Dagur - 29.05.1993, Qupperneq 23
í UPPÁHALDI
Laugardagur 29. maí 1993 - DAGUR - 23
Höróur Geirsson
vinnur á Minjasafn-
inu á Akureyri og
hefur þar umsjón
með gríðarmikilli ljósmynda-
deild sem geymir hafsjó af
fróðleik. Ljósmyndun er eitt
helsta áhugamál hans en hann
hefur líka látið að sér kveða
hjá íbúasamtökum og er for-
maður Innbæjarsamtakanna.
Hörður hefur verið í fréttum
vcgna mótmæla við fyrirhug-
aða líkhúsbyggingu á brekku-
brúninni fyrir ofan Aöalstræti
en umferðarmál og öryggi
vegfarenda hafa þó verið
stærstu málin á borði Innbæj-
arsamtakanna. Um önnur
hugðarefni hans fáum við að
fræðast í eftirfarandi spjalli.
Hvað gerirðu helsí ífrístundum?
„Það gefast ósköp fáar frí-
stundir og þær tengjast þá oft-
ast ljósmyndun, sem er mitt
aðal áhugamál, og söguskoð-
un ýmiss konar.“
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Það er engin spuming,
heimamatreitt hreindýrakjöt.“
Vppáhaldsdrykkur?
„Ætli það sé ekki bara vatn,
jafnt dags daglega sem við
önnur tækifæri.“
Ertu hamhleypa til allra verka á
heimilinu?
.„Ég sé algjörlega um þvotta-
vélina, enda er ég rafvirki og
<6
••
segir Hörður Geirsson
Hörður Geirsson.
vanur þvottavélaviðgerðar-
maður. Svo gríp ég í uppvask-
ið af og til.“
Spáirðu mikið í heilsusamlegt líf-
emi?
„Já, svona frekar. Ég reyni að
passa upp á mataræðió. Helst
vildi ég vera grænmetisæta en
mér finnst kjöt svo gott að það
gengur ekki. En ég legg
áherslu á ávcxti og grænimeti í
mataræðinu.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu?
„Eina blaðið sem er keypt á
heimilinu núna er Aeroplane
Monthly, tímarit sem tengist
áhuga mínum á flugi.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá
þér?
„Síðast var það Benjamín dúfa
eftir Friðrik Erlingsson, verð-
launabók sem stendur fyllilega
undir nafni. Þetta er ftmagóð
bók.“
Hvaða hljómsveitltónlistarmaður
erí mestu uppáhaldi hjá þér?
„Ætli það sé ekki Mozart.“
Uppáhaldsíþróttamaður?
„Ég myndi ráðleggja þér að
sleppa þcssari spumingu í
mínu tilfelli.“
Hvað horfirðu helst á í sjónvarpi?
„Fréttir."
Á hvaða stjómmálamanni hefurðu
mestálit?
„Þessa stundina er það Þor-
steinn Pálsson. Það hefur
reyndar ekkert meó pólitík að
gera heldur tengist því að
hann lét Clinton heyra það.“
Hvarálandinu vildirðu helst búa
fyrir utan heimahagana?
„Einhvers staðar á Austur-
landi.“
Hvaða hlut eðafasteign langar þig
til að eignast um þessar mundir?
„Það koma nokkur gömul hús
til greina, sem væri gaman að
eiga ef ég ætti nóg af pening-
um, og þar á meðal er Höepfn-
er.“
Hvernig hyggstu verja sumarleyf-
inu?
„Bara á heimaslóðum við
garðrækt og góða siði.“
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Á laugardaginn fer ég í brúð-
kaup systur minnar cn annars
verð ég aóallega að vinna.“
SS
EFST í HUGA Geir Guösteinsson
Brestir í hetjudýrkun
Sturlungaaldarinnar
Það hefur ekki mikið farið fyrir bitastæðu efni í
dagskrá Ríkissjónvarpsins í vetur og vor þar til
hafnar voru sýningar á þáttum Baldurs Her-
mannssonar, Þjód í hlekkjum hugarfarsins. Þá
risu menn upp í löngum röðum og mótmæltu
þeirri söguskoðun sem haldið er fram í þáttun-
um án þess að hafa í raun önnur rök fyrir mót-
mælunum en þau að ástandið væri ekkert
betra í dagl. Vissulega brast í stoðum hetju-
dýrkunar okkar á forfeðrunum frá Sturlungaöld
við áhorf þáttanna en þessir forfeður okkar
urðu þess valdandi að við fslendingar urðum
ósjálfstæð þjóð öldum saman. Það viröingar-
leysi sem þá ríkti fyrir lífi og eignum einstak-
linga virðist ekki mega draga fram í dagsljósið
og eru bændur öðrum fremur sárir, telja á
óskiljanlegan hátt að að þeim sé vegið þótt að-
eins hafi verið rætt um framferði „höfðingj-
anna" sem aðeins voru 3% þjóðarinnar en
