Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Síða 22
22
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Sérstæð sakamál
Fjóröa hnífstungan
Jólin voru á næsta leiti og þaö
var friðsamt á Norður-írlandi þótt
hinir stríðandi aðilar þar hefðu
ekki lýst opinberlega yíir vopna-
hléi. Jólaundirbúningurinn stóð
sem hæst og í Belfast gekk fólk um
götur, skoðaði í glugga, keypti jóla-
gjafir handa ættingjum og vinum
og hélt heim með þær. Gestur í
borginni hefði getað haldið að
kaþólikkar og mótmælendur hefðu
endanlega lagt á hiiluna deilumar
sem lengi hafa einkennt samskipti
þessara hópa og valdið því að þeir
hafa ekki átt samleið á mörgum
sviðum þjóðlífsins. Jafnvel lög-
regluþjónar sáust brosa.
Andrúmsloft jólanna ríkti einnig
heima hjá Charles Curran dómara.
Hann var einn af yngstu og kunn-
ustu hæstaréttardómuram á Norð-
ur-írlandi og bjó með fjölskyldu
sinni í White Abfcey, útborg Bel-
fast. Föstudaginn sem sá atburður
gerðist sem sagan segir frá biðu
Curran-hjónin eftir því að dóttir
þeirra, hin nítján ára gamla Patri-
cia Curran, kæmi heim úr háskól-
anum í Belfast til þess að halda
jólin hátíðleg.
Leitaðtil
lögreglunnar
En Patricia kom ekki heim þetta
fostudagskvöld. Hún hafði hringt
og sagst koma um sexleytiö og þeg-
ar leið fram yfir þann tíma var
hringt í háskólann til að spyrjast
fyrir um hana. Skólasystkin sem
viö var rætt sögðu aö þau hefðu
síðast séð til hennar síðdegis og
hefði hún þá verið aö búa sig undir
að fara heim.
Enn leið nokkur tími. Þá ákváðu
Charles dómari og sonur hans,
Desmond, aö fara inn í borg til að
leita að Patriciu. Þá var tekið að
snjóa og þegar þeir óku út úr heim-
reiðinni varð þeim litið á runnana
fremst við hana. Þá varð þeim ljóst
að lengra þurftu þeir ekki að fara.
Við runnana lá Patricia. Bækurn-
ar hennar og tennisspaðinn lágu
við hliðina á henni og kápunni
hafði verið flett frá henni. Feðgarn-
ir stigu út úr bílnum og sáu þá
hvað gerst hafði. Patricia hafði ver-
ið stungin með hnífi mörgum sinn-
um og var látin.
Hamslaus morðingi
Curran eldri hringdi á lögregluna
og hún kom innan tíðar. A staðinn
komu rannsókarlögreglumenn en
sakir snjókomunnar varð litið úr
vettvangsrannsókn. Morðvopnið
fannst ekki og gat það þýtt að það
lægi einhvers staðar í snjó, hefði
morðingiiin á annað borð kastað
því en ekki tekið það með sér.
Réttarlæknir fékk likið til rann-
sóknar og skömmu síðar gat hann
skýrt frá því að Patricia hefði verið
stungin þrjátíu og sjö sinnum. Ein
af fyrstu hnífstungunum hafði lent
í hjartanu og bundið enda á líf
hennar. Engu aö síður hafði morð-
inginn haldið áfram að stinga hana,
nærri þrjátíu sinnum.
Lögreglan hóf þegar rannsókn
málsins og skömmu síðar var her-
inn beðinn að koma henni til að-
stoðar. Þá lá fyrir að morðvopnið
hefði verið blaðstuttur hnífur.
Hermdarverk
eða hefnd?
Eitt af því sem mönnum kom í
hug var að morðinginn væri úr
Lýðveldishemum, IRA, og því hefði
hið óopinbera vopnahlé um jólin
verið rofið. Önnur tiigáta var sú
að einhver þeirra sem Curran dóm-
ari hafði dæmt til fangelsisvistar
Patricia Curran.
Nokkrir af félögum lans i flughern-
um.
hefði framið morðið i hefndar-
skyni.
Talsmenn IRA lýstu yflr því að
samtökin bæru ekki ábyrgð á
morðinu. Var þeirri yfirlýsingu
trúað. Næst var því kannaö hvort
einhveijir af þeim sem Curran
dómari hafði sent í fangelsi hefði
fengið frelsið síðasta hálfa áriö. Svo
reyndist ekki vera. Mátti því með
nokkurri vissu segja að hvorug
hinna upphaflegu kenninga gæti
átt við rök að styðjast.
Þá létti það ekki rannsókn máls-
ins að Patricia hafði ekki átt unn-
usta og óvini hafði hún enga átt að
því er best var vitað. Hún haföi
þvert á móti veriö vinsæl stúlka
og vel liðin af skólasystkinum sín-
um.
Óvænturfundur
Nokkur tími leið nú án þess að
rannsóknarlögreglán í Belfast yrði
nokkurs vísari. Voru vonir manna
Morövopnsins leitað.
um aö takast myndi að upplýsa
morðið teknar að dofna og sumir
töldu jafnvel að morðinginn myndi
aldrei fmnast.
