Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Side 31
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
31
Svidsljós
Sagan á bak við kvikmyndina Disclosure:
Varð fyrir kynferðislegri
áreitni kvenkyns yfirmanns
Hún hengdi skilti með oröunum Ón-
áöiö ekki á skrifstofudyr hans, lokaöi
á eftir sér og sneri lyklinum í
skránni. Hún settist í kjöltu hans og
hneppti frá skyrtunni hans, kyssti
hann á bringuna og losaði um beltiö
hans. Hún var yfirmaður hans.
Kvikmyndahúsagestir í Bandaríkj-
unum sáu Demi Moore og Michael
Douglas í þessari senu í kvikmynd-
inni Disclosure sem veriö var að
frumsýna núna í vikunni. Víst þykir
að kvikmyndin muni vekja umtal þar
sem það er karlmaðurinn sem verður
fyrir kynferðislegri áreitni á vinnu-
stað. Kvikmyndin er gerð eftir bók
hins vinsæla höfundar Michaels
Crichtons. Þykir mörgum sem sumt
í bókinni minni á það sem kom fyrir
Mexíkanann Sabino Gutierrez í
raunveruleikanum.
Milljón dollarar
í skaðabætur
„Þetta var martröð," segir Sabino,
34 ára gamall deildarstjóri í Los
Angeles sem kærði kvenkyns yfir-
mann sinn fyrir kynferðislega
áreitni og hlaut yflr 1 milljón dollara
í skaðabætur.
Það sem kviðdómur, eiginkona
Sabinos, fjölskylda og vinir þurftu
að taka afstöðu til var hvort hægt
væri að fallast á að það sé staðreynd
að karlmaður láti konu neyða sig til
ástaratlota gegn vilja sínum.
„Það virðist erfitt að trúa þessu en
þetta er ekki bara mögulegt heldur
er þetta skelfileg reynsla," segir Sab-
ino í blaðaviðtali. „Ég hef grátið mik-
ið vegna þessa og verið niðurbrot-
inn.“
Ekki nógu
mikið karlmenni
Vandræðin byrjuðu skömmu eftir
aö Sabino hóf störf hjá fyrirtækinu
Cal Spa í Los Angeles. Hann fékk
deildarstjórastöðu í fyrirtækinu þar
sem Maria Martinez, sem nú er fer-
tug, var fjármálastjóri.
Hún er dökkhærð, með brún augu
og aðlaðandi en hafði ekki áhuga á
nema einu. Sabino segist aldrei hafa
tekið jafn erfiða ákvörðun og þegar
hann ákvað að kæra Mariu. „Ég var
gagnrýndur. Fólki þótti ég ekki nógu
mikið karlmenni. Hvers vegna lét ég
konu stjóma mér? Hvers vegna lagð-
ist ég ekki og naut þess? Það virðist
sem það sé ómögulegt að þetta geti
komið fyrir karlmenn en það er það
ekki.“
Sabino telur að vandamálið sé al-
gengara en talið er. „Ég er viss um
að það eru þúsundir karla sem verða
fyrir kynferðislegri áreitni á hveij-
um degi. Þeir eru of feimnir við að
kvarta af ótta við að þeim verði ekki
Sabino Gutierrez kærði kvenkyns
yfirmann sinn vegna kynferðislegrar
áreitni.
trúað eða við að verða að athlægi.
Þetta hljómar kannski eins og brand-
ari að karlmaður skuli kvarta yfir
því að kona vilji hafa kynmök við
hann. En þetta er enginn brandari.
Það er ekkert fyndið við það að láta
stjórna sér. Þetta var alls ekkert róm-
antiskt. Þetta var bara niðurlægj-
andi. Það má vera að Maria þyki
aðlaðandi en mér fannst það ekki og
mig langaði ekki í hana.“
Oft andvaka
Það hefur vakið furðu að þrátt fyr-
ir þetta starfaði Sabino í sjö ár hjá
fyrirtækinu áður en hann sagði upp.
Hann segir að þær stundir sem Mar-
ia hafi ekki verið að ónáða hann
hafi hann í raun haft ánægju af starfi
sínu. „Ég var með góð laun, 25 þús-
und dollara á ári, og ég gat ekki feng-
ið sambærilega stöðu annars staðar.
Ég lét mig því hafa þetta til aö halda
vinnunni. En ég var oft andvaka á
þessum ámm. Eitt sinn vaknaði ég í
svo slæmu ástandi að konan mín ók
mér á neyðarmóttöku sjúkrahúss um
miðja nótt. Ég var í þunglyndiskasti,
með verk fyrir brjóstinu og gat varla
andað. En þetta var allt sálrænt. Ég
þjáist enn vegna þessa.“
Sabino þykir alls ekki líta út fyrir
að vera viðrini eða mömmudrengur
heldur stór og stæöilegur.
Hótanir
Hann segir óþægindin hafa byrjað
tveimur vikum eftir að hann hóf störf
hjá fyrirtækinu. „Hún lét falla róm-
antísk orð í minn garð. Síðan átti hún
það til að koma inn til mín, faðma
mig og kyssa mig allt að þrisvar til
fjórum sinnum á dag. Hún lokaði þá
dyrunum og setti upp skilti sem á
stóð Ónáðið ekki. Hún settist í kjöltu
mína og ræddi um vandamál sín
heima fyrir, skilnað sinn og tilfinn-
ingar sínar í minn garð. Eg hvatti
Michael Douglas og Demi Moore i kvikmyndinni Disclosure þar sem það
er konan sem áreitir karlinn kynferðislega.
