Dagur - 29.05.1993, Blaðsíða 21
Tónlist
Laugardagur 29. maí 1993 - DAGUR - 21
Bifreiðaeigendur:
Mótorstillingar - Bílarafmagn.
Nýkomið úrval varahluta í rafkerfi,
bæði 12 og 24 volt.
Nýr fullkominn rafmagnsprufubekk-
ur.
Bílastilling sf.,
Draupnisgötu 7 d, 603 Akureyri,
sími 22109.
Mosaeyðing.
Hef til leigu nýja og öfluga vél til
mosaeyðingar í görðum, sem gefur
undraverðan árangur.
Leigð með eða án manns.
Allar nánari upplýsingar i simum
h.s. 11194, v.s. 11135, 985-32282.
Garðtækni.
Héðinn Björnsson,
skrúðgarðyrkjumeistari.
Túnþökur til sölu!
Keyrt á staðinn ef óskað er.
Snarrótarlaust.
Allar nánari upplýsingar í síma
31203. Bílasími 985-39773.
Geymið auglýsinguna.
Vörubíll til sölu.
Bens 1624 árg. '81.
Uppl. í síma 43601 á kvöldin.
Gullúr tapaðist í miðbæ Akureyr-
ar, eða á leið úr miðbæ i
Skarðshlíð.
Úrið tapaðist á tímabilinu 10.-14.
maí. Um er að ræða karlmannsúr,
ársgamla stúdentsgjöf sem er eig-
anda sínum mjög kær.
Fundarlaun.
Skilvis finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 43528.
Hreinsið sjálf.
Leigjum teppahreinsivélar.
Hjá okkur færðu vinsælu Buzil
hreinsiefnin.
Teppahúsið.
Tryggvabraut 22,
síml 25055.______________________
Gluggaþvottur - Hreingerningar
-Teppahreinsun - Rimlagardínur.
Tek að mér hreingerningar á íbúð-
um, stigagöngum og stofnunum.
Teppahreinsun með nýlegri djúp-
hreinsivél sem skilar góðum ár-
angri.
Vanur maður - Vönduð vinna.
Aron Þ. Sigurðsson.
Sími 25650.
Vinsamlegast leggið inn nafn og
símanúmer í símsvara.
Hreingerningar, teppahreinsun,
þvottur á rimlagardínum, leysum
upp gamalt bón og bónum.
Tökum að okkur hreingerningar,
teppahreinsun og bón í heimahús-
um og fyrirtækjum.
Þvoum rimlagardínur, tökum niður
og setjum upp.
Fjölhreinsun, Fjölnisgötu 6c,
Inga Guðmundsdóttir,
heimasími 25296 og 985-39710.
Tökum að okkur daglegar ræst-
ingar fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Ennfremur allar hreingerningar,
teppahreinsun og gluggaþvott.
Ný og fullkomin tæki.
Securitas, ræstingadeild, símar
26261 og 25603.
Garðaúðun.
Úðum fyrir roðamaur, maðki og lús.
Uppl. í símum 11172, 11162 og
985-23562.
Jón Björnsson.
Úðun.
Tek að mér úðun fyrir roðamaur,
trjámaðki og lús.
Fljót og góð þjónusta.
Upplýsingar í simum h.s. 11194,
v.s. 11135. Farsfmi 985-32282.
Garðtækni.
Héðinn Björnsson,
skrúðgarðyrkjumeistari.
Vinna - Leiga.
Gólfsögun, veggsögun, malbiks-
sögun, kjarnaborun, múrhamrar,
höggborvélar, loftpressur, vatns-
sugur, vatnsdælur, ryksugur, loft-
sugur, háþrýstidælur, haugsuga,
stíflulosanir, rafstöðvar, mini-grafa,
dráttarvél 4x4, pallaleiga, jarðvegs-
þjöppur, steypuhrærivélar, hefti-
byssur, pússikubbar, flísaskerar,
keðjusagir o.fl.