Dag nokkum fór Desmond, bróð-
ir Patriciu, á kaffihús. Þar hitti
hann fyrir úlviljun ungan flug-
mann, Ian Gordon, en hann hafði
oft komið í heimsókn til Curran-
fjölskyldunnar. Ian hafði áldrei
sýnt neinn áhuga á Patriciu en
Desmond spurði hann, eins og
hann hafði spurt svo marga fleiri,
hvort hann heföi nokkra hugmynd
um hver gæti hafa orðið henni að
bana.
„Þaö held ég ekki,“ svaraði Ian.
„Ég get hins vegar ekki skihð hvers
vegna morðinginn hélt áfram að
stinga hana. Fjórða stungan varð
henni að bana og því engin þörf á
að hafa þær fleiri.“
Desmond brá mikið. „Hvemig
veist þú,“ spurði hann Ian, „aö það
var fjórða stungan sem varð systur
minni að bana?“
Ian var undarlegur á svip, fólnaði
svolítið og leit flóttalega í kringum
sig en svaraði því svo til að hann
hlyti að hafa lesið það einhvers
staöar að fjóröa hnífstungan hefði
verið sú hanvæna.
Málið kemst
á nýtt stig
Desmond Curran var ljóst, um
leið og hann heyrði svar Ians, að
hann hlyti að vita meira um morðið
en hann vildi vera láta. Aldrei hafði
verið skýrt frá því opinberlega að
fjórða hnífstungan hefði bundið
enda á líf Patriciu. Einungis réttar-
læknirinn, yfirmenn rannsóknar-
lögreglunnar og Curran-fjölskyldan
höfðu fengið að vita það. Hafði þess-
verið sérstaklega gætt að frétta-
menn fengju ekkert um það aö
heyra enda getur þögn um einstök
atriði sakamála oft komið að góðum
notum við að upplýsa þau.
Desmond sagði föður sínum þeg-
ar í stað frá því sem hann hafði
orðið vísari. Faðirinn hafði síðan
samband við rannsóknarlögregl-
una. Hún fór á heimili Ians Gordon
þá um kvöldið og bað hann að gera
grein fyrir ferðum sínum fóstu-
dagskvöldið örlagaríka. Hann
• svaraði því til að þá hefði hann
verið í flugstöðinni og unnið að
jólaundirbúningi þar.
Morðvopnið finnst
Félagar Ians í herflugstöðinni
voru nú teknir til yfirheyrslu. Þeir
könnuðust við aö hann .heföi að-
stoðað þá við jólaundirbúninginn
þennan föstudag en sögðu að hann
hefði farið burt um fimmleytið og
ekki komið aftur fyrr en um sjö.
Það var einmitt á þeim tíma sem
morðið hafði verið framið.
Mikil leit hófst nú að morðvopn-
inu og að lokum fannst það í litlu
stöðuvatni nærri heimili Patriciu.
Það var pappírshnífur með þunnu
blaði. Yfirmaður á herflugvellinum
þekkti hann strax og sagði að um
sinn pappírshníf væri að ræða.
Hann hefði horfið af skrifborðinu
daginn áður en Patricia var myrt.
Sagði yfirmaðurinn að fyrir utan
sig hefði aðeins einn maður haft
aðgang að skrifstofunni, Ian Gor-
don.
Atburðurinn
á flugvellinum
Er hér var komið voru líkurnar
til þess að Ian væri sá seki orðnar
yfirgnæfandi. Þegar fréttin um það
spurðist út gaf sig fram starfsmað-
ur á flugvellinum í Belfast og sagði
aö kvöldið sem morðið var framið
hefði maður sem svaraöi til lýsing-
arinnar á Ian Gordon komið á flug-
völlinn. Hefði hann beðið um far
með flugvél til Englands þá um
kvöldið því hann þyrfti að ná skipi
frá Southampton í tæka tíð til að
get haldið jólin í Bandaríkjunum.
En maðurinn hafði ekki fengið
flugfar því öll sæti voru bókuð
þetta kvöld.
„Hann hljóp út úr flugstöðvar-
byggingunni, rétt eins og hann
væri með ljóta karlinn á hælun-
um,“ sagöi flugvallarstarfsmaður-
inn.
Nú var ljóst að rétt væri að taka
Ian Gordon til alvarlegrar yfir-
heyrslu og var það gert. Hann ját-
aði þá fljótlega.
Frásögn Ians
Ian Gordon var ákæröur fyrir
morðið á Patriciu Curran og kom
fyrir rétt. Þar skýrði hann frá því
að umræddan föstudag hefði hann
farið úr flugstöðinni og beðið eftir
Patriciu fyrir utan heimili hennar.
Þar hefði hann þrifið í hana og
beöið hana að gefa sér jólakoss.
Hún hefði brugðist reið við, rekið
honum löðrung og hrint honum frá
sér. í reiðikasti hefði hann þá tekið
fram pappírshnífinn og myrt hana.
Hann hefði síðan ýtt líkinu að
runnanum við heimreiðina, gengið
út að litla stöðuvatninu og kastað
hnífnum í það. Síðan hefði hann
flýtt sér til herflugstöðvarinnar og
haldið áfram að hjálpa félögum sín-
um við jólaundirhúninginn.
Síðar um kvöldið hefði hann svo
íhugað að flýja land en ekkert orð-
ið úr því. Hann hefði svo horfið frá
hugmyndinni um að fara úr landi.
Ian Gordon var fundinn sekur
um morð án þess að'því tengdust
nokkrar mildandi aðstæður. Hann
fékk lífstíðardóm og því getur lang-
ur tími liðiö áður en hann getur
sótt um reynslulausn.
/