Maria Martinez neitar öllum sakar-
giftum.
hana aldrei né svaraði henni. Eg
vonaöi að þetta liði hjá en hún var
búin aö ákveða að hún væri ástfang-
in af mér. Hún vildi meira að segja
giftast mér.“
Þegar Sabino mótmælti fékk hann
stundum frið í nokkrar vikur. „En
þá hótaði hún mér í staðinn, sagði
að ég leysti störf mín ekki nógu vel
af hendi eða að aðrir gerðu hlutina
betur. Síðan kom hún og vildi atlot.
Ég var hræddur af því að hún var
yfirmaður minn. Ég gat ekki farið til
æðstu stjórnenda þar sem ég taldi
að þeir myndu ekki trúa mér.“
Aðkasteftir
brúðkaupið
Sabino kveöst aðeins einu sinni
hafa haft kynmök viö Mariu en
áreitni hennar hafi haldið áfram eftir
það. „Ég varö að fara dult með einka-
líf mitt. Ég gat ekki sagt neinum að
ég ætti kærustu því að ef Maria hefði
komist að því hefði ég lent í vandræð-
um. Ef hún sá mig meö annarri
stúlku varð hún brjáluð. Ég skildi
ekki hegðun hennar. Ef ég reyndi
árangurslaust við stúlku í vikutíma
gafst ég upp en því var ekki þannig
varið með Mariu.“
Þegar Sabino kvæntist loks kær-
ustunni sinni varð hann fyrir miklu
aðkasti af hendi Mariu. „Fyrstu þrjár
vikurnar snerti hún mig ekki heldur
svívirti mig og hótaði að reka mig.
Síðan byrjaði kynferðisleg áreitni á
ný. Ég sagði konunni minni að ég
ætti við vanda að glíma á vinnu-
staðnum en ég fékk mig ekki til að
segja henni hvers konar. Sumt sagði
ég henni ekki fyrr en eftir réttarhöld-
in. Stundum baðst Maria afsökunar
á hegðun sinni en sagðist í leiðinni
elska mig. Við önnur tilfelli kvaðst
hún ekki vita hvað ég væri að tala
um og hótaði mér.“
Kveðst saklaus
Maria kveðst saklaus og segir sögu
Sabinos uppspuna frá rótum. Hún
segir að hann hafi fundið upp á þessu
þar sem það hafi verið farið aö halla
undan fæti hjá honum í starfinu. Auk
þess hafi það verið hann sem hafi
viljað hafa kynmök við hana en ekki
öfugt. Kviðdómur trúði hins vegar
frásögn Sabinos og hann hlaut í fyrra
yfir 1 milljón dollara í skaðabætur
vegna tekjumissis og óþæginda. Mál-
inu hefur verið áfrýjað.
Sabino hefur lesið bókina Disclos-
ure og kveðst kannast við ýmislegt.
Hann segir að þó að það hefði veriö
Demi Moore sjálf sem hefði áreitt
hann hefði hann kært hana. Og unn-
ið máhð.
UOM^
Ljomancli jólaleikur
VINNINGSHAFAR FÖSTUDAGINN
9. DESEMBER 1994
KITCHHNAID HRÆRIVHl
Guðbjörg Vallaðsdóttir, Kambaseli 79, 109 Reykjavík
HHDHUSVOGIR
Maríanna Sigurðardóttir, Höfðavegi 41, 900 Vestmeyjar
Oddný Bjarnadóttir, Breiðvangi 11, 200 Kópavogur
SODASTREAM TÆKI
Guðmundur Gunnarsson, Hvassaleiti 22, 103 Reykjavik
Lára Haildórsdóttir, Ásbúðartröð 3, 220 Hafnarf.
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir, Heiðarbraut 49, 300 Akranes
24 HITRAR AF SAFA AD EIGIN VAl.l
María Svava Andrésdóttir, Hæðarenda, Grímsnesi
Kolbrún Guðmundsdóttir, Furugrund 44, 300 Akranes
Ragnar Heiðar Hauksson, Ásvegi 25, 760 Breiðdalsvík
Ásdís Jóhannsdóttir Koltröð 17, 700 Egilsstaðir
Kristín Hafsteinsdóttir, Suðurhólum 30, 111 Reykjavik
Ágústa Júníusdóttir, Árskógum 17, 700 Egilsstaðir
Sigríður Sigurðardóttir, Lindargötu 57/412, 101 Reykjavik
Sigurbjörg Þórmundsdóttir, Logafold 32, 112 Reykjavík
Vera Siemsen, Lágholti 9, 270 Mosfellsbær
Dagmar S. Guðmundsdóttir, Réttarbakka 7,109 Reykjavík
VINNINGA MÁ VITJA í SÓI. HF„ hVF.RHOI.Tl 19-21, SÍMI 626.200
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu 52, Eskifirði,
sem hér segir, á eftirfarandi eign:
Hamarsgata 25, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Jón B. Kárason, gerðarbeiðendur
Lífeyrissjóður Austurlands og íslandsbanki hf„ 14. desember 1994 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI
Auglýsing um starfslaun listamanna árið 1995
Starfslaun handa listamönnum
Hér meö eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa listamönnum árið 1995, í
samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991. Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listámannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16.00 mánudaginn
16. janúar 1995. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna" og tilgreina
þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneyt-
inu.
Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin
til umfjöllunar að hann hafi skilað stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í sam-
ræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991.
Reykjavík, 7. nóvember 1994
Stjórn listamannalauna