Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Kvikmyndir_________________________________________
Mel Gibson leikstýrir og leikur í Braveheart:
Fjórtándu aldar stríðsmaður
Fyrsta kvikmyndin sem Mel Gib-
son leikstýrði, Man Without a Face,
fékk góðar viðtökur og sýndi nýja
hlið á þessum vinsæla leikara. Man
Without a Face var frekar lítil kvik-
mynd þegar miðað er við þá stærð-
argráðu sem kvikmyndir Mels Gib-
sons eru yfirleitt af. En það er ekki
þessari hógværð fyrir að fara í hans
nýjustu kvikmynd, Braveheart, sem
hann er að vinna að þessa dagana.
Þetta er mannmörg epísk kvikmynd
sem byggð er á sönnum atburðum
sem áttu sér stað á fjórtándu öld í
Skotlandi. Mel Gibson hefur bæði
verið í Skotlandi við tökur á mynd-
inni og á írlandi og þar kvikmyndaði
hann fræga orrustu í sögu Englands,
orrustuna um Stirling.
Mel Gibson leikur William
Wallace, sem stjómaði borgaraleg-
um her gegn Englandskonungi í orr-
ustu þessari og hafði sigur, en síðar
var hann líflátinn. Það er fyrirtæki
Mels Gibsons, Icon Production, sem
framleiðir myndina. Auk Gibsons
leika í myndinni Sophie Marceau,
sem leikur Isabellu prinsessu, og er
þetta fyrsta kvikmyndin sem hún
leikur í þar sem enska er töluð,
Patrick McGoohan er leikur Játvarð
I, og Peter Hanley sem leikur son
hans. Þótt myndin sé látin gerast á
aöeins tólf mánuðum ná atburðirnir
Kvikmyndir
Hiimar Karlsson
Á stærri myndinni William Wallace
(Mel Gibson) innan um stríðsmenn
sína. Á minni myndinni er Mel Gib-
son enn i leikbúningnum, en í hlut-
verki leikstjórans.
í raunveruleikanum yfir mun lengri
tíma í lífi Williams Wahaces.
„Við höfum tekið okkur skáldaleyfi
á sumum stöðum en reynum einnig
að halda okkur við staðreyndir á
öðrum stöðum," segir Mel Gibson.
„Wahace var maður sem neitaði að
gefast upp og var ekki hægt að múta.
Hann bjó yfir miklu hugrekki en
hann var einnig grimmur. Þegar
hann hafði unnið orrustuna við Stirl-
ing húðfletti hann einn fangann og
bjó til belti úr skinninu. Önnur hhð
á honum var gáfumaöurinn sem tal-
aði iatínu og frönsku og var sérlega
trúaður."
Mel Gibson segir að þótt Bravehe-
art sé allt öðruvísi kvikmynd en A
Man Without a Face þá sé hann að
gera sömu hlutina, aðeins í öðru
umhverfi.
Jólasveinnin slær í gegn
- Foirest Gump og The lion King að komast yfir300 milljóna dollara múrinn
Enn einu sinni hefur Disney-kvik-
myndafyiirtækið hitt á rétta strengi
í bijósti almennings. Nýjasta kvik-
mynd þeirra, Jólasveinninn eða
Santa Claus, eins og hún heitir á
frummálinu er langvinsælasta kvik-
myndin í Bandaríkjunum þessar síö-
ustu vikur fyrir jól. Komu meira en
helmingi fleiri að sjá hana um síð-
ustu helgi, heldur en Star Trek Gen-
eration, sem vcir í öðru sæti. Þetta
skeður á sama tíma og mest sótta
teiknimynd allra tíma The Lion King
er ásamt Forrest Gump að kljúfa 300
milljóna dollara markið. Á meðan er
„hin jólamyndin" Kraftaverk á jólum
(Miracle on 34th Street), sem um
þessar mundir er sýnd í Saga-bíó,
aðeins að gera þaö rétt sæmilegt.
Santa Claus sem fjallar um einstæö-
an fóður, sem hefur verið valinn af
æðri máttarvöldum að vera jóla-
sveinninn. Hann kemst að því að
vera jólsveinn er ekki alltaf jafn auð-
velt og skemmtilegt og sögumar
segja. Lendir hann í ýmsum ævintýr-
um. Sá sem leikur aðalhlutverki heit-
ir Tim Allen, lítt þekktur hér á landi,
en vel þekktur vestanhafs. Þykir
hann fara snilldarlega með hlutverk-
ið og er honum þakkað þessar miklu
vinsældir.
The Lion King er meðal vinsælustu kvikmynda í Bandaríkjunum. Hún verður ein af jólamyndunum í Sam-bióum.
