Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1994, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1994, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. NÖVEMBER 1994 Sviðsljós ^Au palr' Bandaríkjann 895 kr. a næsta sölustad og ennþa ódýrari i áskrii i síma 632 700 Ars- hátíðin aftur á Hótel Ocj Ltinoy, som citti budina moð Kate, vcii okkí roll Vor þotta Clllt oðlilogt? Ocj lcmoy hafði sincii cjrunsomctir ... Sögu Janme var sannkölluð himna- sending - góð við börnin, hjálpsöm og snyrtileg. En allt i einu fór allt að ganga á verri vog hjcí Kate. Hún var síþreytt og gat okki lialctíð sór vakandi. Samt voru allit svo góðir við hartö: Matk koknir, maðurinn honnar, Janine .. „Þetta var feiknagott opið hús hjá okkur fyrir skömmu, þaö fyrsta á þessum vetri, það mættu á milli 80 og 90 manns," sagði Jóhann Steins- son í skemmtinefnd Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur í samtali. En með honum í nefndinni eru líka Bjarni Ómar Ragnarsson formaöur, Árni Eyjólfsson og Jón Ingi. „Rafn Hafníjörð fór á kostum á þessu opna húsi og var með skemmtilega frásögn og góðar mynd- ir. Næsta opna kvöld verður 2. des- ember og þá mun Ingvi Hrafn Jóns- son verða með Laxalottó og þar verð- ur líka Laxastigi. Tungufljótið verð- ur líka rætt eitthvað. Árshátíðin verður svo haldin á Hótel Sögu 3. febrúar en ekki í Perlunni eins og í fyrra,“ sagði Jóhann enn fremur. Johann Steinsson með 15 punda lax úr Laugardalsá í Isafjarðardjúpi i sumar sem leið. DV-mynd Bjarni Menning_______________________________pv Kristinn boðskapur í óvenjulegum búningi Hugvekjusafn þaö sem hér er til umsagnar er vissulega óvenjulegt. Hugvekjurnar eru í formi prósaljóöa. Þær eru á einföldu máli og óhætt er einnig að segja aö boðskapur þeirra sé einfaldur enda segir höfundur- inn í viðauka að kristin prédikun eigi aðeins einn tilgang: að gera Jesú Krist vegsamlegan og leiða menn til trúar á hann. Hugvekjurnar munu flestar hafa birst áður á síðum Morgunblaðsins og minnast margir hins sérstaka forms þeirra þaðan. Ekki er vafi á því að formið hefur orðið til þess að fleiri hafa lesið þær en ella. Hins vegar er hætt við aö ýmsir setji spurningarmerki við listrænt gildi „ljóðanna". Ljóst má vera að sá er ekki tilgangur liöfundarins að búa til ljóð sem lifa vegna listræns búnings heldur fyrst og fremst að leita nýrra leiöa til að ná athygli lesenda með boðskap sinn. Þannig leggur sr. Jónas álierslu á það í leiöbeiningum sínum um prédikunina i bókarlok hversu mikilvægt sé að ná strax athygli áheyrandans (eða lesandans). Enginn efast um einlæga trú þess sem hér flytur boðskap sinn með orð Páls postula að leiðarljósi: „Ég ásetti mér að vita ekkert á meðal yðar, nema Jesú Krist og hann krossfestan" (1. Kor. 2:2). Hugvekjurnar eru flestar því marki brenndar að höfundur þeirra gerir Bókmenntir Gunnlaugur A. Jónsson sér mjög far um að bryggja brú frá hinum fornu textum Biblíunnar yflr til daglegs lífs nútíma Islendings. Nöfn á nokkrum hugvekjunum sýna þaö vel: Áramótabrennur, Er Guð gjaldþrota?, Silli og Valdi!, þykir Guöi vænt um vonda stráka?, Fer Guð í