Ný símanúmer:
96-11172, 96-11162, 985-23762,
984-55062, símboði.
Aðalfundur Gigtarfélags
Norðurlands eystra verð-
ur haldinn fimmtudaginn
3. júní kl. 20.30 á Hótel
KEA.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ingvar Teitsson, læknir talar um
veljagigt. Sagt frá söfnunarátaki
GNE til kaupa á beinþéttnimæli.
Nýir félagar velkomnir.
Kaffiveitingar á vægu vcrði.
Stjórnin.
KFUM og KFUK,
^ Sunnuhlíð.
Hvítasunnudagur, hátíð-
arsamkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Bjarni Guðlcifsson.
Allir velkomnir.
36
i [
HVÍTASUtlHUKIRKJAM mumshiíð
Hvítasunnudag 30. maí kl. 14.00,
vígsla Hvítasunnukirkjunnar við
Skarðshlíð. Ræðumaður Snorri
Oskarsson. Mikill og fjölbreyttur
söngur. Kaffiveitingar á eftir.
Samkoma mánudaginn 31. maí kl.
20.00. Ræðumaður Hafliði Kristins-
son, skírnarathöfn í samkomunni.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÖKUKENNSLR
Kenni á nýjan Galant 2000 GLSi.
Útvega öll gögn sem með þarf.
Bók lánuð.
Greiðslukjör.
JÓN S. RRNHSON
Sími 22935.
Kenni allan daginn og á kvöldin.
Laufásprestakall.
Hátíðarguðsþjónusta í
' Svalbarðskirkju hvíta-
sunnudag kl. 14.00.
Afmælisdagur kirkjunnar.
Glerárkirkja.
Hvítasuiinudagur. Hátíðarmessa kl.
14.00. Örn Birgisson syngur ein-
söng.
Sóknarprestur.
rna
Kaþólska kirkjan.
Messur laugard. 29. maí
3 kl. 18.00 og 30. maí,
hvítasunnudat>. kl. 11.00.
Akureyrarprestakall:
Hvítasunnudagur:
Hátíðarguðsþjónusta
■ III verður á F.S.A. kl. 10.
Æs' Þ.H.
Hátíðarguðsþjónusta verður í
Akureyrarkirkju kl. 11. Sálmar: 174
- 332 - 252 - 331. Þau, sem fermd-
ust fyrir 10 árum (fædd 1969), 20
árum (fædd 1959), 30 árum (fædd
1949), 40 árum (fædd 1939) og 50
árum (fædd 1929) sérstaklega vel-
komin. B.S. og Þ.H.
Hátíðarguðsþjónusta verður að Seli
kl. 14. Þ.H.
Hátíðarguðsþjónusta verður á Hlíð
kl. 16. Þ.H.
Stærri-Arskógskirkja.
Hátíðarguðsþjónusta verður á hvíta-
sunnudag kl. 11.00.
Hríseyjarkirkja.
Hátíðarguðsþjónusta verður á hvíta-
sunnudag kl. 14.00.
Sóknarprestur.
Laugalandsprestakall:
Grundarsókn.
Fermingarmessa verður í Grundar-
kirkju hvítasunnudag 30. maí 1993,
kl. 13.30.
Sóknarnefnd.
Munkaþverárkirkja:
Ferming hvítasunnudag kl. 11.
Fermingarbörn eru þessi:
Bergur Þorri Benjamínsson,
Ytri-Tjörnum 2.
Bjarni Eiríksson,
Rein.
Elísabet Ingunn Einarsdóttir,
Austurbergi.
Jón Bergur Arason,
Þverá.
Laufey Kristjánsdóttir,
Kaupangi.
Ragnar Elías Ólafsson,
Tjarnargerði.
Möðruvallaprestakall:
Hátíðarguðsþjónusta verður í
Möðruvallakirkju á hvítasunnudag,
30. maí kl. 14.00. Kór kirkjunnar
syngur Hátíðasöngva Bjarna Þor-
steinssonar, organisti Birgir Helga-
son. Fcrming og altarisganga.
