Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 8
8
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Vísnaþáttur
Vísurúr
ýmsum
áttum
í þessum þætti mun ég fara út
og suður og hef ég ferð mína undir
Jökli. Sagt er að maður nokkur
hafi ætlað að yrkja þá hann var nár
en það hefur því miður reynst
mörgum góðum drengnum torvelt.
Víst er að bókmenntir heimsins
væru ríkari ef möguleiki þessi væri
fyrir hendi. Þá er piltur þessi var
kistulagður var vísa þessi kveðin
af Ólafi Björnssyni, skipasmið und-
ir Jökh:
Þó þér væri gáfan góð
gefin lífs á vegi,
aldrei muntu yrkja ljóð
upp frá þessum degi.
Margur peningamaðurinn hefur
gegnum tíðina orðið að þola hvers
kyns hnútur frá hendi þeirra sem
óviturlegar fara með fé sitt. Næsta
vísa er kveðin af Sigurði Árnasyni
frá Raufarhöfn og notar hann þar
gullskenninguna Rínarbál. Svo er
vísa þessi:
Einar fyrrnefndur sinnti lengi
innheimtustörfum hjá Olíuverslun
íslands. Fékk hann misjafnar mót-
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Rínarbáli safnar sér
syndum rjálar nærri,
Jón á Skálum öUum er
okursálum stærri.
Víst er það að öll eldumst við með
hveijum deginum og veldur þaö
jafnan sliti til líkama og sálar. Þó
að margir haldi fjöri sínu fram á
hinsta dag verða einnig ófáir veg-
móðir á göngu sinni. Svo kveður
Baldvin Halldórsson:
Ellin herðir átök sín
enda sérðu litinn.
Æviferða fótin mín
fara að verða shtin.
Jónas Pétursson Skúlasonar úr
Laugadal í Húnavatnssýslu orti
þessa vísu um konu eina sem þótti
málug mjög og var fyrir þær sakir
misvel hðin:
Skjól fær eigi skötnum hjá,
skæö því veldur tunga,
rólar vegi Ulum á
óláns greyiö Rósídá.
tökur er hann var við störf sín.
Einhver gæðingurinn hreytti þeim
ónotum að Einari að hann sinnti
ekki flækingum. Kvað þá Einar:
Mærðarskækill miður þarf
mig sem flæking kynna.
Eitt er að rækja ærlegt starf,
annað klæki að tvinna.
Um Gvend nokkurn kveður
Tryggvi Kvaran:
Þú ert góður, Gvendur minn,
þótt gáfur séu ei hjá þér.
Ég held ég þekkti hundssvipinn
þótt hausinn væri ekki á þér.
Gróa á Leiti er gömul vinkona
okkar íslenskra sveitamanna, jafnt
til sjávar og sveita og borg sem í
bæ, og ganga heilu dagblöðin í sam-
tímanum fyrir slefi og kjaftæði um
náungann. Finnst mörgum hinum
kristnari mönnum nóg um og lítill
gaumur gefinn því sem vel er gert.
Bragi frá Hoftúnum segir:
Nú er vissara að aka gætilega um
götur því bæði er skyggni misgott
og hálkan á ferð ef frýs. Kannski
myndi slysum og óhöppum hvers
konar fækka ef grundaðir yrðu
þankar Haralds Zóphaníassonar
frá Jaðri. Þessari spumingu varpar
hann fram um meðferð þessara
mála:
Sannleikur er seinn í för,
sjaldan nær ’ann hylh.
En lygin þýtur líkt og ör
landshornanna á milli.
Gestur Pálsson skáld var nokkuð
hálslangur og um það kvað Káinn
visu þessa:
Þá sem víða á vegum lands
valda lýðum bana.
Ætti að hýða andskotans
ökuníðingana?
Mörg hafa skáld á Fróni fæðst
við farkost þrengstan.
En þar ber Gestur höfuð hæst
og hálsinn lengstan.
Margt hefur okkur yngissveinum
orðiö til hrösunar bæði fyrr og síð-
ar og er oft hált undir fótum og
auðvelt að hrasa. Þetta heilræði
sendir Einar Þórðarson frá Skelja-
brekku
ungum phti:
Verða munu á vegi þín
vellir fagurgrónir,
látirðu hvorki víf né vín
villa þínar sjónir.
Að lokum er hér ein vísa eftir
Hallveigu Guðjónsdóttur frá Dratt-
halastöðum í Hjaltastaðaþinghá
þar sem hún fjallar um hnignun
sína:
Ég er bara eins og sprek
elds frá skari hrykki.
Er að fara aht mitt þrek
og engin varastykki.
63 27 00
- skila
árangrí
Matgæðingur vikunnar
lifrarlummur
ogdajmís
Petrún Sveinsdóttir, gangavörð-
ur í Brekkubæjarskóla á Akranesi,
kveðst ekki vera fyrir það að eyða
miklum tíma í matargerð en hefur
samt gaman af því að elda. „Ég fer
mjög sjaldan eftir uppskriftum
heldur nota það sem th er í eldhús-
inu í þaö og það skiptið. Þannig er
maður alltaf að finna upp á ein-
hveiju nýju en árangurinn er auð-
vitað misjafn. Það skemmtilegasta
sem ég geri er þó að baka,“ segir
Petrún.