drottnuðu yfir 82% allra jarða. Það að troða á
almúga þessa lands er ekkert nýmæli og á sér
enn stað. Sú söguskoðun sem okkur hefur ver-
ið innprentuð gegnum skólakerfið er ekkert
endilega sú rétta og gott að skoðanir fleiri
komi fram jafnvel þótt þær séu ekki settar fram
af sagnfræðingum. Okkar ástkæru landsfeður
hafa nú rétt okkur aumum launþegum kjara-
samninga á silfurfati sem okkur er eins gott að
kyngja eða éta það sem úti frýs. Þrátt fyrir að
þessi samningur eigi að gilda í hálft annað ár
er ekki stafkrók þar að finna um launahækkun
heldur á ríkisstjórnin að „redda" þessu með
ýmsum hætti. Þar með er talinn óbreyttur fisk-
veiðikvóti en þorskveiðikvótinn er nú 205 þús-
und tonn en Hafrannsóknastofnun hefur lagt til
150 þúsund tonna kvóta og ef það gengur eftir
eru forsendur kjarasamninga brostnar. ( pakka
ríkisstjórnarinnar felst einnig lækkun á matvæl-
um um næstu áramót, en þá á virðisaukaskatt-
urinn að lækka um 30% en bitur reynsla laun-
þega hefur kennt þeim að það sem stjórnvöld
hafa einu sinni komið á verður ekki svo glatt
tekið af aftur. Gott dæmi um það er þegar við-
lagasjóðsgjaldið var lagt á landslýð, tímabund-
ið að sagt var, vegna náttúruhamfaranna í
Vestmannaeyjum en síðan var það notað til
hjálpar Norðfirðingum vegna snjóflóðanna þar
en síðan sameinaðist það virðisaukaskattinum.
Einum milljaröi ætla landsfeðurnir að verja í
atvinnuátak enda löngu orðið tímabært að
gera eitthvað markvisst í atvinnumálum, styöja
við bakið á nýjum atvinnugreinum en fækka að
sama skapi öllum þessum aragrúa ráðstefna
um atvinnumál sem kosta sitt en ekkert kemur
út úr. Á sl. hausti var haldinn fundur á Akureyri
um atvinnumál þar sem ýmsir forráðamenn
fyrirtækja og stofnana í bænum ræddu um hið
bága ástand og sumir hverjir lögðu fram tillög-
ur til úrbóta. Ekkert hefur síðan verið að frétta,
rétt eins og vandamálið hafi aðeins verið til
staðar þessa kvöldstund sem fundurinn stóð
yfir. Hingað hafa hins vegar komið þrír Rússar
sem kynnt hafa sér starfsemi sjávarútvegsfyrir-
tækja á Eyjafjárðarsvæðinu en ansi virðist það
nú langsótt að ætla að það skapi einhver aukin
verkefni fyrir þjónustufyrirtæki hér og þar með
aukin atvinnutækifæri í nánustu framtíð, sér-
staklega ef litið er til hins bága ástands í
heimalandi gestanna. Ljóst er því að kjarabæt-
ur eru háðar geðþóttaákvörðunum ríkisstjórn-
arinnar en ekki framsýni og dugnaði verkalýðs-
forkólfa og aukin atvinnutækifæri eru í svipinn
aðeins slagorð sem sögð eru við hátíðleg tæki-
færi.
Kaffihlaðborð
Narfastöðum, Reykjadal
Kaffihlaðborð sunnudaginn 30. maí og mánu-
daginn annan í hvítasunnu 31. maí frá kl.
14.00-18.00 báða dagana. Bjóðum upp á
eingöngu heimabakað brauð,
Narfastaðir er upplagður viðkomustaður þeg-
ar farð er í bílferð um helgina.
Njótið góðra veitinga í „fjárhúsunum" að
Narfastöðum.
Verið velkomin.
Ferðaþjónusta bœnda,
Narfastöðum, sími 43102.
Opið laugardag og annan hvítasunnudag
frá kl. 10.00-22.00.
TILBOÐ
Allar heildósir af ávöxtum og
grænmeti á kr. 99,-
Hálfdósir af grænmeti á kr. 70,-
★
Viðskiptavinir athugið!
Lokað vegna breytinga
þriðjudag og miðvikudag.
Opnum aftur kl. 10.00
fimmtudaginn 3. júní.
Verið velkomin.
LUNDARKJÖR,
Hlíðarlundi 2, sími 11082
Lundarkjör = glæsileg hverfisverslun
austan við „stóru gulu blokkina“.
Laus er til umsóknar staða
aðstoðarmanns sjúkraþjálfara
sem fyrst.
Um er aö ræða fullt starf til frambúöar. Vélritunar- og
enskukunnátta er æskileg.
Einnig vantar aðstoöarmann sjúkraþjálfara í sumar
afleysingar hálfan daginn frá 1. júlí-15. ágúst.
Upplýsingar um stöðurnar veitir yfirsjúkraþjálfari í
síma 30844.
Umsóknir sendist skrifstofu F.S.A. fyrir 7. júní 1993.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.