Fermd verða:
Hallfríður Kristín Sigurðardóttir,
Brekkuhúsi 3, Hjalteyri;
Harpa Þórðardóttir,
Syðri-Bakka, Arnarneshr.;
Jóhann Halldór Traustason,
Þelamerkurskóla, Glæsibæjarhr.;
Sigríður Kristín Kristþórsdóttir,
Moldhaugum, Glæsibæjarhreppi;
Sigrún Stella Haraldsdóttir,
Vanabyggð 3, Akureyri.
Sóknarprestur.
Njóttu feröarinnar!
Aktu eins og þú vilt að aðrir aklirvr
Góðaferð! ||X™
Tónleikar í Tjamarborg
Elísabet F. Eiríksdóttir, sópran,
efndi til tónleika í félagsheimilinu
Tjamarborg í Olafsfirði 26. maí.
Undirleikari hennar var Hrefna
Eggertsdóttir, píanóleikari.
Efnisskrá tónleikanna var fjöl-
breytt og gaf góð tækifæri til þess
að kynnast mörgum hliðum Elísa-
betar sem söngkonu. Hún hefur
mikla rödd, sem fer vel á víðu
sviói. Háir tónar Iiggja vel við El-
ísabetu og getur hún flutt á því
sviði jafnt af styrk sem mýkt.
Einnig eru lægri svið raddarinnar
vel þróttmikil. Tónvissa hennar er
góð og víða naut sín skemmtilega
geta hennar til lcikrænna tilþrifa í
túlkun og fasi. Stundum lá þó við
aö keyrói úr hófi í þessu efni, svo
sem í lok aríunnar Vissi d’arte,
vissi d’amore úr óperunni Tosca
eftir G. Verdi.
Elísabetu lætur vel að fara með
ljúf lög, svo sem Barnagælu frá
Nýja Islandi eftir Jón Asgeirsson
vió ljóð Halldórs Laxness, en
einnig getur hún náð skemmtileg-
um og leikandi blæ á léttari verk,
svo sem Kossavísur eftir Pál
Isólfsson við ljóó Jónasar Hall-
grímssonar.
Píanóleikur Hrefnu Eggerts-
dóttur var eftirtektarverður. Hún
hefur getu til þess að lita undirleik
á lipran hátt með til dæmis fínleg-
um rúbatóum og snyrtilegri notk-
un tenútós. Víða nær hún verulega
rómantískum blæ, sem byggir vcl
undir, þar sem það á við, svo sem
í lögunum I dag skein sól eftir Pál
ísólfsson við ljóð Davíðs Stefáns-
sonar og Jeg elsker dig eftir E.
Grieg við ljóð H. C. Andersens.
Eitt er þaó öðru fremur, sem
lýtir fluming og túlkun Elísabetar
F. Eiríksdóttur. Rödd hennar leitar
miklu um of aftur í hálsinn og lok-
ast. Þetta kom fyrir á tónleikum
hennar í Tjamarborg í sem næst
hverju einasta lagi og spillti víða
verulega flutningi, sem annars var
á margan veg góður. Þessi lokun
raddarinnar hefur á sér óþægileg-
an, þrúgandi blæ og kemur í veg
fyrir það, að röddin njóti sín sem
skyldi.
Annað, sem öðru hvoru henti
var þaó, aó fylling raddarinnar líkt
og hvarf, svo sem í laginu í dag
skein sól. Einnig kom gjarnan
nokkur skjálfti í röddina á neðan-
verðu raddsviðinu svipað og
stuðning skorti.
I heild tekið voru tónleikar El-
ísabetar F. Eiríksdóttur og Hrefnu
Eggertsdóttur í Tjamarborg í Ól-
afsfirói ánægjulegir. Sönggleði
Elísabetar var smitandi og píanó-
leikur Hrefnu gerði sitt til að laða
fram blæ verkanna, sem flutt voru,
hvort heldur þau voru hæg og
rómantísk eða hröð og magn-
þrungin.