Hún býður upp á lifrarlummur
sem nota má sem hamborgara,
fiskrétt og dajmís sem er uppá-
haldsísinn á heimihnu.
Lifrarlummur
1 lifur
1 laukur
7 sneiðar beikon
2 brauðsneiðar
2 egg
3 msk. kjötkraftsduft
l'Á tsk. salt
'A tsk. pipar
2 bollar haframjöl
'h bohi kartöflumjöl
V, bollar hveiti
Gott er að nota matvinnsluvél við
gerð þessa réttar. Lifrin og laukur-
inn eru fyrst hökkuð í vélinni. Síð-
an er beikoni, brauði, haframjöli
Petrún Sveinsdóttir.
og kryddi blandað saman við. Að
lokum er hveiti og kartöflumjöl
sett út og allt'hrært vel’ saman.
Sett með matskeið á pönnu og
steikt á báðum hliðum. Gott er aö
bera fram kartöflustöppu og hrá-
salat með lifrarlummunum. Þær
eru einnig góðar sem hamborgarar
í hamborgarabrauð.
Fiskur meó
rækjum og sveppum
1 soðið ýsuflak
100 g rækjur
1 líth dós sveppir
'A tsk. salt
pipar á hnífsoddi
4 msk. majones
1 tsk. karrí
2 dl hrísgijón
2 dl rjómi
rifinn ostur
Hrísgijónin eru soðin og síðan
sett í eldfast mót. Fiskurinn er
skorinn í litla bita og settur yfir
hrísgrjónin. Vökvinn af sveppun-
um er síaður frá og rækjum og
sveppum stráð yfir fiskinn. Majon-
es, karrí, sait og pipar, sveppasoð
og rjómi er hrært saman og hellt
yfir fiskinn. Rifnum osti stráð yfir.
Bakað við 180 gráður í um þaö bil
20 mínútur. Borið fram með soðn-
um kartöflum og salati.
Dajmís
3 egg
100 g sykur
'A 1 ijómi
1 poki dajmkúlur
Egg og sykur þeytt vel saman.
Rjóminn er þeyttur og settur var-
lega út í eggjahræruna. Að lokum
er dajmkúiunum blandað saman
við. Blandan er síðan sett í frysti.
Petrún skorar á Guðbjörgu Árna-
dóttur, aðstoðarskólastjóra í
Brekkubæjarskóla, að vera næsti
matgæðingur.
Hinhliöin
Langar mest
til að hitta
Vigdísi forseta
- segir Anna Sigurðardóttir, nýkjörin „ungfrú Fitness"
Anna Sigurðardóttir, sem sýnir á
sér hina hliðina að þessu sinni, var
nýlega kjörin „ungfrú Fitness" en
það er ný keppm sem hleypt hefur
verið af stokkunum. Anna hefur
æft þolfimi í fimm ár og er þrefald-
ur þolfimimeistari í paraflokki með
bróður sínum, Karh Sigurðssyni.
Hún er einnig þrefaldur freestyle-
meistari.
Anna skartar einnig tith frá dans-
keppnum því hún er fyrrverandi
íslandsmeistari í suðuramerískum
dönsum ásamt kærasta sínum,
Ingvari Þór Geirssyni.
Fullt nafn: Anna Sigurðardóttir.
Fæðingardagur og ár: 22. septemb-
er 1973.
Maki: Ingvar Þór Geirsson.
Börn: Engin.
Bifreið: Toyota Coroha ’94.
Starf: Þolfimheiöbeinandi hjá
Aerobic Sport og nemi í FB.
Laun: Misjöfn.
Áhugamál: Aö njóta lífsins.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottó? Nei.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að njóta samverustunda með
skemmthegu fólki og kærastanum
mínum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að læra undir próf eins og
Anna Sigurðardóttir.
ég er að gera núna.
Uppáhaldsmatur: Spagettí a la
mamma, það er með hakki og tóm-
atsósu.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og undan-
renna.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Magnús Scheving.
Uppáhaldstímarit: Hehsa og sport.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Pabbi.
Ertu hlynnt eða andvig ríkisstjórn-
inni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Vigdísi Finnbogadóttur, for-
seta íslands.
Uppáhaldsleikari: Sigurður Sigur-
jónsson.
Uppáhaldsleikkona: Goldie Hawn.
Uppáhaldssöngvari: Diddú.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng-
inn sérstakur.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna;
Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðar
kvikmyndir.
Uppáhaldsveitingahús: Hótel Holt.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Einhverja góða bók um heilsurækt.
Hver útvarpsrásanna fmnst þér
best? FM og Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Anna
Björg.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið. Eg er ekki
áskrifandi að Stöð 2. En annars
horfi ég mjög lítið á sjónvarp.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Frændi minn, Samúel Örn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Tungl-
iö.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ekkert
sérstakt.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að verða góö húsmóð-
ir og njóta lífsins.
Hvað gerðir þú í sumarfriinu? Ég
keppti í samkvæmisdönsum í Eng-
landi og svo var ég að vinna.