sumarfrí?, Umferðarreglur Guðs. í einni þeirra er þannig komist að orði: Hjá kirkjunni stendur grænn Skódi. Sækið hann! Ef einhver spyr, þá svarið: Herrann þarf hans við. Hér er um að ræða boðskap 1. sunnudags í aðventu, þ.e. um innreið Jesú í Jerúsalem. Höfundurinn leggur sig hér eins og endranær fram um að nota mjög einfalt mál og forðast skrúðmælgi. í því sambandi verð ég þó að segja þá skoðun mína að óneitanlega stingur gegnumgangandi notkun tvítölunnar „vér“ og „oss“ mjög í stúf við hinn einfalda stíl aö öðru leyti. Sr. Jónas Gíslason á að baki óvenjulega fjölbreytilegan starfsferil í þágu kirkjunnar. Um langt árabil hafði hann með höndum kennslu í kirkju- sögu við guöfræðideild. Áður hafði hann meðal annars verið sendiráðs- prestur í Kaupmannahöfn. Hann var kjörinn vigslubiskup í Skálholts- stifti árið 1989. Heilsa hans leyfði þó ekki aö hann sæti eins lengi í því embætti og vonast var til. En hug sinn til Skálholts sýnir hann með þess- ari hugvekjubók, sem velunnari Skálholtsstaðar kostar, þannig að allt sem kemur inn fyrir sölu bókarinnar rennur óskert til Skálholts. Kristnir prédikarar þurfa stöðugt að leita nýrra leiða til aö ná eyrum samtíðar sinnar. Sr. Jónas Gíslason á þakkir skildar fyrir athyglisverða tilraun sína til þess. Jónas Gíslason Hver morgunn nýr Stuttar hugleiðingar á helgidögum ársins Reykjavík 1994 Bridge_____________________________________________________ Vetrar-Mitchell BSÍ Föstudaginn 11. nóvember var spilað síðasta spilakvöld Vetrar-Mitc- hells í Sigtúni 9. Næstu fóstudaga verður spilað i nýja húsnæði Bridgesam- bandsins að Þönglahakka 1. Umsjónarmenn Vetrar-Mitchells viþa þakka öllum spilurum þátttökuna og vonast til aö sjá sem flesta áfram í Þöngla- bakka. Þann 11. nóvember mættu 28 pör til leiks og voru spilaðar 10 umferöir með þremur spilum á milli para. Miölungur var 270 og bestum árangri í NS náöu eftirtaldir: 1. Rúnar Hauksson-Benedikt Gústafsson 318 2. Eyþór Jónsson-Steinberg Ríkharösson 317 - og hæsta skor í AV: 1. Guðrún Jóhannesdóttir-Sigurður B. Þorsteinsson 326 2. Helgi M. Gunnarsson-ívar M. Jónsson 305 Bridgedeiid Rangæinga í annarri umferð hraösveitakeppninnar fengu eftirtaldar sveitir hæsta skorið: 1. Baldur Guömundsson 595 2. Indriöi Guömundsson 570 - staöa efstu sveita er þá þannig: 1. Baldur Guðmundsson 1159 2. Loftur Pétursson 1140 Bridgefélag SÁÁ Þriðjudaginn 15. nóvember var spilaður eins kvölds tölvureiknaður Mitchell og spiluð voru tölvugefm spil. Þátttaka var ágæt, 23 pör mættu til leiks og voru spilaðar 10 umferöir með þremur spilum milli para. Meðalskor var 270 og bestum árangri í NS náðu: 1. Bjöm Bjömsson-Nicolai Þorsteinsson 328 2. Björn Guðmundsson-Haukur Baldursson - og hæsta skor í AV: 1. Magnús Torfason-Guöni Kolbeinsson 338 2. Magnús Þorsteinsson-Guðmundur Sigurbjörnsson Alia föstudaga fram að 13. desember verða spilaöir eins kvölds tvímenn- ingar en 20. desember verður jólaeinmenningur. Aðalsveitakeppni-félags- ins veröur núna spiluð á sunnudegi, nánar tiltekið 11. desember og verð- ur þá einnig spilað um silfurstig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.