Tónleikagestir vom talsvert
margir og gerðu góðan róm að
frammistöðu listamannanna. I lok-
in fluttu þeir nokkur aukalög. Þar
á meðal var endurtekið lagið
Svanasöngur á heiói eftir Sigvalda
S. Kaldalóns við ljóð Steingríms
Thorsteinssonar. Blær lagsins var
talsvert annar en í fyrra skiptió, og
afturlega raddarinnar miklu minni.
Ef Elísabetu tækist að minnka
hana eða helst eyða henni, gæti
hún sannarlega gert vel.
Haukur Ágústsson.
Fjorar nýjar kiljur
- frá fslenska kiljuklúbbnum
íslenski kiljuklúbburinn hefur sent
frá sér fjórar nýjar kiljur.
íslenski draumurinn er skáld-
saga eftir Guðmund Andra Thors-
son. Höfundur kveður margar per-
sónur til sögunnar, sem gerist á
mörgum sviðum og ólíkum tím-
um. Hún fjallar um hina sameigin-
legu drauma íslendinga, hvort sem
þeir snúast um frægð, frama og
skjótfenginn auó eða strit í þágu
föðurlandshugsjónar. En umfram
allt er þetta saga um vináttu, ást
og svik. Bókin er 182 bls.
Makbeð er eitt af þekktustu
leikritum Williams Shakespeares.
Það fjallar um blóðuga valdabar-
áttu og ill örlög skoska hershöfð-
Húseigendur
- Húsfélög
Eru sprungur?
Laus múrhúö?
Flögnuð málning?
Er leki?
Kemur saltlausn út
á veggjum?
Tökum aö okkur múrviö-
geröir, sprunguviðgerðir,
háþrýstiþvott og
sílanbööun.
Hafiö samband og
leitið upplýsinga.
Greiðslukjör til allt að
þriggja ára.
B. Bjarnason og Co.,
Glerárgötu 14, sími 27153.
ingjans Makbeðs og lafði hans.
Helgi Hálfdanarson þýddi. Bókin
er 93 bls.
Föðurland er ný spennusaga
eftir Robert Harris. Sögusviðið er
Berlín í apríl 1964, hátíðahöldin á
75 ára afmæli Hitlers ríkiskanslara
nálgast. Lík af karlmanni á gamals
aldri frnnst í stöðuvatni í útjaðri
borgarinnar, og lögreglan kemst
fljótlega að því að ekki er allt með
felldu. Þessi hraðskreiða spennu-
saga hefur komið róti á hugi
manna á tímum umdeildrar sam-
lögunar og sameiningar í Evrópu.
Guóbrandur Gíslason þýddi bók-
ina sem er 368 bls.
Ofvitinn er ein ástsælasta bók
Þórbergs Þórðarsonar. Haustið
1909 hóf Þórbergur nám við
Kennaraskólann. Lærifeðurnir
ollu honum sárum vonbrigðum og
reyndust ófærir um að leysa lífs-
gátuna. Námi sínu, félögum í
Bergshúsi, skáldagrillum, stúku-
standi, fyrstu ástinni og þorpslíf-
inu í Reykjavík þessara ára lýsir
Þórbergur eftirminnilega í bók-
inni. Hún er 354 bls.
Leiðrétting
Búast má vió að talsvert hafi verið
spurt eftir hlutabréfum í Iðnþró-
unarfélagi Norðurlands vestra,
eftir að Dagur greindi frá því í fyr-
irsögn í gær að hagnaóur af
rekstri félagsins á síóasta ári hefði
reynst tveir milljarðar króna!
Eins og sást í sjálfri fréttinni
var hér um að ræða villu í fyrir-
sögninni. Hagnaðurinn reyndist
tvær milljónir króna, þótt hitt
hefði eflaust komið Norðlending-
um vel!. Við biðjumst velvirðing-
ará þessum mistökum.