Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Page 36
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
48
TORFÆRUVÉLHJÓL UNGLINGSINS.
SUZUKI TS50XK
TIL AFGREIÐSLU STRAX.
Verð Kr. 268.000. Stgr.
SUZUKI UMBODID HF.
SKÚTAHRAUN 16. SÍMI;91-651725.
Group TEKA AG
Heimilistæki
á kynningarverði
Nú er lag!
Endurnýjaðu gömlu tækin
með glæsilegum og vönduð-
um TEKA heimilistækjum,
meðan þessí hagstæðu kynn-
ingarverð bjóðast.
Innbyggingarofnar, efri
og neðri ofnar.
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 17.950
Helluborð
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál
með eða án takkaborðs.
Steyptar hellur
verð frá 11.900
Keramik hellur
verð frá 24.350
?• j .j
f Viftur og háfar
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 6.890
Stjórnborð
Litir: hvítt eða brúnt
Verð frá 3.250
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. kl. 10-16
Verslun fyrir alla
Sviðsljós
Richard Gere ævareiður:
Stallone er
drullusokkur
Richard Gere sakar Sylvester Stall-
one um að hafa margoft reynt að
koma sér í bólið hjá Cindy Crawford.
Sylvester Stallone er drullusokkur
af verstu gerð. Þetta er álit leikarans
Richard Gere og kappinn var ekkert
að liggja á skoðun sinni heldur tjáði
tröliinu þetta fyrir skemmstu í sam-
kvæmi hjá popparanum Elton John.
Þar voru einnig stödd Díana prins-
essa og George Michael ásamt fleir-
um. Gere var æfur af bræði en hann
var að saka Stallone um að reyna að
komast í bóhð hjá konu sinni, hinni
glæsilegu Cindy Crawford.
„Hvernig konur geta hugsað sér aö
vera meö þessum manni, það skil ég
ekki. Þetta er fullkominn druhu-
sokkur,“ sagði Gere síöar.
Gere hefur eins og kunnugt er sagt
skilið við Cindy sína núna og tekið
saman við 22 ára breska fyrirsætu
sem heitir Laura Bailey. Þau munu
vera að spóka sig í Taílandi um þess-
ar mundir.
Amold og
mamma í
veislu
Arnold Schwarzenegger sýndi það
og sannaði um helgina að stórsijörn-
ur eins og hann geta verið prýðilegir
synir mæðra sinna. Kappinn er
staddur í Evrópu þessa dagana til að
fylgja eftir nýjustu mynd sinni, Juni-
or, þar sem hann leikur á móti Danny
DeVito og lætur til leiðast að verða
óléttur fyrir tilstilli nýjustu tækni.
Arnold er austurrískur að uppruna,
eins og alhr vita, og hann brá sér því
til Vínarborgar að hitta móður sína,
hana Aurehu. Saman fóru þau svo í
hanastéisboð í forsetahöllinni hjá
Thomasi Klestil, forseta Austurrikis,
klædd í sitt fínasta púss.
Gloria Estefan eignaðist annað
barn sitt í vikunni.
Barnsfæðing á Flórída:
Nærri liðið
_£*• • •
mann
iu Estefan
Mikil sæla ríkir nú á heimili
poppsöngkonunnar Gloriu Este-
fan eftir að hún ól annað barn
sitt á sjúkrahúsi i Miami á
Flórída á mánudag. Dóttir var
það, þrettán merkur, og var
henni gefið nafnið Emily Marie.
Hjónin áttu fjórtán ára gamlan
son fyrir. Sá heitir Nayib.
Eiginmaður Gloriu heitir Em-
ilio og eins og nútímamanni sæm-
ir var hann viðstaddur fæðing-
una, gott betur, þvi hann kUppti
líka á naflastrenginn. Það gekk
þó ekki alveg þrautalaust fyrir
sig.
„Við þurftum að veita EmiUo
smáaðstoð þar sem við lá að Uði
yfir hann. Hann jaíhaöi sig þó
fljótt og gat klippt á naflastreng-
inn,“ sagði Nidia Iglesias, læknir-
inn sem tók á móti barninu.