Hér á eftir fer listinn yfir vinsæl-
ustu kvikmyndimar í Bandaríkjun-
um um síðustu helgi. Samtals inn-
koma í dollurum fylgir með: 1. (1)' -
The Santa Claus (84.630.880), 2. (2)
Star Trek Generation (57.630,192), 3.
(4) Junior (20.313.750), 4. (3) Interviev
with the Vampire (91.018.110), 5. (5) A
Low Down Dirty Shame (17.856.147),
6. (6) The Lion King (285,973,976), 7.
(-) Trapped in Paradise (2.744,653), 8.
(10) The Professional (15.036.004), 9.
(8) Stargate (63.291.430), 10 (9) Miracle
on 34th Street (10.730.119).
Tværkvik-
myndirum
JacktheRipper
Þeir virðast seint ætla aö læra
í Hollywood. Það sýndi sig með
Kólumbus og Wyatt Earp að það
borgar sig ekki að gera tvær dýr-
ar kvikmyndir um sömu persón-
una samtímis. Þrátt fyrir þessar
staðreyndir lítur út fyrir kapp-
hlaup hjá New Line Cinema og
Touchstone um hvor verði á und-
an að gera kvikmynd um Jack the
Ripper. New Line keypti réttinn
af dagbókarbrotum sem nýlega
fundust og hefur ráðið Wilham
Friedkin til að leikstýra. Á meöan
var Touchstone að kaupa réttinn
á skáldsögu eftir Alan More, sem
hefur Jack the Ripper sem aöal-
persónu. Ekki hefur veriö til-
kynnt um framhaldið.
Fjöldinn aldrei
verið meiri
Nýlega var frá því skýrt að Bíó-
dagar yrðu framlag Islands til
óskarsverðlaunanna á næsta ári.
Aðeins fimm kvikmyndir munu
verða tilnefndar, en þaö eru 57
kvikmyndir sem munu keppa að
þessum fimm tilnefningum og
hafe þær aldrei verið fleiri. Þessi
fjöldi er meðal annars tilkominn
vegna falls austurblokkarinnar.
Meðal landa sem senda myndir í
fyrsta skipti í ár eru Makedóma,
Bosnía, Hvíta-Rússland, Guate-
mala, Kambódía og Tékkland.
Erfið fæðing
Langt er síðan Warner kynnti
Dead Reconing sem þeirra helsta
vopn í bardaganum um metaö-
sóknarmyndir. Heldur er þó farið
að fara um þá eftir að hver stór-
stjarnan af annarri hefur dregið
sig til baka. Síðast var það Syl-
vester StaUone sem hafði sam-
þykkt að leika í myndinni, en
hætti við. í fyrstu áttí aðaisögu-
hetjan aö vera kona, en þegar
bæði Jodié Foster og Geena Ðavis
höfðu dregið sig til baka var hlut-
verkinu breytt og Steven Seagal
lýstí yfir áhuga, en Iiann hætti
við og voru þá margir stórleikar-
ar orðaöir við myndina.
Kvikmyndaiðn-
aðurinn svikinn
Breski kvikmyndaiönaðurinn
hefur átt undir högg að sækja á
undanfórnum árum og nú er svo
komið að varla er gerð „bresk"
kvikmynd nema fjármagn komi
frá Bandaríkjunum. Leikstiórun-
um Alan Parker, Ken Loach og
Mike Leigh er farið aö blöskra
svo hvernig farið er með breska
kvikmyndagerð að þeir sendu frá
sér yfirlýsingu í vikunni, þar sem
þeir ásaka pólitíkusa fyrir að
vera að eyðileggja breskan kvik-
myndaiðnað og að þeir hafi svikið
breska kvikmyndagerðarmenn. í
viðtah sagði Parker: „Ég er ekk-
ert hrifinn af því að þurfa að fara
til Bandaríkjanna til að gera
kvikmyndir, en þetta er atvinna
mín og þar fæ ég tækifæri tíl að
stunda hana.“
Dýriingurinn
endurvakinn
Hver man ekki eftir sjónvarps-
þáttunum um Dýrlinginn. Það
var Roger Moore sem lék Simon
Templar áöur en hann fór í Jam-
es Bond hlutverkið. Fyrir nokkr-
um árum var reynt að endur-
vekja Dýrlinginn en það tókst
ekki vel í þaö skiptíð. Nú á aftur
á móti að gera kvikmynd af
stærstu gerð um hetjuna og hefur
Phhip Noyce veriö ráðinn leik-
stjóri, en ekki hefur'enn verið
ráðið í hlutverk Templars, en
aöstandendur myndarinnar gæla
við það að Hugh Grant faist til
að taka að sér hlutverkið.