan mín
og hún er ennþá blaut.“
Og það var hún svo sannarlega fyrir utan
þurra rönd sem lá niður yfir hnappagötin.
„Sko hún er blaut nema þar sem ég vatt
henni aó mér,“ útskýröi Henning og Gra-
ham brosti yfir nákvæmni mannsins.
Bíll Hennings var stór og svartur og
númerið var næstum því eins og Pauline
Masters minnti að þaö væri. Þaó athyglis-
veröa var beyglan á brettinu sem var nokk-
uð stór. „Já mér sýnist hún vera dagsgöm-
ul,“ tilkynnti Graham. „Hvaó með það, þar
sem fröken Masters er sannfærð um aó
kona ók bílnum skulum við snúa okkur aó
næsta bíl á listanum okkar, ekki satt?
En Carter lögregluforingi hristi höfuðió.
„Ég er líka viss um að þetta var kona... og
ég er nokkuð viss um að það var Laura
Henning sem
ók bílnum í
dag.“
Hvers
vegna sagói
Carter þetta?
Kinn af þcssum
hlutum lijálpar
yklcur við að
lcysa þrautina.
AðaJfundur Hins ís-
lenska þjóðvinafélags
Aóalfundur Hins íslenska þjóð-
vinafólags var haldinn í Alþingis-
húsinu, fundarsal Alþingis, mið-
vikudaginn 24. mars. Salome Þor-
kelsdóttir, forseti Alþingis, setti
fundinn og stjómaði honum. Eiður
Guónason umhverfisráðherra var
fundarskrifari.
Jóhannes Halldórsson, forseti
félagsins, sat fundinn af hálfu
stjórnar þess, flutti skýrslu forseta
og stjórnar og skýrði frá reikning-
um félagsins. I skýrslunni kom
fram, að á árinu 1991 hefði tekist
að ljúka útgáfu 3. bindis Bréfa til
Jóns Sigurðssonar með nafnaskrá
allra bindanna. I skýrslunni kom
einnig fram, að í árslok 1991 lauk
rúmlega hálfrar aldar samstarfi
Þjóðvinafélags og Bókaútgáfu
Menningarsjóðs um bókaútgáfu.
Þjóðvinafélagið var þá í vanda
statt, skorti húsnæði og aóra að-
stöðu til skrifstofuhalds, fé var
ekki handbært til neinna stórræða.
Stjórnin vildi þó freista þess að
halda áfram útgáfu hinna föstu
ársrita, Almanaks og Andvara,
sem félagið hefur gefiö út síðan
1874. Leitað var á náðir forsætis-
nefndar Alþingis, sem brást vel
við, og tók Skrifstofa Alþingis að
sér umsjón með fjárreiðum Þjóð-
vinafélagsins, aðskildum frá fjár-
reiðum Alþingis og án ábyrgðar á
fjárskuldbindingum félagsins.
Hins vegar tókust samningar við
Sögufélag, Fischersundi 3, um
söluumboð og afgreiðslu á bókum
félagsins.
Guörún Helgadóttir, fyrrver-
andi forseti sameinaðs Alþingis,
kvaddi sér hljóðs og fagnaði því,
að samstarf hefði tekist með Þjóð-
vinafélaginu og Alþingi, og hvatti
til stuðnings við félagið. Salome
Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, tók
undir hvatningarorð hennar.
Stjóm Hins íslenska þjóðvina-
félags var öll endurkjörin. Hana
skipa: Jóhannes Halldórsson, for-
seti; dr. Jónas Kristjánsson, vara-
forseti; forstööumaður Stofnunar
Arna Magnússonar; meðstjóm-
endur: Dr. Guðrún Kvaran, orða-
bókarritstjóri; Heimir Þorleifsson,
menntaskólakennari, og Ólafur
Ásgeirsson, þjóöskjalavörður.
Endurskoðendur voru endurkjöm-
ir þeir Halldór Ásgrímsson, al-
þingismaður, og Ólafur Ólafsson,
varaskrifstofustjóri Alþingis.
Stjóm Þjóðvinafélagins hélt
fund 28. apríl. Ákveðið var að
halda áfram útgáfu Almanaks og
Andvara. Áskriftarkerfi félagsins
frá fyrri tíð er í molum. Stefnt er
að fjölgun fastra áskrifenda að
ársritum félagsins og aukinni út-
breiðslu ritanna með örðu móti.
Fastur þáttur í Almanaki er Árbók
Islands, undanfarin ár tekin saman
af Heimi Þorleifssyni. I Árbókinni
er gagnort yfir lit um marga helstu
þætti í lífi og störfum þjóðarinnar
á liðnu ári. Andvari er undir rit-
stjórn Gunnars Stefánssonar. í
Andvara birtast einkum greinar
um íslenska menningu, bókmennt-
ir og sögu. Flest árin síðan árið
1880 hefur í upphafi Andvara ver-
ið ævisaga merks íslendings. Síð-
ustu ár hefur verið ritað þar um
eftirtalda menn: Ólaf Jóhannesson
forsætisráðherra, Pétur Benedikts-
son sendiherra og bankastjóra,
vísindamennina Þorbjöm Sigur-
geirsson og Bjöm Sigurðsson, Jón
Leifs tónskáld og Siguró Guð-
mundsson skólameistara. í ár er
fyrirhugaó að birta í Andvara
grein um Geir Hallgrímsson for-
sætisráðherra samda af Davíð
Oddssyni forsætisráðherra.
(Fréttatilkynning)
Rýmingarsala
1., 2., 3. og 4. júní
leiktöng á hei Idsöluverði
Barbie dúkkur.
Taio fjarstýröir bílar.
Fisher-Price þroskaleikföng
og margt margt fleira.
Opið kl. 13-18 daglega.
Rýmingarsalan er í kjallara
Leikfangamarkaðurinn París
sími 27744.
it
Þökkum af alhug alla þá samúð og vináttu er okkur var auð-
sýnd við andlát og útför,
RAGNHEIÐAR BRYNJÓLFSDÓTTUR,
Holtagötu 4, Akureyri.
Bryndís Björnsdóttir, Halldór Pétursson,
Ragnheiður Halldórsdóttir og Þórdís Halldórsdóttir.