Gloria Estefan er kúbversk aö
uppruna ognýtur húnþar afleiö-
andi mikiUa vinsælda meðal
landa sinna á Flórída og annarra
úr Rómönsku Ameríku.
Arnold Schwarzenegger og Aurelia mamma hans koma til veislu Austurrik-
isforseta á sunnudag.
Eric Clapton:
Martröð fyrir miðabraskara
Eric Clapton hélt nýlega tónleika
í BlúsUúsinu (House of Blues) í Los
Angeles og var að sjálfsögðu uppselt.
Það er að vísu ekki í frásögur fær-
andi þegar Clapton á í hlut en þessir
tónleikar voru um margt sérstakir.
Aðeins 650 manns var hleypt inn í
húsið og aðgöngumiðinn kostaði ekki
nema 1500 krónur.
Clapton vildi að sem best færi um
aðdáendur sína á þessum tónleikum
og að kvöldið yrði sérstök upplifun.
Þess vegna valdi hann að hálffylla
aðeins Blúshúsið, en það getur tekið
við rúmlega þúsund manns, og ákvað
að stilla miðaverði mjög í hóf. Enn
fremur var aðeins hægt að panta
miðana í gegnum síma og urðu menn
svo að koma á staðinn, framvísa skU-
ríkjum og borga fyrir miðann á
staðnum. Óöruvísi var ekki hægt að
nálgast miöana og voru spákaup-
menn og braskarar verulega súrir
því þeir fengu ekki einn einasta miða
til að braska með.
Tónleikarnir tókust mjög vel en
Clapton spilaði eingöngu blús, mest
efni af nýjustu plötu sinni.
Eric Clapton breytti nýlega út af vananum og lék fyrir aðeins 650 áhorfendur.
ematsmms*ranwwiMrrMTiiriaaMM .ul.öI .}A tnl xliðV’unauA é §oií>iol iu
Slúður um
Fergie til sölu
Sara Ferguson, hertogaynja af
Jórvík, sem í augum þorra
manna heitir ekkert annað en
Fergie, á nú á hættu að gómsætar
slúðursögur um hana og Johnny
Bryan tásugu kornist á prent.
Fyrrum þjónn, sem Fergie rak
í september, hefur boðið slúður-
blaði til sölu frásögn af ástaleikj-
um Fergie og Bryans í baðkerinu
á heimili hennar. Kauöi vill fa 13
milJjónir króna fyrir.
Jackson
gerir söngleik
Michael Jackson stórsöngvari
er um þessar mundir að vinna
að nútimasöngleik sem byggður
er á ieikritinu um Rómeó og Júl-
íu. Sá sem stendur í þessu með
honum er leikstjóri nokkur að
nafni Peter Stone og að sögn mið-
ar verkinu vel áfram. Af Michael
er annars það að frétta að lasleiki
hans í fyrra, sem varð til þess að
hann aflýsti fjölda tönleika, hefur
orðið kveikjan að fjölda lögsókna.
Þær nýjustu eru á hendur trygg-
ingafélögum.
KirkDouglas
heiðraður
Gamla leikarakempan og rit-
höfundurinn, Kirk Ðouglas, var
einn nokkurra jaxla úr menning-
ar- og skemmtanalífinu banda-
ríska sem voru heiðraðir viö
mikla seremóníu í Kennedy lista-
miðstöðinni í Washington, DC,
fyrir skömmu. Eiginkona hans
og synirnir þrír voru með honum.
Við það tækifæri sagði leikarinn
Christopher Plummer að Kirk
væri fyrsta andhetjan sem hefði
orðiö að stjörnu.
Myndir af
Nancy I Playboy
Nancy Sinatra, sem naut all-
nokkurra vinsælda hér á árum
áður, stefnir nú á frægðina enn á
ný og af því tilefni verða birtar
myndir af henni í karlaritinu
Playboy einhvern tirna næsta
vor. Nancy er oröin 54 ára. Ekki
kemur hún þó kviknakin frarn,
aðeins ber aö ofan. Myndirnar
ku vera svaka sexí. Þá sendir hún
von bráðar frá sér fyrstu plötuna
í tuttugu ár.
.siBm nsztnÝ b nBfnB2 lignsJ